Tíminn - 20.09.1989, Síða 15

Tíminn - 20.09.1989, Síða 15
Miðvikudagur 20. .september 1989 ‘Tírfíinn' 15 111111111111 ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllll llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIU^ :■! 7 - , , ..■■■ . , ■: ^ : ',V! Knattspyrna 1. deild: Pétur gerði eina markið Leikur Fram og Víkings á Laugardalsvelli á laugardag hafði ekki mikla þýðingu fyrir hvorugt liðið. Að vísu áttu Framarar veika von um Ís- landsmeistaratitilinn og Vík- ingar gátu fræðilega séð fallið í 2. deild. Pétur Ormslev gerði út unr leikinn þegar eftir 7 mín. leik. Hann skoraði þá glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu. Knötturinn hafnaði efst í mark- horninu á Víkingsmarkinu, óverjandi fyrir Birki markvörð. Bæði lið áttu hættuleg færi áður en yfir lauk, þó sérstak- lega Framarar, en inn vildi knötturinn ekki. Framarar urðu því í 3. sæti 1. deildar með 32 stig eins og FH, en markatala þeirra var lakari. Víkingar luku keppni með 17 stig eins og Fylkir, en marka- tala Víkinga var miklum mun betri en Árbæjarliðsins. BL KR-ingar sáu rautt KR-ingar höfnuðu í 4. sæti 1. deildar, en að því marki höfðu þeir stefnt fyrir mótið. Í lokaleik sínum í deildinni á laugardag urðu KR-ingar að sætta sig við ósigur gegn Vals- mönnum, sem gerðu eina mark leiksins. KR-ingar léku einum leik- manni færri lengst af á laugar- dag, því Heimir Guðjónsson fékk að líta rauða spjaldið nokkru fyrir hlé, fyrir grófan leik. Valsmönnum tókst að herja fram sigur í síðari hálfleik gegn 10 KR-ingum. Baldur Bragason skoraði sigurmarkið og Valsmenn náðu 5. sæti deildarinnar. BL Þórsarar héldu velli Síðastliðinn laugardagur var sannkallaður gleðidagur a Ak- ureyri. Ekki nóg með að KA- menn tryggðu sér íslandsmeist- aratitilinn, heldur björguðu Þórsarar sér frá falli í 2. deild, nokkuð sem ekki var talið líklegt á vordögum. Vítaspyrnur hafa verið Ak- ureyrarliðinu drjúgar í sumar og þeir fengu einmitt eina slíka í lok fyrri hálfleiks gegn Skaga- mönnum á laugardag, en fyrri hálfleikur hafði verið fremur tíðindalítill. Júlíus Tryggva- son, vítaskytta þeirra Þórsara, framkvæmdi spyrnuna, en Ólafur Gottskáíksson hélt uppá landsliðssæti sitt með því að verja frá Júlíusi. Ólafur kom þó engum vörn- um við í upphafi sfðari hálfleiks er Sævar Árnason skoraði eftir hornspyrnu. Júgóslavinn í framlínu Þórs Bojan Tanevski, gerði út um leikinn skömmu fyrir leikslok, en hann komst þá einn innfyrir vörn Skaga- manna. Síðasta orðið í leiknum áttu þó gestirnir. Sigursteinn Gíslason lagaði stöðuna í 2-1 á lokasekúndum leiksins, eftir aukaspyrnu Heimis Guð- mundssonar. Skagamenn urðu því í 6. sæti í 1. deild í ár sem er slakasti árangur liðsins í 22 ár, eða allt frá því sama sæti sendi ÍA í 2. deild 1968. Þórsarar höfnuðu í 7. sæti og mega vel við una. Margir voru þeir sem reiknuðu með að fall í 2. deild væri óumflýjanleg staðreynd. BL Handknattleikur: Stórsigur á Ungverjum Héðinn Gilsson fór á kostum og skoraði 11 mörk Islenska landsliöið í handknattlcik riðli heimsmeistaramótsins á Spáni í skipað leikmönnum 21 árs og yngri gærkvöld. Lokatölur leiksins voru vann stórsigur á Ungverjum í milli- 30-21, eftir að ísland hafði haft 4 „^mörk yfir í hálfleik. Héðinn Gilsson fór á kostum í gærkvöld og skoraði 11 mörk. Með þessum sigri er íslenska iiðið komið með 4 stig í milliriðlinum. í kvöld Knattspyrna: Breytingar á landsliðinu Þrír leikmenn, sem valdir voru í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Tyrkjum á morgun, tilkynntu forföll og aðrir leikmenn voru valdir í þeirra stað. Ágúst Már Jónsson og Pétur Arn- þórsson eru meiddir og Viðar Þor- kelsson er upptekinn vegna vinnu sinnar. í stað þessara leikmanna voru þeir Gunnar Oddsson KR, Einar Páll Tómasson Val og Harald- ur Ingólfsson ÍA valdir í hópinn. Þeir Erlingur Kristjánsson KA og Ómar Torfason Fram gáfu ekki kost á sér í hópinn, en haft var samband við þá frá landsliðsnefnd á sunnu- dag. Leikurinn gegn Tyrkjum hefst á Laugardalsvelli í dag kl. 17.30, en forsala aðgöngumiða er á vellinum frá kl. 10.00. BL Frjálsar íþróttir: Einar vann í Japan Einar Vilhjálmsson spjótkastari náði mjög góðum árangri um helg- ina, er hann tók þátt alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í Tókýó í Japan. Einar sigraði í mótinu með risa- k'asti sem mældist 83,86 m. Sigurður Einarsson náði sér ekki á strik í mótinu, en röð efstu manna varð þessi: 1. Einar Vilhjálmsson 83,86m 2. Victor ZautsecSovétríkj. 