Tíminn - 17.02.1990, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.02.1990, Blaðsíða 6
6 Tíminn Tímirm MÁLSVARI FRJÁLSLYNDtS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og ____Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason Aðstoðarritstjóri: OddurÓlafsson Fréttastjórar: BirgirGuðmundsson Eggert Skúlason Auglýsingastjóri: SteingrimurGíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. ágúst hækkar: Mánaðaráskrift í kr. 1000,-, verð í lausasölu í 90,- kr. og 110,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 VACLAV HAVEL Forseti Tékkóslóvakíu, Vaclav Havel, hefur stutta viðdvöl á íslandi um helgina. Hann er á leið vestur um haf í stjórnmálaerindum og ferðast með fríðu föruneyti samstarfs- og aðstoðarmanna, fer fjölmennur eins og sæma þykir valdamanni í háu embætti á hans heimaslóð. Þótt forsetinn Vaclav Havel fari ekki einn þegar hann gerir þjóðhöfðingjum og ríkisstjórnum heim- sókn hefur hann þó vanist hinu fremur á ævinni að hafa fátt í kringum sig. Honum hefur ekki einasta verið haldið í þjóðfélagslegri einangrun og atvinnu- banni vegna skoðana sinna á tékkneskum stjórn- málum um áratuga skeið heldur hefur hann þolað fangelsisvist fyrir að vera í stjórnarandstöðu, því að hegningarlög hins leniníska sósíalisma Tékkó- slóvakíu sem annarra alþýðulýðvelda eru ströng gagnvart andófsmönnum kerfisins. Slíkt gat varðað brimarhólmsvist og búslóðarmissi. Allt mæddi þetta á Vaclav Havel, því að hann hefur setið mörg ár í fangelsi og er meðal kunnustu pólitískra fanga á síðari tímum. Varla getur félagsleg einangrun orðið augljósari en að vera læstur bak við fangels- ismúra vegna skoðana sinna. Síðast fyrir einu ári var Vaclav Havel dæmdur til margra mánaða fang- elsisvistar fyrir stjórnmálaafskipti sín. Hann hefur haft fangelsisdyrnar fyrir augunum allt fram til þess að hann er valinn til að gegna virðingarmesta emb- ætti þjóðar sinnar. Havel forseti hefur að vísu verið afskiptamikill af stjórnmálum um ævina án þess að vera stjórn- málamaður í venjulegum skilningi þess orðs. Hann er rithöfundur og skáld, leikhúsmaður og leikrita- höfundur. Vafalaust hefði hann getað selt sig undir valdakerfið með því að gerast leigupenni þess og komist í góðar stjórnunarstöður í menningarstofn- unum sem útvalinn flokksgæðingur, ef hann hefði tekið þá stefnu. Slíkt var þó svo fjarri eðli hans og sannfæringu, að hann lét sér ekki nægja að verða aðeins þumbaralegur hlutleysingi í þessu ósveigj- anlega stjómkerfi, heldur virkur andstæðingur þess. Hér hefur þess verið getið að Vaclav Havel galt fyrir stjórnmálaafskipti sín með fangelsisvist. Það er hart hlutskipti. En í reynd var það þó ekki síður strangur dómur fyrir rithöfundinn að vera settur undir ritskoðun í sínu eigin landi. Þótt hann væri afkastamikill og góður leikritahöfundur og kunn- áttusamur leikhúsmaður voru leikhúsin í ættlandi hans honum lokuð árum saman. Vaclav Havel er ekki kominn til íslands í stjórn- málaerindum. Hann kemur sem skáld og leikrita- höfundur. Hann verður viðstaddur sýningu á eigin verki í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Það verk hefur aldrei verið fært upp í ættlandi hans. Honum hefur ekki auðnast að sjá það á sviði fyrr en hann sér það nú í íslenskri túlkun, svo víðs fjarri heimahögum sínum, sem þetta verk er þó fyrst og fremst tileinkað. íslendingar bjóða forseta Tékkóslóvakíu vel- kominn til landsins, en ekki síður rithöfundinn og frelsishetjuna Vaclav Havel. Laugardagur 17. febrúar 1990 i TÍMABREFI í dag munu tveir þjóðkunnir menn leggja til lestrarefnið í beinni ræðu og án frekari útleggingar á því sem þeir hafa að segja. Annars vegar verður gripið ofan í hugleiðingu dr. Þóris Kr. Þórðarsonar próf- essors á ráðstefnu hug- og félags- vísindadeildar Vísindaráðs 28. okt. sl., hins vegar birtur hluti af ræðu