Tíminn - 02.06.1990, Blaðsíða 4

Tíminn - 02.06.1990, Blaðsíða 4
4 Tíminn FRETTAYFIRLIT MOSKVA - Efnahagsleg borgarastyrjöld virðist vera ( aðsigi í Sovétrlkjunum. Lönd og landsvæði hafa neitað að flytja matvörur til annarra staða ( Sovétríkjunum og sala á neysluvörum hefur verið takmörkuð. Þing Hvíta- Rússlands hefur mótmælt verðhækkunum eins og ná- grannar þeirra ( Úkraínu höfðu áður gert. Efnahags- áætlun Gorbatsjovs er ástæðan fyrir þessum óróa. JÓHANNESARBORG - Stjórn S-Afríku hefur lagt til aö aðskilnaði kynþátta í veit- ingahúsum og skemmtigörð- um verði hætt. Þessu hafa hvítir öfgamenn mótmælt en stuðningur svartra manna er volgur. A-BERLÍN - Austur-Þjóð- verjar sögðust myndu hætta allri landamæragæslu við borgarmörkin 1. júlí. Þar með verður borgin samein- uð á ný en 30 ár eru liðin frá þvf að Berlínarmúrin klauf borgina í tvo hluta. SAO-PAULO - Forseti Brasilíu, Fernando Collor de Mello, á nú ( erfiðleikum vegna verkfalls hafnarverka- manna. Lög sem hann vildi setja um stéttarfélög voru felld á þingi Brasilíu. BRUSSEL - V-Þýskaland og Lúxemborg bönnuðu inn- flutning á kjöti frá Bretlandi vegna vaxandi áhyggja af „kúaæði". Áður höfðu Frakk- ar bannaö kjötinnfluting. Þessi þrjú rlki eiga á hættu að Efnahagsbandalagið lög- sæki þau. HAVANA - Kúbumenn segjast vera þess fullvissir að Sovétmenn muni ekki láta undan þrýstingi Banda- ríkjamanna um að minnka efnahagsstuðning viö þá. Þeir hafa þó áhyggjur af efn- hagsástandi Sovétríkjanna og ætla að búa sig undir minni stuðning þess vegna. MONRÓVÍA - Forseti landsins Samúel Doe sagð- ist ekki taka þátt í næstu kosningum og bað Banda- ríkjamenn um hjálp til að binda endi á 6 mánaða gamla uppreins ( landinu. Bandaríkjastjórn hefur sent herskip til að bjarga 1100 Bandaríkjamönnum frá land- inu ef þess gerist þörf. MOSKVA - Tveir „hengi- vagnar“ féllu til jarðar úr 20 metra hæð. 15 menn dóu og 45 slösuðust er þetta gerðist í miðborg Tbilisi höfuðborgar Georgíu. Laugardagur 2. júní 1990 iUTLOND Moldavía og Rússland samþykkja sjálfstæði Lithauga: Jeltsin ræðir við Landsbergis Bóris Jeltsin á Rauða torginu. Maðurínn sem er að breyta Sovétríkjun um á meðan Gorbatsjov er i Bandaríkjunum. Borís Jeltsin, hinn róttæki nýi forseti Rússlands, hitti forseta Lithauga á föstudag og ræddu þeir um leiðir til að vinna saman gegn viðskipta- banni Sovétstjómar á Lit- haugaland. Hin opi'ibera fréttastofa Lithauga ETA hafði eftir forseta landsins, Vy- tautas Landsbergis, að viðræðumar mörkuðu upphaf samskipta við rúss- neska sovétlýðveldið og að þau sam- skipti lofuðu góðu. Rússland og Moldavía viðurkenndu formlega á fimmtudag rétt Lithauga til sjálf- stæðis. Þessi lönd ögra nú tilraunum Gorbatsjovs við að lífga við efnahag Sovétríkjanna og að halda þeim sam- einuðum. Jeltsin sagði á miðvikudag að hann væri reiðubúinn að sjá Eystrasaltslöndum fyrir olíu og öðr- um nauðsynjum. Þrátt fyrir þetta er ekki ljóst hvemig á að koma vömm til Eystrasaltslandanna. Jámbrautar- starfsmenn em undir beinni stjóm sovésku stjómarinnar. Lithaugum heíúr ekki tekist að senda kjöt með jámbrautum til Síberíu í skiptum fyr- ir olíu. Talsmaður þings þeirra, Rita Dapkus, sagði að ef Jeltsin reyndi að nota jámbrautir til að flytja vömr til Lithaugalands myndi hann lenda í beinni deilu við Gorbatsjov. „Allt fer eftir því á hvom þeirra jámbrautar- starfsmenn munu hlusta“. Þing Moldavíu lýsti yfir áhuga á viðskiptatengslum við Lithauga. Dapkus sagði að það gæti þó haft meiri þýðingu að þingið hefði ákveð- ið að senda sendiftilltrúa til Vilníusar. Hún vonaði að fleiri fæm að dæmi þeirra. Ekkert vestrænt ríki hefur hingað til viður- kennt sjálfstæði Lithauga. V-þýska stjómarandstaðan: Mun líklega samþykkja sameiningu Nú virðist nokkuð ömggt að v- þýskir sósíaldemókratar muni sam- þykkja samning um efnahagssam- runa þýsku rikjanna. „Bundesratið“, efri deild þingsins, lauk á fostudag fyrstu umræðu um samninginn án þess að samþykkja hann eða hafha honum. Leiðtogar krata virðast ánægðir með að Helmut Kohl kanslari hefur hafið viðræður við þá um hugsanlegar ráð- stafanir til að draga úr gjaldþrotum og atvinnuleysi