Tíminn - 08.03.1990, Side 20
NUTIMA FLUTNINGAR
Holnarhúsinu v/Tryggvogötu,
g 28822
SAMVINNUBANKINN
L í BYGGÐUM IANDSINS
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
Ganga Stöð 2
og Sýn saman?
„Samstarf af einhverju tagi kemur til greina. Það er
engum dyrum lokað af okkar hálfu. Það er hins vegar
ekkert verið banka upp á hjá þeim hjá Sýn,“ sagði
Jóhann Ólafsson stjórnarformaður Stöðvar 2 í gær, en
samkvæmt heimildum Tímans standa þessa dagana
standa yfir þreifingar og óformlegar viðræður framá-
manna Sýnar sem hefja mun sjónvarpsrekstur næsta
haust - og hinna nýju forráðamanna Stöðvar 2.
Útsendingar Sýnar hefjast að
líkindum þann 1. september n.k.
og þykjast ýmsir sjá fyrir verulega
röskun á starfsemi Stöðvar 2
þegar það gerist. Sýnarmenn ætla
að fara varlega í sakirnar í byrjun
og hyggjast ekki að framleiða
sjálfir neitt efni fyrst um sinn
a.m.k. Engin fréttastofa verður
heldur starfrækt en einmitt þessir
tveir póstar vega þyngst í rekstri
Stöðvar 2. Allt efni Sýnar verður
því erlent skemmti- og fræðslu-
efni af margvíslegum toga og
ætlunin er að senda út í 80-90
tíma á viku.
Tíminn hefur heimildir fyrir
þvf að verulegur áhugi sé á sam-
starfi eða jafnvel sameiningu
Stöðvar 2 og Sýnar. Sá áhugi
virðist einkum fyrir hendi hjá
ýmsum af hinum nýju eigendum
Stöðvar 2. Ástæðumar munu
vera þær að staða Stöðvar 2 er
afar erfið og verri en hinum nýju
eigendum sýndist þegar þeir eign-
uðust stöðina um áramótin síð-
ustu. Er talað um að skuldir
Stöðvar 2 séu allt að 500 milljón-
um kr. meiri en séð varð við
hlutafjáraukninguna um og eftir
áramótin síðustu.
Hinir nýju eigendur Stöðvar 2
gera sér vel grein fyrir að ný
sjónvarpsstöð geti orðið alvarleg
ógnun við afkomu hennar. Til að
stöðin fari ekki hreinlega yfir um
hljóti að verða nauðsynlegt að
hætta algerlega innlendri dag-
skrárgerð a.m.k. tímabundið,
skera umtalsvert niður starfsemi
og umfang fréttastofunnar og ná
einhvers konar samkomulagi við
Sýnarmenn, - eða að sameina
báðar í eina sterka sjónvarpsstöð.
Flugufregnir hafa heyrst um að
hugsanlegt samstarf Sýnar og
Stöðvar 2 strandi einkum á per-
sónulegri óvild sterkra manna
innan stjórna beggja fyrirtækja;
þeirra Jóns Ólafssonar og Árna
Samúelssonar. Þetta var borið
undir Jóhann Ólafsson stjórnar-
formann Stöðvar 2 og Jónas
Kristjánsson stjórnarformann
Sýnar en hvorugur vildi kannast
við það síðastnefnda.
Jóhann Ólafsson sagði í gær að
engar formlegar viðræður væru
um hugsanlegt samstarf Stöðvar
2 og Sýnar, a.m.k. ekki milli
stjórna félaganna. Því væri hins
vegar ekki að neita að einstakir
menn hefðu hist og rætt málin.
Menn væru opnir fyrir ýmsum
möguleikum en samstarf væri
ekki tímabært og engin ástæða til
að flana að slíku strax. „Ég veit
ekki til annars en að góður andi
ríki og hef ekki hugmynd um
einhverja óvináttu einstakra
manna,“ sagði Jóhann.
Jónas Kristjánsson stjórnar-
formaður Sýnar tók í sama
streng. Engarformlegarviðræður
ættu sér stað milli aðila en fullur
vilji væri fyrir hendi af beggja
hálfu til að ræða saman. Hins
vegar væri það eina sem fvrir lægi
formlega um samvinnu Sýnar og
Stöðvar 2 það, að Jón Óttar
Ragnarsson hefði á sínum tíma
hafnað þeirri hugmynd að Sýn
notaði sama myndlyklakerfi og
Stöð 2.
Jónas kvaðst vita að í einkavið-
ræðum hafi komið fram áhugi
einstakra stjómarmanna Stöðvar
2 um hugsanlegt samstarf á þessu
sviði og hugsanlega á öðrum
sviðum einnig. Ný stjórn Stöðvar
2 hefði hins vegar ekki boðið
fram afnot af myndlyklakerfi sínu
og það einasta sem fyrir lægi í því
efni væri fyrrnefnd neitun Jóns
Óttars.
En hefur fjárhagsstaða Stöðvar
2 komið hinum nýju eigendum
hennar óþægilega á óvart?
Jóhann Ólafsson sagði svo ekki
vera í gær. Um stöðuna væri þó
of snemmt að ræða fyrr en reikn-
ingar lægju fyrir. „Við erum ekki
búnir að fá þá en búumst við
þeim einhvern tímann í næstu
viku og þá verður hægt að svara
þessu miklu betur,“ sagði
Jóhann.
