Tíminn - 12.10.1989, Page 18
18 Tíminn
Fimmtudagur 12. október 1989
■lllllllllllllli IÞRÓTTIR HHHIIIIII,lll,;'N'IHHIIIIIIIIIIIIIllil.i.,: ............................................................Illlllll...........................................:. "'Tllllllllllllili. '• "!|ll|l|llllllliliil|!,. ' ..........'1"............., '"""................ ...................................-.......
STÓR-
SIGUR
STJÖRN-
UNNAR
GEGNKA
Stjaman vann KA 23-14 í
Garðabæ í gærkvöldi í 1. deild-
inni í handknattleik. Sigurður
Bjarnason var atkvæðamestur
Garðbæinga með 9 mörk, en
Skúli Gunnsteinsson gerði 5.
Guðmundur Guðmundsson
gerði flest mörk norðanmanna
5, en Axel Stefánsson mark-
vörður var þeirra besti maður,
varði alls 15 skot. BL
_yj&Mfxjsiaa|s^L !
LESTIINARÁKTLUN
Skip Sambandsins
munu ferma til ísiands
á næstunni sem hér
segir:
Brynjar Harðarson átti góðan leik með Valsmönnum gegn Eyjamönnum í gærkvöld.
Tímamynd Pjetur.
Arhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Handknattleikur — 1. deild — VÍS keppnin:
„Reynum að komast
með reisn frá þessu“
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell........23/10
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
Lestunarhafnir innanlands:
Reykjavík:
Alla miðvikudaga
Vestmannaeyjar:
Alla föstudaga
Húsavík:
Alla sunnudaga
Akureyri:
Alla mánudaga
ísafjörður:
Alla þriðjudaga.
SKIPADE/LD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu, Kirkjusandi !
105, Reykjavík, sími 698300
l Á. A A A AAáá
ÍAKfSJ [RAIJSIRA f HJININí ,A
- sagði Jóhann Ingi við KR-inga í leikhléinu. KR-ingar unnu upp 10 marka forskot Víkinga og sigruðu 22-21
„Þegar við komum inní klefa í
leikhléinu og staðan var 6-15 fyrir
Víkinga, bað ég strákana um að
reyna að komast með reisn frá
leiknum og það tókst svo sannariega.
Þetta var alveg ótrúlegur leikur,“
sagði Jóhann Ingi Gunnarsson þjálf-
ari KR eftir sigurinn á Víkingum í
gærkvöld.
Leikurinn sem fram fór í Laugar-
dalshöll var kaflaskiptur í meira
lagi. Víkingar áttu allan fyrri hálf-
leikinn og byggðu jafnt og þétt upp
örugga forystu, 3-0, 7-1, 11-2 og
15-6. KR-ingar fóru ákaflega illa að
ráði sínu í hálfleiknum, misnotuðu
fjölda dauðafæra, þar á meðal 6
vítaköst. Hrafn Margeirsson varði
eins og berserkur í marki Víkinga og
var sú hindrun sem virtist KR-ingum
óyfirstíganleg.
Síðari hálfleikur var algjör and-
staða við hinn fyrri. Allt gekk á
afturfótunum hjá Víkingum og KR-
ingar söxuðu jafnt og þétt á forskot-
ið. Ellefu mínútur liða þar til fyrsta
Brynjar byrjar
vel með Völsurum
Eyjamenn biðu í gærkvöldi lægrí
hlut í viðureign þeirra við íslands-
mcistara Vals ■ íþróttahúsinu við
Hlíðarenda. Þetta var fyrsti leikur
liðanna í 1. deild í vetur og bar
hann þess merki. Úthald Vals-
manna virtist í mun betra lagi en
þeirra hjá f BV, og gerði það líklega
gæfumuninn.
Eyjamenn byrjuðu leikinn með’
miklum látum og voru yfir á öllum
tölum framan af. Valsmenn
slepptu þeim þó aldrei lengra en
þremur mörkum frá sér. Undir lok
fyrri hálfleiks fór Brynjar Harðar-
son Valsmaður heldur betur í gang
og skoraði fimm síðustu mörk Vals
í hálfleiknum. í hálfleik var staðan
jöfn 13-13.
Eyjapeyjarnir (í bland við
Reykjavíkur hnokka) hófu seinni
hálfleik með álíka látum og þann
fyrri. Eftir að ÍBV hafði komist í
14-16 var eins og allur vindur væri
úr þeim lekinn, þeir voru einbeit-
ingarlausir og léku afar illa í varn-
arleiknum. Valsmenn sigu fram úr
og höfðu 3-5 marka forskot allt til
leiksloka.
