Tíminn - 12.10.1989, Side 9
Fimmtudagur 12. október 1989
Tíminn 9
ÚTLÖND
Ólgan í Azerbaijan eykst enn:
Hermenn fella mann
í Nagomo-Karabakh
Sovéskir hermenn eru nú á stjái víðs vegar um Nagorno-Karabak og reyndar
annars staðar í Azerbaijan til að halda stríðandi fylkingum Armena og Azera
í sundur. Hermenn lentu í átökum við fólk í Nagomo-Karabakh í gær og
felldu þeir einn mann.
MORDALDA Á SRI
LANKAí BYRJUN
FRIÐARVIDRÆÐNA
FRETTAYFIRLIT
AUSTUR-BERLÍN
Austurþýsk stjórnvöld afþökk-
uðu boð stjórnvalda í Vestur-
Þýskaland um efnahagsað-
stoð gegn stjórnmálaumbótum
I Austur-Þýskalandi. Þá gerðist
það að austurþýsk stjórnvöld
urðu að hafna óskum fjölda
ítalskra verkamanna um at-
vinnu í Austur-Þýskalandi þar
sem ekki eru til samningar milli
Austur-Þýskalands og (talíu
um slíka flutninga vinnuafls.
Italarnir vildu ganga inn í störf
þeirra er flúið hafa Austur-
Þýskaland, en skortur er á
vinnuafli þar.
VARSJÁ - Pólverjar hafa
hætt að senda þá Austur-Þjóð-
verja sem komast til Póllands
ólöglega aftur til Austur-Þýska-
lands. Fjöldi Austur-Þjóðverja
freistar þess nú að komast í
sendiráð Vestur-Þýskalands i
Varsjá og þaðan til Vestur-
Þýskalands. Fimm hundruð
manns er nú í sendiráðinu i
Varsjá.
BELFAST - Lögreglan kom
upp um flóttaáætlun 30 írskra
þjóðernissinna sem eru í fang-
elsi. Lögrealan fann sprengi-
efni ( skósólum fanganna, en
þeir ætluðu að sprengja sér
leið úr fangelsinu.
TAIF - Viðræður líbanskra
múslíma og kristinna manna
eru nú í sjálfheldu eftir að
palestínskur liðsforingi var
myrtur í Beirút. Þá hafa tveir
múslímar fallið á tveimur dög-
um og hafa fulltrúar múslíma
hætt viðræðum.
JÓHANNESARBORG-
F.W. de Klerk forseti Suður-
Afríku hefur nú látið leysa
nokkra leiðtoga blökkumanna
úr fangelsi og hyggst ræða við
helstu blökkumannaleiðtoga
innan kirkjunnar. Þessi skref
eru túlkuó á þann veg að
forsetinn hyggist taka upp við-
ræður við Afríska þjóðarráðið
sem er bannað.
STOKKHÓLMU R - Norð-
maðurinn Trygve Haavelmo
hlýtur Nóbelsverðlaunin (hag-
fræði í ár. Hannfærverðlaunin
fyrir að sýna fram á hvernig
hægt er að prófa hvernig hag-
fræoikenningar ganga upp.
NAIROBI - Skæruliðar í
Tígerhéraði segjast hafa fellt
rúmlega 1400 stjórnarher-
menn í nokkrum bardögum í
norðurhluta Eþíópíu og hafa
hrundið sókn stjórnarhersins.
Ólgan í Azerbaijan eykst enn.
í gær felldu sovéskir hermenn
einn mann í Nagorno-Karabakh
og særðu sex eftir að hópur fólks
hafði gert aðsúg að hermönnn-
um með grjótkasti og skotið á þá
úr veiðibyssum. Fimm óbreyttir
hermenn og einn liðsforingi
særðust í átökunum.
- Hermennirnir hófu skothríð eft-
ir að fólkið kastaði grjóti í þá og
skutu á það. Þeir hafa fyrirskipun
um að svara í sömu mynt ef á þá er
skotið, sagði embættismaður sér-
stakrar nefndar sem stjómvöld í
Kreml skipuðu eftir blóðbaðið í
Azerbaijan á sínum tíma til að sjá
um yfirstjóm Nagorno-Karabakh.
Spennan á þessum slóðum er gíf-
urleg vegna deilna Azera og Arm-
ena. Azerar í Azerbaijan hafa stöðv-
að lestarflutninga gegnum héraðið
til Armeníu. Þá hafa bæði Azerar og
Armenar á þessum slóðum vígvæðst.
Hafa sovéskir embættismenn sagst
óttast að Nagorno-karabakh og ná-
læg svæði gætu endað líkt og Lfban-
on þar sem borgarastyrjöld ríkti.
Herflokkur sá er lenti í átökunum
í gær var á leið til flugvallarins í
Kirovabad eftir að hafa lokið eftir-
litsför sinni þegar á þá var ráðist.
Tvennum sögum fer þó af þessum
atburði því Hamburtsum Galstyan
meðlimur í Karabakh nefndinni,
sem em stjórnmálasamtök sem vilja
að Nagorpo-Karabakh verði skilið
frá Azerbaijan, segir að hermennim-
ir hafí byrjað skothríðina:
- Það kom bílalest með tuttugu
vömflutningabílum og þeir hófu
strax skothríð, sagði Hamburtsum.
Samkvæmt opinbemm tölum hafa
hundrað manns fallið þá nítján mán-
Stjóm sandínista í Níkaragva
staðhæfir að skæmliðar Kontra hafi
fellt sjo hermenn og einn saklausan
bónda á mánudaginn. Þannig hafi
þeir brotið gegn samkomulagi því
sem fimm forsetar Mið-Ameríku
gerðu á sínum tíma og miðar að
frjálsum kosningum í Níkaragva í
febrúar á næsta ári. Kenna sandínist-
ar Bandaríkjamönnum um árásina
þar sem Bandaríkjastjóm styðji við
bakið á Kontraliðum.
