Tíminn - 15.02.1990, Blaðsíða 19
r r t
\,
í \ t
Fimmtudagur 14. febrúar 1990
Tíminn 19
llllllllll IÞRÓ-TTIR IHIIHHI1!....................................................................................................................................................I.............................. .Il.lllillllllllll'm'"- .......................................................................................................... .......................................... ..................................................................................................................... ........................................................... ..........................................................................................................................................................................................................
Blak:
UBK deildarmeistari
á hrinuhlutfalli
1. deild karla og kvenna í blaki
lauk um helgina. IS hafði nokkru
áður tryggt sér deildarmeistaratitil-
inn í karlaflokki og sigraði deildina
með fullu húsi. í kvennaflokki réðust
hins vegar ekki úrslitin fyrr en í
síðasta leiknum.
Á föstudagskvöldið fóru fram 4
leikir. í Digranesi sigraði ÍS lið
HKK 3:2 í karla og 3:0 í kvenna-
flokki. í Hagaskóla sigraði HSK lið
Fram 3:0. Þróttur Reykjavík sigraði
KA 3:0 í karlaflokki en KKA stúlkur
hefndu og unnu 3:0. í Digranesi
sigraði HK Þrótt Nes 3:1 í karla-
flokki og 3:2 í kvennaflokki.
Víkingur hrinu frá titli
Víkingur sigraði KA í kvenna-
flokki 3:2, 4/15, 16/6, 11/15, 15/8 og
15/9. Víkingur þurfti að vinna þenn-
an leik 3:1 til að tryggja sér deildar-
meistaratitilinn. Þær byrjuðu mjög
illa og voru taugaóstyrkar. f annarri
hrinu sneru þær síðan við blaðinu og
unnu örugglega. f þriðju hrinu
komst Víkingur í 10/2. Þá brustu
taugarnar endanlega og KA sigraði
15/11. Þar með þurftu Víkingar að
sjá á eftir titlinum til UBK sem
tapaði fyrir þeim tveim dögum áður.
í síðustu tveim var því engin pressa
á Víkingum og eftirleikurinn var
auðveldur.
KA sigraði Fram 3:1, 13/15, 7/15,
16/14 og 14/16. KA lenti í miklu basli
með Framara og mátti jafnvel þakka
fyrir að halda stigunum. Annars var
leikurinn frekar daufur.
IS tryggði fullt hús
fs vann HK 3:2, 15/10, 15/11,
10/15, 13/15 og 15/9 í karlaflokki og
3:0, 15/6, 15/11 og 15/9 í kvenna-
flokki.
Stúdentar höfðu nokkru áður
tryggt sér deildarmeistaratitilinn
þannig að þessi leikur skipti þá ekki
miklu máli. Mikilvægt var hins vegar
fyrir HK að vinna sem flestar hrinur
og helst að sigra til að tryggja sér
þátttöku í úrslitakeppninni. Þessi
leikur var oft ágætlega leikinn og
mikil barátta hjá báðum liðum.
Sóknir beggja liða voru sterkar en
varnirnar ekki að sama skapi. HK
menn laumuðu mikið eða stungu
eins og blakarar nefna það og hefði
oftar mátt dæma færslu á þá að mati
ÍS-manna en annars ágætur dómari
leiksins, Guðmundur E. Pálsson,
tók mjög vægt á þessu. Mikið ósam-
ræmi er hjá dómurum hvað þetta
varðar og nauðsynlegt er fyrir þá að
samræma dóma sína þannig að það
fari ekki eftir því hver er í dómara-
stólnum hvernig dæmt er. En aftur
að leiknum. fS var mun betra í fyrstu
tveim hrinunum en síðan snerist
Enska knattspyrnan:
Pearson tekur
við hjá MiUwall
„Yfimjósnari“ Millwall, Bob Pe-
arson var í gær útnefndur sem næsti
framkvæmdastjóri liðsins. Fyrrum
stjóri Millwall, John Docherty var
rekinn á þriðjudaginn. BL
í kvöld:
fsland-Sviss
ísland og Sviss mætast í landsleik
í handknattleik í Laugardalshöll kl.
20 í kvöld.
Þrír leikir verða í bikarkeppninni
í körfuknattleik 8-liða úrslitum,
UMFN-UMFG í Njarðvík, ÍR-KR í
Seljaskóla báðir kl. 20 og UMFN b-
Haukar í Njarðvík kl. 21.30. BL
dæmið við. Þeir söknuðu Sigurðar
Þráinssonar sem stýrði Víkingum á
sama tíma. Stöðu hans tók ungur
leikmaður, Viggó Sigursteinsson, og
stóð hann sig mjög vel. Arngrímur
Þorgrímsson átti einnig góðan leik
og rústaði oft hávörn HK manna.
