Tíminn - 12.10.1989, Síða 12

Tíminn - 12.10.1989, Síða 12
12 Tíminn Fimmtudagur 12. október 1989 Frá Félagi eldri borgara Göngu-Hrólfur hittist á laugardag 14. okt. að Nóatúni 17 kl. 11:00. Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, ( dag, fimmtudaginn 12. október. Kl. 14:00 er frjáls spilamennska, kl. 19:30 félagsvist - heilt kort og kl. 21:00 er dansað. Athugið: Danskennslan hefst laugar- daginn 21. október í Nýja dansskólanum. Skráning og upplýsingar á skrifstofu fé- lagsins. Síminn er 28812. Digranesprestakall Fyrsti Kirkjufélagsfundur haustsins verður í safnaðarheimilinu við Bjamhóla- stíg fimmtudagskvöld 12. okt. ícl. 20:30. Sr. Jón Kr. ísfeld flytur frásöguþátt, Jóhanna Bjömsdóttir sýnir myndir. Kaffiveitingar. Helgistund í umsjá sókn- arprests. Ráðstefnaum málefni aldraðra Öldmnarráð íslands gengst fyrir ráð- stefnu föstudaginn 13. október kl. 13:00 í Borgartúni 6. Fjailað verður um ný lög um málefni aldraðra. Framsögumenn verða frá Heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytinu og Pétur Sigurðsson forstjóri. Einnig verður fjallað um efnið: Að deyja með reisn. Vandamá! sem tengjast virkri læknisþjónustu þegar ekki verður séð að hún beri árangur. Framsögumenn: Dr. Pálmi Jónsson læknir og sr. Ólafur Oddur Jónsson. Námsstefnustjóri: Gunn- hildur Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri. Kvenfélag Bústaðasóknar heldur kökubasar sunnudaginn 15. októ- ber kl. 15 í safnaðarheimilinu. Tekið er á móti kökum og basarmunum laugardag- inn 14. október kl. 1-3 og sunnudaginn frá kl. 10. Eldri borgarar í Kópavogi Félag eldri borgara í Kópavogi heldur spilakvöld í Félagsheimili Kópavogs föstud. 13. okt. kl. 20:00. KAMMERMÚSÍKKLÚBBURINN Fyrstu tónleikar Kammermúsíkklúbbs- ins á starfsárinu 1989-1990 verða sunnud. 15. október kl. 20:30 í Bústaðakirkju. Á efnisskrá eru: Strengjakvartett í G-dúr, K. 387 (1781) eftir Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791) Strengjakvartett nr. 10 í As-dúr, op.118 (1964) eftir Dmitri Shostakovitch (1906-1975) Strengjakvartett í B-dúr, K. 458 (1784) „Jagdquartett" eftir W. A. Mozart. Flytjendur eru: Szymon Kuran 1. fiðla, Andrzeej Kleina 2. fiðla, Sarah Buckley lágfiðla og Gary McBretney knéfiðla. „Félagar Kammermúsíkklúbbsins eru beðnir að sýna gírókvittun fyrir árgjaldi við innganginn. Þeim er boðið að taka unglinga úr fjölskyldum sínum með sér á tónleikana nú og síðar í vetur fyrir 100 króna aðgangseyri," segir að lokum í fréttatilkynningu Kammermúsfkklúbbs- ins. ÁRSHÁTÍÐ K.S.F.A. -1989 verður haldin I Hótel Bláfelli 14. október n.k. Húsið opnað kl. 20.00 - Borðhald hefst kl. 20.00. Matseðlll: Kabarettborð að hætti hússins. Ávörp: Halldór Ásgrimsson Jón Kristjánsson Jónas Hallgrímsson. Gamanmál: Jóhannes Kristjánsson. Fjöldasðngur og skemmtiatriði I umsjón heimamanna. Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi. Aðalfundur Framsóknarfélags Snæfells- og Hnappadalssýslu verður haldinn að Lýsuhóli föstudaginn 20. október kl. 20.30. Fundarefni venjuleg aðalfundarstörf. Alexander Stefánsson alþingismaður kemur á fundinn ásamt fleiri gestum. Kaffiveitingar. Stjórnln. Aðalfundur Freyju félags framsóknarkvenna (Kópavogi verður haldinn mánudaginn 16. október að Hamraborg 5, kl. 20.30. Stjórnln. Hafnarfjörður Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna verður haldinn fimmtu- daginn 12. október kl. 20.30, að Hverfisgötu 25. Venjuleg aðalfundarstörf. Inntaka nýrra félaga. Önnur mál. Stjórnin Hafnarfjörður Aðalfundur Framsóknarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn mánu- daginn 16. okt. kl. 20.30 að Hverfisgötu 25. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Aðalfundur Framsóknarfélags Garðabæjar Boðað er til aðalfundar í Framsóknarfélagi Garðabæjar mánudaginn 23. október n.k. kl. 20.30 að Goðatúni 2. