Tíminn - 17.02.1990, Page 15

Tíminn - 17.02.1990, Page 15
Laugardagur 17. febrúar 1990 Tíminn 15 MINNING Jóhanna Björg lllugadóttir Gautlöndum Fædd 16. mars 1891 Dáin 1. febrúar 1990 Vorið 1917 komu þrjár glæsilegar konur af Suðurlandi í kaupavinnu norður í Mývatnssveit. Þá var „lengra“ milli Mývatnssveitar og Reykjavíkur en nú er. Ein þessara kvenna hvarf ekki aftur til síns heima heldur settist að hjá Önnu Jakobsdóttur og Jóni Gauta á Gaut- löndum, sem þá voru nýgift og að hefja búskap. Þessi kona var Jó- hanna Björg Illugadóttir sem í dag er borin til grafar að Skútustöðum í Mývatnssveit. Jóhanna Björg fæddist 16. mars 1891. Foreldrar hennar voru: Illugi Jóhannsson, Eiríkssonar frá Vöglum í Eyjafirði og Bjargar Eiríksdóttur frá Litlutungu í Bárðardal. í svokall- aðri Mýrarætt (kennd við Mýri í Bárðardal) komu saman ættir Jó- hönnu og beggja foreldra minna. Illugi flutti ásamt foreldrum sínum suður að Haga í Hreppum með Ásmundi á Stóruvöllum. Móðir Jó- hönnu hét Guðbjörg Gísladóttir bónda að Bitru í Flóa. Illugi og Guðbjörg bjuggu fyrst að Höfða í Oddgeirshólahverfi. Þegar Jóhanna var tveggja ára fluttu foreldrar henn- ar að Laugum í Flóa og þar ólst hún upp. Sex böm Guðbjargar og Illuga komust til fullorðinsára: Gísli, f. 1887. Hann dó á besta aldri frá konu og ungri dóttur, Guðbjörgu, sem nú býr á Selfossi. Sigurveig, f. 1888, Jóhanna, f. 1891, Margrét, f. 1892, Anna Jóna, f. 1895 og Sigurgeir, f. 1898. Hann dó ungur. Systurnar giftust ekki og eiga ekki afkomend- ur. í>ær eru nú allar látnar. Illugi á Laugum var efnalítill bóndi með stóran barnahóp. Hann stundaði því sjóróðra jafnframt búskapnum svo sem algengt var, bæði frá Eyrarbakka, Stokkseyri og Suðurnesjum og var langdvölum fjarri heimili sínu. Guðbjörg og börnin sáu um búskapinn með til- styrk afanna. Jóhanna minntist þeirra sérstaklega. Hún dvaldi stundum hjá Gísla í Bitm. Hann var fróður og bókhneigður og gaf syst- kinunum bækur. Heima á Laugum naut hún umhyggju Jóhanns afa síns * er þar bjó hjá þeim. Hann kenndi henni kornungri að lesa og fóðraði hana á ljóðum og sögulegum fróð- leik. Ómæld lestrarlöngun og fróð- leiksfýsn fylgdu henni æ síðan. Öll vom þau systkinin bráðvel gefin en þau fengu ekki svo mikið sem barna- skólamenntun hvað þá meira. For- eldrar þeirra, sem bæði vom gáfuð og fróð, kenndu þeim og fræddu sífelldlega. Jóhanna og systur henn- ar töldu þó að mest hafi kennt þeim Jóhann afi þeirra. „Kennsla“ hans fór fram við dagleg störf, t.d. í fjósi, svo sem lestur, reikningur og skrift. „Kennslubækur“ vom Eddukvæði, íslendinga- og Biskupasögur, Ár- bækur Espólíns, annálar og fleiri þess háttar bókmenntir. Jóhanna var jafnan fáorð um sinn hag og enginn leyfði sér að ganga nærri henni um það efni eða önnur. Hún lét aldrei orð falla í þá vem, að hún hefði nú kannski verið hæf til mennta. En við sem þekktum hana vissum að það var hún. Hraðnæm á allt þekkingarefni er bar fyrir augu hennar og eym og varðveitti það í óbrigðulu minni. Hún hafði efnivið og hneigð til hárra mennta en lífstími hennar léði ekki slíkum kostum kvenna færi á að njóta sín. Jóhanna vann heimili sínu fyrir lítið eins og flestir unglingar gerðu og einnig utan þess eftir þörfum. