Tíminn - 21.10.1989, Side 13
Tíminn 25
Laugardagur 21. október 1989
llllllllll MINNING lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli
Sigurjón Hallsteinsson
frá Skorholti
Fæddur 23. mars 1903
Dáinn 15. október 1989
í dag fer fram frá Hallgrímskirkju
í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd útför
frænda míns, Sigurjóns Hallsteins-
sonar frá Skorholti í Leirár- og
Melahreppi. Hann lést á Sjúkrahúsi
Akraness 15. október sl. eftir erfið
veikindi, 86 ára að aldri. t>ó að allir
vissu hvert stefndi, ekki síst hann
sjálfur, var aðdáunarverð ró hans,
yfirvegun og skýr hugsun allt fram á
síðustu stundu.
Sigurjón var fæddur í Skipanesi
23. mars 1903. Hann var sonur
Hallsteins, bónda í Skipanesi og
síðar í Skorholti í Leirár- og Mela-
hreppi, Ólafssonar, bónda á Litlu-
Fellsöxl í Skilmannahreppi, Magn-
ússonar, bónda á Hóli í Lunda-
reykjadal. Móðir Sigurjóns var
Steinunn, dóttir Eiríks, bónda á
Eystra-Miðfelli í Hvalfjarðarstrand-
arhreppi, Sveinssonar, bónda á
Vindási í Kjós, Erlingssonar. Sigur-
jón er því af traustum bændaættum
kominn.
Árið 1908 fluttist Sigurjón, 5 ára
gamall, að framtíðarheimili sínu
Skorholti með foreldrum sínum og
systkinum, þeim Halldóru, f. 18.
apríl 1887, Ólafi, f. 23. júní 1888,
Bjarna, f. 4. janúar, 1891, Guðrúnu,
f. 3. desember 1891, Narfa, f. 27.
apríl 1894, Eiríki Ingvari, f. 29. maí
1897 og Böðvari, f. 27. október
1900. Jóna fæddist síðar eða 26.10.
1912. Lifir Eiríkur Ingvar einn syst-
kinanna bróður sinn.
Á sínum yngri árum stundaði
Sigurjón vertíðarvinnu um 13 ára
skeið í Sandgerði, fyrst fyrir tilstuðl-
an Haraldar Böðvarssonar á Akran-
esi. Að hverri vertíð lokinni færði
hann afrakstur vinnu sinnar heim í
foreldrahús í Skorholt, þar sem
hann hafði alla tíð fasta búsetu. Við
andlát föður síns tók hann við bús-
forráðum í Skorholti með bróður
sínum Böðvari og sinnti því starfi að
Böðvari látnum 1956. Naut hann
dyggrar aðstoðar Jónu systur sinnar
alla tíð sem með honum bjó á
jörðinni. Voru þau Sigurjón og Jóna
alla tíð ákaflega samrýmd og bund-
ust órjúfanlegum systkinaböndum.
Söknuður Sigurjóns var því mikill
við fráfall hennar 1985. Var Sigurjón
hinn mesti búmaður og farsæll í
öllum sínum störfum. Tókst honum
með nægjusemi og natni að bæta
landkosti jarðar sinnar og skapa sér
og systur sinni hið ágætasta lífsviður-
væri.
Sigurjón var ákaflega félagslyndur
maður og naut þess einkar vel að
vera meðal fólks. Hann var mjög
söngelskur og fastur félagi í kirkju-
kór Leirárkirkju í áratugi. Hann var
reglusamur og heiðursfélagi í Ung-
mennafélaginu Hauki, enda vann
hann mikið að málum ungmennafé-
laganna á yngri árum. Áhugi Sigur-
jóns á spilum, einkum félagsvist, var
mikill, einnig á dansi og íþróttum.
í>á var hann mjög vel hagmæltur, en
fór með þá gáfu af allt of mikilli
hógværð. Á öllum þessum sviðum
kom glaðværð, bjartsýni og glettni
Sigurjóns glöggt fram. Sóttust því
margir eftir nærveru hans. Áhuga
hafði hann einnig á veiðum, einkum
refa- og minka. Sá hann um að halda
þeim vágesti niðri á svæðinu sunnan
Skarðsheiðar um margra ára skeið.
