Tíminn - 17.02.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Laugardagur 17. febrúar 1990
DAGBÓK
II
Jazz í „Heita potUnumM
Á sunnudagskvöld kl. 21.30 verða jazz
tónleikar í „Heita pottinum" í Duus húsi.
Það er „Forstjórafimman", kvartett Ólafs
Stephensen og Friðriks Theódórssonar
sem leikur.
LITAÐ JÁRN Á
ÞÖK OG VEGGI
Galv. stál og stál
til klæðningar innanhúss
Gott verð
Söluaðilar:
Málmiðjan h.f.
Salan s.f.
1 3,[
Sími
91-680940
Erindí í Neskitkju
Dr. Gunnlaugur A. Jónsibn guð-
fræðingur flytur erindi í safnaðarheimili
Neskirkju tvo næstu sunnudaga, 18. og
25. febrúar.
Fyrra erindið fjallar um þýðingu Har-
alds Níelssonar á Gamla testamentinu
um síðustu aldamót. Ýmsir voru ekki
hrifnir af þýðingunni og brugðust nei-
kvætt við henni.
Síðara erindið fjallar um upphaf sögu-
legra biblíurannsókna hér á landi. Jón
Helgason, síðar biskup, var frumkvöðull
þess hérlendis að farið var að beita texta
Biblíunnar sömu rannsóknaraðferðum og
önnur rit.
Erindin hefjast að lokinni guðsþjón-
ustu kl. 15.15. Veitingar verða á boðstól-
um Öllum er að sjálfsögðu heimill að-
gangur.
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3 á
morgun, sunnudag. Kl. 14: Frjálst spil og
tafl. Kl. 20: Dansað.
Haldin verður skáldakynning að Hótel
Lind, Rauðarárstíg 18 nk. þriðjudag, 20.
febrúar, kl. 15-17. Sveinn Skorri Hösk-
uldsson, prófessor ræðir um Gest Pálsson
skáld og lesið verður úr verkum hans.
Aðalfundur Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni verður haldinn í
Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn 25.
febrúar kl. 13.30.
Skaftfellingafélagið
spilar félagsvist í Skaftfellingabúð,
Laugavegi 178, sunnudaginn 18. febrúar.
Byrjað verður.að spila kl. 14.
Soerta leikur Sindur
eftir Áskel Másson
Slagverkshópurinn Snerta heldur síð-
degistónleika í tónleikasal F.I.H.,
Rauðagerði 27, sunnudaginn 18. febrúar
nk. kl. 17.00.
Flutt verður „Sindur" fyrir fjóra slag-
verksleikara, eftir Áskel Másson. Verkið
var samið á vormánuðum 1989 eftir
pöntun Snertu, og frumflutt í Þjóð-
leikhúsinu 1. júní sl. Snerta vinnur nú að
hljóðritun verksins fyrir RÚV og væntan-
lega hljómplötu.
Snerta er skipuð fjórum slagverks- i
mönnum sem starfa sleitulalist að áslætti
.á höfúðborgarsvæðinu. Þeir eru: Árni
Áskelsson, Eggert Pálsson, Maarten Van
Der Valk og Pétur Grétarsson. :
Hafnarfjarðarkirkja
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabíl- 7
inn. Samejginleg messa Hafnarfjarðar- “
sóknar og Fríkirkjusafnaðarins í Hafpar-
firði í Fríkirkjurini kl. 14, altarisganga.
Séra Gunrtþór Ingason prédikar og þjón-
ar fyrir altari ásamt séra Eínari Eyjólfs-
syni. Kirkjukaffi í safnaðarheimili Frí-
kirkjunnar eftir messu.
Sóknarnefnd
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Kvöldstund með tónskáldi
f annað sinn verður Kvöldstund með
tónskáldi í Listasafni Sigurjóns Ólafsson-
ar nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30. Nú er
það John Speight sem verður í eldlínunni
og talar utn. tónsmfðar síuar undir yfir-,
skriftinni Áðeins nokkrar linur.
