Tíminn - 20.12.1989, Qupperneq 14

Tíminn - 20.12.1989, Qupperneq 14
14 Tíminn Vinningstölur laugardaginn 16. des. ’89 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1 ■ 5 af 5 0 2.326.714 2. 4af5^^ 3 134.818 3. 4af 5 100 6.976 4. 3af 5 4.018 405 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.056.058 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Laugardagur kl.20:15 51. LEIKVIKA- 23. des. 1989 111 X 2 Leikur 1 Aston Villa - Man. Utd. Leikur 2 C. Palace - Chelsea Leikur 3 Derby - Everton Leikur 4 Luton * - Nott. For. Leikur 5 Man. City - Norwich Leikur 6 Q.P.R. - Coventry Leikur 7 Southampton - Arsenal Leikur 8 Tottenham - Millwall Leikur 9 Wimbledon - Charlton Leikur 10 Ipswich - West Ham Leikur11 Sheft. Utd. - Leeds Leikur 12 Swindon - Blackburn Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002 Þrefaldur pottur!!! St. Jósepsspítali Landakoti Hjúkrunarritarar Hjúkrunarritara vantar á deild sem er 13 rúma handlækningadeild og 9 rúma móttöku/dagdeild. Upplýsingar gefa Björg J. Snorradóttir, hjúkrunar- framkvæmdastjóri í síma 604300 og Kolbrún Sigurðardóttir, deildarstjóri í síma 604314. Reykjavík 19. desember 1989. Tilboð óskast Tilboð óskast í flutning á áburði frá Áburðarverk- smiðjunni í Gufunesi til viðskiptamanna á félags- svæði Kaupfélags Hrútfirðinga. Magn 400-600 tonn. Allar upplýsingar og útboðsgögn liggja frammi á skrifstofu félagsins. Kaupfélagsstjóri. Mjðvikudagur 20,deserriber 1989 BÓKMENNTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^ Dásamaða Ameríka! FYRIRHEITNA LANDIÐ Skaldsaga eftir Einar Kárason Útg: Mái og menning, 1989 Þar kom að því að maður fékk allt að vita um dásemdarlífið í henni Ameríku. Ekki verða allir jafn ríkir og frægir eins og af er látið eða hvað? I þessari þriðju bók Einars Kárasonar um fjölskyldu og afkom- endur Karólínu spákonu í Thule- kampinum fáum við að vita um örlög þeirra fjölskyldumeðlima, sem fluttu til fyrirheitna landsins, til hinnar dásömuðu Ameríku. í þessari bók fylgjum við lang- ömmubarni spákonunnar, honum Munda, sem fer með frænda sínum og vini, Manna, í rannsóknar- leiðangur til Ameríku. Þeir hyggjast kanna lífsafkomu ömmu Gógó, Bóbó hálfbróður og Badda móður- bróður. Það er semsagt ákveðið „pródjekt" í gangi. Hvað svo sem það þýðir á íslensku. Félagarnir þvælast víða og alltaf er Bóbó með þeim, en hann hirtu þeir hreinlega upp í New York. Þeir fundu ömmuna eftir nokkra leit í símaskránni og hún lofaði að sækja þá, en samkvæmt þeirra kortum voru þeir ekki svo langt frá heimili hennar. Þeir biðu og biðu, en aldrei kom „kelling". Það var ekki fyrr en seint og um síðir eftir nokkurra klukkustunda bið að hún skilaði sér og höfðu þá mörg blótsyrðin fallið í hennar garð. En amman hafði ekki látið sig muna um það að sækja drengina sína þótt hún neyddist til að aka hvíldarlaust í sjö klukkustundir. Já, fjarlægðirnar eru miklu meiri í Am- eríku en hér á landi. Ekki held ég að margir skryppu frá Akureyri til Keflavíkur til að sækja einhvern ættingja og biðja hann bara um að hinkra aðeins á meðan. Höllin hennar ömmu Gógó sem sagt er frá í Gulleyjunni reynist ekki vera til staðar. Draumalandið er ekki meiri draumur en svo að hún býr með syni sínum honum Badda í hjólhýsi í nöturlegu, afgirtu hjól- hýsahverfi. Ekki geta drengirnir fengið að gista þar, svo þeir fá inni hjá vinkonu ömmu Gógó. Það eru nefnilega allir svo alþýðlegir í henni Ameríku. Allir eru vinir og standa með náunga sínum - allavega alveg þangað til að eitthvað kemur fyrir. En amma „klikkar aldrei", hún „reddar öllu“ og lætur sér fátt um finnast þótt sonurinn berji Jiana svona endrum og eins. Ég var ekki svikin af þessari bók Einars, frekar en hinum tveimur, Djöflaeyjunni og Gulleyjunni. Kímni hans er á réttum stað. Lýsing- ar á Línu spákonu, eru gott dæmi um þetta, en það er kerling sem ekkert þykist heyra eða skilja, en fylgist samt með öllu. Einnig má nefna spaugileg bókarkaup Fíu og Tóta. Eitt og annað hefur ekkert breyst frá því í fyrri bókunum og á það aðallega við Gógó. Hún er alltaf jafn lífsglöð, hvað sem á gengur. fslenskan á þessari bók er ekki verri en gengur og gerist á markaðn- um um þessar mundir, en mér finnst hún þó lakari en í fyrri bókum um eyjaklasann. Ákveðið stílbragð virð- ist vera mikið „in“ um þessar mundir, eða n.k. tískufyrirbrigði. Á þetta einkum við samsetningu orða eins og til dæmis, „þarsem" og „neinei", að ég tali ekki um „mússík“ með tveimur essum. Ein- mitt í allri þessari umræðu