Tíminn - 02.06.1990, Side 2
2 Tíminn
Laugardagur 2. júní 1990
G-listinn í Reykjavík vill að Ólafur Ragnar segi af sér strax.
un Ólafur Ragnar segist ekki ætla að hopa:
011 spjót
aðÓlafi
Harðlínumennimir í Alþýðubandalaginu sækja nú
ákaft að Ólafi Ragnarí Grímssyni formanni flokksins.
Alþýðubandalagsfélagið í Reykjavík hefur krafist
þess að hann segi af sér hið fýrsta. Æskulýðsfýlking
Alþýðubandalagsins hefur krafist þess að flokkurinn
endurskoði stefnu sína og formaður flokksins starfi í
samræmi við þá stefnu. Olafur Ragnar segist ætla að
gegna formannsembættinu áfram. Margir óttast að
stríðið innan Alþýðubandalagsins hafi áhrif á ríkis-
stjómina í haust. Einkum þó ef stríðsaðilar hyggjast
efna til stórormstu í haust á landsfundi.
í ályktun sera samþykkt var á fundi
Æskulýðsíylkingarinnar er lögð
áhersla á að meginniðurstaða kosn-
inganna sé að sameiningartilraunir
formanna Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags hafi mistekist og í raun
hafi þær verið dæmdar til að mistak-
ast þvi að ranglega hafi verið staðið
að þeim. Hvatt er til þess að íullgild-
ur landsfundur verði haldinn í haust
til að ræða ffamtíð og stefnu Al-
þýðubandalagsins. Flokkurinn verði
að koma sér saman um hver stefha
flokksins eigi að vera og forysta
flokksins verði að starfa í samræmi
við þá stefnu sem flokksmenn hafa
mótað.
í ályktun sem samþykkt var á aðal-
fundi Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík segir orðrétt:
„Aðalfundur Alþýðubandalagsins í
Reykjavík skorar á miðstjóm Al-
þýðubandalagsins að hún boði til
fullgilds landsfundar á hausti kom-
andi og að þar verði tekin afdráttar-
laus afstaða til þess hvemig vinnu-
brögðum flokksins og formanns
hans skuli háttað í framtíðinni.
Til að flýta fyrir lausn þessara mála
og gera þau sem sársaukaminnst
skorar aðalfundur Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík á formann flokksins
að segja af sér hið fyrsta.
Alþýðubandalagið stendur á tíma-
mótum. Þeir atburðir hafa orðið inn-
an flokksins að óhjákvæmilegt er að
álblönduð pústkerfi
....... • /-•■-■. ■■■■• ■•■-- . •'•■•■ -■
RTÚNI 26, SÍMI 62 22 62
benast
Ragnari
flokkurinn taki afstöðu til þeirra og
meti upp á nýtt stefnu sína, lög og
starfshætti. Jafnframt er óhugsandi
að unnt verði að ganga til alþingis-
kosninga að ári án þess að undan hafi
farið umræða um það hvemig staðið
skuli að málum varðandi framboð
flokksins og málaefnaáhérslur.“
Það var Bima Þórðardóttir Sem
lagði fram tillöguna um að formaður
flokksins segði af sér hið fyrsta. Til-‘
laga Bimu var samþykkt með 31 at-
kvæði gegn 28.
Niðurstaða fundarins er skýr. Olaf-
ur Ragnar formaður flokksins segi af
sér hið fyrsta, sem þýðir væntanlega
að Steingrimur Sigfusson varafor-
maður taki við, og landsfundur verði
haldinn í haust þar sem kúrsinn til
vinstri verði leiðréttur.
„Alþýðubandalagið er lýðræðisleg-
ur flokkur og flokksmönnum er
ffjálst að hafa sínar skoðanir. Ég var
kosinn formaður Alþýðubandalags-
ins og ætla mér að gegna því starfi
áffarn. Ég hef verið að vinna að því
að framkvæma stefhu flokksins og
ríkisstjómarinnar með góðum ár-
angri“ sagði Ólafur Ragnar þegar
hann var spurður hvort hann hygðist
segja af sér sem formaður flokksins.