Hljöðfæraleikararnir Páll Eyjólfsson,
Einar, Jóhannesson, Hafsteinn Guð-
mundsson óg Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir
munu leika verkin: Bergmál Orfeusar,
Þrjár preíúdíur óg Verses and Cadenzas.
Jafnframt veröur efnt til umræðna, þar
sem gestum gefst kostur á að spyrja
tónskáldið um hvaðeina sem þeim kann
að liggja á hjarta varðandi tónsmíðaj
hans. Sýning á verkum Johns verður á 2-
hæð safnsins.
Kvöldstund með tónskáldi er að þessu
sinni styrkt af SPRON og Glitni hf.
Frikirkjan í Reykjavík
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Skemmtikvöld kven-
félagsins í Tcmplarahöllinni kl. 19.30.
Miðvikudag morgunandakt kl. 7.30. Org-
elleikari Pavel Smid.
Cecil Haraldsson
. Kammersveit Reykjavíkur
heldur tónleika í Áskirkju
Sunnudaginn 18. febrúar heldur
Kammersveit Reykjavíkur tónleika í
Áskirkju og hefjast þeir kl. 17.00. Á
efnisskránni á þessum þriðju tónleikum
sveitarinnar á þessum vetri verða verk
eftir L.v. Beethoven og F. Schubert.
Eftir Beethoven verður leikinn Sextett
op. 71 fyrir tvö klarinett, tvo Korn og tvö
fagott og eru það Einar Jóhannesson,
Sigurður I. Snorrason, Joseph Ognibene,
Þorkell Jóelsson, Hafsteinn Guðmunds-
son og Rúnar H. Vilbergsson sem leika.
Eftir Schubert verður fluttur Strengja-
kvintett í C-dúrop. 163. Hljóðfæraleikar-
ar eru Rut Ingólfsdóttir og Júlíana E.
Kjartansdóttir á fiðlur, Ingvar Jónasson á
víólu, Inga Rós Ingólfsdóttir og Malgorz-
ata Kuziemska-Sláwek á selló.
Húnvetningafélagið:
Félagsvist á laugardaginn
Félagsvist verður spiluð laugardaginn
17. febrúar og hefst kl. 14 í Húnabúð,
Skeifunni 17. Fyrsti dagur í þriggja daga
keþpni. Verðlaun og veitingar. Allir vel-
komnir.
MINNING
Vilhelm Steinsen
bóndi Fögrubrekku, Hrútafirði
\uf Slökkvistöðin
í Reykjavík
auglýsir eftir starfsmönnum til starfa á næsta ári.
Umsækjendur þurfa að vera á aldirnum 20-28 ára,
hafa iðnmenntun eða samsvarandi menntun og
meira próf bifreiðastjóra.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu slökkvistöðvarinnar.
Umsóknarfrestur er til 5. mars, eldri umsóknir
óskast endurnýjaðar.
Fæddur 31. mars 1909
Dáinn 6. febrúar 1990
Það er enginn vandi að vera hetja
þegar allt leikur í lyndi, þá fyrst
þegar erfiðleikarnir steðja að reynir
á manninn og dug hans til að mæta
þeim með djörfung og vinna bug á
þeim með skapfestu og sálarstyrk.
Það er þessi þáttur í skapferli ís-
lenska bóndans öðrum fremur sem
er undirstaða íslensks þjóðlífs gegn-
um aldirnar, allt fram á þennan dag
og við mættum minnast með þakk-
læti oftar en raun ber vitni, því á
þessu byggist sjálfstæði okkar sem
einstaklinga og styrkurinn til að
standa á eigin fótum og bjarga sér
þótt á móti blási. Þetta er dýrmætur
arfur sem okkur ber að meta.
