Tíminn - 21.10.1989, Page 9
PftP'' -íQ'irvNn ■tifngb’íKtn'p 1
nnimiT 8
Laugardagur 21. október 1989
Tíminn 9
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra segir Sjálfstæðisflokkinn vera að draga
pólitíska umræðu á Islandi niður í svaðið og fjölmiðlar fylgja dyggilega í kjölfarið:
Að undanförnu hefur átt sér stað í fjölmiðlum mikil umræða
um spillingu meðal stjórnmálamanna. Margir eru þeirrar
skoðunar að á þessum vettvangi hafi fréttamenn í sumum
tilfellum farið út fyrir eðlileg mörk. Mönnum er í fersku minni
sú meðhöndlun sem að Jón Baldvin Hannibalsson hlaut á
annarri sjónvarpsstöðinni og eftirmál hennar. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra er einn þeirra sem Iegið hefur
undir gagnrýni fjölmiðla og hann er ómyrkur í máli um þá mynd
sem dregin hefur verið upp af stjórnmálamönnum.
„Ég held að fjölmiðlar séu vægast
sagt komnir út á hála braut í þeim
efnum. Eftir dæmalausa ræðu Davíðs
Oddssonar á Selfossi er ljóst að Sjálf-
stæðisflokkurinn hyggst heyja stjórn-
málabaráttuna með því að draga stjórn-
málin niður í svaðið.“ Segir Steingrím-
ur.
„Fjölmiðlar mega ekki láta „næra“
sig af óvönduðum stjórnmálamönnum.
Ég hef átt sæti í ríkisstjórn í ellefu ár
og kynnst á þeim tíma mjög mörgum
mönnum í ráðherraembættum. Jú, jú
við erum ekki á sömu skoðun um ýmis
málefni og getum deilt hart, en ég tel
mig geta sagt af sannfæringu að ég hef
ekki kynnst neinum manni í ráðherra-
embætti sem er skúrkur eins og nú er
reynt að sýna stjómmálamenn, og ekki
síst ráðherra. Þvert á móti hafa þessir
menn verið heiðarlegir og unnið sitt
starf vel. Menn vinna hér myrkranna á
milli, og eins og komið hefur fram fyrir
lág laun borið saman við það er almennt
gerist með forystumenn í þjóðfélaginu.
Það er fáránlegt að halda því fram að
ráðherrar kaupi áfengi í auðgunar-
skyni. Ég hef aldrei nokkum tíma
kynnst því.“
Þótt menn kasti
grjóti úr „glerkúlu"
„Mönnum geta orðið á mistök. Ef
Ríkisendurskoðun telur að svo sé er
það að sjálfsögðu leiðrétt. Þetta er
komið út í slíkar algerar öfgar og
umræðan er dregin svo niður í svaðið
að ef svona heldur áfram þá hlýt ég að
ráðleggja hverjum manni að forðast
þessi störf, sem yrðu bæði til skaða fyrir
hann sjálfan og hans fjölskyldu.
Þótt menn kasti grjóti úr „glerkúlu“
og þrátt fyrir ótrúlegar árásir á mig,
meðal annars af mönnum sem svo
klappa manni á bakið við hátíðleg
tækifæri, mun ég ekki taka þátt í
þessum ljóta leik, ekki láta draga mig
niður í svaðið.
- Við þessa umræðu um „spillingu"
ráðherra hefur þú m.a. verið spurður
um för þína til Parísar fyrir um viku
síðan, þar sem þú sast ráðstefnu alþjóð-
legra samtaka frjálslyndra flokka.
Hvers konar ráðstefna var þetta og
hvað varst þú að gera þama?
Alþjóðleg samtök frjálslyndra
flokka, eða „Liberal International“
vom stofnuð í Oxford árið 1947 og hafa
vaxið hröðum skrefum síðan þá. Allar
alþjóðastefnur í stjórnmálum hafa með
sér samtök, jafnaðarmenn em með
samtök og hægri menn hafa með sér
alþjóðleg samtök. Alþýðuflokkurinn
er til dæmis þátttakandi í samtökum
j afnaðarmanna, Sjálfstæðisflokkurinn
í sérsamtökum hægri manna og Fram-
sóknarflokkurinn er meðlimur í sam-
tökum frjálslyndra flokka.
