Tíminn - 26.01.1990, Side 3

Tíminn - 26.01.1990, Side 3
Föstudagur 26. janúar 1990 Miðbær Selfoss: Hugmynda- samkeppni um deili- skipulag Bæjarstjórn Selfoss hefur ákveðið að efna til hugmyndasamkeppni um deiliskipulag miðbæjarins. Þetta er gert í framhaldi af staðfestingu fé- lagsmálaráðherra á endurskoðuðu aðalskipulagi fyrir Selfoss 1987 til 2007. í aðalskipulaginu er m.a. mörkuð stefna varðandi landnotkun, umferð og umhverfi. Um miðbæ Selfoss er mikill umferðarstraumur og er til- gangur samkeppninnar að fá fram hugmyndir um uppbyggingu heil- steyptari miðbæjarkjarna. Miðbæj- arkjarninn á ekki aðeins að þjóna Selfossi, heldur öllum byggðasvæð- um í Árnessýslu um leið og umhverf- ið verður gert meira aðlaðandi. Þeir sem þátt vilja taka í hug- myndasamkeppninni fá samkeppnis- gögn afhent gegn skilatryggingu hjá trúnaðarmanni dómnefndar og er skilafrestur á hugmyndum til 11. apríl 1990. Verðlaunin eru ekki af verri endanum, en heildarupphæð verðlauna eru kr. 1,5 milljón króna og verða fyrstu verðlaun ekki lægri en 800 þúsund krónur. Heimilt er að verja 300 þúsund krónum til inn- kaupa á tillögum. Trúnaðarmaður dómnefndar er Ólafur Jensson hjá Byggingarþjón- ustunni, Hallveigarstíg. -ABÓ Afmæli ísl. kvikmynda- vorsins Um þessar mundir er áratugur liðinn frá frumsýningu fyrstu ís- lensku kvikmyndarinnar á hinu svokallaða „kvikmyndavori", eða frá því að samfelld kvikmyndagerð hófst í landinu. í dag mun Félag kvikmyndagerðarmanna efna til ráð- stefnu af þessu tilefni klukkan 17:00 að Borgartúni 6. Á ráðstefnunni verður horft yfir farinn veg og reynt að meta stöðu íslensku kvikmyndarinnar í dag. Á síðasta áratug sáu að meðaltali 260 þúsund íslendingar íslenska kvik- rnynd á ári hverju. Þriðja hver mynd sem dreift var erlendis hlaut viður- kenningu eða verðlaun á alþjóða- vettvangi og um 260 milljónir Vest- urlandabúa sáu íslenskar kvikmynd- ir á sama tíma. Samt stendur íslensk kvikmyndagerð höllum fæti í dag og svo gæti farið að hún legðist af með öllu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagi kvikmyndagerðarmanna. Ávörp á ráðstefnunni flytja: Þor- steinn Jónsson, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna, Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, Ág- úst Guðmundsson, formaður Sam- bands íslenskra kvikmyndaframleið- enda, Þráinn Bertelsson, kvikmynd- agerðarmaður og Svavar Gestsson menntamálaráðherra. LEIDRÉTTING í viðtali við Guðrúnu Þórsdóttur í opnugrein í blaðinu í vikunni var rangt með farið að henni væri ekki kunnugt um að náms- og starfs- fræðsla væri í nágrannalöndunum. Hið rétta er að fyrirkomulag starfs- fræðslunnar hér á landi er ekki að erlendri fyrirmynd. Hins vegar er náms- og starfsfræðsla með ýmsu móti í Evrópu og Bandaríkjunum. SSH v i BIFREIÐÆ HLUNNINDI Endurgjaldslaus afnot launamanns af bifreið launagreiðanda eru staðgreiðsluskyld og skulu þau metin honum til tekna þannig: Af bifreið sem tekin var í notkun á árunum 1988 og 1989 eða tekin verður í notkun á árinu 1990 skal meta 