Tíminn - 02.06.1990, Blaðsíða 20

Tíminn - 02.06.1990, Blaðsíða 20
AUQLÝSINGASÍMAR: 680001 — 686300 PÓSTFAX TÍMANS 687691 LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM Kringlunni 8-12 Sími 689888 ^Bérmélen^l*arfaa! RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR VERfiBREFAVIfiSKIPTI Hafnorhúsinu v/Tryggvagölu, SAMVINNUBANKANS S 28822 SUÐURLANDSBRAUT 18, SlMI: 688568 LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1990 Arnarflug skuldar staðgreiðslu skatta fyrir apríl og maí: Skrifstofur innsiglaðar Gjaldheimtan í Reykjavík inn- siglaði aðalskrifstofur og sölu- skrifstofu Amarflugs í Lágmúla rétt fyrir klukkan fimm í gær. Astæðan er sjö miiljón króna skuld félagsins á staðgreiðslu skatta íyrir mars og aprílmánuð. Flug félagsins verður með eðlileg- um hætti um helgina en skrifstofur félagsins í Keflavík verða opnar um helgina. „Við vorum búnir að ná verulega upp í þessa skuld en þeir vildu annað hvort allt eða ekkert,“ sagði Oli Tynes blaðafúlltrúi Amarflugs í samtali við Tímann í gær. Stefnt er að því að útvega þá fjár- muni sem upp á vantar um helgina og greiða skuld félagsins við gjaldheimtuna i Reykjavík og opna skrifstofumar aftur á þriðju- dag. Aðspurður um hvort þessi lokun væri ekki enn ein sönnun þess að rekstur félagsins væri mjög erfiður ef ekki vonlaus sagði Óli að verið væri að vinna að ffamtíðarlausn á fjárhagsvanda fyrirtækisins. „Þessar sjö milljónir em náttúr- lega nánast eins og dropi í hafið“ sagði Óli. „Það er verið að finna lausn á heildarskuldum félagsins. Það sem við þurfum að gera er að halda þessu gangandi þar til sum- arvertíðin hefst hjá okkur fyrir al- vöm. Það er spuming um tvær til þijár vikur. Tímabilið júní, júlí, ágúst og ffam í september em þeir mánuðir sem flugfélög græða pen- inga á. Hina mánuðina em þau rekin með tapi. Það á ekkert sér- staklega við um Amarflug; það á við um öll flugfélög í heiminum.“ Óli sagði að það sem stæði félag- inu fyrir þrifúm nú væri verkefha- skortur. Sú staða myndi hins vegar að öllum líkindum lagast í haust. - ÁG Jón Ársælsson meö einn fyrsta laxinn sem kom á land úr Þverá, en hann tók maök í Kirkjustreng. Tímamynd: Þröstur Laxveiðin hófst í gær í þremur af „stóru ánum“: Ellefu laxar á fyrstu vakt viö Norðurá Landbúnaðarráðherra sendir bréf til yfirmanns Skógræktarstöðv- arinnar á Mógilsá þar sem hann fellst á uppsögn hans: Jón Gunnar beðinn að mæta ekki a Mogilsa Uppsögn Jóns Gunnars Ottós- ttl uppsagnarfresturinn er út- er formaður þingflokks Alþýðu- sonar, yfirmanns skógræktar- runninn. Uppsagnir annarra bandalagsins. Aðspurður um stððvarinnar á Mógilsá, hefur starfsmanna á Mógilsá bafa ekki hvort skiptar skoðanir milli vara- verið tekin til greina af landbún- vcrið teknar til athugunar hjá formanns Alþýðubandalagsins aðarráðherra. Samkvæmt heim- ráðuneytinu en að sögn Stein- og maka formanns þingflokksins ildum Tímans barst Jóni bréf frá grims J. Sigfússonar iandbúnað- gætu hugsanlega haft áhrif á ráðuneytinu í gær þar sem óskað arráðherra hafa hann og starfs- samstarfíð innan flokksins sagð- er eftir að hann mæti ekki til menn ráðuneytisins átt í ist Steingrímur J. Sigfússon von- vinnu sinnar eftir hvítasunnu. viðræðum að undanförnu viö ast til þess að svo yrði ekki. Hann Það mun vera ætlun ráðuneytis- starfsmenn stððvarinnar. liti á málið frá faglegu sjónarmiði ins að nýta starfskrafta Jóns á Jón Gunnar er sambýlismaður og vonaðist til þess að svo