Unnt að ná tali af
mónnum í áhrifastóðum
Þessi samtök okkar halda árlega
ráðstefnu um þau mál sem eru efst á
baugi hverju sinni. Þar mæta menn frá
flestum Evrópulöndunum og fulltrúar
landa Ameríku, Afríku, Asíu, frá Kan-
ada og Bandaríkjunum. Þarna er oft
unnt að ná tali af mönnum sem eru í
áhrifastöðum. Þessi fundur var haldinn
í París og þar voru tekin fyrir málefni
eins og ástandið í Austurlöndum nær,
EFTA/EB mál og fleiri. Ég átti meðal
annars ágætar viðræður um málefni
EFTA og Evrópubandalagsins við
utanríkisráðherra Dana, Uffe Elleman
Jensen og marga fleiri. Á fundinum
spunnust athyglisverðar umræður um
mánefni landanna fyrir botni Miðjarð-
arhafs, þama eru fulltrúar tveggja
flokka frá ísrael og þeir voru mjög á
öndverðum meiði. Ég tel þá ályktun
sem samþykkt var að lokum góða og í
anda þess viðhorfs sem er ríkjandi til
deilna á milli Palestínumanna og ísraels
í okkar röðum, þ.e. að leysa þessi mál
með samningum, kosningum og á frið-
samlegan máta.
Þarna var mikið rætt um málefni Aust-
ur-Evrópu. Á ráðstefnunni voru gestir
frá Póllandi, Ungverjalandi og Júgó-
slavíu. Ég flutti inngangsræðu um þró-
un mála í Ungverjalandi, en í framhaldi
af því spunnust töluverðar umræður.
Það var afar fróðlegt að heyra frá þeim
mönnum sem þarna voru hvernig þeir
spá í þróun mála bæði þar og í öðrum
löndum austan járntjalds, eins og til
dæmis í Póllandi. Þama voru ýmsir
áhrifa aðilar frá Frakklandi sem m.a.
taka þátt í mótun stefnu Frakka í
málefnum Evrópubandalagsins og
fróðlegt að heyra þeirra sjónarmið í því
sambandi."
Aldrei verið gerð athugasemd
- Þú hefur verið spurður að því hvort
þú hafir farið á þessa ráðstefnu á
kostnað ríkisins. Er það nýbreytni eða
hefur það verið venja að ráðherrar fái
greiddan kostnað fyrir svona ferðir?
„Það er rétt að ég hef verið spurður
að því hvort réttlætanlegt sé að ég, sem
forsætisráðherra, sæki aíþjóðlegar ráð-
stefnur á vegum pólitískra flokka og
ríkið borgi fyrir. Ég hafði fýrir löngu
látið kanna hvað hefur tíðkast í þessum
efnum. Það hefur verið talið eðlilegt í
Stjómarráðinu að þegar ráðherrar fara
á slíka fundi sé kostnaður greiddur og
aldrei verið gerð við það athugasemd.
Ég tel það eðlilegt. í mörgum tilfellum
em ráðherrar sérstaklega boðnir. Ég
var til dæmis beðinn að flytja erindi um
Ungverjaland.
Það er mikilvægt að breikka sjón-
deildarhringinn. Við emm í sífellt
auknum mæli að sogast inn í alþjóðlegt
samstarf og verðum að hafa þar sterk
og góð tengsl. Ég hef lengi verið þeirrar
skoðunar að það ætti að gera þing-
mönnum kleift að sækja alþjóðlega
fundi, hvort sem þeir em á vegum
skyldra, eða tengdra flokka, eða á
annan máta, til þess að þeir komist sem
best inn í alþjóðleg mál. Fullyrt var á
Stöð 2 að til dæmis í Bandaríkjunum
greiddi hið opinbera ekki fyrir slíkum
ferðum. Þetta er alrangt. í Bandaríkj-
unum eru tveir öflugir sjóðir, annar
tengdur demókrötúm og hinn repúblik-
önum sem hafa það verkefi að stuðla
að alþjóðasamskiptum þessara flokka
og fá til þess mikið fjármagn frá ríkinu.
Svo er einnig í Vestur-Þýskalandi svo
dæmi séu nefnd. Þetta fyrirkomulag
væri mjög athugandi hjá okkur.“
Vaxandi ógnun við mannkynið
- Nú hljóta að koma upp á ráðstefn-
um sem þessari mál sem ekki eru
bundin við ákveðin lönd eða landsvæði,
til dæmis mengun og útbreiðsla eitur-
lyfja?
