Tíminn - 31.01.1990, Side 3
Miðvikudagur 31. janúar 1990
Tíminn 3
Stóraukið fall í framhaldsskólum:
KENNARAVERKFALUD
TALIN ADALÁSTÆDAN
Mun meira fall var í framhaldsskólum á jólaprófum en
verið hefur undanfarin ár. Eru orsakirnar taldar vera verkfall
kennara og það að samræmd próf í 9. bekk voru felld niður.
Þetta kemur fram í Félagsblaði Bandalags kennarafélaga. í
framhaldsskóladeild menntamálaráðuneytisins fengust þær
upplýsingar að í bígerð er að athuga þetta mál betur og fá
fram samanburðartölur við fyrri ár.
Árangurinn er mun lélegri bæði
hjá nýnemum og þeim sem lengra
eru komnir. Slæm útkoma á jóla-
prófunum mun ekki vera bundin við
ákveðna skóla eða gerðir skóla á
framhaldsskólastiginu. Ástandið
mun vera mjög svipað í áfangaskól-
um annarsvegar og bekkjarskólum
hinsvegar. í fyrrnefndu skólunum er
þó slæm útkoma meira áberandi þar
sem um eiginlegt fall í áfanga eða á
önn er að ræða. f bekkjarskólunum
er ekki um það að ræða að nemendur
falli nema á vorprófunum en engu
að síður er verri árangur einnig
áberandi þar. í Félagsblaði BK segir
að augljóst sé að fallið stafi af
verkfalli kennara í vor og því að
einkunnir nemenda úr 9. bekk hafi
ekki gefíð rétta mynd af getu þeirra.
Léiegri árangur eldri nemenda er
rakinn til þess að vegna sex vikna
verkfalls kennara hafi þeir kunnað
minna en auk þess hafi komið los á
nemendur í verkfallinu og þeir sem
komust milli bekkja eða áfanga hafi
ekki komist í gang við lærdóminn í
haust. Framhaldsskólarnir fóru ólík-
ar leiðir til að vinna upp verkfallið.
Ýmist var prófað í vor eða haust,
Grípa þurfti til rekunnar til að moka snjó ofan af glerþaki við íþróttahúsið
á Flateyri, þar sem hætta var á að þakið gæfi sig undan farginu.
íþróttahúsið er fjórir metrar að hæð og má glöggt sjá á myndinni hversu
mikið hefur snjóað. Tímamynd Einar Harðarson
Flateyri:
Hættuástand varir enn
Almannavarnanefnd Flateyrar
kemur saman til fundar eftir hádegi
í dag og verður þá tekin ákvörðun
hvort yfirlýstu hættuástandi, sem
varað hefur frá því á fimmtudag,
verði aflétt.
Að sögn Steinars Guðmunds-
sonar formanns almannavama-
nefndar þá sást í birtingu í gær-
morgun að snjóflóð hafði fallið
ofan við bæinn þá um nóttina.
„Við fórum og skoðuðum það fyrir
hádegi. Það náði niður undir
neðstu húsin við Ólafstúnið og er
tungan um 25 metra breið næst
húsunum,“ sagði Steinar. Hann
sagði að skyggni væri slæmt og
væru þeir ekki búnir að sjá hvar
upptök flóðsins væru í bæjargilinu.
í fyrradag féll annað snjóflóð
nokkru utar en það sem féli í
fyrrinótt, og náðu flóðin saman.
Eftir hádegi í gær hvessti af
norðaustri, með bleytuhríð og var
skyggni lítið. Eins og Tíminn
greindi frá voru 9 hús rýmd vegna
hættu á að snjóflóðum, en í þeim
búa 30 manns. Fólkið hefur fengið
að fara í hús sín til að ná í
nauðþurftir, en dveist hjá ættingj-
um og vinum sem ekki búa á
hættusvæðinu.
Að sögn Steinars er atvinnustarf-
semi í bænum í fullum gangi og
engan bilbug á mönnum að finna í
þeim efnum. -ABÓ
Varðskip kom með vaming til Flateyrar síðdegis á laugardag. Þegar upp
var staðið var varningurinn að mestu kók og höfðu menn á orði að þá
væri helginni að minnsta kosti reddað. Tímamynd Einar Harðarson
eða hvorutveggja, og var kennsla
fyrir prófin mismikil, hjá sumum
mikil, hjá öðrum lítil sem engin.
