Tíminn - 21.10.1989, Qupperneq 5
Laugardagur 21. október 1989
Tíminn 5
Ljóstraö upp um leyndarmál blómaræktenda sem hafa fundiö út aö P-pillan örvar vöxt stofublómanna:
Pillan örvar pottablóm
á íslenskum heimilum
Blómaræktendur hafa komist að því að getnaðarvarnapill-
an getur örvað vöxt pottablóma svo um munar og munu
margir unnendur stofublóma hér á landi vera farnir að nota
það leyndarmál, tíl að ná sem bestum árangri í ræktuninni,
að lauma öðru hvoru P-pillu í blómapottana. Tíminn hefur
úr ólíkum áttum haft spurnir af „pillublómaræktun“ á þó
nokkrum íslenskum heimilum og hefúr þessi fróðleikur hlotið
mikla eftirtekt þeirra sem af henni frétta.
Pillunni er komið fyrir rétt undir
yfirborði moldarinnar. Þeir allra
hörðustu í ræktuninni setja pillu í
pottana annan hvem mánuð. Tím-
inn hefur eftir mikilli „blómakonu"
sem notar P-pilluna á margskonar
blómategundir meðal annars burkna
jukkur, kaktusa og fikus, að um það
bil tveimur vikum eftir að hún setti
Pilluna í blómapottana tóku plönt-
urnar kipp og nýjir sprotar tóku að
vaxa en plöntumar höfðu staðið í
stað í langan tíma. Pillan virkar því
eins og vítamínsprauta á blómin og
þau taka að vaxa sem aldrei fyrr.
Blómin vaxa
og bömum fjölgar
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjuf-
ræðingur sagði við Tímann að Pillu-
blóma-leyndarmálið ætti upptök sín
í Bandaríkjunum og fyrir sjö eða
átta ámm hefði þar gengið æði af
þessu tagi eins og eldur í sinu.
Hafsteinn sagðist hafa heyrt að
töframáttur pillunnar á vöxt stofu-
plantna hefði uppgötvast þegar eig-
inkona ein vildi plata eiginmanninn
sem fylgdist mjög vel með því að
konan tæki pilluna. Konan laumaði
semsagt pillunni í blómapottana og
afleiðingin varð sú að fjölgun varð í
fjölskyldunni og blómin tóku snögg-
an vaxtarkipp.
Hafsteinn sagðist ekki hafa prófað
þessa aðferð við ræktunina, en ýms-
ar skýringar væru fyrir hendi um
áhrifin. Ein væru sú að f pillunni
væm kvenhormón og plöntur inn-
héldu vissa tegund kvenhormóna
þannig að einhver tengsl gætu verið
á milli vaxtar og magns af kvenhorm-
óni.- Til upplýsingar fyrir þá sem
ekki hafa P-pilluna handa á milli
dags daglega, að Pillan inniheldur
yfirleitt kvenhormón og þá oftast
blöndur af tveimur gerðum, östróg-
eni og gestageni.
Um það hvort að blómin hlytu
hugsanlega skjótari dauðdaga en
ella vegna Pillunnar sagði Hafsteinn
að þær konur sem hefðu trúað
honum fyrir þessu leyndarmáli segðu
svo ekki vera.
Aðspurður sagði Hafsteinn að hér
á landi væri ekki hægt að kaupa
hormónalyf ætluð plöntum til að
wquitar
P-pillan virkar sem töfralyf á vaxtarhraða pottablóma, að sögn þeirra sem prófað hafa þessa ræktunaraðferð. ^ ^ ^
bæta vöxt þeirra. Það eina sem hægt
væri að kaupa fyrir plöntur í apótek-
um hér væri B-vítamín sem hefði í
mörgum tilfellum góð áhrif á
blómin.
Gúrkur og kynorkan
Hafsteinn bætti þeim fróðleik við
að hann hefði nýlega lesið það í
þýsku blaði að mikið gúrkuát gæti
leitt til getuleysis hjá karlmönnum.
Ástæðan væri sú að gúrkur í heimin-
um í dag væru orðnar svo mikið
kvenkyns sem þýðir að þær eru
sjálffrjóar. Gúrkuplöníumar frjóvg-
ast því með gömlu aðferðinni. Plönt-
ur af þessu tagi mynda svo mikið
plöntukvenhormón að það getur háð
karlmönnum ef þeir leggjast í að éta
mikið af gúrkum. Hafsteinn gat þess
að það ætti þó að vera skaðlaust að
borða eina og eina súrsaða ofan á
brauð. „En ef karlmenn verða áfjáð-
ir í þær þá getur það leitt til þess að
þeir vera afhuga öðru,“ bætti Haf-
steinn við hlæjandi. SSH
Frú Phoebe Muga Asiyo sem útnefnd hefur verið sérstakur fuUtrúi UNIFEM.
