Tíminn - 06.02.1990, Side 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 6. febrúar 1990
Amnesty International:
Samviskufangar
DAGBÓK
Mannréttindasamtökin Amnesty
Intcrnational vilja vekja athygli al-
mennings á máli þessara þriggja
samviskufanga. Fjórði fangi mánað-
arins, blaðamaðurinn Emmanuel
Kalawole frá Benin, hefur verið
látinn laus, og því eru fangamálin að
þessu sinni aðeins tvö, þ.e. til Singa-
pore og Tékkóslóvakíu. Amnesty
vonar að fólk sjái sér fært að skrifa
bréf til hjálpar þessum mönnum og
skipi sér á bekk með þeim, sem
berjast gegn mannréttindabrotum á
borð við þau, sem hér eru framin.
íslandsdeild Amnesty gefur einnig
út póstkort til stuðnings föngum
mánaðarins. Hægt er að gerast
áskrifandi að þessum kortum með
því að hringja til skrifstofunnar,
Hafnarstræti 15, virka daga frá 16-18
í síma 16940.
singapore: Vincent Cheng og Teo
Soh Lung er haldið í einangrun í
krafti neyðarlaga, en samkvæmt
þeim er heimilt að hafa menn í haldi
um ótiltekinn tíma án opinberrar
ákæru eða dóms. Vincent Cheng,
.ritari Réttlætis- og friðarnefndar
erkibiskupsins í Singapore, og Teo
Soh Lung, lögfræðingur, voru meðal
þeirra 22 menntamanna, sem hand-
teknir voru í maí og júní 1987 fyrir
meinta aðild að „marxísku samsæri"
til að steypa ríkisstjórn Singapore af
stóli.
Amnesty telur alla fangana 22
samviskufanga, þar sem þeir voru
handteknir fyrir það eitt að nota
tjáningar- og félagafrelsi á friðsam-
legan hátt.
Ríkisstjórn Singapore telur Vinc-
. ent Cheng aðalhugsuðinn á bak við
„samsærið". Hann hefur verið í
einangrun allt frá því hann var
handtekinn í maí 1987. í árslok 1987
höfðu allir aðrir verið leystir úr
haldi, þar á meðal Teo Soh Lung.
Hann var þó handtekinn aftur ásamt
8 öðrum eftir að hafa gefið út
fréttatilkynningu þar sem þeir neit-
uðu öllum sakargiftum og fullyrtu,
að þeir hefðu verið pyntaðir við
yfirheyrslurárið 1987. Fimm föngum
var sleppt í desember 1988 og í
kjölfar þess fóru Teo Soh Lung og
þrír aðrir fangar fram á úrskurð um
lögmæti frelsissviptingarinnar.
Áfrýjunardómstóll studdi beiðni
þeirra og voru þeir látnir lausir en
jafnhliða voru gefnar út nýjar hand-
tökuskipanir og þeir félagar umsvifa-
laust handteknir á ný.
Teo Soh Lung fór aftur fram á
úrskurð um lögmæti frelsissvipting-
arinnar en Hæstiréttur vísaði málinu
frá í apríl 1989. Yfirheyrslur í málinu
standa nú yfir fyrir Áfrýjunardóm-
stóli Singapore ríkis. Hinum þrem
föngunum var sleppt í mars sl., viku
eftir að þeir drógu til baka beiðni um
úrskurð um lögmæti frelsissvipting-
arinnar.
Vincent Cheng og Teo Soh Lung
eru í einangrun í Whitley Road
fangelsinu. Vinsamlegast sendið
kurteisleg bréf og farið fram á að
Vincent Cheng og Teo Soh Lung
verði látnir lausir tafarlaust og án
skilyrða.
Skrifið til:
LEE KUAN YEW
PRIME MINISTER
PRIME MINISTER’S OFFICE
ISTANA ANNEXE
ORCHARD ROAD
SINGAPORE 0922
Tékkóslóvakía. Frantisek Starek,
36 ára ritstjóri óopinbers menningar-
tímarits, sem nefnist Vokno
(Gluggi), var dæmdur í 30 mánaða
fangelsi og í kjölfar þess 2 ára
„strangt eftirlit" af rétti í Usti nad
Orlici 28. júní sl. Hann hafði verið í
varðhaldi síðan 23. febrúar 1989.