í A- Þýskalandi en þetta var eitt af því sem ágreiningur var um. Leiðtogi krata, Hans-Jochen Vogel, sagði að horfúr væm nú betri á að fúllt samkomulag næðist í þinginu. Hann sagðist hafa kosið að gefa ekki út yfirlýsingu um hvort kratar myndu fella eða styðja samninginn fyrr en að loknum viðræðum við Kohl, en kanslarefhi þeirra, Óskar Lafontaine hefúr þegar gefið út yfírlýsingu um að ekki megi fella samninginn undir neinum kringustæðum. Samningurinn hefur komið sósíal- demókrötum í vanda. Þeir hafa viljað notfæra sér áhyggjur V- Þjóðveija af þvi hve sameiningin verður dýr en vegna allsheijarkosninganna í Þýska- landi næsta vor hafa þeir ekki viljað sfyggja a-þýska kjósendur með því að stöðva samning sem gerir þeim kleyft að fá ný v-þýsk Mörk í stað verðlausra peninga sinna. Leiðtogafundurinn: Gorbatsjov segir viðræður ganga vel Gorbatsjov sovétleiðtogi sagði í gær um viðræður sínar og Bushs banda- rikjaforseta að vel gengi í viðræðum um fækkun langdrægra kjamorku- flauga. „Ég get strax sagt að þessi leiðtoga- fúndur verður mikilvægur en hve mikilvægur hann verður ræðst á morgun“ sagði Gorbatsjov eftir tveggja klukkustund fúnd þar sem hann og Bush ræddu 50% fækkun langdrægra kjamorkuflauga. Meginviðfangseftii fúndarins er að ræða fækkun kjamorkuvopna en auk þess var var búist við að forsetamir myndu undirrita ýmsa samninga í gærkvöldi. Þessir samningar em um efnavopn, kjamorkuvopnatilraunir, skipti á námsmönnum, um friðsam- lega notkun kjamorku, um rannsókn- ir á flugi og rannsóknir á hafinu. í dag munu þeir ræðast við óform- lega í sumarbústaði bandaríkjaforseta í Camp David. Bush sagðist telja að leiðtogamir væm að ná samkomulagi um efnavopn og sagði að ameríska þjóðin myndi líta á það sem merkan áfanga. Fyrr um daginn ræddu leið- togamir ýmis ágreiningsmál sín og þar á meðal um sameiningu Þýska- lands. Bandariskir embættismenn virtust ekki vera jafn bjartsýnir og þeir sovésku um árangur af þeim við- ræðum. Bandarikjamenn hafa reynt að láta Sovétmenn sættast á aðild Þýskalands að Nató með því að bjóða þeim ýmis- legt í sárabætur. Þar á meðal er talað um að styrkja CSCE sem er nefnd 35 Evrópuþjóða um samvinnu og öryggi í Evrópu. Sú nefnd eða ráð setti sam- an Helsinki sáttmálann 1975 um mannréttindi og landamæri í Evrópu. Sovétmenn vilja gjaman að þessi nefnd komi í staðinn fyrir NATÓ og Varsjárbandalagið en Bandaríkja- menn vilja ekki leggja niður NATÓ heldur efla pólitíska þýðingu þess. Frá undirbúningi fundaríns. She- vardnadze og Baker, utanríkis- ráðherrar rísaveldanna. Bandaríkin beittu neitunarvaldi sínu: Samskiptum BNA og PLO lokið Leiðtogar Palestínumanna slitu tengsl sín við Bandaríkjastjóm í gær eftir að hún beitti neitunarvaldi gegn ályktun um að senda fúlltrúa Sameinuðu þjóð- anna í könnunarferð til herteknu svæða ísraels. Þar með er lokið óform- legum viðræðum Bandarikjastjómar við PLO ssm hófust 1988 en stjóm ísraels hefur harðlega gagnrýnt þær. Fjórtán af fimmtán fúlltrúum á fúndi öryggisráðsins greiddu atkvæði með því að senda þriggja manna sendi- nefnd til hemumdu svæðanna sem skildi leita leiða til að vemda Palest- ínumenn en neitun Bandarikjanna ger- ir þá ályktun að engu. Fastafulltrúi BNA vísaði til nýlegrar árásar skæm- liða þegar hann rökstuddi afstöðu sína. Austur-Þjóðverjar tiikynntu á Stelnberg, sagði að rekstri vers- Iélegt og að tæki i verinu væru fðstudag að þeir myndu loka ins yrði endanlega hætt innan ekki nðgu góð. Sérfræðingar stærsta kjarnorkuveri sinu en mánaðar. Hann sagði að vanda- hafa varað við að samskonar sérfræðingar hafa sagt að í því mól hefðu komið upp við rekst- slys gæti orðíð (verinu og varð í leynist „Tsjernobyl-slysahætta“. ur versins en umhverflssérfræð- kjarnorkuverinu i Tsjernobyl í Kjarnorkuverið er í Greifswald ingar sögðu í skýrslu í siðasta Ukrainu 1986 þegar geislavirkt og liggur nærri strönd Eystra- mánuði að verið væri hættulegt úrfelli barst um alla Norður- salts. Umhverfisraálaráðherra og því bæri að loka strax. Þeir Evrópu. A-Þjóðverja, Karl-Hermann sögðu að öryggiskerfl þess væri

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.