Tíminn - 21.12.1989, Blaðsíða 19

Tíminn - 21.12.1989, Blaðsíða 19
< i t l Fimmtudagur 21. desember 1989 Vi V t % j, \ * v % > <. * % *. % * «■ WW*- VAV4AW,W.*.V.V.V.V.V t.rrrTnrrrrt^vTj'.v'i’i**^’. V*í*’i *•* '*’* 'tk X V't'i't ’l xa '-i X ■*, X \ A < i A * \ «44tti.liik4l i <• I. I. <1. >1 II M ll Tíminn 19 ÍÞRÓTTIR 01 sk * HSK í fjögurra liða úrslit HSK sigraði Þrótt Reykjavík í 1. deild karla 3.0. I átta liða úrslitum í bikarkeppni BLÍ sigruðu bæði lið KA lið Völsungs 3:0 í karlaflokki og 3:1 í kvennaflokki. A-lið Þróttar Neskaupstað sigraði B-lið sitt í báð- um flokkumm 3:0. Lið ÍS vann HSK að Laugarvatni 3:0 en kvennalið stúdenta tapaði fyrir UBK 0:3. Vík- ingur sigraði Þrótt Reykjavík 3:1 og karlalið Þróttar átti ekki í erfiðleik- um með HK og vann 3:0. HSK yfirspilaði Þrótt Reykjavík f síðustu viku áttust við í 1. deild karla að Laugarvatni lið HSK og Þróttar Reykjavík. HSK sigraði 3:0, 15/11, 17/15 og 15/7. Þetta voru úrslit sem fæstir áttu von á. Þróttarar voru nýbúnir að taka nafna sína í bakaríið og leit út fyrir að þeir væru á réttri leið. HSK-menn voru ekki á sama máli. Fyrsta hrinan var jöfn framan af og höfðu Þróttarar forystu 9/8. Þá tóku heimamenn í taumana, komust í 14/9 og sigruðu 15/11. Önnur hrina var æsispennandi. Þróttur komst í 10/1. HSK lagaði aðeins stöðu sína en Þróttur hafði þó forystu 13/6. Þá tóku HSK-menn að berja hraustlega á Þrótturum með Sigfinn Viggósson fremstan í flokki og drógu stöðugt á þá. Þeir jöfnuðu, 14/14, og komust yfir, 15/14. Þróttur náði að jafna en þá stungu HSK- menn af og sigruðu 17/15. Þessi meðferð virkaði sem rothögg á Þrótt og eftirleikurinn var HSK-mönnum auðveldur. HSK-menn börðu hraustlega á Þrótturum í þessum leik og gáfust aldrei upp. Sigfinnur Viggósson fór oft illa með Þróttara og lamdi allt í kringum hávörn þeirra. HSK er með líkamlega sterkt lið en vantar meiri tækni. Þrótt vantar þessa dagana allan stöðug- leika í leik sinn en fyrir það er liðið einmitt frægt. Framspil þeirra er lélegt og sjaldséð er að þeir vinni upp tapaða leiki eins og svo oft áður. Engin óvænt úrslit í bikarnum Um síðustu helgi fóru fram átta liða úrslit í bikarkeppni BLÍ. Að Laugarvatni sigraði ÍS lið HSK 3:0, 15/6,16/14og 17/15. Stúdentar komu stressaðir til þessa leiks, minnugir rassskellsins sem Þróttarar fengu þar rétt áður. Þetta olli því að þeir komu ákveðnir til leiks og unnu fyrstu hrinu örugglega 15/6. í annarri hrinu komust stúdentar í 13/6 þegar Tveir leikir voru í fyrrakvöld ■ úrvalsdeildinni í körfuknattleik. I Keflavík báru heimamenn sigurorð af Haukum 111-97 í fjörugum og skemmtilegum leik og í Sandgerði töpuðu Reynismenn sínum 16. leik í Körfuknattleikur-NBA: Lakers töpuðu fyrir Chicago Nokkrir leikir fóru fram í NBA- deildinni bandarísku aðfaranótt miðvikudags, úrslit urðu þessi: New York Knicks-Utah Jazz .... 115-107 New lersey Nets-Miami Heat.100-98 Washington-Minnesota Timberw. . . 112-99 Charlotte Hom.-Dallas Maver. . . . 102-97 Atlanta Hawks-Sacramento K. . .. 115-112 Detroit Pistons-Seattle Supers .... 94-77 Chicago Bulls-L.A.Lakers... 93-83 Boston Celtics-Milwaukee Bucks . . 95-86 L.A.Clippers-Indiana Pacers .... 128-102 Portland Trail Bl.-Houston R. ... 