Tíminn - 21.12.1989, Síða 3
Fimmtudagur 21. desember 1989
Tíminn 3
Aðilar innan útgerðarinnar:
Segjast vilja kaupa
Hafrannsóknastofnun
Verkalýðsfélag i
nýtt húsnæði
Hópur hagsmunaaðila í sjávarút-
vegi vill kaupa Hafrannsóknastofn-
unina og hefur sent sjávarútvegsráð-
herra bréf þar sem óskað er eftir
viðræðum um kaup á stofnuninni.
Frá þessu er sagt í Vestfirska frétta-
blaðinu sem kom út nýlega.
í bréfinu til ráðherra segir að
vegna fjársveltis telji starfsmenn
Hafrannsóknastofnunar sig ekki
geta sinnt nauðsynlegum rannsókn-
um. Ennfremur er bent á hversu
afgerandi áhrif á veiðiheimildir og
þar með þjóðartekjur stofnunin hafi
og því sé nauðsynlegt að hún búi við
sem bestar aðstæður. Þá lýsa bréfrit-
arar þeirri bjargföstu trú sinni að
rekstur stofnunarinnar verði mun
betri í eigu aðila með meiri faglegan
og fjárhagslegan metnað en núver-
andi eigendur hafa. Með því verði
stofnunin betur í stakk búin til
ráðgjafar um þá miklu auðlind sem
fiskistofnarnir eru og þar með verði
lífskjör okkar íslendinga tryggari en
þau eru nú.
Bréfið er undirritað af Halldóri
Jónssyni á Súðavík fyrir hönd óskil-
greinds hóps manna. Afrit var afhent
forstjóra Hafrannsóknastofnunar og
fjármálaráðherra.
Fúlasta alvara
„Það er fullkomin alvara á bak við
þessi skrif og stór hópur aðila í
sjávarútvegi er búinn að bræða þetta
með sér lengi. Það hefur verið
óánægja innan stofnunarinnar og
utan, þó að óánægjan hafi því miður
ekki komið nógu vel fram opinber-
lega,“ sagði Halldór Jónsson þegar
Tíminn spurði hann að því hvort
menn væru ekki að grínast með
þessum bréfaskrifum.
Aðspurður sagði Halldór að hóp-
urinn væri ekki óánægður með störf
stofnunarinnar heldur frekar þau
störf sem ekki væru unnin þar.
„Stofnunin sinnir skyldum sínum
einungis að því marki sem henni er
kleift fjárhagslega. Málið er að æ
meira mark er tekið á stofnuninni
þrátt fyrir augljósa vangetu hennar
til að rannsaka þá hluti sem henni
ber. Stofnunin er grundvöllurinn
fyrir þeim ákvörðunum sem teknar
eru varðandi veiðar úr fiskistofnun-
um sem þýðir að rannsóknir stofnun-
arinnar stjórna stórum hluta af okk-
ar efnahag á sama tíma og hún er í
fjársvelti sem leiðir til þess að rann-
sóknirnar eru alls ekki nógu traustar
til að byggja á. Við teljum að það
þurfi að standa betur að stofnuninni
til að hún skili fullkomnum upplýs-
ingum. Við erum fyrst og fremst að
lýsa vantrausti á fj árveitingavaldið. “
Halldór sagði að menn hefðu gert
sér ákveðnar verðhugmyndir en vildi
ekki láta þær uppi. Sagði hann að ef
til kæmi yrði stofnunin rekin sem
hvert annað fyrirtæki og viðskipta-
aðilar greiddu fyrir upplýsingar sem
þeir leituðu eftir.
„Mér dettur helst í hug að þetta sé
gálgahúmor í Vestfirðingum," sagði
Jakob Jakobsson forstöðumaður
Hafrannsóknastofnunar er Tíminn
leitaði álits hans á málaleitan út-
gerðaraðilanna. „En að öllu gamni
slepptu er maður feginn því að menn
hafi áhuga á að efla hafrannsóknir. “
Aðspurður sagði Jakob að á
undanförnum árum hefði í fjárlög-
um alltaf verið gert ráð fyrir óbreyttri
starfsemi stofnunarinnar og engin
viðbót hefði fengist fyrir utan fisk-
eldisstöð sem var afhent fyrir rúmu
ári auk fjár sem var veitt til hvala-
rannsóknanna. Jakob sagði að það
væri alltaf álitamál hvort stofnunin
næði að sinna hlutverki sínu með
þeim fjármunum sem til hennar
hefur verið veitt. „Vafalaust gætum
við sinnt hlutverkinu betur ef við
hefðum meiri peninga. Það eru alltaf
gerðar meiri og meiri kröfur til
okkar á sama tíma og við fáum ekki
að efla starfsemina.“
Jakob sagði ennfremur að óhugs-
andi væri að stofnun af þessu tagi
gæti verið rekin af einkaaðilum sem
hún væri þá jafnframt háð. Hinsveg-
ar hefðu lengi verið uppi tillögur um
það að sjávarútvegurinn kæmi sér
upp rannsóknasjóði þannig að út-
gerðaraðilar gætu styrkt tiltekin
verkefni sem þeir hefðu áhuga á að
stofnunin sinnti. Til dæmis loðnuleit
eða einhver önnur „praktísk" verk-
efni. En hefðbundin verkefni yrðu
kostuð af ríkinu. Sagði Jakob að
Vernharða Alba í
Þjóðleikhúsinu
Annan í jólum frumsýnir Þjóð-
leikhúsið Heimili Vemhörðu Alba
eftir spænska leikskáldið Federico
Garcia Lorca, í nýrri þýðingu eftir
Guðberg Bergsson. Leikstjóri er
María Kristjánsdóttir, en með aðal-
hlutverk fara Kristbjörg Kjeld, Bríet
Héðinsdóttir og Herdís Þorvalds-
dóttir.