Halldórs Ásgrímssonar, þáverandi dóms- og kirkjumála- ráðherra, á Skálholtshátíð 23. júlí 1989. Það á við um erindi beggja að þau eru hvorki stað- né tímabundin. Þótt nokkuð sé liðið frá flutningi þeirra njóta þau sín jafnvel fyrir því. Þau málefni sem þeir ræða eru að vísu ekki nákvæmlega hin sömu en þau eru nægilega skyld til þess að þau mynda eðlilega lestrarheild og íhugunarefni. í upphafi ræðu sinnar á ráð- stefnu Vísindaráðs sagði dr. Þórir að vandi íslensku þjóðar- innar væri miklu frekar andlegur en tæknilegur og fjárhagslegur. Hann hélt því fram að hversu merkur þáttur sem verk- menningin væri í hverju þjóðfé- lagi þá byggði hún ekki á tækni og verkfræði einni saman. „Góð verkmenning grundvallast á skilningi fólks á vinnunni, sið- fræði vinnunnar." Og dr. Þórir heldur áfram: Maðurinn og náttúran f öllum umhverfisfræðum eru maðurinn og náttúran í brenni- depli. Þar kemur í ljós að einmitt tæknin er stórfelld hætta náttúr- unni. Allt veltur á ábyrgð mannsins gagnvart umhverfi sínu. Um það fjalla tæknivísind- in ekki, en í heimspekilegri og guðfræðilegri siðfræði er það hlutfall kannað. Rannsókn er fjallar um um- hverfismál er því þverfagleg. Þar mætast náttúruvísindi og verkfræði annars vegar og mannleg fræði (humaniora) hins vegar. Þegar rætt er um manninn og líf hans í umhverfi sínu í náttúr- unni beinist athyglin að því hlut- verki vísindarannsókna að efla skilning okkar á sjálfum okkur, þ.e. á manninum. Hlutverk vís- indarannsókna er að þessu leyti heimspekilegs eðlis. Mannleg fræði eru í forgrunni, því að þau fjalla um sjálfsskilninginn, þau fást við spurninguna „Hver er ég? Hver erum við?“ Hér kom- ast því í brennidepil rannsóknir á sögu landsins, á tungu, trú og lífsgildum íslendinga í aldanna rás og í nútíðinni. Á liðnum öldum héldust í hendur verk- menning og andleg menning. Sú firring sem orðið hefur í þessum efnum á síðustu öldum hefur kippt manninum úr sambandi við náttúruna sem umhverfi mannsins og úr sambandi við sjálfan sig. Maðurinn sjálfur og maðurinn við störf í náttúrunni eru í eðli sínu eitt og sama rannsóknarverkefnið. Hlutverk vísindarannsókna er að efla skilning á sjálfum okkur, menningu okkar og þjóðfélagi. Komast þá í brennidepil þjóð- félagsfræðin og önnur félagsleg vísindi, svo sem lögfræði og hagfræði. Ivíðasta skilningi er umhverfi mannsins geimurinn allur og jarðarkringlan. En í sértækara skilningi er hið nánasta umhverfi mannsins náttúran, þjóðfélagið, fjölskyldan og aðrar stofnanir samfélagsins, og verður einstak- lingurinn ekki skilinn án tillits til þessa umhverfis. Lífskjör al- mennings, bæði efnaleg og andleg, markast af því hvernig fólki tekst að vinna bug á innri og ytri erfiðleikum og eignast heill og farsæld. Frá þessu sjónarhorni fá rann- sóknir vísinda á þjóðfélagi okk- ar og menningu mikið vægi. Efnalegar framfarir lenda fljótt í blindgötu, styðjist þær ekki við mannrækt og þjóðfélagslega uppbyggingu sem grundvallast á þekkingu og hæfninni til þess að skoða fyrirbærin af djúpsýn. Gagnsemi hugvísinda og félagsvísinda Allir vita að í iðnaði og at- vinnulífinu öllu skipta orkulind- irnar höfuðmáli. Mesta orkulind landsins er samt mannfólkið. Maðurinn er partur náttúrunn- ar, en um leið sker hann sig úr henni sem andleg vera (hann er „transcendent11, þ.e. hann rýfur mörk náttúrunnar; hann einn getur spurt spurningarinnar: Hver er ég? Hvert stefni ég?). Hugsun mannsins, tilfinningalíf hans og aðrir andlegir þættir eru því nauðsynleg forsenda allrar tilveru hans. Það er köllunar- starf allra hugvísinda, og þar með tel ég félagsvísindin, að fjalla um og efla allt efnalegt og andlegt líf mannsins, menningu hans, verkmenningu og félags- legan velfarnað. Sjálfstæði íslands hvílir á mörgum undirstöðum. Sjálf- stæði þjóðar er ekki aðeins það að vera laus undan yfirráðum annarra