Tíminn - 25.01.1990, Side 1
■
Sjötíu sjóðir lagóir niður af ríkisendurskoöun, en ellefu hundruöeru enn ífullufjöri:
Seilast til ódauð-
leika gegnum sjóði
Liðlega ellefu hundruð sjóðir,
flestir hverjir minningarsjóðir
eða styrktarsjóðir, eru á
skipulagsskrá hér á landi.
Þetta segir ekki alla söguna
því vitað er um fjölmarga sjóði
sem ekki hafa verið skráðir.
Mikil skriffinnska er í kringum
sjóðina og hafa vörsluaðilar
þurft árlega að senda ríkis-
endurskoðun yfirlit yfir starf-
semi sjóðanna. Með tilkomu
laga frá 1988 er loks hægt að
leggja niður þá sjóði sem
menn óska eftir. Nýverið voru
sjötíu sjóðir lagðir niður og
fimmtíu aðrir verða fljótlega
lagðir niður. Mestmegnis er
um að ræða minningarsjóði
þar sem einstaklingar seilast
eftir ódauðleika fyrir sig eða
sína.
• Blaðsída 5
Kögurvængja, ónæm fyrir eitri, ógnun við framtíð grænmetisræktenda:
Eyðileggur útlend padda
gróðurrækt í Hveragerði?
Fyrir um átján mánuðum nam kögurvængja
land á íslandi og hefur á skömmum tíma náð
fótfestu hér. Kvikindið er agnarsmátt, og segði
sjálfsagt fátt af ferðum þess ef það væri ekki
skaðvaldur í grænmetisrækt. Kögurvængja er
ónæm fyrir flestum eiturtegundum en vinnur
ómælt tjón í gróðurhúcum í Hveragerði þar
sem hún er nokkuð útbreidd. Eina ráðið í dag
tii að berjast við kögurvængjuna er að hreinsa
út úr húsunum. • OPNAN