Titilvörn Valsmanna verður gífurlega
erfið og þeim veitir ekki af þeim stigum
sem fengust úr leiknum í gær. Það eru
hreint út sagt ótrúlegar breytingar fyrir
Valsvömina að missa þá Geir Sveinsson
og Júlíus Jónasson, það var á tímum svo
slæmt í leiknum í gær að leikmenn ÍBV
fengu að skjóta óáreittir á mark vals
langtímum saman. Bestu leikmenn Vals
voru Brynjar Harðarson og Finnur
Jóhannesson, þá lék Páll ágætlega í
markinu í seinni hálfleik. Sigmar Þ.
Óskarsson markvörður var bestur í liði
lBV ásamt Sigurði Gunnarssyni sem
ekki er þekktur fyrir góða takta í vöm,
en í gær lék hann á móti landsliðs
homamanninum Valdimar Grímssyni
sem ekki náði að setja mark allan
leikinn.
Mörk Vals: Brynjar 13, Finnur 5,
Jakob 4, Júlíus 4, Theódór 2, Jón 1.
Mörk ÍBV: Sigurður 7, Guðmundur 4,
Björgvin 3, Hilmar 3, Óskar 3, Þor-
steinn 3 og Guðfinnur 1. ÁV.
mark Víkinga leit dagsins Ijós, en þá
höfðu KR-ingar minnkað muninn í
15-11. Gísli Felix Bjamason mark-
vörður KR fór á kostum og varði
grimmt í síðari hálfleiknum, alls 12
skot. Víkingar höfðu yfir 21-18, en
þeim tókst ekki að bæta við þá
markatölu á lokamín. KR-ingar
jöfnuðu 21-21 og Konráð Olavson
gerði sigurmarkið úr vítakasti 50
sek. fyrir leikslok.
Barátta KR-inga var ótrúleg í
þessum leik, þótt á móti blési. Sjö
víti fóru í súginn, en liðsheildin fær
hrós fyrir að gefst ekki upp. Páll
„gamli“ Ólafsson nýtti sér reynslu
sína og gaf liðinu tóninn.
Hjá Víkingum var um hmn að
ræða í síðari hálfleik, Hrafn átti
stórleik í fyrri hálfleik og varði 18/3
skot í leiknum. Aðrir geta vart átt
hrós skilið fyrir annað eins klúður.
Mörkin Víklngur: Árni 6/3, Ingi-
mundur 4/2, Birgir 3, Guðmundur 3,
Siggeir 3 og Bjarki 2. KR: Konráð
9/3, Stefán 4/2, Páll eldri 4, Sigurður
3 og Þorsteinn 2.
Leikinn dæmdu Rögvald Erlings-
son og Stefán Amaldsson. BL
Mörkin Vfldngur: Ámi 6/3, Ingimund-
ur 4/2, Birgir 3, Guðmundur 3, Siggeir 3
og Bjarki 2. KR: Konráð 9/3, Stefán 4/2,
Páll eldri 4, Sigurður 3 og Þorsteinn 2.
Leikinn dæmdu Rögnvald Erlingsson
og Stefán Amaldsson. BL
Ráðstefna:
Stefnumótun í
afreksíþróttum
HSÍ efnir tíl almennrar ráðstefnu
um - stefnumótun í afreksíþróttum
-. Vilja íslendingar eiga afreksmenn
í íþróttum?
Ráðstefna þessi verður haldin
næstkomandi laugardag 14. október
á Hótel Esju, og hefst kl. 13.30 með
ávarpi menntamálaráðherra, Svav-
ars Gestssonar.
Ráðstefnan verður í formi „panel-
umræðna" og fyrirspurna. Fyrst
munu nokkrir forsvarsmenn íþrótta-
hreyfingarinnar og íþróttamenn gera
grein fyrir viðhorfum sínum og svara
fyrirspurnum, þá munu nokkrir for-
svarsmenn auglýsingastofa, fjöl-
miðla og íþróttafréttamanna gera
grein fyrir sínum viðhorfum.
Að kaffiveitingum loknum mun
ráðstefnan halda áfram með því að
forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja á
sviði útflutnings og ferðaþjónustu
munu láta í ljós álit sitt á afreks-
íþróttum og landkynningu, síðan
munu forsvarsmenn nokkurra sveit-
arstjórna- og bæjarfélaga svo og
allra stjórnmálaflokka gera grein
fyrir viðhorfum sínum.
Ráðstefnustjóri er Jón Hjaltalín
Magnússon, formaður HSÍ.
Ráðstefnan er opin öllum áhuga-
mönnum um íþróttir. Þátttaka til-
kynnist vinsamlegast til skrifstofu
HSÍ í síma 685422.