Tíminn - 11.01.1990, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.01.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 11. janúar 1990 Dómskerfinu breytt í snatri í kjölfar Hæstaréttardóms: Aðskilnaði dóms- og framkvæmdavalds flýtt Tillaga samgöngu- ráðherra fyrir ríkisstjórnarfund: Eyjaferja Dómsmálaráðuneytið sendi í gær fyrirskipun til allra sýslumanna og fógeta í landinu um að hætta nú þegar að dæma í máluni sem þeir hafa sjálfir rannsakað. Ástæðan er hæstaréttardómur sem féll í fyrradag. Aðskilnaður dóms-og framkvæmdavalds að þessu leyti kemur því til framkvæmda strax en áður hafði Alþingi samþykkt lög sem gera ráð fyrir líkum aðskilnaði frá og með 1. júní 1992. Vegna þessarar ákvörðunar ráðuneytisins þarf að skipa setu- eða héraðsdóm- ara við nítján sýslumanns- og fógetaembætti út um landið eða senda mál til Reyjavíkur til rannsóknar. Hæstaréttardómurinn sem olli þessari skyndilegu breytingu féll í máli vegna rannsóknar og dóms sýslumannsembættisins á Selfossi. Fulltrúi sýslumanns hafði afskipti af máli sem taldist smávægilegt. Hann sendi rannsóknargögn lögreglu til ríkissaksóknara til umsagnar og þessi sami fulltrúi dæmdi síðan í málinu. Hæstiréttur úrskurðaði slíka tilhögun ranga, ómerkti dóminn og vísaði málinu heim í hérað. f þessu sambandi er skemmst að minnast málareksturs Jóns Krist- jánssonar fyrir mannréttindanefnd Evrópu sem úrskurðaði að óhæft væri að sömu menn stjórnuðu rann- sókn máia og dæmdu einnig í þeim. A myndinni má sjá hluta af efninu sem kom í veiðarfærin hjá Þorleifi EA ásamt tóinu sem greinilega hefur mátt þola mikinn hita. Tiinamynd \rni Iljama Ný eldstöð finnst austan við Grímsey Rækjubáturinn Þorleifur EA frá Grímsey festi veiðarfærið þegar hann var að toga um 10-11 sjómílur austan við Grímsey. Eftir að búið var að losa og draga inn kom í ljós að 18 millimetra tóg sem sjómenn kalla róp eða rússi, var sviðnað í sundur. Upp með rækjunni kom um 300-400 kíló af efni sem jarðvísinda- menn kaiia Anhydrít Ca S04. Gylfi Gunnarsson skipstjóri á Þor- leifi sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir hvers konar efni var þarna á ferðinni, en þegar skipverjar tóku eftir því hvernig tóið var útleikið var ákveðið að senda efnið og tóendana til jarðfræðinga í von um að þeir gætu haft eitthvert gagn af fundin- um. Gylfi sagði að þarna fyrir austan Grímsey væn hefðbundin veiðistað- ur og margsinnis væri búið að toga á þessum slóðum. Gylfi sagðist hafa heyrt um að eitthvað svipað hefði komið í veiðarfæri hjá bát fyrir um Skipadeild Sambandsins flutti 542.000 t. Aukning f lutninga Skipadeildar 6% Flutningar Skipadeildar Sam- bandsins voru aldrei meiri en s.l. ár, en í heild námu þeir 542 þúsund tonnum. Samdráttur varð í olíu- flutningum á vegum Sambandsins, að þeim meðtöldum er aukning á flutningi skipadeildarinnar árið 1989 6%, en séu olíuflutningar ekki taldir með nemur aukningin 19%. Innflutningur óx í heild um 2%, útflutningur um 29%, eigin strand- flutningar Sambandsins um 47%, flutningar erlendis um 22%, en sam- dráttur í olíuflutningum innanlands nam tæpum 10%. Þá varð 20% aukning á gámaflutningum um vöru- afgreiðslu Skipadeildarinnar við Holtabakka. Rekstrartekjur námu rúmum 2,8 milljörðum króna, sem er 32% aukning frá árinu 1987. Sé tekið mið af hækkun byggingarvísitölu nemur hækkunin tæplega 10%. í árslok 1989 voru níu skip í rekstri Skipa- deildarinnar. Fjögur þeirra í eign Sambandsins, þrjú á leigu með ís- lenskar áhafnir og tvö á tímaleigu með erlendar áhafnir. - ÁG tveimur árum. Þá var það sem upp kom látið aftur í sjóinn án þess að efnið væri rannsakað, en hugsanlegt er að þar hafi verið um sama efni að ræða. Efnið sem kom upp heitir Anhyd- rít, sem er vatnssnautt gips. Efnið verður til á þann hátt að Kalsíum leysist úr bergi, þegar heitur jarðsjór leikur um það. Anhydrít fellur út við uppstreymisop á sjávarbotni. Það er því Ijóst að þarna er virk eldstöð. Guðmundur Sigvaldason, jarð- fræðingur og forstöðumaður Nor- rænu eldfjallastöðvarinnar, sagði að ekki hefði verið vitað um að parna væri jarðhiti og kvikuhólf. Hann sagði hins vegar að þetta kæmi á engan hátt á óvart því svæðið er í nágrenni við Atlantshafshrygginn. Guðmundur sagðist eiga í nokkr- um erfiðleikum með að skýra hvern- ig tóið hefði