Tíminn - 12.10.1989, Qupperneq 1

Tíminn - 12.10.1989, Qupperneq 1
HMHMBj í þjóðhagsáætlun kemur fram að þrátt fyrir langt samdráttarskeið hefur tekist að halda niðri verðbólgu, minnka viðskiptahalla og skapa jafnvægi í peningamálum: Nýju fjárlögin greypt í stein Ekki hrært í fjárlögum vegna kjarasamninga, segir Ólafur Ragnar Með fjárlögum og því fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í gær hefur verið lagður sá almenni rammi sem atvinnulíf og einstaklingar þurfa að laga sig að á næsta ári, að sögn fjármálaráð- herra. Ólafur Ragnar segir ennfremur að nú standi menn á tímamótum þar sem tíma millifærslu sé lokið og stjórnvöld hafi skapað þau almennu efnahagsskilyrði sem launþegar og atvinnulíf þurfi að laga sig að. í þjóðhags- áætlun, sem lögð var fram í gær kemur fram að verðbólga hefur verið hamin, viðskiptahalli hefur minnkað og jafnvægi er að skapast í peningamálum, þrátt fyrir langvinnan samdrátt. Fjármálaráðherra segir að ekki komi til greina að ríkið fari út fyrir ramma fjárlaga til að leysa pólitísk vandamál líðandi stundar, hvort sem það er til að liðka fyrir kjarasamning- um eða eitthvað annað. Fjárlagafrumvarpið er hornsteinn efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar segir hann og þeim hornsteini verður ekki haggað. Fjárlögin verða greypt í þennan horn- stein. • Blaðsíða 2 og Opnan Byggingasjóöur ríkisins hefur ekki lánað nema helming þess sem áætlað var að hann gerði: Hvar eru 4,4 milljarðar? Ef skoðaðar eru endurskoðaðar tölur fjárlaga um áætlaðar lánveitingar Byggingasjóðs ríkisins fyrir árið í ár kemur í Ijós að gert er ráð fyrir að sjóðurinn láni rúmlega 8,5 milljarða króna. Heildarútlán sjóðsins fram til loka september námu hins vegar ekki nema rúmlega 4,1 milljarði og starfsfólk Húsnæðisstofnunar segir ólíklegt að stofnuninni takist að koma út þeim 4,4 milljörðum sem þarna munar á þeim mánuðum sem eftir eru ársins. Með hliðsjón af sjóðaeign Húsnæðisstofnun- ar í Seðlabanka, sem mikið var rætt um í sumar, spyrja menn því nú: Hvað verður um 4,4 milljarða króna? • Blaðsíða 5

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.