Frantisek var dæmdur sekur um
„undirróður" og ákærður fyrir út-
gáfu og dreifingu á Vokno (sem er
eitt af þekktustu sjálfstæðu tímarit-
unum í Tékkóslóvakíu), og Vokn-
oviny, sem er mánaðarlcgt frétta-
blað er fjallar um það sem er efst á
baugi á listasviðinu. Húsleit var gerð
á heimili Frantisek Starek og meðal
þeirra fjölda hluta, sem gerðir voru
upptækir, voru skjalasafn Vokno,
ýmisleg óopinber ritverk og fjölrit-
unarvél.
Ásakanir um „undirróður" hafa
verið tíðar gegn fólki, sem fæst við
skriftir, fjölfaldar, dreifir eða hefur
undir höndum efni, sem tékkneska
ríkisstjórnin telur að beinist gegn'
sér.
Amnesty telur Frantisek Starek
samviskufanga, þar sem hann er í
haldi fyrir að nota rétt sinn til
frjálsra hugsana og skoðanafrelsis í
friðsamlegum tilgangi. Hann er í
haldi í Hradec Kralove fangelsinu.
Starek hefur undirritað stefnuyfir-
lýsingu óopinberu mannréttinda-
hreyfingarinnar Karta 77. Hann hef-
ur áður setið þrjú ár í fangelsi sem
samviskufangi. Hann var fyrst fang-
elsaður 1976 vegna menningarstarf-
semi sinnar og 1981 var hann dæmd-
ur í 30 mánaða*fangelsi fyrir útgáfu
og dreifingu á Vokno.
Vinsamlega skrifið kurteisleg bréf
og farið fram á að Frantisek Starek
verði tafarlaust látinn laus og án
skilyrða. Skrifið til:
JUDr JAN PJESACK
GENERALNI PROKURATOR
CSSR
NAM HRDINU 1300
1400 PRAHA 4-NUSLE
CZECHOSLOVAKIA
Houmphanh Norasing, fyrrver-
andi þingmaður, hefur verið í haldi
vegna „endurmenntunar" frá árinu
1975. Engin skýring hefur verið
gefin á því hvers vegna hann sé í
haldi, en Amnesty telur ástæðuna
vera þá að hann sé andvígur stefnu
stjórnvalda.
Frá 1985 hefur flestum, sem haldið
hefur verið í „endurmenntunarbúð-
unum“ í Houa Phanh-héraði og
öðrum afskekktum héruðum í Norð-
austur-Laos, verið sleppt en fregnir
herma að 37 séu þar enn í haldi.
Houmphanh Norasing er talinn
vera í haldi nærri Sop Pan fengels-
inu. Þaðan var fólk sent í þrælkunar-
vinnu en því hefur nú verið hætt, því
fregnir herma að fangelsið hafi verið
rifið. Þeir, sem enn eru í haldi, eru
í þremur íbúðarblokkum undir eftir-
liti lögreglu og sér atvinnumálanefnd
héraðsins um að úthluta föngunum
vinnu.
Houmphanh Norasing var þing-
maður Sayabouli-héraðs í síðustu
ríkisstjórn og fulltrúi á Ráðgjafa-
þinginu. Ráðgjafaþingið var stofnað
árið 1973 af þáverandi ríkisstjórn
(ríkisstjórn sem herinn stofnaði í
þeim tilgangi að koma á konungs-
stjórn) í kjölfar friðarsamnings milli
kommúnista og andkommúnista,
sem áður áttu í stríði í Laos. Árið
1975 var Alþýðulýðveldið Laos
stofnað og hin nýju stjórnvöld köll-
uðu fulltrúa Ráðgjafaþingsins saman
til fundar í bænum Viengxai í Houa
Phanh-héraði.
Nokkrir fulltrúar Ráðgjafaþings-
ins fengu að snúa aftur til höfuðborg-
arinnar Vientiane en aðrir, þar á
meðal Houmphanh Norasing, voru
hafðir í haldi í Viengxai til 1977 er
þeir voru fluttir í aðrar „endur-
menntunarbúðir".
