Tíminn - 30.01.1990, Síða 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 30. janúar 1990
lllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
FERÐAMÁLARÁÐSTEFNA
Á EGILSSTÖÐUM
16. og 17. febrúar 1990
Dagskrá
Föstudagur 16. febrúar:
Kl. 11:00 Ráðstefnan sett: Kristín Halldórsdóttir,
formaður.
Ávarp Steingríms J. Sigfússonar,
samgönguráðherra.
Kl. 11:30 Framsöguerindi:
a) Fræðslumál og menntun.
b) Uppbygging ferðaþjónustu í dreifbýli.
Kl. 13:00 Kynning ferðamálanefndar samgönguráðu-
neytisins á störfum nefndarinnar.
a) Framsaga formanns nefndarinnar
Hjörleifs Guttormssonar.
b) Nefndarmenn kynna hugmyndir og
sitja fyrir svörum.
c) Skoðanaskipti og fyrirspurnir.
Kl. 15:00 Ráðstefnugestir heíja umræður í 6 starfs-
hópum.
Laugardagur 17. febrúar:
Kl. 09:30 Starfshópar Ijúka umræðum og ganga frá
niðurstöðum og álitsgerðum.
Kl. 13:00 Niðurstöður hópa kynntar og ræddar.
Gengið frá tiilögum og álitsgerðum.
Kl. 17:00 Ráðstefnuslit: Kristín Halldórsdóttir, for-
maður.
Reiknað er með aukaflugi frá Reykjavík til Egilsstaða fnnmtu-
daginn 15. febrúar ld. 17:15, föstudaginn 16. febrúar kl. 08:30
og frá Egilsstöðum til Reykjavíkur 18. febrúar kl. 12:00. Flug-
leiðir munu veita ráðstefhugestum 50% afslátt al'flugfargjald-
inu. Panta skal far hjá Flugleiðum en þátttaka tilkynnist til
Sigurborgar Kr. Hannesdóttur, Hótel Valaskjálf.
Feróamálaráö islands
FÉLAG
JÁRNIÐNAÐARMANNA
Allsherjar-
atkvæða-
greiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs
Félags járniðnaðarmanna fyrir næsta starfsár.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs félagsins skal skila til kjörstjórnar félagsins, á
skrifstofu þess að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð,
ásamt meðmælum a.m.k. 75 fullgildra félags-
manna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins
og auk þess tillögur um 14 menn til viðbótar í
trúnaðarmannaráð og 7 varamenn þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og
trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 18:00 þriðjudag-
inn 7. febrúar 1990.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
Selfoss og nágrenni
Spiluð verður félagsvist að Eyrarvegi 15, Selfossi þriðjudagskvöldin
16., 23. og 30. janúar, kl. 20.30.
Kvöldverðlaun, 1. og 2. verðlaun fyrir öll þrjú kvöldin.
Allir velkomnir
Framsóknarfélag Selfoss
Enska knattspyrnan:
Markalaust jafntefli
Norwich og Liverpool
Norwich/Liverpool-Southampton helgina 17.-18. febrúar.
Leikirnir í 5. umferð verða leiknir
BL
Ameríski fótboltinn:
Yfirburðir
hjá 49ers
Nokkuð var um óvænt úrslit í 4.
umferð ensku bikarkeppninnar í
knattspyrnu sem fram fór um helg-
ina. Oruggur sigur 3. deildarliðs
Bristol City á 1. deildarliði Chelsea
kom einna mest á óvart, en eins og
sjónvarpsáhorfendur fengu að sjá á
laugardaginn þá var Bristol betra
Iiðið á vellinum og vann sanngjarnan
sigur 3-1.
Á sunnudaginn fékk Norwich
bikarmeistara Liverpool í heimsókn.
Markalaust jafntefli varð raunin og
mætast liðin á nýjan leik á miðviku-
dagskvöld á Anfield Road.
Manchester United slapp naum-
lega frá viðureign sinni við 4. deild-
arlið Hareford. Clayton Blackmore
gerði eina mark leiksins á 84. mín.
Everton-, sem í fyrra lék til úrslita
í bikarkeppninni gegn Liverpool, slá
Sheffield Wednesday út úr keppn-
inni á Hillsborough á sunnudag.
Úrslitin urðu 1-2 og voru öll mörkin
skoruð í fyrri hálfleik. Norman
Whiteside skoraði bæði mörk Ever-
ton á 10. og 28. mín. en David Hirst
hafði jafnað á 11. mín.
