Tíminn - 06.02.1990, Page 5

Tíminn - 06.02.1990, Page 5
Þriðjudagur 6. febrúar 1990 Tíminn 5 Breytingar á skipulagi og greiðslufyrirkomulagi fyrir lyf og læknishjálp: Viðtöl við heimilislækna ókeypis á dagvinnutíma Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, kynnti í gær tvær reglugerðir sem fela í sér verulegar breytingar hvað varðar skipulag og greiðslufyrirkomulag fyrir lyf og læknishjálp utan sjúkrahúsa. Taka þær gildi 15. febrúar næstkomandi og verður gert sérstakt átak í að kynna þær almenningi. Meginmarkmið reglugerðanna er að tryggja fagleg samskipti milli heilsugæslulækna, heimilislækna og sérfræðinga þar sem hagsmunir sjúklinganna eru hafðir að leiðar- ljósi. Meginreglan verðursú að sam- skipti sjúklings og Iæknis hefjast hjá heilsugæslu- eða heimilislækni og verður reynt að beina þeim sam- skiptum inn á opnunartíma heilsu- gæslustöðvanna. Sjúklingur greiðir lægra gjald fyrir lyf ef ávísað er á ódýrasta lyf með sama virka efninu. Eiga þessar breytingar að draga úr útgjöldum sjúkratrygginga. Á fundi með heilbrigðisráðherra kom fram að þetta mun ekki þýða það að sjúklingar verði að greiða meira fyrir þjónustuna, heldur það að fyrirkomulag og valkostir á notkun þjónustunnar breytast. Sérfræðingar sammála Náðst hefur samkomulag við sér- fræðilækna og heimilislækna varð- andi atriði er snúa að þeim, en sem kunnugt er mótmæltu sérfræðilækn- ar harðlega drögum að reglugerð- inni. Hafa verið felld út atriði sem sérfræðingarnir stóðu hvað mest á móti, en það var að þjónusta þeirra yrði helmingi ódýrari fyrir þá sjúk- linga sem framvísuðu tilvísun frá heimilislækni. í staðinn verður sá háttur hafður á að þjónusta heilsu- gæslu- og heimilislækna verður ókeypis á dagvinnutíma, frá 8:00 til 17:00, en áður þurfti að greiða 190 krónur fyrir viðtalið. Er þetta gert til að beina fólki í ríkara mæli til heilsugæslu- og heimilislækna. Utan dagvinnutíma verða sjúklingar að greiða 500 krónur fyrir hverja komu á læknisstofu og 1000 krónur fyrir hverja vitjun. í fjárlögum þessa árs er ráðgert að draga úr útgjöldum sjúkratrygginga um 550 milljónir króna frá fyrra ári. Fyrrnefndar breytingar eru liður í þessum sparnaði en að auki koma til aðrar breytingar á greiðsluþátttöku sjúklinga í lyfja- og læknishjálp. Áður þurftu allir nema elli- og örorkulífeyrisþegar að greiða 630 krónur fyrir hverja komu til sérfræð- ings, en með breytingunni hækkar þetta gjald í 900 krónur. t*á er þess getið sérstaklega að að óheimilt sé að krefja sjúkratryggða um greiðslur vegna kostnaðar við hvers kyns ein- nota áhöld og umbúðir sem læknar leggja til, þar sem slíkt sé innifalið í greiðslum sjúkratryggðra. Nokkur brögð hafa verið að því að læknar hafi innheimt sérstakt gjald af sjúkl- ingum fyrir slíkt. Þetta þýðir að gjaldið til sérfræðingsins er í öllum Frá hlaðamannafundinum í gær. tilfellum 900 krónur, hvort sem um rannsókn eða aðgerð er að ræða. Elli- og örorkulífeyrisþegar þurfa nú að greiða 300 krónur fyrir hverja komu til sérfræðings en greiddu 215 krónur áður. Þá mun gjald fyrir hverja rannsókn eða röntgengrein- ingu lækka úr 440 krónum í 300 krónur, en elli- og örorkulífeyrisþeg- ar greiða 100 krónur. Sú breyting verður gerð að elli- og örorkulífeyr- isþegar skulu ekki greiða hærri upp- hæð en 3000 krónur á hverju alman- aksári vegna heimsóknar til sérfræð- inga, rannsókna eða röntgengrein- inga. Með reglugerð um lyfjakostnað er stefnt að 300 milljón króna sparnaði á þessu ári. Stigið verður fyrsta skref í