Tíminn - 21.10.1989, Síða 2

Tíminn - 21.10.1989, Síða 2
'2 TffWftn" L’LV r Wwó.Vv' r.' ViO&tfsfiiyi* 1 Laugardagur 21. október 1989 íslensku hrossakjöti vel tekið í Japan: Japanir senda tvo kjötskurðarmenn Tæp 20 tonn af hrossakjöti, aöallega fitusprengdu, hafa verið seld til Japans að undanförnu og hafa Japanir veri mjög ánægðir með kjötið. Verðið sem þeir hafa greitt fyrir afurðina er mjög gott, en hár flutningskostnaður með flugfrakt hefur orðið þess valdandi að Japanir vilja að kjötið verði unnið alfarið hér á landi, fryst og sent með skipafrakt. Að sögn Halldórs Gunnarssonar formanns markaðsnefndar Félags hrossabænda hefur þetta verið erf- itt í burðarliðnum, vegna þess að öll vinnsla hér á landi er dýr. „Sú málamiðlun hefur náðst að þeir senda hingað til lands tvo kjöt- skurðarmenn, til vinnslunnar," sagði Halldór. Vinnsla með þess- um hætti hefst á Blönduósi á þriðjudag og reiknað er með að 15 til 20 hross verði úrbeinuð á dag. „Ætlunin er að siáturleyfishafar á Norðurlandi hafi samvinnu um að aka hrossunum í kjötvinnslustöð- ina á Biönduósi, þar til búið er að vinna úr öllu kjöti sem til fellur af fullorðnum hrossum á Norður- landi,“ sagði Halldór. Áætlað er að um sé að ræða um 300 hross á þessu svæði sverði unnin á 15 dögum. Síðan er áætlað að sams konar vinnsluaðstöðu verði komið upp fyrir Japanina á Hellu, í samvinnu við Þríhyrning og hrossum af Suðurlandi slátrað hjá sláturleyfis- höfum og þeim síðan ekið í vinnslustöðina. Áætlaður fjöldi hrossa í þá vinnslu er um 200. Borgfirðingum er ætlað að senda hross sín norður eða suður, að sögn Halldórs. Japanirnir vilja fyrst og fremst kjöt af feitum hrossum, sem eru í „bata“, sem kallað er, þ.e. þegar hrossin eru mjög feit og í bata þá sprengist fitan sjálf inn í vöðvana. Því er mjög mikilvægt að hrossin séu 5 til 10 daga í góðum haga áður en þeim er slátrað. Verðið til þessa hefur verið mjög gott, um 80% skilaverð, en með því að vinna hrossin alfarið hér með aðstoð Japananna fæst nær fullt skilaverð. Vinnslan á hrossunum hefur ver- ið með þeim hætti til þessa, að skoðið er fremst við bóg, til að fá fram það sem kallað er „pistola“, en þannig er afturhluti hrossins aðeins nýttur. Með þeirri aðferð sem nú á að taka upp, verður alit hrossið afsett. Vinnan er í samvinnu Búvöru- deildar Sambandsins og Félags hrossabænda. Þeir sem vilja koma hrossum sínum í slátrun eiga að hafa samband við sláturleyfishafa. - ABÓ dijpar Mysa var það heillin Pressan gerir sér gjarnan leik að því í smáklausum sínum, að vef- engja eitt og annað sem fram kemur í dagblöðunum. í nýjustu Pressunni er verið að vefengja fréttir Tímans frá því um síðustu helgi að mysa hafi verið seld hér sem meðal og segja að allir hafi vitað að hér hafi verið á ferðinni „gerjuð mysa“. Ekki er dropatelj- ara kunnugt um hvort þau á Press- unni hafi mikið notað þennan gerj- aða mjöð til drykkjar í veislum og því viti því allt um málið. Á íslensku kallast sá vökvi meðal, sem á að „vera góð hjálp við eksemum, útbrotum, krefðu, brjóstsviða, sykursýki," o.s.frv. eins og segir á leiðbeiningablaði sem fylgir mysunni. „Freyðivínspressan" Enn um Pressuna. Þeir hafa löngun getið sér gott orð á Alþýðu- blaðinu fyrir að vera fljótir með fréttirnar. í viðhafnarútgáfu Al- þýðublaðsins í síðustu viku sagði frá fréttum Tímans og sænska dag- blaðsins Aftonbladet af veiðiferð Svíakonungs. Við á Tímanum greindum ítarlega frá þessari heim- sókn og eftirmálum hennar. Reyndar voru þær fréttir fluttar lesendum okkar í ágústlok á þessu ári (þ.e. 1989). En það er ekki fyrr en komið er langt fram í október að „freyði- vínspressan“ kemur þessum frétt- um að í annars hnausþykku blaði hins veisluglaða ritstjóra Ingólfs Margeirssonar. Að sjálfsögðu tókst Alþýðublað- inu það sem hvorki Tíma né sænsk- um kollegum þeirra tókst, að gera stúlkurnar að vændiskonum. Frétt- in hefur eðlilega fengið góða „gerjun" (sbr. gerjuð mysa) áður en hún var tilbúin til birtingar. En þeir á „freyðivínspressunni" virð- ast ekki átta sig á því að sama lögmál gildir með freyðivín og fréttir, að hvort tveggja vill verða flatt og lítt áhugavert við geymslu. Komin í skandalana Víkverji hefur kvartað fyrir hönd sveitakonu, sem kom til borg- arinnar í sumar og hefur ekki komist af sjónvarpsskjánum síðan. Lýsing Víkverja er eftirfarandi: „Á dögunum frétti Víkverji af konu nokkurri, sem einn af fáum góðviðrisdögum liðins sumars brá sér í bæinn. Það væri ekki í frásög- ur færandi ef konan hefði ekki orðið skotmark kvikmyndatöku- manna