Úrslitin í 4. umferð bikarkeppn-
innar um helgina urðu þessi:
Arsenal-QPR...............0-0
Aston Villa-Port Vale ..........6-0
Barnsley-Ipswich.............2-0
Blackpool-Torquay ..............1-0
Bristol City-Chelsea......3-1
Crystal Palace-Huddersfield . 4-0
Hereford-Manchester Utd. . . 0-1
Millwall-Cambridge...........1-1
Norwich-Liverpool ...........0-0
Oldham-Brighton ............2-1
Reading-Newcastle ..........3-3
Rochdale-Northampton .... 3-0
Sheffield Utd.-Watford....1-1
Sheffield Wed.-Everton .... 1-2
Southampton-Oxford........1-0
WBA-Charlton..............1-0
Dregið hefur verið til 5. umferðar,
eftirtalin lið leika saman:
Crystal Palace-Rochdale
Reading/Newcastle-
Manchester United
Blackpool-Arsenal/QPR
Oldham-Everton
Bristol City-Millwall/
Cambridge United.
WBA-Aston VUla
Sheffield United/Watford-Bamsley
Það fór eins og flestir reiknuðu
með, San Francisco 49ers vann létt-
an sigur á Denver Broncos í úrslita-
leik ameríska fótboltans (Super
Bowl) í New Orleans á sunnudaginn
55-10. Þar með varð 49ers fyrsta
liðið í 10 ár tU að sigra tvð ár í röð í
keppninni.
Yfirburðir 49ers voru miklir í
leiknum og liðið skoraði nánast í
hvert skipti sem það hafði boltann á
valdi sínu. Eftir fyrsta leikhluta var
staðan 13-3 og í hálfleik 27-3. Den-
ver náði að skora snertimark í 3.
leikhluta en að honum loknum var
staðan 41-10. Tvö snertimörk og 2
aukastig 49ers í fjórða leikhluta
færði þeim 55-10 sigur í leiknum sem
mun vera met, en fyrra markametið
átti lið Chicago Bears, en það var
46-10 sett fyrir 4 árum.
Joe Montana leikstjórnandi 49ers
átti enn einn stórleikinn með liði
sínu og var valinn maður leiksins
(MVP) í þriðja sinn, sem einnig er
met. 22 af 29 sendingum hans heppn-
uðust í leiknum og alls náðu hlaupar-
arnir að komast 297 jarda eftir
sendingar hans. Auk þess átti Mont-
ana 5 sendingar sem gáfu snerti-
mörk. Þrjár þeirra voru til Jerry
Rice, sem í fyrra var valinn besti
leikmaður „Super Bowl“ leiksins og
sín hvora sendinguna fengu þeir
John Taylor og Brent Jones. í þau
fjögur skipti sem Montana hefur
leikið í „Super Bowl“ hefur hann
ekki enn látið hitt liðið komast inní
sendingu frá sér.
49ers liðið gerði að auki 3 snerti-
mörk með því að hlaupa með bolt-
ann inní endamarkið, en þar var
Tom Ratham tvívegis að verki og
Roger Craig einu sinni.
Með þessum sigri jafnaði 49ers
met það sem hið fræga Pittsburgh
Steelers lið setti á áttunda áratugn-
um, að fara fjórum sinnum í „Super
Bowl“ án þess að tapa. Denver
Broncos jafnaði einnig met með
ósigri sínum á sunnudaginn. Það var
met sem Minnesota Vikings átti,
fjórum sinnum í „Super Bowl“ án
þess að sigra.
Leikstjórnandi Denver, hinn
þekkti John Elway, var ekki í jafn
miklu stuði og kollegi hans Montana
hjá 49ers. Elway tókst aðeins að
koma 10 af 26 sendingum sínum í
réttar hendur og hann átti enga
sendingu sem gaf snertimark. Þar að
auki komust leikmenn 49ers inní 2
af sendingum hans.
Mikil gleði ríkti í búningsherbergi
49ers eftir leikinn og hrópuðu menn
„Three-peat, three-peat“. Það á sem
sagt að setja stefnuna á að sigra í
þriðja sinn í röð á næsta ári.
Að lokum má geta þess að sem
dæmi um yfirburði 49ers í leiknum
þá hafði liðið boltann á valdi sínu í
39:31 mín. en Denver aðeins í 20:31
mín. BL
r .á ■..»// t 9
tPI Hn \ * jT f r jffk ■
Joe Montana no. 16 nýbúinn að senda knöttinn í loftið. Enn ein snilldarsendingin staðreynd nokkrum augnablikum
síðar.