Tíminn - 18.11.1989, Síða 5
Laugardagur 18. nóvember 1989
Tíminn 5
Sigússon bjóði sig fram á móti Svan-
frfði Jónasdóttur f varaformanns-
embættið þó svo að menn vildu ekki
gefa yfirlýsingar um slíkt. Einrýg
mun „flokkseigendafélagið“ stefna
að því að fækka fylgismönnum Ólafs
í ýmsum nefndum og stjórnum
flokksins. Kosningar í embætti
flokksins og framkvæmdastjóm
verða klukkan 16 í dag. SSH
Stcingrímur Sigfússon landbún-
aðarráðherra á landsfundi Al-
þýðubandalagsins í gær.
______________Tímamynd: Ámi Bjama
Steingrímur Sigfússon
íhugar framboð á móti
Ólafi Ragnari eða
w Svanfríði:
ðviss um
framboð
í gærdag
„Það hefur nú ekki verið sér-
staklega í mínum huga. Þetta er
á því stigi að ég get ekki verið að
svara einu eða neinu um mín
áform,“ sagði Steingrímur Sigfús-
son landbúnaðar- og samgöngu-
ráðherra um miðjan dag í gær,
þegar hann var spurður að því
hvort hann hygðist bjóða sig fram
til embættis formanns eða vara-
formanns Alþýðubandalagsins.
Það hefur verið lagt hart að þér
að bjóða þig fram?
„Jú, það hefur verið gert, ég
ætla ekkert að neita því. Það
hefur verið töluverð umræða um
það hvemig best sé að skipa
þessum málum. Ég hef ekkert
frekar um það að segja á þessu
stigi.“
Er nokkuð óeðlilegt að það sé
kosið um forystu í þessum flokki?
„Nei, það held ég ekki. Það
hefur svo sem gerst áður að það
sé kosið. Því hefur jafnvel verið
haldið fram að það sé gott fyrir
flokkinn," sagði Steingrímur.
-Eó
Frá landsfundinum í gær. Ef grannt er skoðað má sjá Álfheiði Ingadóttur í pontu.
NYÍR TIMAR
NÝR GRUNaVÖLLUR
Alþýðubandalagsmenn deila hart um stöðu flokksins á landsfundi:
Flokkurinn eins og
iðandi ormagryfja
„Flokkurinn er eins og kolkrabbi sem klofnar í marga
arma... . Flokkurinn í Reykjavík hefur verið eins og
ormagryfja." Þessi orð notaði Óssur Skarphéðinsson til að
lýsa þeim deilum sem einkennt hafa landsfund Alþýðubanda-
lagsins og snúist hafa um stefnu flokksins þar sem ný og gömul
sjónarmið hafa tekist á.
I ræðu sinni hvatti Össur fundar-
menn til að sameinast um betri frið
í flokknum og sýna þann þroska að
ræða málin á málefnalegan hátt.
Össur, sem tilheyrir Birtingar-armi
flokksins sagði meðal annars: „Ég
vil geta rætt málin án þess að vera
vísað út í ystu myrkur og skipað að
ganga í Alþýðuflokkinn."
Mikill tími landsfundarmanna
hefur farið í að deila um hverjir eru
kratar og hverjir kommar, eins og
einn fundarmanna orðaði það, og
hvað sósíalismi er í raun og veru.
Fleiri ræðumenn, þar á meðal Guð-
rún Helgadóttir hvöttu menn til að
grafa stríðsöxina. Guðrún sagði
jafnframt að tíma landsfundarins
hefði verið eytt í hégóma og nær
væri að snúa sér að alvarlegri málefn-
um.
Þess má geta að Alþýðubandalag-
ið í Reykjavík hefur samþykkt að
forval fari fram vegna borgarstjórn-
arkosninganna í vor. Össur, sem nú
situr í borgarstjórn, tilkynnti einnig
í ræðu sinni að hann myndi ekki taka
þátt í því forvali og með því væri
hann með því að leggja sitt lóð á
vogarskál friðar í flokknum.
Deilt um stöðu og steffnu
Mikill tími ræðumanna fór í að
fyrrnefndar skilgreiningar. Almenn-
ar stjómmálaumræður stóðu yfir í
allan gærdag. Þeim átti að ljúka
klukkan 16:00 en vegna fjölda
ræðumanna varð að framlengja um-
ræðurnar til klukkan 20:00.
Yfirskrift landsfundarins er: Nýir
tímar - Nýr grundvöllur og em
deiluaðilarnir í flokknum ekki sam-
mála um hvaða leiðir flokkurinn á
að fara til að takast á við nýja tíma
og nýjan grundvöll. Birting telur
hugmyndafræðilega nýsköpun á
vinstri kanti stjórnmálanna nauðsyn-
lega en svokallaðir vinstrisinnar inn-
an flokksins eða „flokkseigendafé-
lagið“ leggur áherslu á grundvallar-
skoðunum Alþýðubandalagsins
verði ekki breytt, heldur verði þeim
beitt til að takast á við þau vandamál
sem þarf að glíma við.
