Tíminn - 31.01.1990, Side 14
14 Tíminn
Miðvikudagur 31. janúar 1990
MINNING lllllllllllllllMllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll ..................
Oddný Einarsdóttir
Árnesi
Fædd 22. apríl 1921
Dáin 23. desember 1989
„Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt.
Nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dauðans dimmu nótt. “
(Valdimar Briem).
Þetta sálmvers kom mér fyrst í
hug þegar ég frétti lát mágkonu
minnar, Oddnýjar Einarsdóttur,
sem bar að á Þoríáksmessudag s.l. í
þann mund er fagnaðarhátíð krist-
inna manna var að ganga í garð og
allir voru í undirbúningi til að fagna
þeirri dýrð sem mannkyninu var
búin með komu jólabarnsins, Jesú
Krists. - Inn í þá dýrð gekk hún af
þessum heimi eftir langvarandi erfið
veikindi. Þegar svo var komið, sem
henni, þá var það kærkomin lausn
þó vinaskilnaðurinn sé og verði við-
kvæm stund. - Sigurganga frá þján-
ingu og vanmætti, sem enginn mann-
legur máttur getur breytt eða bætt.
í>á lýtur maður höfði og segir:
„Verði, Drottinn, vilji þinn.“
Við fráfall Oddnýjar langar mig
að minnast hennar með nokkrum
kveðju- og þakkarorðum fyrir kynn-
in við hana í rúmlega fjóra áratugi.
Þar er margs að minnast og margt að
þakka. Verða þau orð mín fátæk-
legri en efni standa til og ég hefði
viljað. Ber þar ýmislegt til, en þó
það helst hvað margt er farið að
mást í huga mér.
Oddný Sumarrós, svo hét hún
fullu nafni, var fædd á Norðfirði
(Neskaupstað) 22. apríl 1921. For-
eldrar hennar voru Einar Brynjólfs-
son og kona hans Þórstína Þorsteins-
dóttir. Var það seinna hjónaband
beggja foreldra hennar og áttu þau
bæði börn frá fyrri hjónaböndum
sínum. Oddný ólst upp með foreldr-
um sínum og hálfsystkinum frá fyrri
hjónaböndum foreldra sinna, auk
hálfbróðurins, Lúðvíks Jósefssonar,
fyrrum alþingismanns og ráðherra,
sem móðir hennar átti milli manna
sinna. Einn albróður átti hún, Rafn,
sem er látinn fyrir nokkru. Sjálf var
hún yngst barna móður sinnar.
Hér verður ætt Oddnýjar ekki
rakin. Til þess skortir mig allan
kunnugleika. En hún bar það með
sér að hún var af góðu bergi brotin.
Hún var greind kona, smávaxin og
fíngerð, tápmikil og hraðvirk með
afbrigðum meðan hún hélt heilsu,
létt á fæti og varð ekki mikið fyrir
því að vippa sér yfir það sem fyrir
varð í nokkurri hæð, ef því var að
skipta. Hún var nokkuð dökk yfirlit-
um með dökkt hár og móbrún augu
með geislandi bliki. Hún var lundlétt
og hreinskiptin í orðum og gerðum.
Eflaust hefur hún snemma farið
að taka til hendi og vinna sér og
sínum það gagn er hún mátti, slík
var skapgerð hennar og atorka, en
þá sögu kann ég ekki að rekja. - En
atvikin höguðu því svo til að hún
barst hingað norður í Árneshrepp
fullorðin kona og festi hér þær rætur
sem ekki slitnuðu. - Það var góð
sending. - Hér samlagaðist hún
fljótt fólki og varð eins og innborinn
hreppsbúi og undi svo vel hag sínum
að aldrei heyrðist frá henni óyndis-
orð. Og hún varð samgróin því lífi
og lifnaðarháttum, sem hér var lifað
og búið við. Hún kom hér inn í
stóran frændgarð. Milli hans og
hennar myndaðist fljótt gagnkvæm
vinátta, sem hélst órofin alla tíð.
Það sama mátti segja um aðra ná-
granna og sveitunga, þó vandalausir
væru. Hún varð af öllum vel látin og
eignaðist stóran vinahóp. Fyrir sínu
heimili stóð hún af stakri prýði og
myndarskap, svo lengi sem hún
hafði heilsu til og þó mikið lengur en
geta hennar leyfði. Og allt til síðustu
stundar bar hún það mjög fyrir
brjósti.