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt hana nefna hvaða ár hún fór nokkurn veginn alfarin að heiman. En hún var þá ung að árum, 16 eða 17 ára. Hún fór í vist til Reykjavíkur eins og margar stúlkur fyrr og síðar. Hún vann hjá Klemens Jónssyni landritara og einnig hjá Önnu dóttur hans og Tryggva Þórhallssyni. Hún bar langvarandi tryggð til þeirra. Hún minntist einnig á veru sína hjá frú Finsen, ekkju Finsens póstmeist- ara í Reykjavík. Illugi, faðir Jóhönnu, og Klemens Jónsson voru systkinasynir. Ég býst við að Jóhanna hafi í einhverju notið þeirrar frændsemi. Þess þurfti raun- ar ekki við, því Jóhanna naut sjálfrar sín og mannkosta sinna hvar sem fór alla ævidaga. Guðrún Borgfjörð, systir Klemensar, gerði sér títt um Jóhönnu, gaf henni eftirminnilegar gjafir og rækti við hana frændsemi. Það hafa einnig gert sumir afkom- endur Klemensar Jónssonar. Heimili Klemensar landritara og Önnu Maríu Schiöth, seinni konu hans, var talið til heldri og betri heimila í Reykjavík. Jóhanna minnt- ist þess jafnan með hlýju og virð- ingu. Þar voru húsgögn fögur og vönduð. Þegar sólskin var sterkast um hádaginn lét húsfreyjan breiða dagblöð yfir húsgögnin til þess að verja þau upplitun. Þetta voru dönsk dagblöð og af þeim lærði Jóhanna að lesa dönsku og það svo vel að fram á efri ár var hún nokkurn veginn jafnvíg á íslenskt og danskt ófaglegt lestrarefni. Með svipuðum hætti afl- aði hún sér nokkurrar lestrargetu í ensku en glataði henni vegna æf- ingarleysis. Jóhann Iét ekki framhjá sér fara þá menningarviðburði er gerðust í Reykjavík. Hún sá allar leiksýningar, hlýddi á þá fáu tónleika er fram fóru, sótti opinbera fyrir- lestra, er þá voru helstu „uppákomur f Reykjavík, og las obbann af því Iestrarefni er gefið var út. Þannig gerði þessi fluggáfaða kona lífið að samfelldum skóla þótt hún settist aldrei á skólabekk. Jóhanna fylgdi tísku síns tíma í klæðaburði. Hún átti peysuföt sniðin samkvæmt henni, þau gengu ýmist úr eða í tísku með árunum, og vandaðan upphlut með tilheyrandi kvensilfri. Hún var í rauninni skartkona og bjóst mjög vel. Seinna, er við systurnar vildum bögglast við að sauma á hana kjóla, Iét hún enga meinbugi þeirra á sig fá, svo fremi sem ermamar sneru rétt í handveginum, og sagði að þeir mundu lagast í þvotti. Svona fráleit var hún því að láta aðra hafa fyrir sér. Við sættum okkur auðvitað ekki við slíkt. Við vildum hafa hana skartkonu eins og fyrrum. Það hefur sumum þótt það spurn- arefni hvers vegna Jóhanna tók sig upp frá Reykjavík vorið 1917 og réðst í vinnu norður í Mývatnssveit ásamt kunningjakonum sínum Sig- ríði Magnúsdóttur og Viktoríu Guðmundsdóttur. Það er reyndar- ofur skiljanlegt. Þær voru allar gáf- aðar atgerviskonur er viidu sjá sig um í landinu og kynnast nýju fólki. Einasta leið efnalítilla kvenna, og raunar einnig karla, til þessa var að fara til vinnu sem víðast um landið enda var það alsiða fram undir síðari heimsstyrjöld. Það er mér ráðgáta hvað olli