82,68m 3. Kazuhiro Mizoguchi Japan 81,30m 4. KtausTaffehneierV-Þýskal. 73,58m 5. Viktor Jevslukov Sovétr. 73,54m 6. Sigurður Einarsson 71,94m BL mætir íslenska liðið Svíum og á fimmtudag verður leikið gegn Pól- verjum í síðasta leik milliriðlanna. Um næstu helgi verður síðan leikið um sæti í keppninni. Á sunnudag unnu íslendingar Tékka 25-24 í riðlakeppninni. Þá skoraði Héðinn mest eða 9, etU' Konráð Olavson kom næsturanéðT mörk. Sigurinn á Tékkum kom ís- lenska liðintM'milíiriðilinn, hafnaði í 2. sæti í riðlinum á eftir Spánverj- um. V-Þjóðverjar komust einnig í milliriðilinn með sigri á Spánverjum á sunnudag. BL Knattspyrna 3. deild: Siglfirðingar meistarar KS vann Grindvíkinga í síðari úrslitalcik 3. deildar í knattspyrnu á Siglufirði á laugardag. Lokatölur voru 3-1, en fyrri leiknum í Grinda- vík lauk með 2-2 jafntefii. Það voru þeir Hugi Sævarsson 2 og Óli Agnarsson sem skoruðu mörk KS. Mark Grindvíkinga gerði Sigur- óli Kristjánsson. BL Knattspyrna 1. deild: Fylkismenn voru mun ákveðnari ■ Með því að sigra gegn Fylki á laugardag hefðu FH-ingar getað tryggt sér sinn fyrsta íslandsmeist- aratitil í 1. deild. Fylkismenn gátu bjargað sér frá falli með sigri í leiknum og því var hart barist í 90 mín. Það tók FH-inga ekki nema 2 mín. að skora hjá Fylkismönnum. Guðmundur Valur Sigurðsson var þar að verki beint úr aukaspyrnu og titillinn blasti við Hafnfirðingum. Á 16. mín. náðu Fylkismenn að jafna. Baldur Bjarnason vann knött- inn á hægri kantinum og sendi hann síðan yfir til vinstri á Örn Valdimars- son. Órn skoraði með góðu skoti í bláhornið á marki FH, 1-1. FH-ingar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik, en þegar líða tók á síðari hálfleikinn komu Fylkismenn æ meira inní leikinn. Á 80. mín. gerði Kristinn Tómasson út um leik- inn er hann skoraði sérlega glæsilegt mark, en hann var þá nýkominn inná sem varamaður. Hilmar Sig- hvatsson gaf inná vítateiginn á Krist- in sem vippaði knettinum yfir sig og lék um leið á varnarmann FH. Eftirleikurinn var auðveldur og Kristinn skoraði af öryggi af stuttu FH-ingar misstu af titlinum færi. Frábært mark hjá þessum unga leikmanni. Því miður dugði þessi sigur Fylk- ismönnum ekki til bjargar og þeir leika í 2. deild að ári. Þar verður dvölin áreiðanlega ekki löng, liðið leikur skemmtilega knattspyrnu og á framtíðina fyrir sér. Sárt hlýtur að vera fyrir FH-inga að sjá á eftir íslandsmeistaratitlinum á þennan hátt. En leikmennirnir stóðust ekki pressuna þegar mest á reyndi, en árangur liðsins í sumar er samt glæsilegur og betri en nokkurn óraði fyrir. Annað sætið tryggir liðinu sæti í Evrópukeppni á næsta ári, en FH hefur ekki tekið þátt í slíkri keppni áður. „Það var mjög sárt að tapa þessum leik, en við verður að reyna að gera betur næst. Við erum búnir að ná Evrópusæti og það er meira en reiknað var með af okkur. Það var erfitt að leika gegn Fylki í síðasta leik, betra hefði verið að eiga t.d. íA eftir í síðasta leik,“ sagði Halldór Halldórsson fyrirliði FH, eftir leik- inn. „Það er rosalegt að spila góðan leik og sigra, en hengja samt haus eftir leikinn. Ég er sáttur við leik minna manna í dag, við töpuðum þessu í síðustu leikjum fyrir þennan leik. Ég var hræddur um að Þórsur- um tækist að bjarga sér,“ sagði Marteinn Geirsson þjálfari Fylkis eftir leikinn. „Það