Það var sumarið 1946 að Oddný
kemur í Norðurfjörð með fjögurra
ára drenghnokka sem hún átti. Sá
drengur er Hávarður, nú bóndi á
Kjörvogi. Höfðu þá tekist kynni
með henni og Benedikt bróður mín-
um á vertíð syðra, veturinn áður. -
Svo var þá ástatt í Norðurfirði, að
bræður mínir Sveinbjörn og Bene-
dikt bjuggu þar hálfgerðu félagsbúi
eftir að faðir okkar lét af búskap.
Var Sveinbjörn þá kvæntur Sigur-
rósu Jónsdóttur frá Asparvík og
héldu þau heimilið en Benedikt var
lausari við. í heimilinu var faðir
okkar, þá háaldraður og blindur.
Auk þess var Valgeir bróðir okkar
þar þegar hann var heima. Hafði svo
staðið um nokkur ár.
Eftir að Oddný kom t Norðurfjörð
fór hún fljótlega til bús með Bene-
dikt og gengu þau í hjónaband
nokkru síðar. Varð faðir minn í
heimili þeirra og naut þess þau ár er
hann átti ólifuð. Sýndi Oddný hon-
um mikla og hlýja umönnun, sem
hann mat mikils. Var það öllum
börnum hans stórt þakkarefni hvað
ævikvöld hans varð bjart og notalegt
eftir langa og starfsama ævi. Þar átti
Oddný stóran hlut að.
Hér var Oddný komin inn í stóran
frændgarð. Auk sambýlisins við þau
Sveinbjörn og Rósu og þeirra börn,
voru þrjár systur Benedikts húsfreyj-
ur á nágrannabæjunum í Norðurfirði
þar sem vart er meira en steinsnar
milli býlanna. Auk þess sem við
fjórir bræðurnir vorum þá búandi á
öðrum bæjum í sveitinni ásamt okk-
ar fjölskyldum, að ótöldum Valgeiri
bróður okkar, sem var í heimili
hennar og lét sér mjög annt um
heimili bræðra sinna og varði sér
öllum því til hjálpar þau ársem hann
átti ólifuð. - í þessum stóra frænd-
garði ávann Oddný sér vináttu og
virðingu. Og sambýli þeirra svil-
kvennanna, Oddnýjarog Rósu, varð
að innilegri vináttu, sem aldrei bar
skugga á. Sömu sögu var að segja
um aðra sveitunga hennar, sem
nokkuð höfðu saman við hana að
sælda og kynntust henni.
Það var jafnan gestkvæmt í
Norðurfirði og ekki dró úr því við
komu Oddnýjar. Þá voru hvorki
bílar né bílvegir. Menn ferðuðust þá
á hestum eða fótgangandi, þegar
ekki var farið á sjó. Komu þá margir
við í Norðurfirði, skyldir og óskyld-
ir. Kom sér þá vel að hesthúsið í
Norðurfirði var rúmgott og gesta-
borðið stórt. - Athygli gesta vöktu
snör handtök hinnar smávöxnu konu
við að búa gestum og gangandi vel
fram bornar veitingar á hlýlegan
hátt og gistingu þegar svo bar undir.
Öllum þótti gott til þeirra að koma.
Nokkuð var þröngt um nýju hjón-
in fyrst í stað. En Benedikt bætti
fljótlega úr því svo þau höfðu sér-
íbúð undir sama þaki. - Jarðnæði
þeirra bræðranna var líka of lítið
fyrir tvíbýli, en jarðnæði lá þá ekki
á lausu svo erfitt var úr því að bæta.