því að Jóhanna settist að hjá foreldrum mínum á Gautlöndum. Hún var fáorð eða eiginlega þögul um það eins og svo margt annað er hana sjálfa varðaði. Mér dettur í hug að henni hafi runnið til rifja það hlutskipti foreldra minna að vera að hefja skuldum vafinn búskap og faðir minn svo heilsulaus að hann gat sjaldnast gengið að vinnu og var sífellt undir læknis hendi og hún hafi viljað styðja móður mína eftir föngum. Það væri líkast Jóhönnu og í sam- ræmi við orð hennar og gerðir æ síðan. En eitt veit ég með vissu: Að meiri gæfa gat ekki hlotnast neinu heimili eða einstaklingi en að eiga hana að. Ég veit að ég má mæla þetta fyrir hönd látinna foreldra minna svo og okkar systkinanna og enn fremur vegna einkareynslu minnar. Árið sem ég varð fjögurra ára og næsta systir mín ársgömul var faðir minn að mestu á sjúkrahúsi og móðir mín hjá honum allan vetur- inn. Jóhanna sá um heimilið og okkur ásamt móðursystur okkar. Þá lagði hún grunninn að lestrargleði minni. Mest af þeim þulum og ljóðum, er hún las og kenndi mér, kann ég enn. Tveimur árum síðar, eða sex ára gömul, veiktist ég og lá við dauðans dyr frá því snemma vors og fram á vetur, fyrst heima og síðan á sjúkrahúsinu á Akureyri. Vegna umsýslu móður minnar á sínu stóra annasama heimili og fæðingar þriðja barns kom það í hlut Jóhönnu að annast mig bæði heima og á sjúkra- húsinu. Hún vék aldrei frá mér að nauðsynjalausu, hvorki á nóttu né degi. Ég hef alltaf verið þess fullviss að ég á henni og Steingrími Matthí- assyni lækni líf mitt að iauna. Ég veit einnig með vissu að þessi ómetan- lega umhyggja Jóhönnu var ekki bundin við mig eina. Hún hefði verið hin sama við hvert okkar systkinanna sem er og ég held alla menn. Þannig var hún. Jóhanna gerði sér ekki tíðförult af bæ, hún lét aðra um það. Hún eignaðist marga góða vini, bæði meðal heimafólks, kaupafólks og gesta, er jafnan héldu spurnum fyrir um hana og einnig meðal sveitafólks- ins, er virti hana vel. Haustið 1929 fór hún að heimsækja ættingja og sína gömlu tryggu vini í Reykjavík og á Suðurlandi eftir ellefu ára aðskilnað. Ég man að allan veturinn lá í loftinu kvíðafull óvissa, sem enginn fékk sig tirað orða, um það hvort hún kæmi aftur. Hún kom aftur um vorið og loftið fylltist fögnuði. Þannig var það er hún kom heim eftir langa eða skamma fjar- veru. Ég minnist m.a. í því efni orða Hildar Ásvaldsdóttur, mágkonu minnar, þegar Jóhanna fór í tveggja mánaða dvöl til Akureyrar misseri eftir að Hildur flutti í Gautlönd. Þegar við höfðum kvatt Jóhönnu sagði hún: „Ég er strax farin að hlakka til þegar hún kemur aftur.“ Þetta segir æði mikið um þær báðar. Öll mín bernskuár var fjölmennt starfslið á heimili foreldra minna. Ég veit að þau litu á Jóhönnu sem kjölfestu þess þótt ekki væru höfð um það mörg orð. Það hefði henni ekki líkað. 