„Það er tvennt athyglisvert varð-
•andi fundinn í Reykjavík. Annars
vegar þær atkvæðatölur sem komu
fram í atkvæðagreiðslunni og hins
vegar að Bima Þórðardóttir skuli
vera orðin formlegur leiðtögi ABR.“
Ólafur Ragnar vildi.ekki tjá sig um
gagnrýni Svavars Gestssonar og
Steingrims J. Sigfussonar á formann
flokksins. „Þáð hefur verið ágæt
málefnaleg samvinna milli Svavars,
Steingríms og mín í ríkisstjóminni.
Þar hefur enginn málefhaágreiningnr
verið.“
í lok þessa mánaðar verður haldinn
miðstjómarfundur Alþýðubanda-
lagsins. Þangað mæta um 120 full-
trúar alls staðar af landinu. Búist er
við að niðurstaða hans ráði miklu um
framvindu mála í Alþýðubandalag-
inu. Líklegt er talið að miðstjómar-
fundurinn taki ákvörðun um að boða
landsfund í haust. Reikna má með að
á miðstjómarfundinum muni Ólafur
Ragnar svara þeirri gagnrýni sem
beint hefur verið að honum en hing-
að til hefur hann ekki viljað segja
mikið um gagnrýni flokksystkina
sinna.
Fyrsti fundur viðræðunefnda
borgarinnar og Grafarvogsbúa um
sorpstöðina í liðinni viku:
Framkvæmdir
halda áfram
Fyrsti fundur viðræðunefnda Varðandi umferð flutningabila
íbúa Grafarvogs og embættis- til og frá stöðinni bentu fulltrúar
manna bnrgarinnar um sorp- íbúanna á að ekki væri sambæri-
böggunarstöðina i Gufunesi fór legt að bera saman umferð stórra
fram i fyrradag. Viðræðum verð- flutningabQa og -tækja saman
ur fram haldið í næstu viku. við umferö venjulegra fólksbfla.
Framkvæmdir við böggunar- Bæði væri lofft og hávaðamengun
stöðina hafa ekki veríð stöðvaðar frá þeint miklu meiri auk þess
og haida áfram af fullum krafti, sem að almennt séð hlyti að telj-
Farið var yflr mállð og forsögu ast óæskilegt að stórir flutninga-
þess af hálfu embættismanna bflar ækju jafnaðarlega i gegn
borgarinnar á fundinum í fyrra- um ibúðarhverfi.
dag en fulltrúar ibúa hverfisins Viðræðunefnd Grafarvogsbúa
skýrðu sín sjónarmið. Fram kom kemur saman eftir helgi til að
að þeir óttast einkum tvennt móta kröfur sínar. Næsti við-
veröi af byggingu stöðvarinnar á ræðufundur hennar og embætt-
þessum stað: í fyrsta lagi er það ismanna borgarinnar verður að
umferðin til og frá stöðinni sem likindum haldinn seint í næstu
embættísmennirnir töldu að yrði viku. Framkvæmdir við bygg-
nærri 4% af heildar bflaumferð ingu sorpstöðvarinnar hafa ekki
gegn um hverfið. í öðru lagi telja verið stöðvaðar og halda áfram
íbúarnir næsta víst að rekstur affuflum krafti þrátt fyrir að enn
stöðvarinnar muni fæla fyrirtæki sé engin niðurstaða fengin í við-
í t.d. matvælaiðnaði frá þvi að ræður Grafarvogsbúa og borg-
taka sér bólfestu i Grafarvogi og aryfirvalda.
kalla á annan óþrifalegan iðnað. —sá
Reisugildi í ráðhúsi
Davíð Oddsson borgarstjóri skálaði
við borgarstjóm, embættismenn
borgarinnar og starfsmenn við bygg-
ingu ráðhússins í Reykjavíkurtjöm
siðdegis í gær en þá var haldið reisu-
gildi ráðhússins.
Ráðhúsið umdeilda er nú komið
undir þak en endanlega verður lokið '
við að ganga frá þakinu í haust og
gleija húsið þannig að það verði fok-
helt áður en vetur gengur i garð.