Sandínistastjórnin í Níkaragva
mun koma formlegum mótmælum
til Bandaríkjastjórnar á fundum
Sýrlenskur orrustuflugmaður lenti
MiG-23 þotu sinni innan landamæra
ísrael í gær og herma óstaðfestar
fregnir að annar hafi lent þotu sinni
í Egyptalandi. ísraelar staðhæfa að
flugmaðurinn hafi leitað hælis í ísra-
el, en Sýrlendingar fullyrða að flug-
maðurinn hafi nauðlent þotunni.
Samkvæmt heimildum frá ísra-
uði sem liðnir em frá því kynþátta-
átökin bmtust út. Hins vegar er talið
að mannfall hafi verið mun meira.
Hafa meðlimir nefndar þeirrar sem
fer með málefni Nagomo-Karabakh
sagt að hundmð manna hafi fallið og
það jaðri við borgarastyrjöld á svæð-
inu.
Embættismenn skýrðu frá því á
þriðjudag að vegatálmum þeim er
stöðvað hafi lestarsamgöngur frá
Azerbaijan til Armeníu hafi verið
aflétt. Annað segja fulltrúar Arm-
ena í Æðsta ráðinu. Þeir fullyrða að
lestimar hafi ekki komist til
Armeníu.
Sameinuðu þjóðanna og á fundi
Samtaka Ameríkuríkja í nóvember.
Þetta er þriðja árás Kontraliða í
Níkaragva á tiltölulega stuttum tíma
og má gera ráð fyrir fleiri árásum á
næstunni þar sem hluti Kontraliða
var mjög ásáttur við það samkomu-
lag sem forsetamir gerðu um Níkar-
ágva. Hét hluti Kontraliða að halda
áfram baráttunni og vilja koma í veg
fyrir kosningamar. Þá kann að vera
að einhverjir innan raða sandínista
vilji samkomulagið feigt þar sem
allar líkur eru á að sandínistar nái
ekki meirihluta í kosningunum.
elskum hernaðaryfirvöldum lenti
sýrlenska orrustuþotan á borgara-
legum flugvelli í norðurhluta ísrael.
Ekki hafa borist miklar fréttir af
þessum atburði þar sem fréttaskeyti
hafa verið ritskoðuð af hermálayfir-
völdum í ísrael.
„Sýrlenskur herflugmaður flúði
frá Sýrlandi í morgun og lenti MiG-
Tuttugu og einn maður var myrtur
á Sri Lanka í gær einum degi áður
en víðtækar friðarviðræður áttu að
hefjast á þessari stríðshrjáðu eyju.
Sex menn fundust látnir í suðurhluta
landsins og vom lík þeirra illa farin,
. þar sem kveikt hafði verið í þeim.
Níu lík fundust á bökkum Kelani
árinnar 30 km suður af Colombo,
höfuðborg Sri Lanka. Fólkið hafði
verið skotið til bana. Þá féllu þrír
skæruliðar hinnar vinstri sinnuðu
Þjóðfrelsishreyfingar er þeir réðust
að lögreglu í Galle héraði í suður-
hluta eyjarinnar. Tveir lögreglu-
menn féllu í þeim átökum.
í dag hefjast friðarviðræður þar
sem tuttugu og ein stjómmálasam-
tök, sem mörg hver hafa haldið uppi
skæruhemaði á Sri Lanka, munu
reyna að komast að friðarsamkomu-
lagi. Munu samtökin ræða friðartil-
lögur Ranasingeh Premadasa forseta
Sri Lanka. Hins vegar er ljóst að
Þjóðfrelsishreyfingin mun ekki sætta
sig við þær tillögur sem forsetinn
23 ormstuþotu sinni heilu á húfi í
ísrael". Þetta er allt og sumt sem
komið hefur frá opinberum aðilum í
ísrael um málið.
Sýrlendingar hafa farið fram á það
við Rauða krossinn að aðstoða við
að fá sýrlenska hermanninn heim,
en Sýrlendingar neita því staðfast-
lega að maðurinn hafi flúið.
hefur lagt fram og hafa samtökin
hafnað þátttöku í viðræðunum. Sýn-
ist því einsýnt að þó friðarsamkomu-
lag náist muni blóðbaðið á Sri Lanka
halda áfram. Að meðaltali hafa
þrjátíu manns fallið hvern dag í
ofbeldisöldunni undanfamar vikur.
Leiðrétting
Illileg villa slæddist inn á erlendu
síðuna í gær þegar afganska borgin
Jalalabad breyttist í Islamabad. Það
er heldur betur munur á þessum
tveimur borgum, því Jalalabad er í
suðausturhluta Afganistan og sitja
skæruliðar um borgina. Islamabad
er hins vegar eins og flestir vita
höfuðborg Pakistan þannig að af-
ganskir skæruliðar væru í slæmum
málum ef þeir skytu eldflaugum á þá
borg. Hins vegar kom fréttaskeytið
sem brenglaðist svo hræðilega frá
fréttamanni Reuters í Islamabad.
Sýrlendingar eru hörðustu and-
stæðingar ísraela þó margir vilji
Ísraelsríki feigt. Ríkin eru í raun
enn í stríði þó ekki hafi komið til
átaka síðan í Yom Kippur stríðinu.
Arabískur flugmaður hefur ekki
flúið til ísrael frá því árið 1966 þegar
orrustuflugmaður frá írak lenti
MIG-21 þotu sinni í ísrael.
Níkaragva:
KONTRAR SKJÓTA
SJÖ SANDÍNISTA
Sýrlensk MIG-23 þota lendir í ísrael