Bókotílboð
r
Skjaldborjar
Vikuna 18.-24.
febrúar 1990
□ 1. Þrælaskipin - Torkild
Hansenkr .499.-
CH2. Þrælaströndin - Torkild
Hansen kr. 499.-
□ 3. Draumaráðningabókin -
Þóra Elfa Björnsson kr. 699.-
□ 4. Mannamunur - Jón Mýrdal
kr. 499.-
□ 5. Eltingaleikur á Atlantshafi -
D.A. Rayne kr. 299.-
□ 6. Dóttir innflytjandans -
Howard Fast kr. 499.-
□ 7. Of ung til að deyja - Denise
Robins kr. 300.-
jSkjaldborg
Árrriúla23 - 108Reykjavík
Símar: 67 24 00
67 24 01
31599
□ 8. Arnór bestur í Belgíu - Víðir
Sigurðsson kr. 399.-
□ 9. TværKátu-bækur-
Barnabækur kr. 400.- (báðar)
□10. Breiðholtsstrákur í vetrarvist
kr. 249.-
n
Bókapakki: □
4 bækur eftir Birgittu
Halldórsdóttur:
Inga — Háski á Hveravöllum
- Gættu þín Helga -
í greipum elds og ótta.
Verð aðeins kr. 1.500
Sé verslað fyrir kr. 3000
^ , eða meira fellur póstkröfu-
1®** kostnaður niður.
PÖNTUNARSEÐILL:
Vinsamlegast sendið mér þær bækur sem ég hef
merkt við á þessum pöntunarseðli.
GREIÐSLUHATTUR
□ PÓSTKRAFA □ EUROCARD
□ VISA □ SAMKORT
KORTNÚMER:
Heimili
| Póstnr.
Staður
GILDISTÍMI: m m
i
Þessar hugleiðingar eru mér efst í
huga þegar ég minnist tengdaföður
mins, Vilhelms Steinssonar, bónda
að Fögrubrekku í Hrútafirði, sem
borinn er til moldar frá Staðarkirkju
í dag, en hann andáðist á sjúkrahús-
inu á Hvammstanga 6. febrúar sl.
Vilhelm Steinsson fæddist á
Bjargshóli í Núpsdal í Miðfirði þann
31. mars 1909, sonur hjónanna Val-
gerðar Jónsdóttur og Steins Ás-
mundssonar, sem þar bjuggu þá, en
bjuggu lengst af að Litla Hvammi
þar í sveit.
Ríkidæmi var ekki á heimilinu,
því að bamahópurinn var stór og þar
á bæ lærðist fólki snemma að bjarga
sér og standa á eigin fótum og það
er þessi þróttmikla sjálfsbjargarvið-
leitni sem einkennt hefur afkomend-
ur Valgerðar og Steins æ síðan og
komið fram í dugnaði, heiðarleika
og reglusemi.
Systkinin voru þrettán talsins. í
dag eru á lífi þau Áslaug, f. 1907,
Kristín, f. 1910, Ágúst, f.1912,
Herdís, f. 1914, Gunnhildur, f. 1919,
Halldór, f. 1920, og Fjóla, f. 1923.
Látin eru auk Vilhelms, Friðjón, f.
1914, Eyjólfur, f. 1911, Sigrún, f.
1916, Jónas, f. 1918, og Skúli f. 1924.
Á heimili foreldra sinna gekk
Vilhelm að öllum bústörfum og
öðlaðist dýrmæta reynslu sem fylgdi
honum er hann hleypti heimdragan-
um um tvítugt og hóf búskap með
heitkonu sinni, Iðunni Kristjáns-
dóttur (f. 24. júní 1913, d. 10.
nóvember 1979). Árið 1932 settust
þau að á Dalgeirsstöðum í Vestur-
árdal og þar fæddist þeim sonurinn
Valgeir árið 1933.
Á næsta ári, 1934, flytjast þau að
Fossi í Hrútafirði og þar eru fæddar
dætur þeirra tvær, Þuríður Svein-
björg, f. 1937, og Hrafnhildur, f.
1940.
