Tíminn - 30.01.1990, Side 4

Tíminn - 30.01.1990, Side 4
4 Tíminn Þriðjudagur 30. janúar 1990 Hans Modrow forsætisráðherra fær stjómarandstöðuna með sér í þjóðstjóm, flýtir kosningum, flytur Honecker af sjúkrahúsi í fangelsi, en það gæti litlu máli skipt, því: Kjarnorkutímasprengja A- Undanfarnir tveir dagar voru viðburðaríkir í austurþýskum þjóðmálum. Ákveðið var að mynda nýja þjóðstjórn á breiðum grundvelli og ganga til kosninga í mars, tveimur mánuðum fyrr en áætlað var. Honecker fyrrum leiðtogi landsins losnaði af sjúkrahúsi þar sem hann var nýlega skorinn upp við krabbameini í nýra, en var samstundis stungið í fangelsi þar sem hann bíður þess að verða dreginn fyrir rétt ásamt helstu samstarfsmönnum sínum, sakaður um landráð og spillingu. Hans Modrow, forsætisráðherra Austur-Þýskalands, hefur staðið í ströngu. Hann hefur fengið stjómarandstöðuna í lið með sér í rfldsstjóm, flýtt kosningum, sent Honecker af sjúkrahúsi í fangelsi. Hins vegar situr hann á tifandi kjamorkutímasprengju, sem líkt er við rússneska rúllcttu, enda rússnesk hönnun. FRÉTTAYFIRLIT AUSTUR-BERLÍN - Um það bil 100 þúsund Leipzigbú- ar kröfðust þess að þýsku ríkin yrðu sameinuð í kjölfar þess að Hans Modrow forsætisráð- herra flýtti kosninaum í landinu um tvo mánuði. IBrussel hófu embættismenn frá Austur- Þýskalandi og Evrópubanda- laginu samningaviðræður um 10 ára viðskipta- og samvinnu- samning. Segja Austur-Þjóð- verjar samninginn vera fyrsta skrefið í átt til aoildar að banda- laginu. BELGRAD - Ríkisstjórnin í Júgóslavíu hvatti til þess að aáttaátökum í Kosovo hætt og þjóðarbrot Alb- ana og Serba hæfu viðræður. Serbar höfðu áður sakað Kró- ata og Slóvena um að kynda undir ólgu Albana í Kosovo. Tveir menn voru drepnir í Kos- ovo strax í kjölfar áskorunar ríkisstjórnarinnar. Hafa 16 því fallið frá því á laugardag. WASHINGTON - Banda- ríska ríkisstjórnin varaði bráðabirgðastjórn Þjóðfrelsis- fylkingarinnar í Rúmeníu við að snúa frá lýðræðisumbótum í landinu. MOSKVA - Rússneska borgin Tiraspol hefur sagt sig úr lögum við sovétlýðveldio Moldavíu. 92% borgarbúa sem flestir eru af rússnesku bergi brotnir tóku þátt í at- kvæðagreiðslu um úrsögn. 96% þeirra vildu að stofnað verði rússneskumælandi lýð- veldi innan Moldavíu, en mikið hefur borið á þjóðernishreyf- ingu Moldavíumanna að undanförnu. OSLÓ - Afríska þjóðarráðið sem bannað er í Suður-Afríku gæti tekið til starfa á löglegan máta í Suður-Afríku fyrir lok þessa árs. Frá þessu skýrði Walter Sisulu framkvæmda- stjóri Afríska þjóðarráðsins, en hann segir allar líkur á því að stjórn hvíta meirihlutans af- nemi bannið. WASHINGTON - Dick Cheney varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur boðist til þess að loka eða takmarka starfsemi í 69 bandarískum herstöðvum, þar af 14 utan Bandaríkjanna, næstu fimm árin. Ekki er um Keflavíkur- stöðina að ræða heldur þrjár stöðvar á Bretlandi, tvær í Grikklandi, eina á Italíu, þrjár í Suður-Kóreu, tvær í Tyrklandi og eina í Vestur-Þýskalandi. Er gert ráð fyrir að gera þetta. á fimm árum. Þá var staðfest að austurþýsk kjarnorkuver eru ekkert annað en gífurlega öflugar tímasprengjur sem lagt geta Mið-Evrópu í rúst á hverri stundu og hafa stjórnvöld heitið að ekki yrðu fleiri slík kjarnorkuver reist. Á sunnudaginn sættist stjórnar- andstaðan á að frjálsum þingkosn- ingum í Austur-Þýskalandi yrði flýtt um tvo mánuði og einnig á að taka sæti í nýrri samsteypustjórn Hans Modrows forsætisráðherra sem starfi fram að kosningum. Ákvörðun þessi var tekinn eftir