Tíminn - 21.10.1989, Blaðsíða 17

Tíminn - 21.10.1989, Blaðsíða 17
Laugardagur 21. október 1989 nr~ Aðalfundur S.U.F. Keflavík Aöalfundur ungra framsóknarmanna í Keflavík og nágrenni veröur haldinn aö Tjarnargötu 7, Keflavík, laugardaginn 28. okt. n.k. kl. 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa til fulltrúaráös félaganna í Keflavík. 3. Kosning 9 fulltrúa á kjördæmisþing. 4. Sveitarstjórnarkosningar í maí. 5. Önnur mál. Félagar, fjölmenniö og takiö meö ykkur gesti. F.U.F., Keflavík og nágrenni. Aðalfundur F.R. Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkur veröur haldinn mánudag- inn 30. okt. n.k. aö Nóatúni 21 kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Arnesingar Hin árlega þriggja kvölda félagsvist Framsóknarfélags Árnessýslu hefst föstudaginn 20. október aö Flúðum, föstudaginn 27. október í Félagslundi og lýkur föstudaginn 10. nóvember á Borg. Aðalvinningur er ferðavinningur meö Samvinnuferöum-Landsýn aö verömæti kr. 70 þúsund, auk þess vegleg kvöldverðlaun. Allir velkomnir. Stjórnin. Aðalfundur Framsóknarfélags Akraness Boöaö er til aðalfundar í Framsóknarfélagi Akraness mánudaginn 23. október kl. 20.30 aö Sunnubraut 21. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Mætum öll. Stjórnin. Konur Árnessýslu Aöalfundur Félags framsóknarkvenna í Árnessýslu veröur haldinn á Eyrarvegi 15, Selfossi, mánudagskvöldið 23. október kl. 21.00. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Önnur mál. Mætum hressar í upphafi vetrarstarfs. Nýir félagar velkomnir. Stjórnin. Aðalfundur Framsóknarfélags Garðabæjar Boöaö er til aðalfundar í Framsóknarfélagi Garðabæjar mánudaginn 23. október n.k. kl. 20.30 aö Goðatúni 2. Fundarefni: Venjuleg aöalfundarstörf. Mætum öll! Stjórnin. Stjórnarfundur SUF Stjórnarfundur SUF verður haldinn að Hamraborg 4, Kópavogi, laugardaginn 21. okt. kl. 10.00. Framkvæmdastjórn SUF Aðalfundur Framsóknarfélags Árnessýslu veröur haldinn miövikudaginn 25. október kl. 21.00 aö Eyrarvegi 15, Selfossi. Dagskrá: Samkvæmt félagslögum. Stjórnin. Vestlendingar Kjördæmisþingið verður haldið í Hótel Borgarnesi 3. og 4. nóvember. Haustfagnaður framsóknarmanna á Vesturlandi verður í Hótelinu föstudagskvöldið 4. nóvember. Nánar auglýst síöar. Stjórn kjördæmissambandsins Aðalfundur FUF Kópavogi Aðalfundur FUF í Kópavogi verður haldinn í Hamraborg 5, miöviku- daginn 25. október kl. 20.15. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Kópavogur - Opið hús Framsóknarfélögin í Kópavogi hafa opið hús á miövikudögum kl. 17.30 til 19.00. f ;*t* nr Tíminn 29 SPEGILL llllll lllliiilllliillllllllllll1 betri eiginmenn“ segir stofnandi félagsinsW.O.O.M. í Ameríku hefur verið stofnað „Félag eiginkvenna eldri manna“ (Wives of Older Men), sem á að vinna að samtökum hjóna þar sem aldursmunur er mikill, þ.e.a.s. þar sem eiginmaðurinn er töluvert eldri en eiginkonan. Stofnandi fé- lagsins er Beliza Ann Furman, 41 árs, í Rumson, New Jersey. Hún giftist Sam, eiginmanni sínum fyrir 20 árum. Hann er 15 árum eldri en Beliza, og það þykir ekki svo mikill aldursmunur, en þau urðu þó vör við að ýmislegt misjafnt var sagt um giftingu þeirra. Vinirnir spáðu því að hjóna- bandið yrði ekki langvinnt, og sumir sögðu að hún væri að giftast honum vegna peninganna hans. Það segir Beliza vera út í hött. „Við urðum ástfangin og giftum okkur, það var allt og sumt.“ Nýlega komu saman mörg hjón, þar sem aldursmunurinn var all- mikill, til að ræða mál sín. Það var í sambandi við stofnun áðurnefnds félags. Konurnar voru yfirleitt sammála um, að ráðleggja ungum stúlkum, að láta ekki aldursmun hræða sig frá því að giftast sér eldri mönnum. Þeir væru yfirleitt betri í sambúð, hugsunarsamari, kurteisari og elskulegri en yngri og óreyndari menn. Beliza Ann Furman segir það helst vera vandamál í slíkum hjónaböndum, að sumir karlmenn séu hræddir við að eignast börn. Þeim finnst þeir vera orðnir of fullorðnir fyrir barnauppeldi, og sumir vilja jafnvel dekra við ungu konuna sína eins og hún væri bamið á heimilinu. En ef þeim skilst, að eiginkonan þráir að eign- ast barn, þá væru ekki til betri pabbar en þessir eiginmenn. „Að sumu leyti eru þeir kannski helst til „afalegir" í uppeldinu og vilja láta allt eftir börnum sínum, en þá er það hlutverk konunnar að hafa meiri áhrif á uppeldismálin“, segir Beliza. Hún segist hafa fengið hugmynd- ina að félaginu vegna þess, að svo margar konur hafi leitað til sín, bæði í óvissu um hvort þær eigi að hætta á að giftast mönnum mörgum ámm eldri en þær, og eins í sambandi við ýmis vandamál sem upp koma í hjónabandinu. Þess vegna hafi hún stofnað félagið og hún vilji vinna að ráðgjöf fyrir fólk í þessum aðstæðum. Þau giftu sig 2. júní sl., Rolling Stones-meðlimurínn Bill Wyman, 52 ára og hin fagra Mandy Smith, sem er aðeins 19 ára. Aldursmunurinn er 33 ár, en þau hafa veríð saman síðan Mandy var 13 ára!. „Ástin brúar aldursbi!ið,“ segir Beliza Ann Furman (í miðið), en með henni eru tvenn hjón þar sem aldursmunur er töluverður. T.v. JiU Tumdorf, 29 ára, og eiginmað- urinn Gary, 56 ára. T.h. við BeUza er Herbert Gutentag, 47 ára og kona hans Patricia 35 ára. Þau mættu á ráðstefnu í sambandi við félagsstofnun W.O.O.M. Frægt dæmi um umtalaðan aldurs- mun hjóna er hjónaband þeirra Sophiu Loren (54 ára) og leikstjór- ans Carlo Pontis (75 ára). Þau hafa eignast tvo syni og verið í hjóna- bandi í 32 ár. „Eldri menn eru John Derek, kvikmyndaframleið- andi og leikstjóri, er 63 ára en Bo, kona hans er 32. Þau giftust 1973.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.