Tíminn - 15.02.1990, Blaðsíða 2

Tíminn - 15.02.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 14. febrúar 1990 Fleiri en ráöherrar með frjáls afnot af bifreiö: Davíð og Rúnar með skattfriálsa bíla Borgarstjórínn í Reykjavík og slökkviliðsstjórinn í Reykja- vík njóta ámóta bifreiðahlunninda og ráðherrarnir, en hlunnindi þeirra síðamefndu hafa sem kunnugt er veríð mikið í fréttum að undanförnu. Reglugerð varðandi bifreiðaafnot borgarstjóraembættisins hefur verið í gildi allt frá borgar- stjóratíð Bjarna Benediktssonar, eða í nærrí fjóra áratugi. Borgarstjórar í gegnum tíðina hafa ekki greitt skatt af þessum bifreiðaafnotum. Þá hafa slökkvi- liðsstjórar ekki heldur greitt skatt af afnotum af bifreið, en bifreiðahlunn- indi þess embættis voru samþykkt mun seinna. 1 báðum tilvikum eru bifreiðahlunnindin talin nauðsynleg vegna eðlis starfsins. í þessu sam- bandi er rétt að geta þess að bifreið slökkviliðsstjóra er sérstaklega út- búin, meðal annars með sírenu og blikkljósum. Umræðan um bifreiðahlunnindi ráðherranna fór af stað í kjölfar hertra reglugerðarákvæða um skatt- greiðslur af bifreiðahlunnindum, en það virðist hafa komið ráðherrunum á óvart að þeir eigi að greiða skatt af bifreiðaafnotum sínum. Ríkisendur- skoðun og Ríkisskattstjóri hafa aftur á móti metið málin þannig að ráð- herrarnir skuli greiða skatt af þess- um hlunnindum. Embætti Ríkis- skattstjóra lítur svo á að ráðherrarn- ir hafi tekjur af afnotunum sem jafngildi 20% af andvirði bílsins á ári sé hann nýr en 15% ef hann er eldri en tveggja ára. Miðað við þetta eru „tekjur“ af dýrustu ráðherrabifreið- inni um 90 þúsund krónur á mánuði. Þess má geta að tveir ráðherrar, Jóhanna Sigurðardóttir og Ólafur Ragnar Grímsson, hafa ekki nýtt sér réttinn á að hafa ráðherrabíl til umráða en fá sama hlutfall og nefnt var hér að framan greitt sem bíla- styrk. Ljóst má vera að fjöldi aðila í einkageiranum og hjá sveitarfé- lögunum hafa frjáls afnot af bifreið vegna vinnu sinnar. Nægir þar að nefna forstjóra og stjórnarformenn ýmissa stórfyrirtækja. í kjölfar fyrr- nefndra reglugerðarákvæða eiga þessir aðilar, á sama hátt og ráðherr- ar, að gefa hlunnindin upp til skatts. Það er því ljóst að margir aðilar eiga nú að greiða hlutfallslegan skatt af andvirði rándýrra bifreiða. Hljóta Rúnar Bjamason, slökkviliðsstjórí. þessir sömu aðilar að spyrja sig hvort um raunveruleg fríðindi er að ræða þegar jafnvel þarf að greiða 20-40 þúsund krónur í skatt vegna bifreiðarinnar á mánuði. Spurning er svo hvort skattayfirvöld hafi nokkra möguleika á að fá upplýsing- ar um þetta hjá einkafyrirtækjum þar sem þau gefa tæplega upp bif- reiðaafnot forstjóranna á skatta- framtali sínu. Davíð Oddsson, borgarstjóri. Þess má geta að yfir eitt þúsund ríkisstarfsmenn og fjöldi borgar- starfsmanna njóta bifreiðahlunn- inda/styrkja af einhverju tagi. Eru þeir ýmist ákveðin upphæð á mán- uði, reiknaðir samkvæmt akstursbók sem starfsmennirnir halda eða þá einhverskonar blanda af þessu tvennu. Greiðslur vegna þessa á að gefa upp til skatts. SSH Álviðræður: Alumax gengur í Atlantal hópinn í fyrradag tilkynnti forstjóri Alumax íslenskum stjórnvöld- um, að fyrirtæki hans hefði ákveðið að taka boði þeirra um að gerast aðili að ATLANTAL- hópnum ásamt hollenska fyrir- tækinu Hoogovens Aluminium og sænska fyrirtækinu Gránges. ATLANTAL-hópurinn vinnur nú að undirbúningi að því að reisa 200 þús. tonna álver hér á landi. Mun Alumax þegar til- nefna menn