Hann sagði að þar sem kaupin
á Stöð 2 hefðu gengið hratt fyrir
sig væri hugsanlegt að eitthvað
hafi þá farið fram hjá sjónum
manna. Þó væri af og frá að
staðan væri jafnvel 500 milljónum
verri en virtist um áramótin.
Jóhann sagði aðspurður um
spamað í rekstri að hann væri
fyrirhugaður. Ekki væri þó þar
með sagt að hann myndi bitna á
dagskrárgerð eða starfi frétta-
stofu. Fyrst yrðu kostnaðarliðir
athugaðir. Þegar reikningarnir
lægju fyrir yrðu gerðar áætlanir
og reynt að spara á öllum sviðum
og draga úr öllum kostnaði. Ekki
hefði verið rætt um að skera
niður í dagskránni. Þvert á móti
hugsuðu menn sér að halda henni
góðri áfram og reyna jafnvel að
bæta hana með minni tilkostn-
aði.“ -sá
ÞRðSTllR
685060
Tímiiin
FIMMTUDAGUR 8. MARS 1990
Unnið við að hreinsa upp málninguna í ráðuneytinu í gær. Tímamynd Pjeiur
Maður gerir usla í dómsmálaráðuneytinu:
Sletti olíulakki
á veggi og fólk
Maður nokkur ruddist inn í and-
dyri dóms- og kirkjumálaráðuneytis-
ins fáeinum mínútum fyrir kl. fimm
Starfsemi Slysadeildar Borgarspítalans hálf lömuð í dag vegna vinnustöðvunar astoðarlækna:
Sjúklingum vísad á heilsu-
gæslustöð eða komi síðar
„Þessi vinnustöðvun ungu lækn-
anna kemur sér vitanlega afskaplega
illa fyrir okkur, því er ekki að neita.
Þetta hefur þau áhrif á starfsemi
Slysadeildar að við höfum orðið að
vísa frá fjölda fólks sem átti að koma
í eftirlit. Ég býst við að tilkynning
verði sett í útvarp og sjónvarp í
kvöld þar sem fólk sem ekki er í
bráðum vanda veður beðið að koma
til okkar seinna eða fara á heilsu-
gæslustöðvarnar. En vitanlega mun-
um við reyna að taka á móti slösuðu
fólki, og sjúklingum sem ekki geta
farið neitt annað verður auðvitað
ekki vísað frá“, sagði Tryggvi Þor-
steinsson yfirlæknir Slysadeildar
Borgarspítalans í gær, spurður um
áhrif vinnustöðvunar aðstoðarlækna
í dag.
Unglæknarnir eiga hins vegar alla
samúð Tryggva í þessu máli. Með
þessari vinnustöðvun séu þeir aðeins
að reyna að vekja athygli mikilli
óánægju vegna þeirrar furðulegu
ákvörðunar fjármálaráðherra að
margfalda gjaldtöku fyrir lækna-
leyfi.
Gjald fyrir læknaleyfi hækkaði frá
áramótum úr 4 þús.kr. upp í 50
þús.kr., eða 1150% en gjald fyrir
sérfræðileyfi úr 14 í 75 þús.kr. sam-
kvæmt upplýsingum fjármálaráðu-
neytisins.
Að sögn Tryggva þykir læknum
þessi hækkun afskaplega ranglát á
sama tíma og reynt er að halda
öllum hækkunum í núlli. Hann sagði
unglækna hafa reynt að ræða við
yfirvöld um þetta mál en tæpast
fengið áheyrn. Heilbrigðisráðherra
muni að vfsu hafa tekið jákvætt í
málaleitan þeirra, en það séu aðrir
sem þessu ráða, þ.e. fjármálaráð-
herra sem tekið hafi fram fyrir
hendurmar á heilbrigðisráðherra í
þessu máli.
„Við viljum standa með ungu
læknunum í þessu máli, því okkur
finnst þetta háa gjald mjög ranglátt",
sagði Tryggvi. Til samanburðar
benti hann á að t.d. í Svíþjóð sé
gjald fyrir læknaleyfi aðeins fáein
hundruð sænskra króna. - HEI
í gærdag og sletti þar kring um sig
hvítu olíulakki af Sadolingerð.
Málningin slettist um veggi, loft og
gólf anddyrisins og að einhverju
leyti í fatnað starfsfólks í móttöku.
Maðurinn taldi sig eiga einhverra
harma að hefna á starfsfólki ráðu-
neytisins, einkum eirtum fulltrúa
þess, vegna forræðismáls.
Maðurinn mun hafa stundað það
um nokkurn tíma að hringja í ráðu-
neytið og áðurnefndan fulltrúa þess
og haft uppi ógnanir og hótanir. í
gær lét hann síðan til skarar skríða.
Málningarslettarinn ’ komst þó
hvergi í námunda við fulltrúann sem
hann taldi sig einkum eiga sökótt við
því að inn í sjálft ráðuneytið komast
menn ekki nema samkvæmt umtali.
Þá verða þeir að gefa sig fram við
móttökudeildina í anddyrinu sem
síðan opnar fyrir þeim dyr inn í sjálft
ráðuneytið.
Lögreglan tók manninn í sína
vörslu og í gærkvöldi var unnið við
að hreinsa verksummerki heimsókn-
ar hans> Þess skal getið að „málari"
þessi var ekki Helgi Hóseasson sem
kunnur er af svipuðum aðgerðum
geg'n dóms- og kirkjuyfirvöldum
undanfarin ár.
-sá