Borgarfulltrúi Kvennalistans; Elín
G. Ólafsdóttir mætti ekki í reisugild-
ið og í fréttatilkynningu frá Kvenna-
listanum segir að ekki verði séð að
tilefni sé til fagnaðar út af því að ráð-
húsið sé risið enda sé Kvennalistinn -
og hafi ætíð verið, á móti byggingu
þess. Þeim fjármunum sem farið hafi
í húsið og aðrar glæsihallir sem ein-
ungis nýtast fáum hefði verið betur
varið í framkvæmdir á sviði félags-
legrar þjónustu.
—sá
Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra
Steingrimur Hermannsson forsætis-
ráðherra vildi lítið tjá sig um innan-
flokksátökin í Alþýðubandalaginu
þegar Tíminn leitaði álits hans á
þeim. Hann sagðist gera sér ljóst að
þessi átök gætu haft áhrif á stjómar-
samstarfíð siðar á þessu ári. „Ég finn
ekki annað en að flokkamir sem
standa að þessarí ríkisstjóm vinni í
henni af heilindum. Ef að átökin í
Alþýðubandalaginu koma til með að
veikja stjómina mun ég meta stöð-
una þegar þar að kemur. Ég vona
hins vegar að þetta samstarf endist út
kjörtímabilið. Það getur það málefn-
anna vegna. Ég get á þessari stundu
ekki svarað því hvort að innri vandi
Alþýðubandalagsins geri samstarfið
ómögulegt," sagði Steingrímur.
Það er mat þeirra sem gleggst
þekkja til innviða Alþýðubandalags-
ins að ekki verði komist hjá því að
flokkurinn klofni. Andstæðingar Ól-
afs Ragnars séu ákveðnir í því að
losa sig við formanninn og stuðn-
ingsmenn hans. Innan ríkisstjómar-
innar era menn famir að velta fyrir
sér hvemig bregðast eigi við nýju
pólitísku landslagi í haust.
-EÓ
Stofnað til nýrra bók-
menntaverðlauna:
DAVÍÐS-
PENNINN
Miðvikudaginn 30. maí hélt Félag
íslenskra rithöfunda aðalfund sinn.
Að loknum venjulegum aðalfúndar-
störfum bar formaður félagsins,
Sveinn Sæmundsson, upp tillögu um
að stofnað yrði til nýrra bókmennta-
verðlauna sem nefnast skulu Davíð-
spenninn.
Verðlaunin em kennd við Davíð
Stefánsson skáld frá Fagraskógi en
hann var einn stofnenda Félags ís-
lenskra rithöfunda á sínum tíma.
Gert er ráð fyrir að þessi viðurkenn-
ing verði veitt fyrir skáldverk eða rit-
verk sem út koma á árinu eða hafa
komið út áður. Jafhffamt verður látin
fylgja verðlaununum einhver fjár-
hæð og verðlaunahafa afhentur
skjöldur sem letrað verður á að um
sé að ræða bókmenntaverðlaun Fé-
lags ísl. rithöfúnda.
Tillaga Sveins var samþykkt og
henni síðan vísað til félagsstjómar til
meðferðar og mun hún taka ákvarð-
anir um frekara fyrirkomulag verð-
launanna á fundi sínum á hausti
komanda.
A aðalfúndinum kom ffarn að fjár-
hagur Félags ísl. rithöfunda er góður
um þessar mundir. Sveinn Sæ-
mundssön var kosinn formaður Fé-
lags ísl rithöfúnda. Aðrir í stjóm eni
Indriði Indriðason, Indriði G. Þor-
steinsson, Vilhjálmur Hjálmarsson,
Páll Líndal, Snjólaug Bragadóttir og
sr. Bjami Th Rögnvaldsson.
í Félagi ísl. rithöfúnda em rúmlega
70 manns, þar af rúmlega 40 sem
einvörðungu em í félaginu, en tæp-
lega 30 félagsmanna em jafnframt
félagar í RithöfUndasambandinu. Fé-
lögin vom á sinum tíma sameinuð en
vegna offíkis gengu margir aftur i
Félag ísl. rithöfúnda og gerðu það að
stéttarfélagi sínu.
-sá