Tíminn - 10.03.1990, Blaðsíða 1
n bBBSk
Haraldur Briem smitsjúkdómafræðingur:
Ekki vart
við eyðni í
6 mánuði
Ekki hefur greinst nýtt eyðnitilfelli hér á landi
síðastliðna sex mánuði. Þetta þykir tíðindum
sæta þar sem átján mánuði áður greindist að
meðaltali einn á mánuði með sjúkdóminn. Að
sögn Haraldar Bríem smitsjúkdómafræðings
þarf þetta ekki endilega að þýða að sjúkdóm-
urinn sé í rénun. Hann segir umræðuna um
sjúkdóminn detta niður annað veifið og þá
hætti fólk að vera á varðbergi. í tilefni þessa
ræðum við í dag við fjölskyldufaðir sem fór á
hóruhús í Danmörku 1984 og smitaðist af
eyðni af vændiskonu. Hann telur umræðuna
engan vegin nægilega í þjóðfélaginu um
þennan sjúkdóm. # Blaðsíða 9
Tæplega fimmtugur fiölskyldufaöir segir frá erfiöleikum sínum og
fjölskyldu sinnar.
Siguröur Benjamínsson rannsóknarlögreglumaöur fær koss, blóm og
konfektkassa. Tímamynd Árni Bjarna
RLRfékk
kórsöng
að launum
Dómkórinn söng fyrir utan höfuðstöðvar RLR
í gær. Þetta var gert til að heiðra lögreglu-
mennina sem vasklega gengu fram við að
upplýsa þjófnað á segulbandsspólum, sem
m.a. höfðu að geyma upptökur með dómkórn-
um. Sá lögreglumaður sem stjórnaði rann-
sókninni og fékk konfektkassa, koss og blóm
frá kórnum. Allar spólurnar 52 sem stolið var
eru nú komnar í hendur eigenda sinna og
reyndi málið mjög á sálina í þeim er það
varðaði.
• Blaðsíða 2
HOLTABAKKI -
VÖRUAFGREIÐSLA
SKIPADEILDAR
- NÚTÍMA VÖ'RUAFGiREIOSLUS'TÓtÐ
TRYGÖIIR P€R QOÐA VÖRUMEiÐiFER©
- TÓ'LV'USTYR-Ö STA.ÐS€T''i I WGA.R-
O'G DR€ I FT'í'GARK EiRFf
- UPPHi'TAÐAR VÓRU'GEYySLUR
- FULLKOMTNM TÆ Kj.A F'L 0T'l
- STR.A**:DfLU'mi*i<GS- 0*G H EIM-
A.KSTU RSPJOBi UST A
- FRYSTIGE'YMSLUR..
K.Æ L.I G E'Y M S L U R
- PERSO’rUL.EG PJÓsNUSTA ER OKK-
AR A.ÐALSMERKI
-
R| SKIPADEILD
r^SAMBANDSINS
“ SAMBANDSHÚSINU KIRKJUSANDI
105 REVKJAVlK SlMI 91-698300
VERÐUGUR VALKOSTUR