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Mætum öll! Stjórnin. 40 ára samstarfi á sviði skólastyrkja fagnað Hinn árlegi haustfagnaður Islensk-am- eríska félagsins verður haldinn á Hótel Loftleiðum laugard. 14. okt. Að þessu sinni kemur ræðumaður kvöldsins alla leið frá Kentucky, en það er James Thompson, forstjóri Glenmore Distille- ries Company ( Louisville, Kentucky, fyrirtækisins sem selur Eldurís vodka erlendis. Haldið verður upp á tímamót í starfi félagsins, en f ár eru liðin 40 ár frá þvf að félagið hóf milligöngu um útvegun styrkja fyrir íslenska námsmenn f Bandaríkjun- um. Má nefna styrkir Thor Thors sjóðsins, Charles Willey sjóðsins, listiðn- aðarstyrkir sjóðs Pamelu Sanders Brement, kennarastyrkir og rithöfunda- styrkir. Islensk-ameríska félagið hefur í samvinnu við American Scandinavian Foundation í New York liðsinnt hundruð- um fslenskra námsmanna og fræðimanna á þessum 40 árum. Á undan haustfagnaðinum, sem hefst kl. 20:00 að Hótel Loftleiðum, býður Menningarstofnun Bandarfkjanna haust- fagnaðargestum til hanastéls f Ameríska bókasafninu við Neshaga. Er heimilið hornreka þjóðfélagsins? Stofnfundur Landssamtaka heimavinn- andi fólks verður haldinn að Holiday Inn laugard. 14. okt. kl. 13:30. 1 fréttatilkynningu undirbúningsnefnd- ar stendur m.a.: Landssamtökunum er ætlað að veita stjórnvöldum aðhald og vinna að leiðréttingu á kjörum og réttind- um heimavinnandi. Sterk landssamtök geta breytt viðhorfi stjórnvalda til heima- vinnandi fólks.“ Rafn Stefánsson sýnir í Bókasafni Kópavogs 1 Bókasafni Kópavogs stendur yfir sýning á blýantsteikningum og málverk- um Rafns Stefánssonar. Rafn er vélvirki, en hann hefur tekið þátt í myndlistar- klúbbi Hana-nú í Kópavogi. Myndirnar á sýningunni eru aðallega blýantsteikningar, allt frá árinu 1952 og til ársins 1985. Rafn málar líka með þekjuhtum og olíu. Á sýningunni eru 17 myndir og hún er opin á sama tfma og Bókasafnið, mánu- daga til föstudaga kl. 10:00-21:00 og á laugardögum kl. 11:00-14:00 út október- mánuð. Haustlitaferð Útivistar í Þórsmörk 13.-15. október Gönguferðir við allra hæfi. Gist í Cltivistarskálanum í Básum. Þetta er síðasta haustferðin f Þórsmörk í ár. Fararstjóri: Bjarki Harðarson. Brottför föstudagskvöld kl. 20:00 frá Umferðar- miðstöð - bensínsölu. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni Grófinni 1 kl. 12:00-18:00. Símar: 14606 og 2373£M Dagsferðir Útivistar sunnudaginn 15. okt. 1. Stórstraums- og kræklingafjöruferð í Hvalfjörð. Létt fjöruganga fyrir alla fjöl- skylduna. 2. Fjallganga: Esja-Kerhólakambur. Brottför í báðar ferðirnar er kl. 13:00 frá Umferðamiðstöð - bensínsölu. Farmiðar við bíl (1000 kr.) Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Hjólreiðaferðir sunnud 15. okt. 1. Heiðmerkurhringur minni 2. Létt hjólreiðaferð fyrir byrjendur og alla fjölskylduna: Árbæjarsafn, Elliðaár- dalur, Fossvogsdalur, meðfram Öskju- hlíð og niður í Hljómskálagarð. Mæting í hjólreiðaferðimar við Árbæj- arsafn kl. 13:30. Verð kr. 200 kr. Frítt fyrir börn innan við 12 ára. Torfi Jónsson sýnir í Gallerí Borg - Tónleikar við opnun sýningar Torfi Jónsson opnar sýningu á verkum sínum í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, fimmtud. 12. október kl. 17:00. Torfi Jónsson er fæddur á Borg í Stokkseyrarhreppi 1935. Hann stundaði nám í Handíða- og myndlistaskólanum á kvöldnámskeiðum, síðan í listaháskólan- um í Hamborg 1956-’61. Torfi hefur haldið nokkrar einkasýn- ingar, m.a. á Loftinu 1976, Norræna húsinu 1985 og í Svíþjóð 1988. Einnig hefur hann tekið þátt í samsýningum. Á sýningu Torfa nú eru vatnslitamyndir frá Vestfjörðum, málaðar sl. sumar. Við opnunina flytja Ingveldur Hjalte- sted og Jónfna Gísladóttir lög eftir Sig- valda Kaldalóns og íslensk þjóðlög. Sýningin er opin virka daga kl. 10:00- 18:00 og um helgar kl. 14:00-18:00. Henni lýkur þriðjudaginn 24. október. Kennsla í