Tíminn - 17.02.1990, Blaðsíða 1
M|' -ij
■■ ■■.•nfSÍWuji*-..- —S ■■;■■ ,;■•>.■
; sáií^. V _
- :i&
IBH
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins hefur afhent Sverri
Hermannssyni bankastjóra hlutabréf SÍS í Samvinnubankanum:
Gengið frá kaupum
Landsbankans í gær
Gengið frá sölu á hlut SÍS í Samvinnubankanum. F.v. Guðjón B. Ólafsson forstjóri, SlS og bankastjórarnir Sverrir Hermannsson og Björgvin Vilmundarson.
Formlega var gengið frá kaupum Landsbankans á
52ja prósenta hlut Sambandsins í Samvinnubank-
anum í gær. Kaupverðið er samkvæmt samningi frá
því um áramót 605 milljónir króna og að sögn
Guðjóns B. Ólafssonar hefur bankinn gengið að því
skilyrði samvinnumanna fyrir sölunni að greidd
verði vaxtaleiðrétting vegna þess dráttar sem varð
á endanlegum frágangi kaupanna og í trausti þess
hafi endahnúturinn verið rekinn á söluna.
• Blaðsíða 5
Bílahlunnindi ráðamanna óvenju rausnarleg í Reykjavík:
DAVÍÐ: TVEGGJA BIF-
REIDA BORGARSTJÓRI
Bílahlunnindi Davíðs Oddssonar, borgarstjóra í
Reykjavík, eru mun ríflegri en gengur og gerist
meðal æðstu embættismanna hjá hinu opinbera.
Hann hefur tvo bíla til fullra afnota Cadillac
fólksbifreið og Pajero jeppa samtals að verðmæti
um 8 miljónir króna. Þegar ríkisskattstjóri var
spurður um tilhögun skattlagningar bifreiðahlunn-
inda þegar um tvær bifreiðar er að ræða sagðist
hann ekki geta tjáð sig um það þar sem slíkt hafi
ekki komið inn á borð hjá honum. • Baksíða