Vinsamlcgast sendið kurteislegt
bréf og farið fram á að hann verði
látinn laus tafarlaust:
Premier Kaysone Phomvihan
Vientiane
Laos
Alþjóðleg frístæl- og tískulínukeppni 1990:
VERNDUM ÓSONLAGID
Þann 4. mars nk. fer fram á Hótel
íslandi alþjóðleg frístæl- og tískulínu-
keppni 1990 undir slagorðinu „Verndum
ósonlagið". Dagskráin hefst kl. 12.30 og
stendur fram á kvöld. Úrslit verða til-
kynnt kl. 23.00 en fyrstu verðlaun eru
150.000 kr. Húsið verðuropnað kl. 23.30.
Kynnir er Gunnlaugur Helgason.
Slagorðið „Verndum ósonlagið" og
keppnin sjálf hefur verið kynnt á sýning-
um, keppnum og í tímaritum víða um
heim og hefur vakið umræðu og eftirtekt.
Á meðfylgjandi mynd má sjá umfjöllun
ýmissa erlendra blaða um keppnina.
Minningarkort SJÁLFSBJARGAR
í Reykjavík og nágrenni
- fást á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík: Reykjavíkur apótek,
Garðsapótek, Vesturbæjarapótek,
Kirkjuhúsið við Klapparstíg, Bókabúð
Fossvogs, Grímsbæ við Bústaðaveg,
Bókabúðin Embla, Drafnarfelli 10,
Bókabúðin Úlfarsfell, Hagamel 67,
Verslunin Kjötborg, Búðargerði 10.
Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers
Steins, Strandgötu 31.
Kópavogur: Pósthúsið.
Minningarkort fást einnig á skrifstofu
Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Gíróþjónusta.
HÁSPENNA - LÍFSHÆTTA!
Rafmagnseftirlit ríkisins sendir frá sér
eftirfarandi viðvörun:
★ Óhöppum og tjónum af völdum
háspennu fer fjölgandi. Flest slík óhöpp
verða fyrir vangá eða hugsunarleysi.
★ ÖKUMENN:
Hafið gát á háspennulínum ef þiö eruð
með hátt loftnet eða með háfermi á
bílnum. Reisið ekki bílpall upp í línur,
eins og mörg dæmi eru um við vegagerð
og aðrar framkvæmdir.
★ GRÖFU- OG KRANASTJÓRAR:
Fylgist vandlega með öllum hreyfingum
tækjanna og farið með sérstakri gát, ef
þið eruð að störfum í nánd við háspennu-
línur.
Ef ökutæki eða vinnuvél snertir há-
spcnnulfnu er sjálfsagt að reyna strax að
★ STJÓRNENDUR FLUGDREKA:
Leikið ykkur ekki í nágrenni við há-
spennulínur. Nylonlína getur leitt há-
spennt rafmagn í röku veðri. Sleppið'
línunni, ef flækja við raflínur er fyrirsjá-
anleg.
MÁLMHÚS
Ert þú að hugsa um að
byggja t.d. iðnaðarhúsnæði,
verkstæði,
áhaldahús, gripahús,
bílskúr eða eitthvað annað?
Þá eigum við efnið fyrir þig.
Uppistöður, þakbitar og lang-
bönd eru valsaðir stálbitar og
allt boltað saman á byggingar-
stað. Engin suðuvinna, ekkert
timbur. Allt efni í málmgrind
galvaniserað.
Upplýsingar gefa:
] jjjjjf f
MALMIÐJAN HF.
SALAN HF.
Sími 91-680640
PÓSTFAX TÍMANS
Borgfirskar konur:
Óskað eftir efni
Á árinu 1986 þegar 100 ár voru liðin frá
fæðingu Svöfu Þorleifsdóttur, skólastjóra
og félagsfrömuðar frá Skinnastað, stofn-
anda Sambands borgfirskra kvenna, efndi
Sambandið til útgáfu bókar til minningar
um hana og störf hennar, sem fékk heitið
„Gull í lófa framtíðar“. Þetta var vönduð
bók um merka konu og gekk útgáfan vel
og þegar upp var staðið reyndist nokkur
afgangur af sölu hennar.
Á vegum Sambandsins hafði starfað
þriggja kvenna nefnd að útgáfunni og
þegar hún skilaði af sér útgáfu Svöfubók-
arinnar með nokkrum afgangi, var henni
á ný fengið annað verkefni sem verja
skyldi ágóðanum í, en það var í þá veru
að stuðla að útgáfu á skáldskap borg-
firskra kvenna.