Aðrir stúdentar hafa leikið betur.
HK-menn áttu oft ágætan leik. Stef-
án Þ. Sigurðsson barði vel og Krist-
ján M. Arason laumaði (stakk) mik-
ið í gólf ÍS.
Kvennaleikurinn var létt æfing
fyrir fS liðið og HK liðið átti aldrei
möguleika.
KA tekið í bakaríið
Þróttur R sigraði KA 3:0, 16/14,
15/9 og 15/6 í karlaflokki. Þessi úrslit
komu mjög á óvart en fram til þessa
hefur KA liðið ekki átt í erfiðleikum
með Þróttara. f fyrstu hrinu komst
KA í 14/12 en Þróttarar náðu að
sigra hrinuna með mikilli baráttu.
Eftir það átti KA aldrei möguleika.
Sterk hávörn var einkenni Þróttara í
þessum leik. Jón Ámason fór illa
með KA menn en Þróttarar áttu allir
góðan leik. KA saknaði illilega Stef-
áns Jóhannessonar og brotnaði auð-
veldlega.
Fyrsti sigur HK
HK sigraði Þrótt Nes 3:1, 14/16,
15/13, 15/4 og 15/13 í karlaflokki og
3:2, 4/15, 15/9, 15/13, 11/15 og 15/9
í kvennaflokki. Karlaleikurinn var
spennandi eins og tölurnar gefa til
kynna en að sama skapi ekki vel
leikinn. Hrinurnar voru mjög jafnar
og annað liðið aldrei langt undan í
þessum þremur. Þróttarar áttu oft
ágæta kafla en HK, sem keppti
erfiðan leik daginn áður, var ekki
sannfærandi.
Greinilegt var að HK ætlaði að
selja sig dýrt í kvennaleiknum, enda
Uppskeru og árshátíð Blaksambands íslands var haldin um síðustu helgi. Þar voru efnilegustu og bestu blakmennirnir
verðlaunaðir, ásamt besta dómaranum. Á myndinni hér að ofan, frá vinstri Kári Kárason ÍS efnilegasti leikmaður
karla, Oddný Erlendsdóttir UBK best af konurn, Þorvarður Sigfússon besti leikmaður karla, Jóna Lind Sævarsdóttir
efnilegust kvenna og fremstur er Bjöm Guðbjörnsson besti dómarinn.
Meistaramót Islands í frjálsum íþróttum innanhúss:
Besti árangur Péturs
- Friðrik setti heimsmet og Heiða jafnaði
Um 130 keppendur frá 18 félögum
tóku þátt í Meistaramóti íslands í
frjálsum íþróttum innanhúss sem
haldið var um síðustu helgi. Mótið
fór fram á fjórum stöðum í Reykja-
vík, KR-heimili, Baldurshaga,
Laugardalshöll og í Reiðhöllinni í
Víðidal.
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
úr KSK bætti árangur sinn innanhúss
um 1 sm. kastaði 19,39 m.
Gamla kempan Friðrik Þór Ósk-
arsson ÍR sigraði með yfirburðum í
þrístökki og setti heimsmet í flokki
35-39 ára „öldunga". Friðrik stökk
14,31 m. eða 89 sm. lengra en næsti
maður.
Heiða B. Bjamadóttir UMFA
jafnaði íslandsmetið í 50 m. hlaupi
kvenna er hún hljóp á 6,3 sek. bæði
í sínum riðli og einnig í undanúrslit-
um. Hún hljóp síðan á 6,4 sek. í
úrslitahlaupinu. Þrjár aðrar hlaupa-
konur eiga metið með Heiðu, Geir-
laug Geirlaugsdóttir Ármanni, Ing-
unn Einarsdóttir íR og Svanhildur
Kristjónsdóttir UBK.