þjóða, heldur einnig að vera bundinn, að vera skuld- bundinn heilbrigðu lífi á öllum sviðum, er mótast af siðrænu og ábyrgu viðhorfi sem er í sam- ræmi við eðli þjóðarinnar. Sjálfstæði íslensku þjóðarinn- ar er því undir því komið að hún rækti þennan skilning og þessar dyggðir með sjálfri sér. Vinni að dýpri skilningi á landinu og fólk- inu. Þetta tvennt, landið og fólkið, fór ætíð saman í huga eins þekktasta náttúruvísinda- manns þjóðarinnar, Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings, sem ég kem að hér á eftir. En hér kemur fleira til. Pólit- ískar ákvarðanir þarf til ef hrinda skal umbótum í framkvæmd. Og þær eru óhugs- andi án pólitísks vilja almenn- ings og siðgæðisstyrks fólksins í landinu. Hið pólitíska almenningsálit á íslandi er mjög bundið stund- arhag hvers og eins og hags- munahópum. Hjá oss skortir mjög á gagnrýna hugsun og röklega hæfni meðal almennings og þar af leiðandi einnig meðal stjórnmálamanna, sem eiga allt sitt undir fylgi kjósenda og draga því dám af okkur öllum. Heimspekin fæst við að rann- saka hvað gagnrýnin hugsun er og hvað þurfi til að beita henni. Siðfræðin fæst við þá ábyrgð sem hugsunin leiðir til. Það er því höfuðnauðsyn að efla vís- indalega hugsun og ályktunar- hæfni meðal almennings. Þá fyrst, þegar hún er til staðar, má vænta þess að stjórnmálamenn beiti vitrænum leiðum til upp- byggingar þjóðlífs. Ella snýst almenningur gegn slíkum fram- tíðarlausnum í skammsýni sinni. Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur ræddi eitt sinn um „andlegar auðlindir íslenskrar náttúru," sem kenna þurfi fólki að njóta, „ef við viljum halda andlegu sjálfstæði og tryggð við það land sem hefur fóstrað okkur.“ Og hann bætir við: „Það er eitt af frumskilyrðum þjóðarheillar og hamingju ein- staklinga, að þjóðin sé í sátt við sitt umhverfi.“ Og hann mælti: „Að aðlaga sig þessu landi, læra að lifa í sátt við það og njóta þess sem það hefur upp á að bjóða, á að vera snar þáttur í uppeldi hvers íslendings, honum til hamingjuauka og þjóð hans til heilla." Hér talar hinn merki náttúru- vísindamaður um andlegar auð- lindir og andlegt sjálfstæði sem grundvöll þjóðlífsins. Hann beitir trúarlegu málfari: landið hefur fóstrað okkur og við erum skuldbundin. Að lifa í sátt er takmarkið. Hér drepur Sigurður á það sem er einna næst rótum þess efnis sem fjallað var um hér að ofan. Vísindin leggja sinn skerf til þess starfs sem farsælir land og þjóð. En ekki vísindin ein. Hér kemur fleira til: lífsskilning- ur, skólar og börn.“ Þetta voru orð dr. Þóris Kr. Þórðarsonar. Halldór Ásgrímsson gerði m.a. að umtalsefni í Skálholts- ræðu sinni ásókn öfgakenninga um heimssýn og þjóðfélagsmál gegn þeim mannúðar- og hóf- semdarviðhorfum sem samrým- ast trúar- og siðaboðskap krist- indómsins. - Honum fórust svo orð: Gegn mannúð og kristindómi „Fyrir fáum árum ríktu ýmsar öfgastefnur á Vesturlöndum sem birtust m.a. í stjórnmálum ýmist til hægri eða vinstri. Þær tóku á sig margvíslegar myndir með margháttuðum áhrifum allt fram á okkar dag. Stefnur þessar áttu a.m.k. tvennt sameiginlegt. Annars vegar létu fylgismenn þeirra í veðri vaka, að unnt væri að skapa eitthvert það „fyrirmynd- arríki“, sem þá dreymdi um, ef einungis væri unnið af nægilegri einsýni, jafnvel hörku og vægð- arleysi, þegar slíkum aðferðum yrði við komið. Hins vegar höfn- uðu þær ýmsum þeim þáttum úr arfleifð evrópskrar menningar, sem kenndir eru við mannúðar- stefnu, meðalhóf og kristindóm. Þar með vógu þær reyndar að lífinu sjálfu, eins og það birtist okkur í hversdagslegri skynsemi og íhugun venjulegs fólks. Hefð- bundnar siðareglur hlutu og að víkja fyrir „málstaðnum“, hver sem hann nú var hverju sinni. Fylgismenn þessara hug- myndakerfa þóttust hafa öll rök í hendi sér. Þar af leiðandi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.