Nefndin hefur velt þessu verkefni
nokkuð fyrir sér, kannað ýmsar hliðar
þess og komist að því að mikið muni til
af skáldskap eftir eldri og yngri borgfirsk-
ar konur, þar sem það hefur komið í ljós
að konur hafa eins og vitað er haldið sér
til baka ekki sfst frá eldri tíma og ekki
flíkað skáldskap sínum og síst ætlað hann
til birtingar.
Hefur nefndin því ákveðið að vinna að
því að safna skáldskap borgfirskra
kvenna, Ijóðum, sögum o.fl. til útgáfu
bókar sem mun taka mótun af því efni
sem safnast kann.
Er því hér með beint til kvenna sem
eiga hjá sér skáldskap eða vita um hann
hjá öðrum að senda nefndinni og gefa
henni upplýsingar um áhugavert efni frá
eldri og yngri tíma.
Nefndina skipa undirritaðar konur sem
einnig gefa nánari upplýsingar:
Ingibjörg Bergþórsdóttir, Fljótstungu,
Hvítársíðu. Sími 51198.
Katrín Gcorgsdóttir, Vogabraut 24,
Akranesi. Sími 11669.
Herdís Ólafsdóttir, Vesturgötu 88,
Akranesi. Sími 11949.
Félag Snæfellinga
og Hnappdæla í Reykjavík:
ÁRSHÁTÍÐ
Félag Snæfellinga og Hnappdæla í
Reykjavík heldur árshátíð sína laugar-
daginn 10. febrúar nk. í Goðheimum,
Sigtúni 3. Húsið opnað kl. 18.30 og
fordrykkur borinn fram. Borðhald hefst
kl. 19.30. Sfðan fer fram mjög vönduð
skemmtidagskrá.
Aðgöngumiðasala fimmtud. 8. febr. í
Sigtúni 3 frá kl. 16.00 til kl. 18.00.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
veirð ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Sírninn er 21205 - opinn allan sólar-
hrínginn.
Háskólatónleikar:
Slagverkhópurinn Snerta
Á morgun, miðvikudaginn 7. febrúar,
verða haldnir Háskólatónleikar og hefjast
þeir kl. 12.30. Það er slagverkhópurinn
Snerta sem þar kemur fram en hann skipa
Maarten van der Valk, Árni Áskelsson,
Pétur Grétarsson og Eggert Pálsson.
Minningarkort
Félags nýmasjúkra
Minningarkort félagsins eru til sölu á
eftirtöldum stöðum: 1 Kirkjuhúsinu. hjá
Hönnu í síma 672289 og hjá Salóme í
síma 681865.
Kvenfélag Kópavogs
Spilað verður í kvöld, þriðjudaginn 6.
febrúar í Félagsheimili Kópavogs. Byrjað
verður að spila ki. 20.30. Allir velkomnir.
Minningarsjóður
Einars á Einarsstöðum
Vinir Einars á Einarsstöðum stofnuðu
minningarsjóð um hann nýlátinn. Þeir
benda á þann sjóð til áheita fyrir þá sem
vilja heiðra minningu hans og styrkja
cftirlifandi konu hans.
Sjóðurinn er varðveittur við Útibú
Landsbanka Íslands á Húsavík og cr nr.
5460.
Opnunartími á
Þjóðminjasafni íslands
Frá og með 16. sept. til 14. maí verður
safnið opið þriðjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga kl. 11:00-16:00.
Aðgangur er ókeypis.
Strætisvagnar sem stansa við Þjóð-
minjasafnið: 5, 6, 7, 13, 14, 16, 100.
ÚTVARP/SJÓNVARP
Kaupfélóg á krossgötum er
yfirskrift þáttar sem sýndur verður
í Sjónvarpinu í kvöld kl. 23.10. Þar
leggja áheyrendur í sal fram fyrir-
spurnir til þeirra Guðjóns B. Ólafs-
sonar forstjóra Sambandsins og
Egils Olgeirssonar stjórnarfor-
manns Kaupfélags Þingeyinga.
Raunir Ericu nefnist breskur
gamanmyndaflokkur sem hefur
göngu sína á Stöð 2 í kvöld kl.
22.15.