Bjuggu þá margir þröngt, öfugt við
það sem nú er. - Á þessum árum var
orðið nokkurt los um presta í Árnesi
og prestssetrið ekki setið að stað-
aldri. Forráðamenn kirkjunnar vildu
bæta úr því með einhverjum hætti,
að jörðin væri ekki mannlaus. Varð
það úr að Benedikt var boðið að
taka hálft Árnesið sem nýbýli og
skyldi fylgja því 1/3 hluti hlunninda
staðarins, sem er rekaviður og æðar-
varp. - Þessu tilboði tók Benedikt
og fluttist að Árnesi með fjölskyldu
sína sumarið 1950. Engar byggingar
fylgdu nýbýlinu. Varð því að notast
við bráðabirgða húsnæði til að byrja
með. Þar varð að byggja öll hús frá
grunni. Fyrst peningshús og síðan
íbúðarhús. Jafnframt var hafíst
handa um ræktun túns. AUt kostaði
þetta mikla vinnu og eljusemi, auk
annars, enda féll Benedikt varla
verk úr hendi á þeim árum, og svo
hefur jafnan verið. Og hlutur
Oddnýjar var heldur ekki smár í því
uppbyggingastarfi. Varð nýbýli
þeirra fljótt í röð bestu bújarða í
sveitinni. Jafnframt lagði Benedikt
sig fram um kynbætur á fjárstofni
sínum og náði þar eftirtektarverðum
árangri. Snyrtimennska og góð um-
gengni setti svip sinn á heimili þeirra,
innanbæjar sem utan. Þar hallaðist
ekki á með þeim hjónunum.
Ekki minnkuðu umsvif Oddnýjar
við bústaðaskiptin. Meira var færst í
fang og heimilið stækkaði. í Norður-
firði höfðu þeim fæðst þrjú börn,
Þórstína, elsta barnið, og tvíburarn-
ir, Einar og Valgeir. Og í Árnesi
bættust þrjú við: Þorgeir, Ingólfur
og Sesselja. - Gestkvæmt varð hjá
þeim í Árnesi líkt og í Norðurfirði.
í hinu nýja umhverfi fór sem í
Norðurfirði. Oddný varð öllum góð-
ur granni og batt vináttu við grann-
konur sínar og aðra. Fórum við
hjónin og mín fjölskylda síst var-
hluta af því. Hélst sú vinátta hennar
til leiðarloka. Þar er stórt að þakka.
Sambúð þeirra hjónanna var alla
tíð með ágætum. Þau voru samhent
um alla hluti og samhuga. Benedikt
sýndi konu sinni alla tíð mikla um-
önnun. Ekki síst naut hún þess eftir
að heilsa hennar tók að bila.
Eins og fram hefur komið eignuð-
ust þau Oddný og Benedikt 6 börn,
fjóra syni og tvær dætur, sem öll eru
á lífi. Auk þess átti hún soninn,
Hávarð, sem Benedikt gekk í föður
stað. Hann er nú bóndi á Kjörvogi,
hér í sveit. Fyrir rúmum 10 árum tók
hann það býli í ábúð, eftir að það
hafði verið í eyði um allmörg ár. Þar
hefur hann byggt upp öll hús frá
grunni og þar með bætt einu byggðu
býli við okkar litlu byggð. - Það er
líka þakkarefni. Tveir synir þeirra,
Valgeir og Ingólfur, hafa tekið við
búi af föður sínum og búa félagsbúi.
Dæturnar tvær og tveir bræðurnir
eru búsett í Reykjavík.
Ég hefi hér að framan getið þess
hve rösk og snör hún Oddný var,
þessi smávaxna kona. Til dæmis um
það segi ég hér frá litlu atviki.
Eftir að bílfært varð hingað norð-
ur í Árneshrepp lögðu margir leið
sína hingað, einstaklingar og hópar,
til að sjá og kanna nýjar slóðir og hið
stórbrotna landslag, sem hér er, og
fagurt umhverfi þar sem milli himin-
hárra fjalla Ieynist eitt af þrem
stærstu og samfelldustu gróðursvæð-
um Vestfjarðakjálkans, Trékyll-
isvíkin og nágrenni hennar, þar sem
margt hefur verið gert til umbóta í
ræktun og byggingum til gagns fyrir
íbúana og gæti orðið komandi kyn-
slóðum til gagns ef annarleg áhrif og
óáran þjóðfélagsafla kæmu ekki í
veg fyrir að njóta þess. Allt þetta
blasir við augum vegfarenda og vek-
ur undrun og unaðskennd ferða-
langa.