Segja má að tillaga Birtingar um
að Alþýðubandalagið gangi í Al-
þjóðasamband jafnaðarmanna sé í
raun gmnnur þessara átaka, en deil-
urnar snúast einnig um byggðar-,
landbúnaðar-, stóriðju-, ogsjávarút-
vegsmál auk þess að margir flokks-
menn em óhressir með frammistöðu
ríkisstjórnarinnar til dæmis í kjara-
málum.
Álfheiður Ingadóttir tilheyrir
„vinstrisinnunum" í flokknum. í
ræðu sinni sagði Álfheiður að það
væri nöturleg öfugþróun að nú þegar
ný heimsmynd blasi við með hmni
Berlínarmúrsins, þá skuli annar múr
reistur. Átti hún við Evrópubanda-
lagið þar sem aðildarþjóðir afsöluðu
sér þingræði sínu til miðstýrðs afls.
Sagði hún bandalagið vera múr til að
verja evrópska auðhringi. Álfheiður
mótmælti harðlega þeirri tillögu sem
lá fyrir fundinum að fagna skuli
fmmkvæði ríkisstjómar íslands
varðandi inngöngu EFTA í Evrópu-
bandalagið.
Álfheiður sagði það einnig vera
tímaskekkju að leggja það til að
flokkurinn gangi í Alþjóðasamband
jafnaðarmanna. Alþjóðasambandið
væri yfirþjóðleg stofnun sem lyti
eigin lögmálum og væri jafnframt
driffjöðrin í að EFTA gangi í Evr-
ópubandalagið. Styrkur Alþýðu-
bandalagsins fælist í því að hafa ekki
bundið trúss sitt við slík samtök og
íslenskir sósíalistar vilji hafa frelsi til
að móta eigin stefnu sem byggist á
sérstöðu íslands.
Álfheiður vítti Ólaf Ragnar
Grímsson fyrir að hafa breytt um
áherslur í stóriðjumálum með því að
hverfa frá þeirri skoðun flokksins að
íslendingar eigi að eiga meirihluta í
stóriðjufyrirtækjum. Álfheiður
sagði jafnframt: „Alþýðubandalagið
verður að skapa vinnandi fólki í
þessu landi nýjan lífsgmndvöll. Al-
þýðubandalagið verður að láta af
þeirri fjárlagatrú sem hefur heltekið
forystu flokksins."
Því má svo bæta við að í gær virtist
allt benda til þess að Steingrímur J.
Hæstiréttur:
Frávísun
vísað frá
Tillaga um breytingar á Þjóðleikhúsinu:
Húsfriðunar-
nefnd mótmælir
Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu í gær að ekki ætti að
taka til greina frávísunarkröfu
fimm ákærðar í Hafskipsmálinu.
Hæstiréttur staðfesti þar með úr-
skurð Sakadóms Reykjavíkur sem
kærður var til Hæstaréttar.
í niðurstöðum Hæstaréttar kem-
ur m.a. fram að af rannsóknar-
göngum verið ráðið að sérstakur
ríkissaksóknari hafi tekið sjálf-
stæða afstöðu til þess hvernig rann-
sókn skuli haga. „Leiðir það því
ekki til frávísunar, að lögð eru
fram gögn úr rannsókn, sem fram-
kvæmd var undir stjórn annars
manns,“ segir í dómnum.
-ABÓ
Húsfriðunarnefnd hefur mótmælt
tillögu byggingarnefndar Þjóðleik-
hússins um breytingar á húsinu.
Svavar Gestsson sagði í samtali við
Tímann að endanleg ákvörðun um
framkvæmdir í Þjóðleikhúsinu hafi
ekki verið tekin. Tillit verði tekið til
sjónarmiða húsfriðunamefndar og
hann muni eiga fund með byggingar-
nefndinni í næstu viku.
í tillögunni sem byggingarnefnd
Þjóðleikhússins samþykkti sam-
hljóða er gert ráð fyrir því að gólf
áhorfendasalarins verði hækkað og
hallinn aukinn og að neðri og efri
svalir verði sameinaðar í einar svalir.
Með breytingunum á að bæta sjón-
línur og hljómburð í húsinu og með
þessum hætti er talið að Þjóðleikhús-
ið henti betur þörfum nútímaleik-
húss.
Veggir, loft og stúkur verða ýmist
óbreytt fært í nútímalegt horf.
Eins og Tíminn greindi frá fyrir
viku síðan hefur mikill styrr staðið
um þessa tillögu og eru leikarar ekki
á eitt sáttir. Hluti þeirra er samþykk-
ur því að breyta Þjóðleikhúsinu í
nútímalegra horf, aðrir vilja varð-
veita húsið og telja rétt að íslending-
ar eigi aðgang að “gamaldags“ leik-
húsi.
SSH