„Talsvert var fjallað um þá ógn sem
stafar af eiturlyfjum og m.a. haldinn
sérstakur lokaður fundur forystumanna
flokkanna um þau mál. Þetta var bæði
fróðlegur og gagnlegur fundur, þarna
lýstu menn viðhorfum viðkomandi
ríkja til sölu og notkunar eiturlyfja og
hverjar væru opinberar aðgerðir stjóm-
valda til að koma í veg fyrir þennan
vágest. Það kom fram hjá fulltrúum
ýmissa landa að þetta væri að þeirra
mati verulega vaxandi ógnun við
mannkynið. Einn orðaði það þannig að
ekki væri langt í það að þessir eitur-
lyfjabarónar eignuðust fyrirtæki sem
væm svipuð að umfangi og General
Motors. Þeir söfnuðu slíkum auði að
þess væri ekki langt að bíða að þeir
næðu undir sig risafyrirtækum á heims-
mælikvarða.“
Mismunandi viðhorf til eiturlyfja
„Reyndar komu fram þarna mjög
mismundandi áherslur ríkjanna. Hol-
lendingar virðast vera með þá hugmynd
að heimila jafnvel það sem þeir kalla
„vægari eiturlyf“. Á hin bóginn kom
fram hjá Ron Brown formanni Demó-
krataflokksins í Bandaríkjunum gagn-
rýni á stefnu Bush í eiturlyfjamálum,
fyrir það að hún væri ekki nógu víðtæk.
Áð hún næði í raun ekki til heildarum-
fangs þessarar miklu og óskaplegu
starfsemi. Hann gekk svo lagt að segja
að með því að sleppa sígarettum úr
þessu væru menn að stíga skref í átt til
þess að heimila eiturlyf. Ég greindi frá
því sem við á íslandi erum að gera á
þessum vettvangi og lagði ríka áherslu
á forvamir, íþróttir, heilbrigt mannlíf
og fræðslu, sem ég tel vera mjög
mikilvægt. Ljóst er að gegn þessum
vágesti þarf að mynda öflugt alþjóðlegt
samstarf, það gengur ekki að í einu
landi séu ákveðin eiturlyf heimiluð, en
í öðru bönnuð. Inn á þessi atriði kom
ég í mínu máli. í þessum efnum er þörf
á samstilltu átaki. Það er mikil spurning
hvort hér er ekki á ferðinni málefni sem
ástæða væri til að kalla þjóðir heims
saman til að fjalla um.
Á ráðstefnum sem þessari eru tekin
fyrir mjög mörg málefni og ég get nefnt
í því sambandi, málefni balknesku
landanna sem Svíar leggja sértaklega
mikla áherslu á, mannréttindabrot í
Rúmeníu, umhverfismál, málefni ísra-
el og Palestínumanna. Þetta voru þær
helstu ályktanir sem fjallað var um og
bornar undir atkvæði.
Samstillt átak frjálslyndra
flokka í umhverfismálum?
- Eru umhverfismál ekki sá mála-
flokkur sem er einna mikilvægast fyrir
okkur íslendinga að fylgjast með og
hafa áhrif á?
„Næsta ráðstefna, sem haldinn verð-
ur í Helsinki að ári mun helguð um-
hverfismálum. Segja má að sú sam-
þykkt sem gerð var í París sé því til
undirbúnings. Mjög kom fram í allri
umræðu um þessi mál að þau eru ekki
mál einstakra ríkja. Menn lýstu yfir
miklum áhyggjum yfir því að viðleitni
til að sporna við mengun væri ekki
samræmd, Austur-Evrópulöndin eru
t.d. langt á eftir Vesturlöndum. Það
verður gífurlegt efnahagslegt vandamál
fyrir Austur-Evrópu ríkin að uppfylla
einungis það sem gert hefur verið að
reglu í Vestur-Evrópu.
Jafnframt kom fram gagnrýni á Vest-
ur-Evrópu ríki, t.d. Breta sem þykja
heldur rólegir í þessu. Menn hafa
miklar áhyggjur af mengun sjávar og
það var málaflokkur sem við íslending-
ar meðal annars leggjum þunga áherslu
á. Ég átti einkaviðræður við menn um
þessi mál og tel afar mikilvægt að ná
samstilltu átaki frjálslyndra flokka í
heiminum um umhverfismál. Ég var
ánægður með þessa umræðu, en aug-
ljóslega eru mörg lönd, jafnvel háþróuð
lönd í Vestur-Evrópu, langt á eftir og
taka hagvöxtinn fram yfir umhverfið.“
Árni Gunnarson