gerðu ððrum sviðum þann tíma þangað Margrétar Frímannsdóttur sem aðrir sem hlut að ættu. —ÁG Viröa ekki hraöatakmarkanir vegna nýlagörar klæðningar „Það rignir inn kærum vegna bíl- stjóra sem ekki fara eftir settum regl- um og siminn hefur ekki stoppað hjá okkur í dag vegna þess. Það eru hreinustu vandræði af mönnum sem keyra of hratt á nýlagðri olíumöl" sagði lögregluvarðstjóri á Selfossi i samtali við Tímann í gær. Nýlega var lagt bundið slitlag á Hellisheiði ffá Svínahrauni að Hveradölum. Mikil brögð eru að því að ökumenn virði i engu settan hámarkshraða og þess vegna skapar gijótkast ffá þessum bifreiðum mikla hættu. Hámarkshraði á þessum kafla er 35 km. en að sögn lögreglunnar eru mörg dæmi um að ökumenn slái lítið sem ekkert af er kemur inn á nýlagða olíu- mölina. Þess vegna er mikið um skemmdir á bílum sem aka um Hellis- heiði, svo sem rúðubrot og rispað lakk eftir oddhvasst gijótið sem spýtist um allar trissur. Annasamt var hjá lögregl- unni á Selfossi í gær vegna kvartana og kæra sem bárust en að sögn lög- reglunnar er lítið hægt að gera annað en tala við viðkomandi ökumenn og hvetja þá til að virða hraðatakmarkan- ir. Þá eru meiri líkur til þess að klæðn- ingin skemmist fyrr þegar ekið er á henni nýlagðri. Það er því fyllsta ástæða til að vara ökumenn við þessum kafla og það voru eindregin tilmæli ífá lögreglunni að menn sýni þolinmæði. Ekki er hægt að loka veginum þessa nokkru daga meðan á viðgerð stendur. Búast má við mikilli umferð um helgina, spáð er góðu veðri og margir Ellefú laxar veiddust á „fyrri vakt- inni“ í Norðurá í gær á fyrsta degi laxveiðisumarsins. Það voru stjóm- armenn SVFR sem hófú veiðar og verða að ffam að hádegi á morgun. Ellefu laxar er mjög svo viðunandi afli því íyrsta daginn í fyrra veiddist enginn fiskur í Norðurá og aðstæður leggja land undir fót þessa fyrstu ferðahelgi sumarsins. Umferðin virtist hins vegar fara ffemur rólega af stað enda engar stórsamkomur um helgina. „Mér fmnst samt mjög trúlegt að fólk ryðjist út úr bænum. Skárra væri það að fara að hanga í bænum yfir engu“ varð einum lögreglumanni að orði í samtali við Tímann. Eina tjaldsvæðið sem er opið um helgina er í Skaffa- felli. Lögreglan á Höfn átti samt ekki von á miklum önnum en var samt við öllu búin. -hs. voru ekki góðar i gær þegar menn hófú veiðar. Áin vatnsmikil, mórauð og ísköld. Það hefúr því vakið bjart- sýnina, sem veiðimenn virðast eiga nóg af, hversu vel tókst til á fyrsta degi í Norðurá. Friðrik Stefánsson ffamkvæmdstjóri SVFR sagði í samtali við Tímann i gær að menn hefðu verið að gera sér það til dundurs að setja niður á blað spá um lokatölur fyrsta hollsins. Þeir sem svartsýnastir voru veðjuðu á ell- efú laxa en Friðrik sagðist sjálfúr vera bjartsýnastur og skaut hann á töluna 43 og virðist hann vera forspár ef eftirleikurinn verður á við „fyrstu vaktina.“ Þeir voru ekki jafh kampakátir veiðimenn við Þverá í Borgarfírði. Tveir laxar voru komnir á land þegar Tíminn ffegnaði um kvöldmat í gær. Áin var gríðarlega vatnsmikil og mó- rauð og litt fysileg til veiða. Þetta horfði þó allt til bóta og eiga menn von á góðri veiði fljótlega. Laxá á Ásum var þriðja áin sem veiði hófst í í gær. Veiði hófst ekki fyrr en klukkan 15 og þegar Tíminn hafði spumir af gangi mála á sjöunda tímanum í gær hafði ekkert veiðst. Þó vom menn vongóðir. Veiði hefst í fleiri laxveiðiám á næstu dögum. -ES

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.