annarrar sjónvarpsstöðvar- innar. Þegar myndin var fyrst not- uð var fjallað um sumar í borginni, ferðamenn og fleira slíkt heldur huggulegt. Síðan hefur myndin verið notuð tvisvar eða þrisvar að sögn konunnar og við alls óskyld fréttaefni. Finnst konunni orðið nóg um myndir af þessu rápi henn- ar um miðbæinn, og allra verst þegar myndin var notuð með frétt af fjárhagserfiðleikum einstaklinga og gjaldþrotum." Hvað var konan líka að asnast niður í miðbæ? Hún hefði átt að láta duga að fara í Kringluna. Siðferðisstríðið Stefán Valgeirsson, alþingis- maður, er lentur í siðferðisstríði við Morgunblaðið og telur sér hafa verið blandað í grískt hneykslismál að ósekju í því blaði, óminnugur þess, að Hómer var líka grískur, en Stefán er skáldmæltur. Stefán spyr: Hvað veldur því að ég er tengdur meintri spillingu Papandreou? Moggi svarar: Stefán Valgeirs- son tengist á engan hátt spilling- unni í kringum Papandreou. Við segjum: Mikið var að Mogg- inn hreinsaði Stefán af spillingunni í Grikklandi. Batman í Þjóðleikhúsinu Fyrir nokkru var „opið hús“ fyrir almenning í Þjóðieikhúsinu. Fimm ára gutti heimsótti menning- arstofnunina, musteri íslenskrar tungu. Strákur lýsti heimsókninni á þessa leið: „Það var kona sem labbaði með okkur um húsið. Ég man ekki alveg hvað hún hét. Jú, hún hét ... hún hét Helga Batman!“ VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ! Frá og með 1. nóvember n.k. falla niður síðdegisafgreiðslur bankans á fimmtudögum á eftirtöldum stöðum: Bankastræti, Háaleitisbraut, Bíldshöfða, Hafnarfirði, Selfossi og Sauðárkróki. Áfram verður opið á Suðurlandsbraut 1 8 og á Akranesi. 0 SAMVINNUBANKIISLANDS HF. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, tekur við fyrsta K-lyklinum úr hendi Jóns K. Ólafssonar, formanns K-dagsnefndar Kiwanis. Vinstra megin er Bragi Stefánsson, fráfarandi umdæmisforseti Kiwanisumdæmisins á Islandi. Gleymum ekki geðsjúkum!: Vigdís kaupir fyrsta K-lykilinn Kiwanisfélagar selja um helgina K-lykla til hjálpar geðsjúkum undir kjörorðinu „Gleymum ekki geðsjúkum“. Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, lagði málefninu lið áður en hún fór til útlanda á dögunum og keypti fyrsta K-lykilinn sem seldur var í ár. Takmark Kiwanismanna er að selja 65 þúsund iykla um helgina og nota peningana er safnast til að kaupa íbúðir fyrir vernduð sambýli fyrir geðsjúka sem eru á leið út í lífið aftur að lokinni endurhæfingu. K-lyklarnir verða seldir um allt land og kostar lykillinn 200 krónur. Anna Margret Valgeirsdóttir kjörinn formaður Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík: - Fyrsta konan í formannsembætti FUF í Reykjavík Á aðalfundi Félags ungra fram- sóknarmanna í Reykjavík sem hald- inn var á fimmtudagskvöld var Anna Margrét Valgeirsdóttir kjörinn for- maður félagsins og mun hún vera fyrsta konan sem gegnir því embætti í 59 ára sögu félagsins. Anna Margret tók við af Halli Magnúsyni sem gegnt hefur embætt- inu síðastliðin fimm ár. Aðrir í stjórn voru kjörin Ósk Aradóttir, Kristján Kristjánsson, Anna Kristinsdóttir, Þorsteinn Kári Bjarnason, Hrannar Magnússon og Helgi Hjartarson. Varamenn voru kjörin Steingerður Gunnarsdóttir, Höskuldur Erlingsson og Hallur Magnússon. Sigrún Magnúsdóttir borgarfull- trúi Framsóknarflokksins ræddi Anna Margret Valgeirsdóttir stöðu borgarmála að hefðbundnum aðalfundarstörfum loknum. Borgarstjórn: Bílastöð f restað Á borgarstjórnarfundi á fimmtu- þjónusta, fengið jákvæða afgreiðslu. dag var samþykkt tillaga frá Alfreð Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar Þorsteinssyni að fresta afgreiðslu á þótti honum ástæða til að athuga samþykkt borgarráðs frá 10. okt sl. þetta mál betur þar sem nú þegar um að veita nýrri sendibílastöð væru starfani um 600 sendibílstjórar starfsleyfi í Reykjavík. Á fundi í borginni og atvinnuhorfur þessara borgarráðs hafði umsókn nýju bíla- ■ manna hefðu versnað á undanföm- stöðvarinnar sem heitir Dreifing og um missemm. Á mjóu slitlagi (einbreiðu) þurfa báðir bílstjórarnir að hafa hægri hjól fyrir utan slitlagið við Leiðrétting á myndatexta Meinleg villa slæddist í mynda- texta í opnu blaðsins sl. fimmtudag með mynd fundi Jarðskjálftanefndar Almannavarna. Þar var farið rangt með nafn Ragnars Sigbjörnssonar, Forstöðumanns Verkfræðistofnunar Háskólans, sem manna best þekki burðarþol brúa, háspennulína og annara mannvirkja á Suðurlandi. Tíminn biður Ragnar og lesendur velvirðingar á þessum mistökum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.