sjö klukkustunda langan fund og sýnir í raun að áhrif kommúnistaflokksins á austurþýskt þjóðlíf eru um það bil að hverfa. Munu kosningarnar fara fram 18. mars í stað 6. maí, en þess í stað verður kosið til í bæjar- og sveitar- stjórna 6. maí. Hans Modrow forsætisráðherra sagði í gær að þjóðarheill hefðu krafist þess að kosningunum yrði flýtt og að komið yrði á fót þjóðstjórn. Sagði hann að efnahags- lífið væri komið á heljarþröm og hætta á að lög og regla hryndi þá og þegar. því hefðu verið nauðsynlegt að flýta kosningum. Sagði hann að sífellt fleiri verkföll og upplausn í sveitarstjórnum hefðu að undan- förnu grafið undan tilveru Austur- Þýskalands. Gert er ráð fyrir að fimmtán stjórnmálaflokkar og hagsmunasam- tök muni eiga ráðherra í þjóðstjórn- inni og á myndun hennar að verða lokið fyrir mánaðamót. Þá gerðist það að Erich Honecker fyrrum leiðtogi Austur-Þýskalands útskrifaðist af sjúkrahúsi þar sem krabbameinsæxli í nýra var numið á Albanir í Kosovohéraði í Júgó- slavíu sóru blóðeiða og hétu að hefna fjórtán Albana sem féllu í átökum við lögreglu um helgina. Albanarnir tóku þátt í mótmælaað-. gerðum gegn yfirráðum Serba í Kos- ovo, en í héraðinu búa 1,7 milljónir Albana, en einungis um 200 þúsund Serbar og Svartfellingar. Héraðið hafði áður víðtæka sjálfstjórn, en hún var afnumin á síðasta ári og yfirstjóm Serbíu falin völdin. Tíu Albanir féllu fyrir skotum lögreglu á laugardag og fjórir á sunnudag þegar þeir kröfðust þess að yfirmenn héraðsins segðu af sér, haldnar yrðu frjálsar kosningar og pólitískir fangar yrðu leystir úr haldi. Kosovohérað hefur um langt skeið verið vettvangur mikilla átaka milli kynþátta og spila trúarbrögðin þar stóra rullu eins og víðast hvar annars staðar þar sem kynþáttaólga ríkir. Albanimir em múslímar en Serbar og Svartfellingar eru kristnir. Hafa um það bil 40 þúsund Serbar og Svartfellingar flúið héraðið undan- farin tíu ár og saka þeir Albani um I U lOV //JÚSflílTU ij . ' .i i1 Jtj'i j .j’l/ . :' - brott fyrir nokkrum vikum. Hins vegar var hann færður beint í fang- elsi þar sem hann á yfir höfði sér ákæru um landráð og spillingu. Fékk hann einungis að kyssa eiginkonu sína einn kveðjukoss í gærmorgun áður en hann var færður í fangelsi. Hans Júrgen Joseph ríkissaksókn- ari skýrði frá því í sjónvarpsviðtali í gær að auk Honeckers yrðu þeir Erich Mielke fyrrum yfirmaður ör- yggislögreglunnar, Gúnter Mittag fyrrum efnahagssérfræðingur ríkis- stjórnarinnar og Joachim Herrmann yfirmaður ríkisfjölmiðlana í Austur- Þýskalandi, leiddir fyrir rétt sakaðir um landráð. Þá kom það fram í vesturþýska tímaritinu Der Spiegel að kjarn- orkuverið í Greifswald í Austur- Þýskalandi er ekkert annað en öflug og bannvæn tímasprengja sem lagt getur líf í Mið-Evrópu í rúst ef illa fer. „Hinir fjórir kjarnaofnar í Greifs- wald eru orðnir ... óáreiðanlegar tímasprengjur - rússneskar rúllettur kjarorkutækninnar," segir í hinu virta tímariti. í tveggja klukkustunda akstursleið með bíl til Hamborgar, Hannover og Berlínar er kjarnorkuver sem getur sprungið hvenær sem er með þeim afleiðingu að geislavirkt ský myndi þekja alla Mið-Evrópu. Mið- að við alla öryggisstaðla á Vestur- löndum yrði kjarnorkuverinu lokað samstundis, sagði einnig í greininni. Der Spiegel skýrir frá því að einungis á árinu 1988 hafi orðið að stöðva kjarnaofnana í Greifswald átján sinnum vegna meiriháttar tæknilegra vandamála, upp hafi komið 242 „sérstök atkvik“ sem að hafa flæmt sig á brott með hótunum og að þeir stefni að samein- ingu Kosovo