Að almennum bústörfum og
hugðarefnum gekk Sigurjón af ein-
stökum áhuga og atorku enda ósér-
hlífinn og viljasterkur. Þegar við
bættist réttsýni og sanngirni var ekki
nema von að til hans væri leitað með
ýmis trúnaðarstörf. Átti hann m.a.
sæti í hreppsnefnd, sóknarnefnd og
stjórn ungmennafélagsins um
margra ára skeið, svo nokkuð sé
nefnt. Sem formaður áfengisvarna-
nefndar tók hann á sig ýmsar skyldur
og byrðar og gætti hagsmuna Slysa-
varnafélags íslands í langan tíma
sem umboðsmaður þess. Hlýhugur,
gjafmildi og fórnfúst starf í þágu
Leirárkirkju og Hallgrímskirkju í
Saurbæ verður seint fullþakkað.
Framhaldsskólamenntunar naut Sig-
urjón ekki sökum fátæktar og harðr-
ar lífsbaráttu í æsku og á unglingsár-
um. Kom það ekki að sök síðar því
eðlisgreind hans og lífsins skóli
gerðu honum kleift að takast á við
þau vandamál sem við var að fást
hverju sinni og úr þurfti að leysa.
Viðmót Sigurjóns, greiðasemi,
náungakærleikur og góðvild gerðu
hann að mjög vinmörgum manni.
Stóð Skorholtsheimilið ætíð opið
ættingjum, vinum og kunningjum.
Var gestrisni í hávegum höfð og
engum mismunað f beina og greiða-
semi. Þótti sjálfsagt að víkja til
hliðar daglegum störfum um stund
þegar gest bar að garði, störfum sem
stundum máttu helst alls ekki bíða
að því er okkur fannst sem dvöldum
sumarlangt. Allir sátu við sama
borð. Gestakomur voru því miklar,
ekki aðeins á sumrin, heldur einnig
á vetrum, sér í lagi meðan skóla-
bókasafn var í umsjá Jónu, systur
Sigurjóns.
Sigurjón var ókvæntur og barn-
laus. Systkinatryggð og sterk tilfinn-
ingaleg bönd á milli systkina hafa án
efa hér mestu ráðið, því ekki skorti
á glæsileika og mannkosti. Barn-
margt var samt sem áður oft á
sumrum í Skorholti. Þar dvaldi fjöldi
barna sem nú eru vaxin úr grasi. Átti
Sigurjón stóran þátt f að móta þá
einstaklinga sem hjá honum dvöldu
á einn eða annan hátt. Kom oft á
daginn að barngæska, hlýja, um-
hyggja og velvild Sigurjóns hafði
meira aðdráttarafl og varð öðru
yfirsterkari en ætlað var. Afleiðing
þessa voru síendurteknar sumar-
dvalir sömu aðila í Skorholti. Við
upprifjun á ánægjulegum samveru-
stundum með Sigurjóni, í smala-
mennsku, eyja- og veiðiferðum,
skiptir samt mestu sú uppfræðsla og
lífsins leiðsögn sem hann veitti. Þó
að skoðanir okkar færu ekki alltaf
saman lærðist að hlusta, rökræða
hluti og virða sjónarmið hans og
annarra enda virti hann ætíð vel
sjónarmið viðmælenda sinna. Með
hógværð sinni, varfæmislegri um-
vöndun ef á þurfti að halda og
uppfræðslu Ieiddi hann þá sem
minna vissu og minna máttu sín
yfirleitt óafvitað inn í sannleikann
um lífið og tilveruna. Var unnt að
óska sér nokkurs betra?
Þegar litið er til baka kemur í
hugann erindið:
“Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerrí tregatárín stríð. “
Vald.Briem).
Minningin um merkan mann lifir.
Jón Sveinsson.
Magnús Magnússon
fyrrverandi sérkennslufulltrúi
Fæddur 18. apríl 1917
Dáinn 14. október 1989
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga ’ og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Slg. Kr. Pétursson.