náð að bráðna í sundur. Vatn á 230 faðma dýpi eins og þarna er, getur orðið allt að 200 gráðu heitt. Hugsanlega nægir það til að bræða í sundur 18 millimetra tó, en forráðamenn Hampiðjunnar segja þó að svona tó eigi ekki að fara í sundur nema að það komist í tæri við eld. Norræna eldfjallastöðin á engin tæki til að rannsaka sjávarbotn á þessu dýpi, en Hafrannsóknarstofn- un getur hugsanlega gert þar ein- hverjar mæhngar. Starfsfólk Nor- rænu eldfjallastöðvarinnar vildi koma á framfæri þakklæti til Gylfa Gunnarsson skipstjóra fyrir að hafa sent þeim efnið til skoðunar. -EÓ •Þessi niðurstaða varð til þess að á síðastliðnu ári samþykkti Alþingi lög sem kveða á um að frá 1. júní 1992 verði lögreglustjórn í höndum sýslumanna en sérstakir héraðs- dómstólar kveði upp dóma í málum manna sem hafa orðið uppvísir að refsiverðri háttsemi. 1 dag eru héraðsdómarar aðeins í Reykjavík, Hafnarfirði, Keflavfk, Kópavogi, Vestmannaeyjum, á Ak- ureyri og á Selfossi. Á öðrum stöð- um verður nú að gera sérstakar ráðstafanir til að uppfylla þessi nýju fyrirmæli ráðuneytisins. SSH Ríkisstjórnin samþykkti á fundin sínum s.l. þriðjudag, tillögu frá sam- gönguráðherra, þess efnis að stefnt skuli að smíði ferju er gangi á milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar. Umrædd ferja verður 68 -70 metrar að lengd og mun aflað verðtilboða í smíði skipsins frá innlendum aðilum, á grunni þeirra hugmynda er nú liggja fyrir um gerð þess. Til álita kemur að nýta fyrirliggj- andi hönnunaráætlanir og teikningar sem Herjólfur hf, sem nú gerir út ferju á milli lands og Eyja, hefur þegar látið gera. Samkvæmt áætlun- um frá Herjólfi frá síðasta ári, þar sem gert er ráð fyrir smíði 79 metra ferju, var kostnaður við smíði þess þá á bilinu 1,1 - 1,3 milljarðar. - ÁG vatnsendi uppbooi Skattheimta Kópavogs hefur kraf- ist uppboðs á jörðinni Vatnsenda, sem er eins og kunnugt er í eigu Magnúsar Hjaltested. Uppboðs- beiðnin er vegna skuldar að upphæð 1 301 848 kr. Lögbirtingablaðið hefur þrisvar sinnum birt auglýsingu um uppboð á jörðinni þannig að fyrsta uppboð mun að öllu óbreyttu fara fram á Vatnsenda 24. janúar kl. 10.00. Erfðaskráin margumtalaða kemur að öllum líkindum ekki í veg fyrir að hægt sé að bjóða jörðina upp. Óvíst er hvort að ákvæði erfðaskrárinnar hafa verið brotin ef að jörðin verður seld á uppboð. -EÓ Ríkið með aðra sjónvarpsrás? Til umræðu er að Ríkisútvarpið fari af stað með aðra sjónvarpsrás. Málið hefur verið til athugunar innan stofnunarinnar en ekki verið sent menntamálaráðherra til um- fjöllunar. í forsíðufrétt Þjóðviljans í gær sagði Svavar Gestson að þessi kostur kæmi vel til greina og ekki væri ólíklegt að þetta mál yrði skoðað. f lok síðasta árs úthlutaði sam- gönguráðherra RÚV einu sjón- varpsrásinni sem eftir var á metra- bylgjusviði þó svo að Stöð 2 og fsfilm hafi sýnt áhuga á að fá þá rás. Hvatinn að umræðunni sem nú er í gangi um að Ríkisútvarpið taki þessa rás í notkun er slæm fjár- hagsstaða Stöðvar 2. SSH Verkfall símsmiöa: Ræddu við ráðherra Símsmiðir áttu fund með sam- gönguráðherra í gær þar sem rætt var um deilu símsmiða og ríkisins. Páll Þorkelsson formaður Félags símsmiða sagði eftir fundinn að þar hefði ekkert nýtt komið fram, en ráðherranum hafi verið kynnt af- staða símsmiða. Ráðherra gaf engin fyrirheit eða yfirlýsingar um að hann myndi beita sér í málinu. Félag símsmiða, sem á aðild að Rafiðnaðarsambandi fslands, hefur boðað verkfall frá og með 16. janúar nk. Deilan snýst fyrst og fremst um réttmæti félagsins en fjármálaráðu- neytið hefur ekki viðurkennt það sem samningsaðila. Þá telur samn- inganefnd ríkisins verkfallsboðunina ólöglega þar sem símsmiðirnir hafi sagt upp störfum. Ekki hefur verið boðaður fundur með deiluaðilum. SSH Attræðurídag Áttræður er í dag Guðmundur Jón Hákonarson fyrrverandi kaup- félagsstjóri Sláturfélagsins Örlygs á Gjögrum. Guðmundur fæddist 11. janúar 1910 á Hnjóti í Rauðasands- hrepp. Foreldrar hans voru Hákon Jónsson og Málfríður Guðbjarts- dóttir. Guðmundur var kaupfélags- stjóri Sláturfélagsins á Gjögrum í 25 ár og starfsmaður þess í um 40 ár. Guðmundur hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína. Guðmundur verður að heiman á afmælisdaginn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.