10. febrúar 1934 andaðist móðir mín. Banamein hennar var lungna- bólga. Á deyjanda degi bað hún Jóhönnu fyrir börn sín og heimili og tók hún það allt að sér orða- og æðrulaust. Þá og æ síðan. Þá vorum við systkinin 7, 8, 11 og 14 ára. Á Gautlöndum var, eins og fyrr getur, mannmargt, gestkvæmt og erilsamt. Mér er og mun ætíð verða óskiljanlegt hvernig Jóhanna fór að því að anna daglegum og langvinn- um kvöðum og kröfum þessa stóra heimilis, er varð að vera sjálfu sér nóg um flesta hluti, eins og þá gerðist, þó að hún hefði oft stúlku sér til aðstoðar áður en við systumar komum til skjalanna. Fas Jóhönnu var svo stillt og hreyfingar fumlausár að maður tók ekki eftir hröðum og hiklausum handtökum hennar við verk fyrr en því var lokið. Þetta var eflaust lykillinn að afköstum hennar. Það gefur auga leið að Jóhanna átti sér fáar frístundir. Með einhverj- um hætti bjó hún sér þó ætíð ráðrúm til þess að hlusta á útvarp, lesa og fræðast. Enda var hún svo fjölfróð og minnug að til fádæma mátti telja. Á heimilinu var það jafnan viðkvæð- ið, ef einhvern hlut vantaði, vísu til að kveðast á, ætt að manni, fangtal kúnna eða jafnvel heiti á tónverki: „Við skulum spyrja Jóhönnu." Það taldist til tíðinda ef stóð á svari. Jóhanna var hlédræg og óhlutdeil- in um annarra ráð. Ég hygg að henni hafi fundist sér vera ábótavant um mennt og verðleika til þess að hlutast til um svokallað uppeldi þeirra barna er hún var kvödd til að annast eða hafa á einhvern hátt hönd í bagga með. Þau voru við systkinin, síðar einnig systkinabörn mín svo og öll dvalarbörnin í Gautlöndum bæði sumur og vetur. Eigi að síður finnst flestum í þessum stóra hópi að háttsemi og áhrif Jóhönnu séu snar þáttur í uppeldi þeirra. Hún gaf án skilyrða. Hún virti sannleikans orð. Hún lagði engum illt til og lítilsvirti engan. Hún hampaði ekki skoðun-, um sínum eða þröngvaði þeim^pp á aðra. En léti hún í ljós álit sitt á einhverju tilteknu atriði var það umyrðalaust tekið til greina. Þegar við systurnar uxum upp til heimilisstarfa lagði Jóhanna ekki á okkur sérstakar verkkvaðir eða kröfur. Hún lét okkur sjálfar um að finna þær. Við lærðum það líka smám saman og það var dýrmætur skóli. Hún hvatti og studdi okkur systkinin til náms, leikja og félags- starfa frá bernsku til fullorðinsára, jafnvel þótt umsvif á heimilinu af þeim sökum og fjarvistir okkur gengju út yfir hana sjálfa. Við eigum margar minningar um það. Ein er minnisstæðust: Við bróðir minn vorum nánast „lögst út“ vegna leikstarfsemi. Þegar henni átti að vera lokið var skyndilega ákveðin leikför í næstu sveit, með engum fyrirvara, og vera þar um nótt. Aldrei þessu vant þótti mér erfitt að minnast á þetta við Jóhönnu. Ég vissi að hún yrði ein heima, pabbi var fjarverandi eins og oft á vetrum. Þegar til kom fannst henni þetta sjálfsagt. Við værum búin að hafa svo mikið fyrir þessu leikstandi að við yrðum að hafa eitthvað upp úr því. Þarna var hún lifandi komin. Svo fórum við að útbúa nesti til fararinnar. 