Hann Maggi frændi okkar og vinur
er dáinn. Við vissum að hann gekk
ekki heill til skógar, en að hann
skyldi vera hrifinn svona snögglega,
til æðri heima, er svo óraunvemlegt
fyrir okkur. Hann sem var svo hress
og lifandi, boðinn og búinn til að
hjálpa, ef eitthvað bjátaði á, og bar
með sér birtu og gleði hvar sem hann
kom.
Magnús Magnússon var fæddur
18. apríl 1917 í Álfhólahjáleigu í
V-Landeyjum, sonur hjónanna Þóru
Þorsteinsdóttur og Magnúsar
Bjamasonar. Magnús missti föður
sinn á unga aldri, en ólst upp hjá
móður sinni og Ólafi Þorsteinssyni
frænda sínum í Álfhólahjáleigu.
Þegar Magnús var kominn undir
tvítugt fór hann til Vestmannaeyja á
vetrarvertíð. En sú vertíð varð löng,
því hann fór og lærði skósmíðaiðn
hjá Oddi Þorsteinssyni frænda
sínum, og vann við hana í nokkur ár.
Á þessum ámm kynntist hann konu
sinni Aslaugu á Heygum, mikilli
sóma- og listakonu. Er hér vel við
hæfi að birta ljóðlínur úr ljóðabók
hennar „Við hvítan sand“:
Fellur regn
í svartan svörð
gljúpan
þyrstan svörð
hvar ertu ástin mín
sem brostir
til mín í vor
svífa nú lauf
til jarðar
svífa
haustlauf til jarðar
Aslaug á Heygum
Þau fluttu til Reykjavíkur og
byggðu sér hús að Granaskjóli 19.
Þar eignuðust þau einn son, Ólaf
Orra, sem nú er búsettur í Þýska-
landi. Hans kona er Karen hjúkrun-
arfræðingur af þýskum ættum og
eiga þau tvær dætur, Aslaugu Emmu
og Tatjönu, sem Karen átti áður.
Konu sína missti Magnús árið 1975
og var það mikill söknuður fyrir
hann, því þeirra sambúð vareinstök.
Eftir að Magnús kom til Reykja-
víkur fór hann í Kennaraskólann og
lauk þaðan prófi. Síðar fór hann í
sérnám erlendis. Hann varð skóla-
stjóri Höfðaskóla og Öskjuhlíðar-
skóla, síðar sérkennslufulltrúi hjá
menntamálaráðuneytinu. Hann
helgaði sig málefnum þroskaheftra
og naut sín þar hans manngæska.
Fyrir rúmum 2 ámm lét hann af
störfum fyrir aldurs sakir, en ætíð
var hugur hans hjá þeim sem sjúkir
vom og minna máttu sín í þjóðfélag-
inu.
Magnús var frændrækinn mjög og
stofnaði til ættarmóta, nú síðast 15.
júlí í sumar í Njálsbúð, og mættu þar
um 300 manns. Þessum mannfagnaði
stjómaði hann með miklum sóma.
Að heimsækja Magnús í Vestur-
bergið var einstakt. Hann veitti ekki
einungis kræsingar á borðum, heldur
líka f ljóðaupplestri og tónaflóði
sem fyllti hlýlegu stofuna hans. Þær
vom margar ánægjustundimar sem
við áttum saman og nú síðast nutum
við samvem hans þann 13. ágúst s.l.
við veiðar í Soginu. Við fjölskyldan
viljum að lokum þakka Magga
frænda samfylgdina, hann var alltaf
einn af okkur og mun minningin um
hann aldrei gleymast.
Elsku vinur, nú er þjáningu þinni
lokið, friður kominn yfir þig og þið
Aslaug saman á ný.
Hvíl þú í fríði,
fríður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrír allt og allt.
(Vald. Briem)
Elsku Orri, Karen, Aslaug
Emma, Tatjana og Emma tengda-
móðirin í Vestmannaeyjum. Okkar
innilegustu samúðarkveðjur, megi
allar góðu minningamar sefa sorg-
ina. Guð blessi ykkur öll.