er ótrúlegt að falla með 17 stig á markahlutfalli. Ég tel að Þórsarar hafi verið með léleg- asta liðið í deildinni og ég skil heldur ekki hvernig ÍA hefur fengið jafn mörg stig og raun ber vitni. Það er alveg klárt að ég held ekki áfram með Fylkisliðið. Ég er búinn að vera með liðið í 4 ár og sá tími hefur verið mjög skemmtilegur. Ég mun alltaf hafa taugar til þess félags um ókomna framtíð. Það eru margir efnilegir strákar í Fylki, yngri flokkarnir eru til fyrir- myndar og framtíðin er björt,“ sagði Marteinn að lokum. BL Knattspyrna 2. deild: ÍBV á ný í 1. deild Vestmannaeyingar endur- heimtu á laugardaginn sæti sitt ■ 1. deild, eftir að hafa leikið í 3 ár í 2. deild. Það var 2-1 sigur gegn Breiðabliksmönnum í Kópavogi sem gerði gæfumun- inn. Fyrri hálfleikur var marka*' laus, en Tómas Ingi Tómásson náði forystunni fyrir Éyjamenn í síðari hálfléik. Jón Þórir Jóns- j>pn var ekki lengi að jafna metin, en þeir Tómas og Jón Þórir gerðu báðir 12 mörk í deildinni í sumar. Skömmu fyrir leikslok gerði Leifur Geir Hafsteinsson sigurmarkið, markið sem tryggði liðinu 1. deildarsætið. BL Sigur Víöis dugði skammt Víðismenn úr Garði misstu af sæti í 1. deild með sigri Eyjamanna. Víðismenn gerðu þó sitt til þess að draumurinn mætti verða að veruleika. Víðismenn báru sigurorð af Selfyssingum 2-1 á Selfossi með mörkum Grétars Einarssonar. Selfyssingar höfðu þó náð for- ystunni í leiknum, en þar var Einar Einarsson að verki. Stórsigur Stjörnunnar Stjarnan úr Garðabæ vann stórsigur gegn ÍR í síðasta leik sínum í 2. deild í Garðabæ á laugardag. Lokatölur voru 4-0, en sigurinn hefði allt eins getað orðið enn stærri. Mörk Garðbæinga gerðu þeir Heimir Erlingsson, Árni Sveinsson, Birgir Sigfússon og Valdimar Kristófersson. Eyjólfur markakóngur Tindastóll vann 3-0 sigur gegn Völsungum á Húsavík á laugardag. Þar með féll Húsa- víkurliðið í 3. deild. Eyjólfur Sverrisson varð ntarkakóngur í 2. deildinni í sumar með 14 mörk. Hann gerði eitt marka liðs síns á laugardag, en þeir Guðbrandur Guðbrandsson og Guðbjartur Haraldsson komu knettinum einnig í mark Húsvíkinga. Leik Einherja og Leifturs varfrestað. Einherjarerufalln- ir í 3. deild, takist þeim ekki að sigra Leiftur með 12 marka mun í þessum eina leik sem ólokið er á fslandsmótinu. Takist þeim það falla Leifturs- íslenskar getraunir: Fjórir með tólf - fá hver rúmar 100 þúsund kr. í vinning Fjórir heppnir tipparar voru með 3.475 kr. í vinning. 12 leiki rétta í 37. leikviku getrauna Úrslit leikjanna 12 urðu þessi: um síðustu helgi. Þar að auki voru Valur-KR ..............1-0 1 42 með 11 rétta. Kefiavík-KA ..........0-2 2 Tveir hinna heppnu voruafhöfuð- FH-Fylkir ............1-2 2 borgarsvæðinu og tveir utan af landi, Fram-Víkingur....1-0 1 nánar tiltekið frá Ólafsfirði og Seyð- Þór-Akranes .......2-1 1 isfirði. Allir voru hinir heppnu einnig Charlton-Everton .0-1 2 með nokkrar raðir með 11 rétta og Coventry-Luton ........1-0 1 fá þeir því mismikið í sinn hlut. Þeir Man. United.-Millwall .... 5-1 1 eru þó allir rúmlega 100 þúsund Nott. Forest-Arsenal .1-2 2 krónum ríkari en fyrir helgina. QPR-Derby.........0-12 Alls voru 486.547 kr. í pottinum. Sheffield Wed.-Aston Villa . 1-0 1 11. vinningvoru 340.592semskiptist Tottenham-Chelsea.1-4 2 í fernt og 42 raðir komu fram með BL 11 rétta. Fyrir hverja röð greiðast Laugardagur kl.13:55 38. LEIKVIKA* 23. sept. 1989 m m 2 Leikur 1 Arsenal - Charlton Leikur 2 Aston Villa - Q.P.R. Leikur 3 Chelsea - Coventry Leikur 4 C. Palace - Nott. For. Leikur 5 Derby - Southampton Leikur 6 Everton - Liverpool Leikur 7 Luton - Wimbledon Leikur 8 Man. City - Man. Utd. Leikur 9 Norwich - Tottenham Leikur 10 Bournemouth- Blackburn Leikur11 Oxford - Ipswich Leikur 12 West Ham - Watford Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN S. 991002 Munið hópleikinn I -

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.