til þess að taka þátt í undirbúningi málsins og í samn- ingaviðræðum við íslensk stjórnvöld. Er stefnt að því að fulltrúar Alumax geti tekið þátt í vinnuhópum samningsaðila þeg- ar í næstu viku. Alumax er í hópi stærstu ál- framleiðenda í Bandaríkjunum og nam heildarframleiðsla þess á árinu 1988 tæplega einni milljón tonna af áli. Auk álbræðslu ann- ast fyrirtækið umfangsmikla úr- vinnslu á áli og rekur úr- vinnsluiðnað víða um lönd, með- al annars í Evrópu. Eitt verka á sýningunni var þessi bátur sem sýnir sjómenn draga fisk úr sjó. Grunnskóli Hellissands: ■”—***• Opin vika í skólanum Frá Ægí Þórðarsyni, fróttaritara Tímans á Hellissandi: Á dögunum var opin vika í grunn- skóla Hellissands, þar sem nemend- ur unnu að hinum ýmsu verkefnum, Leiðrétting í grein Tímans í gær sem fjallaði um synjun borgarstjóra við ósk borgarráðsfulltrúa minni- hlutaflokkanna um afnot af Höfða, var ranglega vitnað til ummæla Jóns G. Tómassonar borgarritara. Sagt var að Jón teldi rangt að tala um minnihluta og meirihluta í borgarráði þar sem borgarráð í heild væri í rauninni framkvæmdastjórn borgarinnar. Hið rétta er að Jón telur rangt að tala um stjórnar- andstöðu í borgarráði, sem væri þástjórnarandstaðaístjórn. Hins vegar telur Jón óhjákvæmilegt að í ákveðnum málum komi fram minnihluti og meirihluti innan borgarráðs. Jón er beðinn vel- virðingar á þessum mistökum, þó svo að þau hafi engin efnisleg áhrif á fréttina. flestum tengdum sjávarútvegi. Af- rakstur vikunnar var síðan til sýnis í skólanum þann 11. febrúar. Sýningin bar yfirskriftina „Nes- hreppur fyrr og nú“, og hófst hún með því að Hákon Erlendsson skóla- stjóri flutti ávarp, en síðan fluttu nemendur gamanleikinn Dagrenn- ingu, eftir Kristin Kristinsson, við mikinn fögnuð áhorfenda. Því næst bauð skólastjóri gestum að skoða sýninguna og þiggja kaffi og meðlæti sem nemendur höfðu sjálfir bakað. Meðal þess sem vakti athygli gesta voru tvö líkön, annað af Hellissandi og hitt af Rifi. Voru þau tvenns konar, annars vegar eins og staðimir litu út um miðja öld og hins vegar eins og þessir staðir líta út í dag. Þóttu krakkarnir komast nokkuð vel frá þessu verkefni. Annar saman- burður á gamla og nýja tímanum var skyggnumyndasýning af ýmsum stöðum og húsum á Hellissandi fyrr og nú og tóku krakkarnir allar myndirnar sjálfir og skýrðu þær út. Hafa breytingar orðið það miklar að stundum voru menn í vafa um hvar sumar myndimar voru teknar. Einn- ig höfðu krakkamir útbúið bát sem sýndi sjómenn draga net úr sjó og þótti það hið mesta listaverk. Guðmundur G. Þórarinsson, einn nefndarmanna Ia íslensku álviðræðunefndarinnar: H0FUM EKKIHALDIÐ ÁKVEDNUM STAD AD ÁLFYRIRTÆKJUNUM Staðsetning nýs álvers var ítarlega rædd á fundi framsóknarmanna á Akureyri í síðustu viku og kom þar fram gagnrýni á þá áherslu sem lögð er á að álver verði byggt á suð-vest- urhominu. Guðmundur G. Þórar- insson þingmaður og einn þeirra sem sæti á í íslensku álviðræðu- nefndinni greindi frá því að sam- kvæmt þeim áætlunum sem gerðar hafa verið þá sé dýrara að reisa álver á Dysnesi í Eyjafirði, en í Straums- vík. Hann sagði það hins vegar sitt mat að Eyjafjarðarsvæðið kæmi mjög sterklega til greina þjóðhagslega séð, þar sem 10 til 15 þúsund manna byggð þyrfti að vera til staðar svo ekki yrði of mikil byggðaröskun, en hins vegar réðu erlendu aðilarnir mestu um staðsetningu nýs álvers ef af yrði. „Það er hægt með pólitískum aðgerðum að setja álver niður hvar sem er, ef íslendingar