20% af kostnaðarverði bifreiðarinnar sem hlunn- indi til tekna. Af eldri bifreið skal meta 15% af kostnaðarverði sem hlunnindi til tekna. Kostnaðarverð er skilgreint sem stað- greiðsluverð samkvæmt verðlista á sams konar bifreið nýrri af árgerð 1990, að með- töldum kostnaði vegna hvers konar auka- og sérbúnaðar. Verðlisti fæst hjá skattstjór- um og RSK. Hafi launamaður greitt hluta af verði bifreiðar skal lækka verð bifreiðarinn- ar til hlunnindamats um þá fjárhæð sem launamaðurinn sjálfur greiddi. Séu endurgjaldslaus afnot launa- manns takmörkuð við ákveðinn kílómetra- fjölda þannig að hann greiði launagreið- anda sínum fyrir ekna kílómetra umfram umsamið hámark skal reikna honum full mánaðarleg hlunnindi til tekna uns umsömdu hámarki er náð. Eftir þau tíma- mörk skal draga greiðslu launamanns frá fjárhæð mánaðarlegra hlunninda og falla þau niður sé greiðsla launamanns jafnhá þeim. Mánaðarleg hlunnindi teljast 1/12 af hlunnindamati bifreiðar. Ef afnot launa- manns eru takmörkuð við hluta af mánuði skal meta bifreiðahlunnindi hans í réttu hlutfalli við þann dagafjölda í mánuðinum sem hann hefur afnot af bifreiðinni. Greiði launamaður eldsneytiskostnað (og smurningu) skal lækka hlunnindamat um 4 prósentustig, þ.e. í 16% eða 11 % eftir aldri bifreiða. Heimilt er að lækka hlunnindamat ef launamaður greiðir annan rekstrarkostnað enda afhendi launamaður launagreiðanda sínum kvittanir frá þriðja aðila fyrir slíkum kostnaði og fái hann ekki endurgreiddan. Greiði launamaður launagreiðanda sínum fyrir afnot af bifreið endurgjald sem er lægra en hlunnindamat, skal mismunur- inn teljast launamanni til tekna. Launamanni, sem hefur takmörkuð not af bifreið launagreiðenda, skal meta til hlunninda 14 kr. per ekinn km. Þetta á þó ekki við akstur milli heimilis og vinnustaðar ef slíkur akstur er honum ekki til hagsbóta. Endurgreiddur kostnaðurtil launamanns vegna afnota launagreiðanda af bifreið hans, sem halda má utan staðgreiðslu, er metinn þannig: Þar sem kílómetragjald er lægra fyrir akstur umfram 10.000 km þarf launagreiðandi að fylgjast með heildarakstri launamanna í hans þágu. Fái launamaður greitt kílómetragjald frá opinberum aðilum vegna aksturs í þágu þeirra, sem miðast við „sérstakt gjald“ eða „torfærugjald“ sem Ferðakostnaðarnefnd ákveður, má hækka viðmiðunarfjárhæðir sem hér segir: Fyrir 1 -10.000km akstur-sérstaktgjald hœkkun um 3.75 kr. pr. km. — torfœrugjald hœkkun um 10.85 kr. pr. km. Fyrir 10.001-20.000 km akstur - sérstakt gjald hœkkun um 3.30 kr. pr. km. — torfœrugjald hœkkun um 9.65 kr. pr. km. Umfram 20.000km akstur-sérstaktgjald hœkkun um 2.95 kr. pr. km. — torfœrugjald hœkkun um 8.50 kr. pr. km. Skilyrði fyrir niðurfellingu staðgreiðslu vegna kílómetragjalds er að færð sé reglulega akstursdagbók eða akstursskýrsla þar sem skráð er hver ferð, dagsetning, ekin vegalengd, aksturserindi, kílómetragjald greitt launamanni, nafn og kennitala launamanns og einkennisnúmer ökutækis.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.