þá átt að fá lækna til að ávísa jafnan á ódýrustu lyfin innan hvers lyfja- flokks og með reglugerðinni er gef- inn út sérstakur listi yfir ódýrustu lyfin. Fyrir lyf sem eru á listanum þarf hinn sjúkratryggði að greiða 550 krónur en 750 krónur sé lyfið ekki á listanum. SSH Tímamót í verslunarrekstri samvinnumanna á höfuðborgarsvæðinu: Mikligarður hf. í stað KR0N -Þessar breytingar marka ákveðin kaflaskil. Ytri aðstæður í verslunarrekstri eru gjörbreytt- ar frá því sem var og samvinnu- formið hæfír honum ekki leng- ur. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis verður því iagt niður og nýtt hlutafélag; Mikligarður hf. tekur við verslunarrekstri þess,- sagði Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri Miklagarðs og Kaupstaðar efnislega í gær. Stjórn KRON ákvað á fundi sín- um s.l. fimmtudag að leggja félagið niður sem kaupfélag og breyta því í eignarhaldshlutafélag sem annast mun verslunarrekstur KRON á höfuðborgarsvæðinu. Hið nýja hlutafélag verður stofnað með form- legum hætti þann 1. apríl. Pá verður kosin stjórn félagsins og fram- kvæmdastjóri ráðinn. Til þess tíma gegnir Þröstur Ólafsson stöðu fram- kvæmdastjóra. Ætlunin er að Mikligarður verði almenningshlutafélag með víðtækri eignaraðild viðskiptavina, fyrrum félaga í KRON, starfsmanna, verka- lýðsfélaga og Sambandsins. Sam- komulag hefur þegar verið gert við stjórn Sambandsins um að það leggi 100 milljónir í hlutafélagið til viðbót- ar eignarhlut þess í Miklagarði sf. Gert er ráð fyrir að heildarhlutafé verði 200-250 milljónir króna. Verslunarrekstur samvinnu- manna á höfuðborgarsvæðinu er því að taka miklum breytingum þessa dagana og hlutafélagsstofnunin er endapunktur á þróun sem hófst með stofnun Miklagarðs, stórmarkaðar við Sund árið 1983. Síðan hefur Kaupfélag Hafnarfjarðar sameinast KRON, komið hefur verið á sameig- inlegri yfirstjórn KRON og Mikla- garðs. Jafnframt hefur verið leitast við að ná auknum hlut í matvöru- verslun á höfuðborgarsvæðinu með því að kaupa verslunarrekstur Víðis í Mjóddinni og JL húsið við Hring- braut auk verslunarinnar Kaupstað- ar við Eddufell sem ætlunin er að selja. Þröstur Ólafsson sagði í gær að kaupfélagsformið hæfði ekki lengur verslunarrekstri á höfuðborgarsvæð- inu. Ástæður þess væru ýmsar og nefndi hann m.a. mikla og harða samkeppni, mikla fjármagnsþörf og að slíkur rekstur væri mun áhættu- meiri en áður hefði verið. Þá greindi hann frá því að í samkomulagi sem stjórn KRON hefði gert við stjórn Sambandsins í tengslum við stofnun Miklagarðs hf. væri yfirlýsing um að Sambandið og Mikligarður hf. leituðu samvinnu Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri tilkynnti starfsfólki KRON um fyrirhugaðar breytingar á verslanarekstri samvinnumanna á höfuðborgarsvæðinu á fundi í Glym í gærmorgun. <v um hagræðingu og hagkvæm inn- viðskiptavinum sínum góða þjón- þau legðu fé í fyrirtækið. Undirbún- kaup. Almennt séð væri stefnt að ustu. ingsviðræður hefðu átt sér stað við hagkvæmum innkaupum enda væri Þröstur Ólafsson og Atli Gíslason forystumenn nokkurra félaga og stjórnaformaður KRON sögðu að í undirtektir hefðu verið jákvæðar fyrirhugaðri hlutafjársöfnun yrði þótt engin bein hlutafjárloforð lægju leitað til verkalýðsfélaganna um að enn fyrir. -sá fyrirtækinu ætlað að vera nútímalegt og neytendasinnað þjónustufyrir- tæki sem seldi góðar vörur og veitti Ég er sauður - ég meína hrútur SJÁUMST í DANSHÖLLINNIÁ LÁUGÁRDAGINN

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.