í Hrútafirðinum undi Vilhelm hag
sínum þótt hann flytti sig um set,
fyrst að Óspaksstaðaseli, sem hann
keypti árið 1941, en þar bjó hann til
ársins 1943 er hann keypti Fögru-
brekku og bjó þar æ síðan. Þau
Iðunn slitu samvistum eftir nokkurn
búskap að Fögrubrekku og fluttist
hún þá þaðan.
Þann 16. september 1954 gekk
Vilhelm að eiga Hólmfríði Þor-
steinsdóttur (f. 18. nóv. 1921, d. 22.
sept. 1980) ættaða úr Reykjavík.
Bjuggu þau alla sína búskapartíð á
Fögrubrekku. Þar fæddust synir
þeirra tveir, Guðmundur, f. 1955,
og Eyjólfur, f. 1956, svo og dóttirin
Þórunn, f. 1959, en hún lést rúmlega
ársgömul. Þá gekk Vilhelm í föður-
stað syni Hólmfríðar, Hafsteini Þor-
finni Júlíussyni, f. 1946, og ól hann
upp sem sinn eigin son.
Búskaparárin að Fögrubrekku
voru Vilhelm á margan hátt erfið og
markaði heilsuleysi Hólmfríðar
þung spor og reyndi mjög á
manndóm þeirra feðga sem þá kom
svo glöggt í ljós.
Afkomendur Vilhelms eru margir
og mannvænlegir.
Valgeir er búsettur í Kópavogi,
kvæntur Sigurlaugu Þorleifsdóttur
Synir þeirra eru Stefán Þór, Tryggvi
og Bragi. Sonur Tryggva er Kristján
Steinar og dóttir Braga er Anna Eir.
Þuríður býr í Reykjavík, gift
Baldri Hólmgeirssyni. Þeirra synir
eru Hólmgeir og Birgir Ragnar og
sonur Hólmgeirs er Gísli Freyr.
Hrafnhildur býr í Reykjavík, gift
Sigmundi Franz Kristjánssyni.
Þeirra börn eru Vilhelm Sigfús og
Harpa Iðunn.
Hafsteinn er búsettur í Reykjavík.
Eiginkona hans er Laufey S. Þor-
móðsdóttir og börn þeirra eru Þór-
unn Gyða og Hafþór Finnur. '
Guðmundur er búsettur á
Hvammstanga, kvæntur Sigurðu
Ágústsdóttur. Börn þeirra eru Frið-
bjöm ívar Níelsson, 'Hólmfríður
Birna, Elísa Sigríður og Jóhann
Teitur.
Eyjólfur býr á Hvammstanga
ásamt sambýíiskonu sinni, Önnu
Maríu Egilsdóttur.
Að leiðarlokum kveð ég vin minn
með hlýjum huga og þakklæti fyrir
ánægjuíeg kynni og samverustund-
irnar, sem hefðu mátt vera fleiri því
jafnan sóttum við ánægju í samver-
una og ræddum margt. Vilhelm var
glöggur maður og til hinstu stundar
var minnið óbilað og með ólíkind-
um, svo birtist í mörgum myndum.
Hann hafði fastmótaðar skoðanir á
mönnum og málefnum og haggaðist
lítt þótt á væri deilt. Hann var
manna fjárgleggstur og hafði sér-
stakt yndi af fjárbúskap, en gekk að
öllum störfum þótt heilsu færi hrak-
andi síðustu árin og lét aldrei bilbug
á sér finna. Æðruleysi hans og
dugnaður í þeim erfiðleikum er
aðdáunarvert og í hinstu sjúkrahús-
legunni var hugurinn jafnan heima á
Fögrubrekku og þangað ætlaði hann
sér að fara sem fyrst og hefja störf
sín að nýju.
En enginn má sköpum renna og
Vilhelm Steinssyni fylgja einlægar
bænir og ástúð inn á lendur ódauð-
leikans.
Guð blessi gamlan vin og góðan.
Baldur Hólmgeirsson