'Jóhanna varð mjög sjaldan veik, e.t.v. á eins til tveggja áratuga fresti. En ef hún veiktist urðu veikindin löng og þung. Þar var ekki hálfvelgja fremur en annars staðar. Þrátt fyrir langan starfsdag og annir ríkti jafnan sálarró og friður í umhverfi Jóhönnu. Þangað leituðu börnin, s.s. systkinabörn mín, þegar þeim þótti nóg um ys og þys heimilis- ins. Bróðursonum mínum ungum, er ólust upp við hönd Jóhönnu, var ekki rótt sæist hún ekki þegar þeir komu inn. Þá var hafin leit til þess að fullvissa sig um að hún væri á vísum stað. Á sínum því nær sjötíu og þremur árum á Gautlöndum hefur Jóhanna tengst þremur kynslóðum og reynd- ar fjórum, þ.e.a.s. börnum systkina- barna minna og þ. á m. alnöfnu sinni fjögurra ára Jóhannsdóttur á Gaut- löndum. Við höfum öll slegið eign okkar á hana. í vitundinni er hún og verður Jóhanna okkar bæði lífs og liðin. Hún eignaðist líka okkur og mér er kunnugt um það að henni þótti það góð eign og væn fósturlaun. Hún var heima á Gautlöndum hjá Böðvari bróður mínum og Hildi konu hans og naut hinnar bestu umhyggju þeirra, sonanna og tengdadætra er við systurnar gátum kosið henni og er þá mikið sagt. Hún var aldrei einmana og henni leiddist aldrei því hún lifði og hrærðist í störfum og viðgangi heimiiisins og öllu því sem Böðvar tók sér fýrir hendur. Heimilisfólkið, ekki síst Hildur mágkona mín, gerði sér allt far um að láta hana fylgjast með gangi Kfsins. Síðústu þrjú árin hennar heima á Gautlöndum var hún bundin við göngugrind á efri hæð hússins nema þegar hún var borin niður til hátíða- brigða. Þá fylgdist hún með veðri og störfum gegnum gluggana og harm- aði sáran að geta ekki haldið áfram að styðja heimilið með vinnu sinni. Þrátt fyrir árvekni Hildar og Böðvars bæði nætur og daga varð henni fótaskortur um nótt og sprunga kom í lærlegginn. Þá varð hún að fara á sjúkrahús gegn eigin vilja og annarra og hefur verið þar síðan um miðjan júní síðastliðinn og notið góðrar umhyggju starfsfólks- ins. Við erum því þakklát fyrir hana. Við fengum hana heim í Gautlönd nú um jólin í tvær vikur. Þrátt fyrir fjarlægð var reynt að láta hana fylgjast með lífinu á Gautlöndum þar sem hugurinn dvaldi löngum og urðu ýmsir til þess. Frá því snemma vetrar hefur dreg- ið hægt af henni þar til hún andaðist 1. febrúar sl. tæpra 99 ára. Við kveðjum Jóhönnu okkar minnug þess að hlutskipti allra manna er að missa, mest um vert er þó að hafa átt.“ (Byron). Ásgerður Jónsdóttir Þakka innilega heillaóskir og kveðjur í Ijóðum og lausu máli, blóm og aðrar góðar gjafir á 75 ára afmæli mínu. Guð blessi ykkur öll. Ármann Kr. Einarsson. Hjartans þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð, vinarhug og styrk með kveðjum, heimsóknum í veikindum við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa Ólafs Inga Þórðarsonar mjólkurfræðings Borgarbraut 45, Borgarnesi Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks deild A Sjúkrahúsi Akraness, Krabbameinsfélags Borgarfjarðar og Skúla Bjarnasonar læknis Borgarnesi. Guðbjörg Ásmundsdóttir Hólmfríður Sólveig Ólafsdóttir Guðjón Ólafsson Jóna Sólveig Ólaf sdóttir Sigurgeir Sigmundsson Þórður Ólafsson Gréta Marfa Dagbjartsdóttir Jón Róbert Rósant Ásmundur Ólafsson Brynja Ólafsdóttir Einar Ólafsson Ólafur Ingi Ólafsson Ragnheiður Ólafsdóttir Guðmundur Ólafsson Ósk Ólafsdóttir Þorleifur Ingólfsson Svanhildur Skúladóttir Ingibjörg Sólveig Bragadóttir Gyrðir Elíasson Rannveig Sigurjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.