vilja borga þann mismun sem sjálfsagt er ein- hver,“ sagði Úlfhildur Rögnvalds- dóttir sem sæti á í bæjarstjóm Akur- eyrar í samtali við Tímann. Guð- mundur G. Þórarinsson sagði í sam- tali við Tímann að það sem menn teldu að m.a. gerði það að verkum að dýrara væri að byggja álver í Eyjafirði helgaðist af því að gerðar yrðu meiri kröfur um betri mengun- arvarnarbúnað í því blómlega land- búnaðarhéraði sem Eyjafjörðurinn væri. Þá væri flutningur á byggingar- efni dýrari, kostnaður vegna starfs- fólks meiri, m.a. vegna helgarleyfa, en áætlað er að sækja megi 40% starfsliðs sem ynni við byggingu álversins til Akureyrar og myndi aðflutt vinnuafl því auka stofnkostn- að. Þá yrði kostnaðaraukning einnig fólgin í byggingu vinnubúða, hafn- armannvirkja, lengri háspennulín- um og fleiru. Úlfhildur benti á að sveitarfélögin við fjörðinn hafi boð- ist til að leggja fram byggingu hafn- armannvirkja sem til þyrfti. Úlfhild- ur sagði að almennt teldu Akureyr- ingar það ódýrar afsakanir að Eyja- fjörðurinn væri dýrari kostur. Það gæti ekki skipt máli hvort komið væri með aðföng norðan við land eða suður fyrir og byggingarefni sagði hún vera til á staðnum. „Það er kannski helst þetta með vinnuaflið að fleira aðkomufólk þurfi á meðan uppbyggingu stendur og því dýrara fyrir þann sem er að byggja álverið," sagði Úlfhildur. í ályktun sem fjögur félög ungra framsóknarmanna samþykktu á sameiginlegum fundi um sfðustu helgi segir að fundurinn mótmæli harðlega þeirri hræsni og þeim tví- skinnungi í umhverfismálum sem birtast í því að gert er ráð fyrir mun dýrari og fullkomnari hreinsibúnaði í álveri við Eyjafjörð, en t.d. í Staumsvík. „Stjórnvöld hljóta að gera ýtrustu kröfur um mengunar- varnir í nýju álveri, burt séð frá staðsetningu þess,“ segir í ályktun- inni. Þá sé fráleitt að nota kröfu Eyfirðinga um sjálfsagðar mengun- arvarnir sem rök fyrir öðru staðar- vali og sé slíkt lítilsvirðing við íbúa annarra landshluta. Guðmundur G. sagði að engin ákvörðun um staðarval nýs álvers hefði enn verið tekin og væru ýmsir staðir nefndir. „Straumsvfkin og þar í kring er aðallega inni í umræðunni og í öllum áætlunum," sagði Guð- mundur. Hann benti á að það væru erlendir aðilar sem byggðu álverið og tækju endanlega ákvörðun. „Mín skoðun er sú að fyrst að Alusuisse er ekki með, þá beri að skoða það að flytja þetta álver út á land og í því tilviki kemur Eyjafjörður mjög til greina," sagði Guðmundur. Hann sagði að miða ætti við strangari mengunarvarnir þegar verið væri að tala um að setja álver niður í einu besta landbúnaðarhéraði landsins, en ef verið væri að tala um óræktar hraunfláka. t leiðara Dags á Akureyri um helgina segir að svo virðist sem ávallt hafi verið gengið út frá því að nýtt álver yrði reist á suðvesturhorni landsins og menn finni öðru staðar- vali allt til foráttu. Guðmundur sagði að íslenska ál- viðræðunefndin hafi ekki haldið . neinu sérstökum stað að þeim álfyr- irtækjum sem hefðu sýnt áhuga á að byggja hér álver, hins vegar hafi þeir aðilar sagt sjálfir að þeir óttist að ef farið yrði á annan stað en í nágrenni við Staumsvík, þá myndi það tefja málið, enda minna búið að hugsa þá möguleika, auk þess sem menn ótt- uðust að það yrði dýrara. Hann sagði að hér væri um að ræða aðila sem jafnvel hygðust fjár- festa fyrir 50 milljarða og ekki hingað komnir til góðgerðarstarf- semi fyrir okkur eða vegna ísienskra byggðasjónarmiða. -ABÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.