Eitt sinn bar svo til að rútubíll,
með 30-40 konur, kom að sunnan,
lagði leið sína hér um og ætlaði
norður í sveit að sjá sig um. Rigning-
ar höfðu gengið yfir þá áður og
aurskriða runnið á veginn fyrir norð-
an Árnes þar sem leið þeirra lá um.
í aurskriðunni festist bíllinn og varð
að fá hjálp til að losa hann. Á meðan
á því stóð urðu konurnar að fara úr
bílnum. En kalt var í veðri með
úrkomu, svo fljótt setti að konunum.
Stutt var heim að Árnesi, býli
Oddnýjar og Benedikts. Tóku kon-
urnar það til bragðs að fara þangað
til að leita sér skjóls meðan unnið
væri að því að losa bílinn úr festunni.
Um leið og þær komu í hlaðið dreif
Oddný þær allar inn og veitti þeim
kærkomna hressingu. Á ótrúlega
skammri stund hafði hún borið þeim
heitt kaffi og bakað pönnukökur í
stórum stíl ásamt öðrum veitingum
svo allar fengu vel útilátna nægju
sína, auk hlýju, sem þeim var heldur
ekki vanþörf á. - Svo fljótt og
hressilega var þetta gert að konurnar
undruðust stórlega hvernig ein kona
á bóndabæ gat á jafn skömmum
tíma, án fyrirvara, veitt svo mörgum
góðan og notalegan beina á jafn
stuttum tíma, að þær áttu engin orð
yfir það. Minntust þær þess síðar á
sérstakan hátt svo að þjóðkunnugt
varð og sýndu með því þakklæti sitt.
Ég læt þetta dæmi nægja um
viðbrögð Oddnýjar þegar gesti bar
að hennar garði. Það sýnir handtök
hennar og að hún vissi ávallt hvað
við átti og brást við samkvæmt því
og að henni féllust ekki hendur þó
óvænt bæri að. Þess nutu margir á
eftirminnilegan hátt, sveitungar og
aðkomu gestir.
Það var gott að koma til þeirra
Árneshjóna. Auk hlýlegra veitinga
spunnust fljótt viðræður um dagsins
önn og það sem efst var á baugi
hverju sinni. Oddný var vel greind
og fylgdist vel með því sem var að
gerast og hafði ákveðnar skoðanir á
atburðum og málefnum líðandi
stundar og lét þær í ljósi. Og Bene-
dikt fylgdist vel með málum og
ræddi þau. Þótti öllum gott að koma
til þeirra. Hjálpsemi var þeim báð-
um í blóð borin. Þess nutu margir,
og ekki síst nágrannar þeirra, í
ríkum mæli, án þess að til endur-
gjalds væri hugsað. Sjálfur átti ég og
mitt heimili vísa aðstoð þeirra og
barna þeirra, einkum Þórstínu, með-
an hún var heima, og Ingólfs. - Fyrir
hennar hlut að því ber ég fram
þakkir okkar hjónanna, nú þegar
vegferð hennar á meðal okkar er
lokið. Þar er stórt að þakka.
En líf Oddnýjar var ekki allt dans
á rósum. Snemma á ævi hennar fór
hún að kenna sjúkleika sem ágerðist
þegar árin liðu og dró úr starfsþreki
hennar og olli henni vaxandi vanlíð-
an. Árum saman var hún með bilað-
an maga og þurfti að gæta sérstakrar
varúðar í mataræði sínu. Einnig
bilaðist hún í lungum og það olli
henni erfiðleikum og þrautum.
Seinni árin varð hún að hafa súrefni
við hendina sér til öryggis. - Þær eru
orðnar margar sjúkraferðirnar henn-
ar suður á sjúkrahús bæði til ýmissa
læknisaðgerða og dvalar, oftast á
Vífilsstöðum vegna lungnasjúkdóms
hennar, nú síðustu árin, þegar hún
var verst haldin. En þegar af henni
bráði kom hún heim, því heima vildi
hún vera þegar mögulegt var. Menn
undruðust mjög hvað þessi veik-
byggða kona, orðin upptærð af lang-
varandi sjúkleika, hafði af miklu
lífsþreki að má, og að lífskveikur
hennar skyldi ekki vera löngu
slokknaður. Hún bar sjúkleika sinn
eins og sönn hetja. Æðruorð heyrð-
ust ekki til hennar og þegar af henni
bráði brá hún á glens og gamanyrði
um vesöld sína og stutt var í gleði-
bros á andliti hennar þegar henni
leið eitthvað betur. Allir sem nærri
henni voru og veittu henni hjúkrun
og aðhlynningu, reyndu að gera allt
sem í þeirra valdi stóð að létta henni
stundirnar og lífsstríðið. Þegar hún
var heima veitti Benedikt henni
frábæra umönnun og hjúkrun. Allt
mat hún þetta mikils og var þakklát
öllum sem veittu henni aðhlynningu
í langvarandi sjúkleika hennar.