Að auki við þetta eru framhalds-
skólarnir nú öllum opnir í fyrsta
sinn, þar sem felld hafa verið niður
skilyrði um lágmarkseinkunn. Telja
margir að skólarnir séu ekki undir
það búnir að vera fyrir alla. „... síst
á þeim tímum þegar stjórnvöld eru
með niðurskurðarhnífinn á lofti og
beita honum óspart á skólana." Eins
og segir orðrétt í Félagsblaði BK.
Sem fyrr segir hefur framhalds-
skóladeild mennamálaráðuneytisins
á prjónunum að kanna þetta mál
betur. Líklegast er að aflað verði
gagna frá skólunum og með því
fenginn samanburður við fyrri ár.
Guðrún Ágústsdóttir aðstoðarmað-
ur menntamálaráðherra sagði að
málið hefði ekki borist til ráðherra
en full þörf væri á að kanna þetta
mál betur. SSH
I kennaraverkföilum hefur brunnið við að mæting hefur verið léleg í þá tíma
þegar þó er kennt.
Skoðanakönnun Skáís um borgarstjórnarkosningar:
Sjálfstæðisflokkur
fær meira en Davíð
Samkvæmt skoðanakönnun sem
Skáís gerði fyrir Stöð 2 nýtur Sjálf-
stæðisflokkurinn stuðnings afger-
andi meirihluta kjósenda í Reykja-
vík, eða 70,5% þeirra sem tóku
afstöðu. Ef miðað er áfram við þá
sem tóku afstöðu er fylgi flokkanna
sem hér segir: Kvennalisti 11%,
Alþýðubandalag 7%, Framsóknar-
flokkur 6,2%, og Alþýðuflokkur
4,4%. Nærri fjórði hver svarenda í
könnuninni var þó óákveðinn, eða
23,4%.
Gefi könnunin rétta vísbendingu
á Sjálfstæðisflokkurinn ekki vinsæld-
ir sínar eingöngu Davíð að þakka,
því þegar spurt var hvort viðkom-
andi vildi að Davíð Oddsson yrði
áfram borgarstjóri svöruðu 67,6%
af þeim sem tóku afstöðu játandi, en
32,4% vildu einhvern annan. M.ö.o.
þá voru þeir færri sem vildu Davíð
sem borgarstjóra en þeir sem sögð-
ust myndu kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn, sé miðað við þá sem tóku
afstöðu. Önnur skýring á þeim
mismun sem er milli fylgis Davíðs
annars vegar og Sjálfstæðisflokksins
hins vegar liggur í afstöðu þeirra
sem eru óákveðnir. Mun fleiri voru
óákveðnir þegar spurt var um flokka
(23,4% óákveðnir), en þegar spurt
var hvort menn vildu Davíð sem
borgarstjóra (7,4% óákveðnir).
Þannig er ekki ósennilegt að hlut-
fallslega fleiri stuðningsmenn stjórn-
arandstöðunnar í borgarstjórn séu
meðal óákveðinna heldur en stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins. Sé
það rétt er innbyggð skekkja í mæl-
ingu þegar viðhorf þeirra sem tóku
afstöðu eru skoðuð.
Einnig var spurt hvort svarendur
myndu kjósa sameiginlegan fram-
boðslista stjórnarandstöðuflokk-
anna og sögðust 32,8% myndu gera
það. Hinsvegar sögðust 67,2% ekki
myndu kjósa slíkan lista. Niðurstöð-
ur þessar miðast við þá sem tóku
afstöðu en 16,9% svarenda voru
óákveðnir.
í úrtakið voru valdir 1000 manns
af landinu öllu, en einungis þeir sem
búsettir voru í Reykjavík spurðir
ofangreindra spurninga. Það voru
337 manns. -ssh/BG
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1984-1. fl. 1988-1. fl.D 2 ár 01.02.90-01.08.90 01.02.90 kr. 444,31 kr. 173,19
*lnnlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiöslu
Seölabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, janúar 1990
SEÐLABANKIISLANDS