Tíminn - 21.10.1989, Síða 18
30 Tíminn
Laugardagur 21. október 1989
llllllllllllllllllllllllil ÍÞRÓTTIR !i..''^l'HIIIHHHIIIIIIii.i.li,. ''!l1'lll!llllllllllllliili.;•!!|!!'|l||||||||||||||i|,ii, :'l1;|l||||||||||i|;|■ ';!,||||||||||||||||||;|! 1 lillllllllllllini■ !il;llllllllllllll!l:;! .....III.Illll.Illll.Illllll.
Með „hávöxtum" byggja menn 27% stærri hús en með „gjafalánum" fyrir áratug. Meðalhúsið nú 200 fermetrar:
Met í stærð sérbýlishúsa
Á sama tíma og hvað hæst er kveinað út af „okurvöxtum“
slá menn nýtt íslandsmet í stærð einbýlis- og raðhúsa 1988.
Þau hús sem þá var lokið við voru um 660 rúmmetrar, eða í
um 203 fermetrar að meðaltali þannig að margir byggja miklu
stærra en það. Meðalhúsið hefur því stækkað yfír 40 ferm.
frá 1975-79 þegar meðalhúsið var um 160 ferm. (526 rm.)
þrátt fyrir óverðtryggð lán og vexti undir verðbólgu.
TEG. ÁRG. EKINN VERÐ
Lada sport 1988 20.000 520.000
Lada sport5gíra 1987 35.000 470.000
Lada Samara 1500 1988 10.000 370.000
Lada Samara 1987 27.000 270.000
Lada Samara 1987 7.000 290.000
Lada Samara 1986 40.000 200.000
Lada Lux 1989 20.000 370.000
Lada LuxSgíra 1987 38.000 255.000
Lada Station Lux 1988 20.000 360.000
Lada Station Lux 1987 22.000 290.000
LadaSafír 1988 15.000 270.000
Lada Samara 1988 6.000 350.000
Lada1200 1988 22.000 230.000
Opiö virka daga 9-18 og laugardaga 10-14
Om fjóröungs stækkun einbýlishúsa á síðustu árum virðist fara nokkuð á
skjön við alia umræðuna um minnkandi kaupgetu vegna verðtryggingar,
okurvaxta og misgengis lánskjara og launa. Eða sýnir stöðugt breiðara
stærðarbil milli blokkaríbúða og einbýlishúsa kannski vaxandi skil milli þess
sem stundum er nefnt „tvær þjóðir í þessu landi“?
Kostnaður við byggingu þessarar
nieira en 40 ferm. viðbótar (c.a. 3
herbergi) er a.m.k. 2,5 millj.kr.
Hæst komst meðalstærð sérbýlis
áður í um 175 ferm. (570 rúmm.) á
árunum 1983-86. Meðalstærð allra
íbúða sem lokið var við í fyrra var
460 rúmm., eða um 142 fermetrar,
samkvæmt fréttabréfi Húsnæðis-
stofnunar.
Hús minnkandi
á Norðurlöndum
Athyglivert er, að á meðan íslend-
ingar byggja stærra og stærra fara
nýbyggð hús aftur á móti minnkandi
að í þeim löndum sem íslendingar
„flýja“ nú til hundruðum (eða þús-
undum) saman vegna bágra kjara
hér á landi. f Svíþjóð hefur hlutfall
nýrra einbýlishúsa stærri en 4 her-
bergi og eldhús t.d. lækkað úr 60%
niður í 42% (1976-85) og í Dan-
niörku hafði það áður lækkað úr
51% niður í 36%, samkvæmt nýlegri
skýrslu um húsnæðismál á Norður-
löndum. í Noregi var yfirgnæfandi
meirihluti (63-65%) allra nýbyggðra
einbýlishúsa 4 herbergja auk
eldhúss, en aðeins um 15% til 17%
stærri en það, á árunum 1976-82.
Samsvarandi tölur fyrir ísland allt
eru ekki tiltækar. í Reykjavík voru
um 70% húsa 5 herbergja og stærri
á árunum 1984-88.
Meðalíbúðin 69 fm.
í Finnlandi
Fermetra- eða rúmmetrastærð
kemur ekki í skýrslunni nema fyrir
Finnland. Meðalstærð allra ný-
byggöra íbúða (í einbýli og fjölbýli)
í Finnlandi stækkaði úr 68 fermetr-
um 1972 upp í 84 ferm. árið 1983, en
minnkaði aftur niður í 78-79 fer-
metra árið 1984-1985.