Úrslit:
50 m hlaup karla:
1. 5,8 Einar Þ. Einarsson Á
2. 5,9 Helgi Sigurðsson UMSS
3. 5,9 Hörður Gunnarsson HSH
4. 6,0 Friðrik Steinsson UMSS
50 m hlaup kvenna:
1. 6,4 Heiða B. Bjamadóttir UMFA
2. 6,5 Geirlaug Geirlaugsd. Á
3. 6,5 Súsanna Helgadóttir FH
4. 6,6 Guðrún Amardóttir UBK
Hástökk karla:
1. 1,95 Unnar Vilhjálmss. HSÞ
2. 1,85 Jón Oddsson KR
3. 1,85 Kristján Erlendss. UBK
4. 1,85 Gunnar Smith FH
5. 1,85 Auðunn Guðjónsson HSK
800 m hlaup kvenna:
1. 2:28,0 Margrét Brynjólfsd. UMSB
2. 2:29,4 Hulda Pálsdóttir ÍR
3. 2:31,6 Fríða R. Þórðard. UMFA
800 m hlaup karla:
1. 2:10,4 Bjöm Traustason FH
2. 2:13,9 Ragnar Rúnarsson UMSB
3. 2:14,2 Hannes Hrafnkelss. KR
50 m grindahlaup karla:
1. 6,9 Gísli Sigurðsson UMSS
2. 7,0 Stefán Þ. Stefánsson ÍR
3. 7,1 Ólafur Guðmundsson HSK
4. 7,2 Auðunn Guðjónsson HSK
50 m grindahlaup kvenna:
1. 7,3 Guðrún Amardóttir UBK
2. 7,8 Halldís Höskuldsd. Á
3. 7,8 Snjólaug Vilhelmsd. UMSE
4. Björg Össurardóttir FH
íslandsmet
Langstökk kvenna:
1. 5,82 Súsanna Helgadóttir FH
2. 5,51 Björg Össurardóttir FH
3. 5,41 Bryndís Hólm ÍR
Þrístökk karla:
1. 14,31 Friðrik Þór Óskarss. ÍR
2. 13,22 Jóhann M. Jóhannsson ÍR
3. 13,22 Kristján Erlendsson UBK
Kúluvarp karla:
1. 19,39 Pétur Guðmundsson HSK
2. 15,55 Andrés Guðmundsson HSK
3. 14,90 Unnar Garðarsson HSK
Kúluvarp kvenna:
1. 11,65 Þuríður Þorsteinsd. UMSS
2. 11,44 Bryndís Guðnadóttir HSK
3. 10,81 Halla Heimisdóttir Á
Hástökk kvenna:
1. 1,77 Þórdís Gísladóttir HSK
2. 1,71 Þóra Einarsdóttir UMSE
3. 1,60 Björg Össurardóttir FH
1500 m hlaup karla:
4:48,4 Bjöm Traustason FH
Stangarstökk:
1. 5,00 Sigurður T. Sigurðss. FH
2. 4,70 Kristján Gissurarson UMSE
3. 4,20 Auðunn Guðjónsson HSK
4. 4,00 Einar Hjaltested KR
BL
án sigurs fram að þessu. Þær byrjuðu
illa en náðu sér síðan vel á strik.
Bestar hjá HK voru Anna G. Einars-
dóttir og Heiðbjört Gylfadóttir en
HK liðið stóð sig annars allt vel.
Þróttur ætlaði sér auðveldan sigur
og lenti í erfiðleikum. Liðið átti
góða kafla en var mistækt.
Lokastaðan í fyrstu deild karla og
kvenna varð þessi:
fs 12 12 0 36-43 24
KA 12 9 3 31-13 18
ÞrótturR 12 7 5 25-19 14
HSK 12 5 7 19-25 10
HK 12 5 7 21-24 10
ÞrótturN 12 3 9 17-30 6
Fram 12 1 11 10-35 2
Úrslit í 1. deild veturinn 1989-1990 kvenna í blaki
UBK 12 10 2 33-14 20
Víkingur 12 10 2 34-15 20
KA 12 7 5 29-19 14
ÍS 12 7 5 27-20 14
ÞrótturN 12 4 8 19-29 8
ÞrótturR 12 3 9 11-29 6
HK 12 1 11 8-35 2 BL
LESTUNARÁfETLEIN
Skip Sambandsins
munu ferma til ísiands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Audtun ...........22/2
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
Lestunarhafnir innanlands:
Reykjavík:
Alla miðvikudaga
Vestmannaeyjar:
Alla föstudaga
Húsavík:
Alla sunnudaga
Akureyri:
Alla mánudaga
ísafjörður:
Alla þriðjudaga
SKIPADEIID
r^SAMBANDSINS
Sambandshúsinu, Kirkjusandi
105, Reykjavík, sími 698300
^ Á. 1 A Á. 1 1 A A ,
ÍAKN Ik’AUSIRA I UJININf'A