ungbarnanuddi Elínborg Lárusdóttir félagsráðgjafi verður á næstunni með kennslu f ung- bamanuddi fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ungbama, allt að 9 mánaða gamalla. „Ungbamanudd er aldagömul aðferð til að viðhalda heilsu og velferð barnsins, bæði líkamlega og andlega. Nuddið styrk- ir ónæmiskerfi líkamans, blóðrás og öndun. Það hjálpar baminu að slaka á, losar um spennu og streitu og stuðlar að betri svefni. Það hefur reynst ómetanlegt bömum, sem þjást af magakveisu og þeim bömum, sem hafa gengið í gegnum erfiða fæðingu, t.d. tangarfæðingu. En umfram allt er nuddið bömunum og foreldmm þeirra tilfinningaleg næring og gleði,“ stendur í fréttatilkynningu. Upplýsingar um námskeiðið veitir Elínborg Lámsdóttir félagsráðgjafi í sfm- um 22275 og 27101. „Öðruvísi fjölskylduljósmyndir“ Sýning í anddyri Norræna hússins í anddyri Norræna hússins hefur verið sett upp sýning á ljósmyndum eftir fjóra ljósmyndara, Tone Arstila frá Finnlandi, Jim Bengston frá Noregi, Frank Watson frá Svíþjóð og Nönnu Búchert frá Dan- mörku. Þama er hin hefðbundna fjölskyldu- mynd sett fram á annan máta en venja er og af því er dregið nafnið „Öðmvísi fjölskylduljósmyndir". Sýningin kemur frá Museet for Foto- kunst í Oðinsvéum. Þetta er farandsýning og er Norræna húsið fyrsti viðkomustað- urinn. Héðan fer sýningin til Waino Aaltonen Museum í Finnlandi. Sýningin er opin daglega kl. 09:00- 19:00, nema sunnud. kl. 12:00-19:00. Henni lýkur 29. okt. Tónleikar í fundarsal Sunnudaginn 15. okt. kl. 17:00 heldur Hólmfríður Benediktsdóttir einsöngstón- leika við undirleik Davids Thompson. HJÚKRUN 2.-3. tbl. ’89 Tímarit Hjúkrunarfélags íslands Forsíðugrein blaðsins er skrifuð af Sigþrúði Ingimundardóttur, forrmanni Hjúkmnarfélags íslands, og nefnist „Það snertir okkur öll“. Af efni blaðsins má nefna grein um varasöm efni í starfsumhverfi hjúkmnar- fræðinga, eftir Sigurhelgu Pálsdóttur. Tveir höfundar, Lilja Óskarsdóttir og Stefanía Sigurjónsdóttir, skrifa Hug- leiðingar um hjúkmnarmenntun. Þær Lilja og Stefanía em báðar lektorar við Háskólann á Akureyri. Elísabet Guð- mundsdóttir hjúkrunarfræðingur segir frá námsstefnu um hjúkmn aldraðra með geðræn vandamál.Þá er viðtal við Sigrfði Hjaltadóttur Jansen um hjúkmn sjúkl-. inga í flugi. Þá er í blaðinu frásögn frá Vínarráðstefnu um „Hjúkmn sem afl til að vinna að breytingum”. Birt er erindi Páls Skúla- sonar um siðfræði og heilsugæslu í skólum „Afstaðan til eigin líkama". Margt annað efni er í blaðinu, svo sem samningar, félags -tilkynningar og skýrsl- ur og fréttir. Ritstjóri er Ingibjörg Ámadóttir. ARNAÐ HEILLA Sjötug: Árdís Ármannsdóttir Árdís Ármannsdóttir á Myrkár- bakka er sjötug í dag, fimmtudaginn 12. október. Árdís fæddist á Kjarna við Akur- eyri, en ólst upp á Myrká í Hörgárdal hjá foreldrum sínum, en þau voru Ármann Hansson bóndi þar og kona hans Þóra Júníusdóttir. Eiginmaður Árdísar var Búi Guðmundsson frá Ásgerðarstöðum og byggðu þau nýbýli á Myrkár- bakka, þar sem þau bjuggu allan sinn búskap. Mann sinn missti hún árið 1977. Þau Árdís og Búi eignuðust átta börn en þau eru: Helga, býr á Stóru-Giljá í Austur-Hún., gift Er- lendi G. Eysteinssyni. Ármann Þórir, býr á Myrkárbakka, sambýlis- Myrkárbakka kona hans er Alda Traustadóttir. Bryndís Hulda, búsett á Akureyri, gift Héðni Bech. Guðmundur, bú- settur á Selfossi, kvæntur Guðrúnu Jóhannsdóttur. Þórólfur Rúnar, bú- settur á Dalvík, sambýliskona hans er Auður Jónsdóttir. Guðveig Sig- ríður, býr í Reykjavík, gift Stefáni Vagnssyni. Bergþóra Björk, búsett á Akureyri, hennar sambýlismaður er Þorsteinn Pálsson. Hildur Berglind, búsett á Akureyri, hennar sambýlismaður er Ómar Snæberg Gylfason. Samtals eru afkomendur Árdísar og Búa nú orðnir 44 talsins. Árdís tekur á móti gestum á heimili sínu að Myrkárbakka í dag.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.