Heimili Vernhörðu Alba er leikrit
mikilla tilfinninga, brennandi lífs-
þorsta og þjáninga sem hlýst af
Launavísitala
hækkarum2,2%
Hagstofan hefur reiknað launa-
vísitölu fyrir desembermánuð 1989
miðað við meðallaun í nóvember.
Er vísitalan 112,7 stig eða 2,2%
hærri en vísitala fyrra mánaðar.
Samsvarandi launavísitala til
greiðslujöfnunar fasteignaveðlána
tekur sömu hækkun og er því 2.467
stig í janúar 1990. -EÓ
valdbeitingu. Leikritið gerist innan
húss á brennheitum sumarvikum á
Spáni. Vernharða Alba heldur dætr-
um sínum fimm í járngreipum, eng-
inn andblær má komast inn á heimil-
ið þau átta ár sem sorg skal ríkja
eftir andlát heimilisföðurins. Allt er
bundið í viðjar hefða og venja. Elsta
dóttirin á þó biðil, ungan stæltan
mann sem dæturnar girnast allar,
einkum sú yngsta. Vernharða reynir
að stjórna rás viðburðanna án tillits
til þeirra tilfinningaólgu er býr í
brjóstum dætranna. Yngsta dóttirin
býður móðurinni og öllu þorpinu
birginn með framferði sínu.
Lorca lauk við Heimili Vernhörðu
Alba rétt áður en hann lét lífið árið
1936 sem eitt af fyrstu fórnarlömbum
spænsku borgarastyrjaldarinnar.
Verkið var fyrst sýnt í Buenos Aires
árið 1945.
Eins og áður segir verður leikritið
frumsýnt annan í jólum, en næstu
sýningar verða 28. og 30. desember.
Tvö önnur leikrit verða sýnd í Þjóð-
leikhúsinu um jólin en þau eru Lítið
fjölskyldufyrirtæki og barnaleikritið
Ovitar. -EÓ
þessi tillaga hefði hlotið þolanlegar
undirtektir en ekkert hefði orðið úr
framkvæmdum að öðru leyti en því
að LÍÚ styrkir eitt verkefni sem er
söfnun upplýsinga um bátaafla.
SSH
í byrjun mánaðarins tók Verka-
lýðsfélag Borgarness í notkun nýtt
húsnæði. Húsið, sem hefur verið
gefið nafnið Félagsbær, mun hýsa
Neytendafélag Borgarness, Iðn-
sveinafélag Borgarness, Verslun-
armannafélag Borgarness, auk
Verkalýðsfélagsins.
Áður höfðu þessi félög starfsemi
sína í Snorrabúð vestast í bænum.
Það húsnæði hefur nú verið selt og
keypti Verkalýðsfélagið nýtt hús á
Borgarbraut, en þar var áður rekin
verslun. Með tilkomu Félagsbæjar
batnar öll aðstaða til félagsstarfsemi
mjög mikið. Húsið er um 300 fer-
metrar. Þar er m.a. fundarsalur fyrir
90 manns. Mjög góð aðstaða er fyrir
hreyfihamlaða.
Efnt var til samkeppni um nafn á
húsið. Um 70 tillögur bárust og var
tillaga Árdísar Kristjánsdóttur, Fé-
lagsbær, valin. Á sunnudaginn var
opnuð málverkasýning í Félagsbæ.
Þar sýnir Einar Ingimundarson tólf
olíumálverk. Við opnun hússins bár-
ust verkalýðsfélaginu margar góðar
gjafir og kveðjur. M.a. gaf Geir
Jónsson heiðursfélagi félagsins því
stórt málverk af Borgarnesi. -EÓ
ið notum ýmis tákn til að vekja viðeigandi stemmingu og
tilfinningar. Við skreytum jólatré um jótin, skjótum flug-
eldum um áramót, kveikjum kertaljós til að undirstrika
notalegheit og rómantík. Stundum er tilgangurinn með
táknunum sá að undirstrika áfanga í lífinu eða einfaldlega
að gera sér dagamun. Til þessa er algengt að nota áfengi
meó öðrum táknum.
Sá sem vanist hefur hinu táknræna hlutverki áfengisins
getur átt erfitt með að gera sér í hugarlund að hægt sé að
vera án þess og nota önnur tákn með sama árangri í
staðinn. Tákn sem uppfylla allar kröfur um hátíðleika, til-
breytingu og fjölbreytni eiyhafa'þann kost til viðbótar að
hafa engar neikvæðar aukaverkanir.
Jól og áramót eru tilvalin tækifæri til að brydda upp á
óvæntum nýjungum til ánægjuauka. Hvernig væri að prófa
uppskriftlna sem hér fylgir.
u.þ.b. 3 I.
1 I appelsínusafi
V2 I eplásafi
/2 I blandaður safi
3 flöskur sítrónugosdrykkur
2 flöskur tonik
skvettur af grenadin
ís
þunnar sítrónu og gúrkusneiðar
TÁKN UM TILBREYTINGU
Átak gegn áfengi
Vímulaus æska.
Áfengisvarnaráð