um mál- ræktarátak finnst mér að rithöfundar ættu að taka börnin til fyrirmyndar og reyna bæði að skrifa og tala vandað mál. í heild er bókin þó skemmtilegur afþreyingarlestur og gildir þá einu þótt ekki hafi að fullu verið fylgst með undnagengnum bókum í skerja- garðinum hans Einars. Þeir sem ekki eiga neina af fyrri bókum hans bendi ég hins vegar á að útvega sér í það minnsta ættartöluranar úr þeim fyrri til að auðvelda lestur og skilning skáldsögunnar endalausu. Kristján Björnssun Stuttur stans í vestrinu Piers Paul Read: A Season in the West. Secker & Warburg 1988. Piers Paul Read skrifar skemmti- legar skáldsögur. Hann er kaþólskur og aðspurður í sjónvarpsþætti fyrir nokkrum árum hvort hann tryði á þrennar vistarverur annars heims, kvað hann svo vera. Þetta féll ekki í sem bestan jarðveg meðal þeirra sem leitast við að móta bókmennta- smekk Englendinga, gagnrýnenda og svokallaðra „róttækra höfunda". Þetta vakti mikla hneykslan í hópum „vinstri intelligensíunnar“. Meðal skáldsagna Reads er „The Free Frenchman", löng skáldsaga um Frakkland á stríðsárunum, sem mætti vera miklu lengri. í þessari skáldsögu, „A Season in the West“ segir af flóttamanni frá alþýðulýðveldinu Tékkóslóvakíu sem tekst að komast úr landi. Josef Birek er rithöfundur og andófsmað- ur í heimalandi sfnu. Nokkur kvæði og smásögur hafa birst í óleyfi yfir- valda í heimalandi hans og verið smyglað til Vesturlanda. Illlllllllllllllllllllllll BÆKUR lllllllll..... Pappírs-Pési Pappírs-Pési heitir myndabók sem er nýkomin út. Bókin er byggð á sjónvarpsmynd sem kvikmyndagerðin Hrif vann og sýnd var 1 sjónvarpi fyrir ári. Sagan er eftir Herdísi Egilsdóttur en myndskreytingu gerði Bemd Honum er tekið opnum örmum fyrir í London, sem nokkurs konar píslarvætti. Stofnun, sem annast flóttamenn úr stétt rithöfunda, aug- lýsir komu hans og Laura Morton, sem er starfsmaður stofnunarinnar, hefur allan veg og vanda af honum fyrstu daga og vikur. Hann er kynnt- ur fyrir væntanlegum útgefendum, og enskum og bandarískum rithöf- undum, útgáfustjórum og stjóm- armönnum rithöfundasamtaka. Fundir hans og Lám með þessu fólki verða oftast kátlegir. Höfundur dregur fram ýmis heldur neikvæð einkenni þessara hópa og einfeldn- ingslega afstöðu flóttaskáldsins til „vestrænna gilda“. Þegar flótta- skáldið fer að tala um negra sem alnæmissmitbera dettur andlitið af intelligensíunni. Eins og kunnugt er em það kynþáttafordómar að bera sér orðið „niggari" í munn og að tengja þá alnæmi er fasistaáróður. Einnig verður flóttaskáldi það á að tala um Guð almáttugan, ekki leist gáfnaelítunni á slíkar ræður. Ogrodnik sem gerði líka brúðuna í kvikmyndina. Sagan segir frá Magga, dreng sem er einmana og teiknar sér leikfélaga, Pappírs- Pésa, sem lifnar við og bráðlega staekkar félagahópurinn. Það gengur á ýmsu við að bjarga Pésa úr ógöngum sem hann lendir i enda er pappír viðkvæmur fyrir hnjaski og fullorðna fólkið skilur ekki að Pési er lifandi drengur. Hrif vinnur nú að fleiri sjónvarpsþáttum um Pappírs- Pésa sem sýndir verða fljótlega. Mál og menning gaf bókina út. Kappasögur endursagðar Komin er út hjá MáU og menningu bókin Kappar og konungar, þar sem Guðlaug Richter endursegir valda íslendingaþætti. Þættirnir greina frá hetjulund og höfðingsskap fomgarpa sem sigldu utan og freistuðu gæfunnar á erlendri gmnd. Kappamir sóttu gjarnan Hrifning þeirra, sem reka flótta- mannaaðstoð andófsrithöfunda sem sloppið hafa vestur yfir, dofnar á skáldskap þessa skálds og loks tekur Laura hann upp á sína eigin arma í bókstaflegri merkingu. En það stendur ekki lengi. Bráðlega er hann yfirgefinn af öllum fyrri aðdáendum og lokin verða þau að hann hverfur aftur austur fyrir tjald. Mynd sú sem Paul Read dregur upp af engilsaxneskum höfundum er ekki sérstaklega aðlaðandi. Þetta eru mestan part blautleg sýndar- menni, hræsnisfullir potarar, sem hafa lapið upp útþynnta hugmynda- fræði og telja sig baráttumenn jafn- réttis, félagshyggju og andlegs frelsis, en hugsa í peningum. Sagan er ákaflega skemmtileg og vel skrifuð, húmor og glöggsýni höfundarins nýtur sín vel og hann virðist njóta þess að hæða framúr- stefnu framagosa og sjálfskipaða menningarpostula. Siglaugur Brynleifsson heim erlenda konunga, færðu þ'éim góðar gjafir eða sýndu hollustu og hlutu vináttu og góða gripi aðlaunum. Sögurnar em myndskreyttar af dönsku listakonunni Piu Falck Pape og skráðar á auðveldu máh fyrir böm á skólaaldri.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.