Ég minnist þess, að viku fyrir
páska, á s.l. vori, urðum við Oddný
samferða í flugi suður. Þegar hún
kom inn úr flugvélinni fyrir sunnan
átti hún mjög örðugt um öndun.
Sjálfur var ég lfka móður, þó ekki
sem hún. En þrátt fyrir vanlíðan
hennar brá fyrir gamalkunnu geisla-
bliki í augum hennar og hún stundi
upp með erfiðismunum: „Við erum
bæði móð, Guðmundur minn.“
Meira gat hún ekki sagt. Þar skildu
leiðir okkar. Ég fékk nokkra bót á
meini mínu. Hún ekki. Því sit ég nú
hér og færi þessi minningar- og
kveðjuorð mín á blað. En ég gleymi
ekki bliki augna hennar á þeirri
stundu eða brosinu, sem breiddist
yfir andlit hennar. Þar var enga
uppgjöf að sjá eða vonleysi. Hún
gekk sem hetja gegn örlögum sínum.
Það var í síðasta sinn sem ég sá
hana. - í sumar kom hún heim og
var heima um tíma, en í haust varð
hún enn að fara í sjúkraflugi. En nú
átti hún ekki afturkvæmt og séð var
að hverju dró. Síðustu vikurnar var
hún mjög þjáð og gera þurfti á henni
aðgerðir. Þær þoldi hún ekki. Hún
var meðvitundarlaus síðustu stund-
imar. Börn hennar skiptust á að
vera hjá henni og vaka yfir henni þar
til umskiptin urðu. Og Benedikt fór
suður til að vera hjá henni. Hún
andaðist daginn eftir að hann kom
suður. Handtak hans fylgdi henni
yfir landamærin. - Stríðinu var
lokið. - Engill dauðans kom og bar
hana inn í birtu og fegurð himnarík-
is. - Skuggar lífsins skyggðu ekki
lengur á skinið hinumegin.
Utför hennar var gerð í Reykjavík
þann 3. janúar frá Langholtskirkju
að viðstöddu fjölmenni, þar sem
burtfluttir Árneshreppsbúar og aðrir
sýndu henni þökk og virðingu með
nærvem sinni, því vissulega höfðu
þeir sem kynntust henni margs að
minnast og margt að þakka. Börnin
hennar, sem búsett eru hér heima,
tóku sig upp með mökum sínum og
börnum, í flugi, til að vera við útför
hennar. För þeirra greiddist vel og
þau komu heim að kvöldi jarðarfar-
ardagsins.
Fyrir mína hönd, konu minnar,
heimilisfólks míns, svo annarra
vandamanna og vina í sveitinni,
sendi ég henni hinstu kveðju okkar
með hjartans bestu þökk fyrir vin-
áttu hennar og þann skerf sem hún
veitti okkur með komu sinni hingað
og lífsstarfi. - Benedikt bróður mín-
um og öllum ástvinum hennar send-
um við innilegar samúðarkveðjur og
biðjum þeim blessunar.
Bæ, 13. janúar 1990
Guðmundur P. Valgeirsson.
IBI ,
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgarf.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar
eftir tilboðum í greinibrunna.
Verkið felst í gerð og flutningi 60 brunna.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 14. febrúar 1990,
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
||| Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgarf.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar
eftir tilboðum í lagningu stofnlagnar í Kópavog.
Verkið nefnist „Kópavogur - Efra kerfi".
Verkið felst í lagningu ca. 1.900 m af pípum, 300 mm og grennri.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 20. febrúar 1990, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800