héraðs við Albaníu. Serbar hyggjast halda völdum stn- um í Kosovo hvað sem tautar og raular. Beita þeir fyrir sig kommún- istaflokki Serbíu í því máli. Hins vegar eru það ekki einungis Albanir í Kosovo sem líst ekki á blikuna hvað varðar stjórnsemi Serba, fjöl- mennasta þjóðarbrotinu í Júgó- slavíu. Slóvenar og Króatar eru ekki par hrifnir af yfirgangi Serba og kemur það fram í klofningi í kommúnista- flokki Júgóslavíu. í síðustu viku kröfðust fulltrúar Slóveníu á lands- þingi kommúnistaflokks Júgóslavíu um helgina að flokknum yrði skipt upp í níu sjálfstæðar landshluta- deildir sem hefðu einungis lauslegt samband. Tóku leiðtogar flokksins í Króatíu undir þetta á miðstjómar- fundi sínum á sunnudaginn. Því er ljóst að kommúnistaflokkurinn er nú margklofinn og gætu þetta verið fyrstu skrefin í þá átt að Ríkjasam- bandið Júgóslavía liðaðist í sundur. kölluðu á neyðarástand og 122 trufl- anir. Kjarnaofnarnir eru illa hannaðir og ekki varðir fyrir flugslysum né jarðskjálftum. Þök í kjarnorkuver- inu er svo hriplek að þau halda ekki vatni og að regnvatnið komist inn á kerfin og þannig að geislavirk gufa kemst út í andrúmsloftið. Þá var skýrt frá því í Austur- Þýskalandi í síðustu viku að árið 1976 hafi á síðustu stundu verið Nú er mikil gróska í rúmenskum stjórnmálum og eru deildar mein- ingar um ágæti bráðabirgðastjórn- ar Ions Ionescu forseta sem tók við völdum eftir að harðstjóranum Nicolae Ceausescu var steypt af stóli um jólin. Á sunnudaginn tóku tugir þúsunda manna þátt í mót- mælaaðgerðum fyrir utan höfuð- stöðvar Þjóðfrelsishreyfingarinnar sem nú fer með völdin, sökuðu stjómina um að halda uppi stjórn- arháttum Ceausescus og kröfðust breytinga á ríkisstjórninni sem hyggst sitja fram að kosningum 20. maí. Dæmið snerist hins vegar við í gær. Þá mættu þúsundir stuðn- ingsmanna Þjóðfrelsisfylkingar- innar fyrir framan höfuðstöðvar samtakanna til að lýsa stuðningi sínum við Ionescu og bráðabirgða- stjórn hans. Stuðningsmenn Þjóð- frelsisfylkingarinnar bættu um bet- ur og umkringdu höfuðstöðvar stjórnarandstöðunnar sem staðið komið í veg fyrir stórslys líkt og átti sér stað í Tsérnóbíl á sínum tíma. í kjölfar þeirra fregna lét kjarn- orkueftirlitið í Austur-Þýskalandi fara frá sér yfirlýsingu þar sem skýrt var frá því að ekki hefðu orðið neinir meiriháttar lekar frá kjarnorkuver- um í Austur-Þýskalandi. Þá gérðist það í gær að austurþýsk stjórnvöld skýrðu frá því að ekki yrðu byggð fleiri kjarnorkuver í Austur-Þýskalandi í náinni framtíð. hafði fyrir mótmælaaðgerðunum á sunnudaginn og ítrekuðu stuðning- inn við ríkisstjórnina. Mótmælin gengu svo langt að Corneliou Coposu leiðtogi Þjóð- lega bændaflokksins varð að yfir- gefa höfuðstöðvarnar í brynvörð- um bíl í fylgt Petre Roman forsæt- isráðherra. Roman og Casimirlon- escu varaforseti héldu til höfuð- stöðva Þjóðlega bændaflokksins til að róa stuðningsmenn Þjóðfrelsis- fylkingarinnar. „Þessir menn hér fyrir utan eru vel meinandi, en þeir skilja ekki enn leikreglur lýðræðisins," sagði Ionescu eftir að Roman og Copusu höfðu yfirgefið höfuðstöðvarnar, en þeir héldu beint í sjónvarpssal þar sem tekinn var upp kappræðu- fundur þar sem þeir ræddu sjón- armið sín í stjórnmálum sem eru mjög ólík, svo ekki sé meira sagt. Copusu hefur verið harðasti and- stæðingur ríkisstjórnarinnar og sakar hana um kommúnisma. Albanir í Kosovo hóta blóðhefndum Dagamunur hjá bráðabirgðastjórninni í Rúmeníu: Andóf og stuðningur almúgans í Búkarest

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.