119-100 BL allt fór í baklás hjá þeim og gerði þeir hver mistökin á fætur öðrum. Þetta notfærðu HSK-menn sér og söxuðu á forskotið. Þeir náðu að jafna 14/14 þegar ÍS tók til sinna ráða og sigraði 16/14. Þriðja hrina var jöfn allan tímann. Stúdentar leiddu 11/9 en HSK tók við sér og náði forystu, 12/11. Lokamínúturnar voru æsispennandi og sáust oft ágæt- is skellir. ÍS átti góðan endasprett, vann 17/15 og þar með leikinn. Segja má að fall Þróttara skömmu áður hafi hjálpað stúdentum í þessum leik. Þeir áttu von á mikilli mót- spyrnu og komu því grimmari til leiks. Framan af átti HSK-liðið svar við sterkum sóknum þeirra og góðri hávörn. ÍS náði þó ekki að halda við góðri byrjun og lenti því í erfiðleik- um sem það hefði átt að geta sloppið við. Sigfinnur Viggósson var bestur HSK-manna, átti oft ágæta skelli en var stundum mistækur. Hjá ÍS vakti athygli ungur leikmaður, Viggó Sig- ursteinsson, athygli fyrir góðan leik. Hann átti firnasterkar og öruggar uppgjafir og barðist vel í lágvörn- inni. Arngrímur Þorgímsson, upp- spilari þeirra ÍS-manna, átti einnig góðan leik en hann lék oft illa á hávörn HSK-manna. í Hagaskóla fóru fram þrír leikir. UBK sigraði vængbrotið lið ÍS 3:0, 15/9, 15/10 og 15/8. Sigur Breiðabliks var aldrei í hættu í þessum leik. Liðið var klassa betra og réðu ÍS-stúlkur ekkert við það. Sigurborg Gunnarsdóttir er að kom- ast í sitt gamla form í uppspilinu og þegar svo er þá leikur allt UBK-liðið vel. Hún og Oddný Erlendsdóttir náðu vel saman og réð hávörn ÍS illa við skelli Oddnýjar. UBK-liðið átti allt góðan dag en þurfti aldrei að setja á fulla ferð. Lið ÍS var væng- brotið, eins og áður sagði, þar sem þeirra besti spilari, Ursula June- mann, var erlendis. Sóknir þeirra voru veikar en helst var það Katrín Pálsdóttir sem sýndi UBK klærnar. Víkingur og Þróttur áttust einnig við. Víkingur sigraði 3:1, 15/7, 9/15 og 15/0. Fyrsta hrina var auðveld fyrir Víking en í annarri sneri Þrótt- ur við blaðinu og sigraði örugglega, 15/9. Þá var eins og úthaldið þryti, þriðja hrinan var auðveld og sú síðasta tekin með eggi. Fengu Þrótt- arar aðeins tvær uppgjafir. Víkingur er nú á góðri siglingu eftir vandræði fyrr í haust. Virðist fátt geta komið í veg fyrir sigur þeirra í deild og fleiri titlar eru í hættu. Liðið er með sterka spilara í hverri stöðu en sami hópurinn hefur leikið saman í mörg röð í deildinni, fyrir KR 55-84. Guðjón Skúlason fór á kostum fyrir ÍBK gegn Haukum og gerði 33 stig, Sandy Anderson kom næstur með 19 stig. Fyrir Hauka skoraði Jonathan Bow 29 stig og Henning Henningsson 26. KR-ingar höfðu mikla yfirburði gegn Reyni og gátu leyft sér að hvíla lykilmenn langtímum saman. Anot- olij Kovtoum var þeirra stigahæstur með 28 stig, en Matthías Einarsson gerði 18. David Grisson gerði 23 stig fyrir Reynismenn. BL Staðan í deildinni: A-riðill: Keflavik... 15 11 4 1491-1222 +269 22 Grindavík . 16 10 6 1310-1274 +36 20 ÍR......... 15 6 9 1179-1275 -94 12 Valur...... 15 6 9 1216-1220 -4 12 Reynir .... 16 0 16 1087-1490 -403 0 B-riðill: Njarðvík... 15 13 2 1344-1233 +111 26 KR ........ 15 13 2 1177-1011 +166 26 Haukar.... 16 7 9 1429-1388 +41 14 TindastóU .. 15 7 8 1324-1285 +39 14 Þór........ 16 4 12 1335-1512 -177 8 ár. Sigrún Sverrisdóttir, uppspilari þeirra, átti góðan dag, svo og Björk Benediktsdóttir en liðið átti frekar náðugan dag. Snjólaug Bjarnadóttir er aftur komin til leiks hjá Þrótti eftir meiðsli og styrkir liðið mikið. Liðinu fer fram með hverjum leik en verður væntanlega ekki í toppbarátt- unni þetta árið. Metta Helgadóttir átti einnig góðan dag en var ekki öfundsverð að vinna úr lélegu fram- spili. Þá áttust við í karlaflokki Þróttur Reykjavík og HK. Þróttu sigraði nokkuð örugglega 3:0, 15/10, 15/12 og 15/7. Fyrsta hrinan var nokkuð örugg eign Þróttara. Þeir komust í 14/3 en HK náði að rétta stöðu sína nokkuð áður en Þróttur lauk henni. t annarri komst Þróttur í 14/8 en með mikilii baráttu náðu HK-menn að minnka muninn í 14/12. Þá gerðu þeir tvívegis mjög ódýr mistök og