Til samanburðar má nefna, að
meðalstærð allra íbúða og húsa sem
lokið var smíði á hér á landi undan-
farin ár hefur verið á bilinu 140-150
fermetrar, eða hátt í tvöfalt stærri en
finnska meðalíbúðin.
Þrátt fyrir að Finnar hafi um langt
skeið byggt hlutfallslega margar
íbúðir búa þeir mjög þröngt. Sam-
kvæmt skýrslunni var t.d. meira en
helmingur allra íbúða í Finnlandi 1
og 2ja herbergja íbúðir árið 1980.
Meðalstærð allra íbúða í landinu þá
69 fermetrar.
Þær íbúðir/hús sem Finnar hafa
byggt á undanförnum árum (78-84
ferm.) eru mun minni heldur en
nýjar íbúðir í fjölbýlishúsum hér á
landi. fbúðir í fjölbýli voru raunar
óvenjulega litlar í fyrra, um 90
fermetrar að meðaltali. Ástæðan er
m.a. talin mikil aukning í íbúða-
byggingum fyrir aldraða. Árið 1984
voru nýjar fjölbýlishúsaíbúðir um
110 fermetrar að meðaltali hér á
landi.
Helmingur íbúða
1 og 2ja herbergja
Það eru ekki aðeins Finnar sem
virðast búa þröngt á íslenskan mæli-
kvarða. í skýrslunni eru um 665.000
íbúðir í Stór-Stokkhólmi (24 komm-
únur) flokkaðar niður eftir stærð.
Nær fjórðungur allra íbúðanna er
aðeins eitt herbergi og eldhús og
samtals 46% allra íbúða 2ja her-
bergja eða minni og einungis 28%
sem hafa fleiri en 3 herbergi. Aðeins
15% allra íbúða í Stór-Stokkhólmi
eru 5 herbergja eða stærri.
Rúmlega helmingur allra íbúð-
anna (367 þús.) eru í Stokkhólms-
borg sjálfri og þar eru minnstu
íbúðirnar hlutfallslega lang flestar.
Nær þriðjungur allra íbúða þar er 1
herbergi og aðeins 19% stærri en 3ja
herbergja. Stærri íbúðrinar (og
nýrri) eru hlutfallslega flestar í út-
borgunum, enda lang mest byggt þar
af íbúðum í sérbýli.
Ekkinógað
byggja og byggja
Stokkhólmur virðist dæmi um það
að vandræði verða ekki leyst einung-
is með því að byggja og byggja. Þótt
íbúðir séu nógu margar á svæðinu í
heild eru þar eigi að síður töluverð
húsnæðisvandræði. Þau felast í því,
að íbúðir standa í talsverðum mæli
tómar í sumum útborganna á sama
tíma og um 50.000 manns (samsvar-
ar um 3.300 í Reykjavík) bíða í
ofvæni eftir að ná sér í einhverja af
smáíbúðunum í Stokkhólmsborg
sjálfri. Þar kemur m.a. til að þessar
íbúðir eru jafnaðarlega með lægri
húsaleigu þar sem þær eru flestar
mun eldri auk þess að vera ósköp
litlar. -HEI
SMJÖRLÍKISGERÐ
SIMI 96-21400 • AKUREYRI
Tónlist-
armenn
halda
hátíð
Á sunnudaginn verður haldin mik-
il tónlistarhátíð á Hótel fslandi.
Hátíðin er haldin á vegum Félags-
heimilis tónlistarmanna í beinu
framhaldi af íslenskum tónlistardegi
sem er á morgun.
Allur ágóði af hátíðinni rennur til
Félagsheimilisins.
Tónlistarhátíðin hefst kl. 19:00
fyrir matargesti og leikur lúðrasveit-
in Svanur við móttöku gesta. Kl.
21:00 hefjast tónleikar sem standa til
kl. 1:00 og verður selt inn á þá
sérstaklega fyrir aðra en matargesti.
Þar verður flutt ýmiskonar tónlist,
klassísk, popp, jass og blús.
Meðal þeirra sem koma fram á
tónleikunum er Þorsteinn Gauti Sig-
urðsson píanóleikara, Ólöf Kolbrún
Harðardóttir söngkona, Jasssveit
FÍH, Sálin hans Jóns míns, Félag
harmonikkuunnenda, Strax, Bjart-
mar Guðlaugsson og Tregasveitin
sem flytur blústónlist. Ríó Tríó ann-
ast veislustjórn og flytur jafnframt
nokkur lög. SSH