Alexander Sigursteinsson
og fjölskylda.
Kveðja frá Félagi íslenskra sér-
kennara
Einn af stofnfélögum Félags ís-
lenskra sérkennara er fallinn í
valinn, Magnús Magnússon, fyrrver-
andi sérkennslufulltrúi menntamála-
ráðuneytisins, lést þann 14. þessa
mánaðar. Það er löngum sagt að
þegar fólk er komið á efri ár þá sé
haust í lífi þess og á undan haustdög-
um fari síðsumardagar. Okkur sem
þekktum Magnús fannst ekki komið
haust í lífi hans - heldur síðsumar-
dagar sem einkenndust af annríki
þess manns sem e.t. v. er að undirbúa
haustið en lætur hvergi deigan síga.
Magnús Magnússon var í raun og
sannleika brautryðjandi í kennslu
barna og ungmenna með sérkennslu-
þarfir. Skjólstæðingar hans voru
nemendur sem ekki voru taldir falla
inn í skólakerfi fjöldans.
Hann var í fjölda ára skólastjóri
Höfðaskólans sem var til húsa í
félagsheimili eins íþróttafélagsins
hér í borginni. Þar byggði Magnús
upp kennsluúrræði fyrir fjölda barna
og unglinga við erfiðar aðstæður og
því miður oft við lítinn skilning
stjórnvalda. En síðan komu bjartari
dagar og Öskjuhlíðarskólinn reis og
nemendur Magnúsar og starfslið
hans fengu nú loksins það húsnæði
sem hentaði starfseminni og gleði
allra yfir þessari breytingu var mikil.
Eftir að Magnús hafði unnið nokk-
ur ár við Öskjuhlíðarskóla varð sú
breyting á starfssviði hans að hann
varð sérkennslufulltrúi menntamála-
ráðuneytisins og gegndi þvf starfi
þar til hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir árið 1987.
Svo sem sagt var í upphafi var
Magnús einn af stofnendum Félags
íslenskra sérkennara og vann þar
mikið og gott starf, ekki síst við
mótun félagsins. Hann var gerður
heiðursfélagi þess árið 1975. Þó störf
Magnúsar í þágu félagsins væru
mikil og góð þá minnumst við hans
ekki síður á gleðistundum í félaginu
þar sem hann var hrókur alls fagnað-
ar.
Magnús var trúr sínu starfi og
sinni köllun sem málsvari þeirra sem
minna mega sín og í gegnum allt
hans starf kom glögglega í ljós hve
vænt honum þótti um þá einstaklinga
sem hann hafði uppfrætt og annast
og hversu annt honum var um áfram-
haldandi velferð þeirra á lífsleiðinni.
Hann taldi sig líka hafa ýmislegt
af þeim lært. Hann sagðist ekki
einungis hafa verið gefandi heldur
líka þiggjandi.
Magnús var mikill starfsmaður.
Hann vann á meðan kraftar leyfðu
og nú síðast ásamt fleirum að endur-
skoðun á sérkennslureglugerð.
Að leiðarlokum þökkum við
Magnúsi Magnússyni samfylgdina.
Við þökkum honum fyrir að hafa
lagt ótrauður af stað órudda braut,
fyrir að hafa hvergi hopað af hólmi
og fyrir að hafa fylgt sinni sannfær-
ingu til hinstu stundar.
Við kveðjum með þessum ljóðlín-
um Davíðs Stefánssonar:
Sú hönd vinnur heilagan starfa,
sú hugsun er máttug og sterk,
sem meitlar og mótar í stálið
sinn manndóm - sín kraftaverk.
Blessuð sé minning Magnúsar Magn-
ússonar.
F.h. stjómar F.f.S.
Elísabet Kristinsdóttir
formaður
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á af-
mælis- og eða minningargrein-
um í blaðinu, er bent á, að þær
þurfa að berast a.m.k. tveim
dögum fyrir birtingardag.
Þær þurfa að vera vélritaðar.
LEKUR ER HEDDID
BLOKKIN? SPRUNGIÐ?
Viðgerðir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir - rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða.
Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum - járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin - Sími 84110
\