kláruðu hrinuna fyrir Þróttara. í síðustu hrinu náði Þróttur strax góðri forystu og átti ekki í teljandi erfiðleikum með hana. Leikurinn var mjög hraður og skemmtilega leikinn. Mikið var um góðar varnir og skelli. Ótrúlegt var að sjá að þar fór sama liðið og tapaði fyrir HSK þrem dögum áður. Halda mætti að Þróttur eigi við sama vandamál að stríða og íslenska landsliðið í handknattleik að eiga alltaf annan hvern leik góðan. Sókn- ir liðsins voru sterkar en móttaka léleg. Einar Ásgeirsson átti góðan leik gegn sínum fyrri félögum og Jón Árnason góða skelli og hann er einn af fáum mönnum í Þrótti sem getur tekið á móti fyrsta bolta. HK-liðið er mikið baráttulið. Það er ungt og vantar því meiri stöðugleika í leik sinn. Það leikur oft á tíðum mjög skemmtilegt blak en gerir þess á milli grátleg byrjendamistök. Geir Hlöðversson er kominn aftur í liðið og styrkir það mikið. Hann ásamt Vigni Hlöðverssyni voru bestu menn leiksins en einnig átti Karl Sigurðs- son góða spretti í lágvörninni. Ekki eru HK-menn búnir að ráða nýjan þjálfara en líklegt er að ieikmenn liðsins sjái um þjálfun þess. Þeir hafa þó ráðið sér liðsstjóra og fékk hin fornfræga sleggja Kjartan Busk það hlutverk. f Neskaupstað áttust við a og b lið þróttar og karla- og kvennaflokki. A liðin sigruðu bæði. f karlaflokki 3:0. 15/10. 15/5 og 15/7 en í kvennaflokki einnig3:0,15/2,15/8 og 15/10. Þessir leikir voru létt æfing fyrir a liðin og var sigur þeirra aldrei í hættu. Á Húsavík kepptu Völsungur og KA. í karlaflokki sigraði KA örugg- lega 3:0, 15/6, 15/4 og 15/10. í kvennaflokki vann KA 3:1, 15/1, 15/6, 5/15 og 16/14. Fyrstu tvær hrinurnar voru auðveldar fyrir KA- stúlkur en í þriðju hrinu sneru heimasæturnar dæminu við og unnu örugglega 15/5. f fjórðu hrinu héldu þær áfram sömu baráttu og komust í 14/2. Þá skall allt í baklás og saxaði KA jafnt og þétt á forskot þeirra. Völsungi, sem er utan deilda en hefur marga gamla landsliðsjaxla innanborðs, tókst síðan alls ekki að ná þessu síðasta stigi. KA-stúlkur jöfnuðu, unnu síðan hrinuna og þar með leikinn 3:1. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem KA sigrar Völsung í kvennaflokki. Þau lið sem komust í fjögurra liða úrslit í bikarkeppni BLÍ eru því: Kariar: ÍS, Þróttur Reykjavík, KA og Þróttur Neskaupstað a. Konur: UBK, Víkingur, KA og Þróttur Neskaupstað a. Staðan í 1. deild karla og kvenna þegar haldið er í jólafrí er þessi: Karlar ÍS ............ 9 9 0 27- 7 18 KA ............ 7 6 1 20- 6 12 Þróttur R..... 9 4 5 16-19 8 HK ............ 7 3 4 13-14 6 HSK ........... 8 3 5 13-17 6 Þróttur N..... 9 2 7 11-23 4 Fram .......... 7 1 6 6-20 2 Konur Víkingur...... 6 6 0 18- 4 12 UBK ............6 5 1 16- 5 10 ÍS ............ 8 5 3 20-12 10 KA ............ 6 4 2 14- 8 8 Þróttur N..... 9 3 6 13-21 6 Þróttur R.....7 1 6 3-19 2 HK ............ 6 0 6 3-18 0 BL jyH&Esfjsjsjsstsa^ ! LESJIINARJUETLIIN Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Árhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla miðvikudaga Varberg: Alla fimmtudaga Moss: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Arnarfell .... 5/2 1990 Gloucester/Boston: Alla þriðjudaga New York: Alla föstudaga Portsmouth/Norfolk: Alla sunnudaga Lestunarhafnir ínnanlands: Reykjavík: Alla miðvikudaga Vestmannaeyjar: Alla föstudaga Húsavík: Alla sunnudaga Akureyri: Alla mánudaga ísafjörður: Alla þriðjudaga SKÍMDE/U) ^kSAMBANDS/NS Sambandshúsinu, Kirkjusandi 105, Reykjavfk, sími 698300 L 1 1 í Á A A A Á. !AKN IRAl JSIPA N I JlfvJir\K ,A Körfuknattleikur-Úrvalsdeild: ÍBK og KR unnu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.