Tímamynd Ámi Bjaraa
Fulltrúi UNIFEM í heimsókn á íslandi:
Hef ur á hendi hjálp-
arstarf fyrir konur
Sérstakur fulltrúi UNIFEM,
Hjálparsjóðs Sameinuðu þjóðanna
fyrir konur, frú Phoebe Muga Asiyo
er stödd hér á landi og hefur átt
viðræður við stjómmálamenn og
embættismenn ríkisins í vikunni.
Til að virkja alla tiltæka þætti í
hjálparstarfi fyrir konur í þriðja
heiminum, var frú Asiyo útnefnd,
sem fyrsti sérstaki fulltrúi UNIFEM
og á hún að hafa á hendi kynningu á
hjálparstarfinu. Mun hún ferðast
um allan heim og hvetja þingmenn
til að taka þátt í þróunarátaki fyrir
konur. Þá mun hún á komandi
vikum sækja fundi hjá hjálpamefnd-
um UNIFEM víða um heim til þess
að styrkja og efla starf UNIFEM.
Hún segir að þegar talað sé um
þróun í þriðja heiminum, sé í raun
verið að tala um konur. Ef vinnu
kvenna nyti ekki við myndi fram-
leiðsla matvæla verða að engu, því
þegar rætt er um matarskort í Afr-
íku, er það vandamál kvenna og
málefni sem konur verða að fást við.
Hlið sett upp við plan Frímúrarhússsins:
Bílastæði var lokað
en síðan opnað á ný
Á borgarstjómarfundi á fimmtu-
dagskvöldið fuðraði upp deila um
óvenjulegt bílastæðismál, en undir
hafði kraumað í nokkurn tíma í
hinum ýmsu stjómsýslustofnunum
borgarinnar.
Málið snýst um það að starfsmenn
Borgarverkfræðings í samvinnu við
Frímúrara höfðu komið upp hliði
við bílaplanið við Frímúrarahúsið í
Reykjavík og þar með lokað þessi
bílastæði af fyrir öllum almenningi.
Unnt var að verða sér úti um sérstök
plastkort til að opna hliðið en slík
kort kostuðu 3000 kr. á mánuði eða
36 þúsund kr. á ári. íbúar þarna í
nágrenninu höfðu safnað undir-
skriftum til að andmæla þessu fyrir-
komulagi, enda höfðu þeir ekki í
nein bílastæði að venda önnur en
við, eða raunar á, bamaleikvelli þar
skammt frá, sem borgin hafði gengið
svo frá að unnt var að leggja þar.
Borgarstjórinn í Reykjavík segist
ekki hafa verið hafður með í ráðum
þegar hliðið var sett upp við bíla-
planið og það væri það án heimildar
borgarstjórans. í gærmorgun hafði
hann samband við skrifstofu borgar-
verkfræðings og óskaði eftir að hlið-
ið yrði tekið burt. Uppsetning hliðs-
ins mun hafa kostað á bilinu í
kringum 300 þús. króna, en sam-
kvæmt samningi Borgarinnar og
Frímúrara á almenningur að hafa
aðgang að bílastæðinu fram til kl.
18:00.
Á fundi byggingamefndar
Reykjavíkur 12. þessa mánaðar var
þessum málum fyrst hreyft með
tillögu Gunnars H. Gunnarssonar
öðmm fulltrúa minnihlutans í nefnd-
inni. Þar var byggingarfulltrúa falið
að rita öllum þeim sem sett hafa upp
Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir
Landsýn keypti í gær öll hlutabréf í
ferðaskrifstofunni Pólarís, af þeim
Páli Jónssyni og Karli Sigurhjartar-
lokubúnað, til þess að takmarka
aðgang bifreiða að stæðum við hús-
eignir sínar og tilkynnti þeim að þeir
þyrftu að sækja um leyfi fyrir slíkum
búnaði og vitnað þar til bygginga-
reglugerðar. -AG/BG
syni. Pólarís verður fyrst um sinn
rekin með óbreyttu sniði undir stjóm
Karls Sigurhjartarsonar. -ABÓ
Sviptingar á ferðaskrifstofumarkaðinum:
Pólarís keypt