Tíminn - 02.06.1990, Blaðsíða 9

Tíminn - 02.06.1990, Blaðsíða 9
Laugardagur 2. júní 1990 Tíminn 9 Rætt við Sigurð Geirsson, - forstöðumann Húsbréfadeildar Húsnæðisstofnunar: Þetta eru vissar „persónunjósnir“ „Hann er í símanum og fimm aðrir bíða á línunni, svo ég held að það sé útilokað að þú náir sambandi við hann í dag.“ Þetta svar fékk Timinn hjá Húsnæðisstofhun þegar fyrst var reynt að ná í Sigurð Geirs- son, forstöðumann Húsbréfadeildar stoín- unarinnar. Er þetta kannski lýsandi dæmi um áhuga fólks á húsbréfakerfmu? „Þeir sem búnir eru að leggja inn umsókn eru að hringja og gá hvemig gengur. Við erum nú að fá inn alla þá sem hafa verið að bíða eft- ir að komast inn í kerfíð, 500 til 600 manns. Þetta kemur okkur ekkert á óvart, því við höfum vitað í nokkra mánuði að núna mundi koma holskefla umsókna — þó að vísu sé þetta nokkru meira en við áttum von á,“ svaraði Sigurður. Húsbréfakerfið tók gildi í nóvember síð- astliðnum, en þó aðeins fyrir ákveðinn hóp, þ.e. fólk sem sótt hafði um lán frá Bygging- arsjóði ríkisins á ákveðnu tímabili og var þar í langri biðröð. Nú ffá 15. maí varð hins vegar öllum sem kaupa notaðar íbúðir heimilt að sækja um fyrirgreiðslu í hús- bréfakerflnu. Og margir hafa áhuga á að kynna sér hið nýja kerfi, eins og glöggt kemur ffam í þessu helgarviðtali við for- stöðumann Húsbréfadeildar, Sigurð Geirs- sons. Ekki virðast þó allir hafa áttað sig á því hve Húsbréfakerfið er í grundvallarat- riðum ólíkt eldra lánakerfi Húsnæðisstofn- unar. Þar þýðir t.d. ekki (enda þarflaust) að sækja um til að komast í „röðina" til vonar og vara. Og öfúgt við eldra kerfi, þar sem há lán virðast „seld“ á allt upp í hálfa millj- ón króna, er t.d. ekki um neina vaxtaniður- greiðslu að ræða í húsbréfakerfi, heldur munu vextir húsbréfanna (affoll) ráðast á 5 ármagnsmarkaðnum. Sækja um til vonar og vara Ætla þá allir þessir 500-600 sem sent hafa inn umsóknir á skömmum tíma að kaupa sér íbúð á næstu vikum? - Allir segjast ætla að selja og kaupa. En reynslan undanfama mánuði er sú að að- eins um 25% fara í raun í íbúðarkaup áður en 4 mánaða gildistími umsóknanna rennur út. Astæðan? Margir sækja um í þessu kerfi á líkan hátt og í hinu, þ.e. til að komast í biðröðina. Þeir átta sig ekki á að biðröðin er ekki sú sama i þessu kerfi. Einnig er töluvert um að fólk sé að fá mat á greiðslugetu sinni til að sjá hvað það gæti gert, án þess að vera sérstaklega með ibúðakaup i huga. Þetta kostar fólk ekki neitt nema að safna saman gögnum og koma þeim til okkar og margir virðast for- vitnir um stöðu sína. Síðan er fjöldi fólks sem ætlar sér að kaupa — en samt ekki fyrr en það er búið að selja núverandi íbúð sem það nær oft ekki að gera áður en þessir fjórir mánuðir eru liðnir. Þá þarf fólk aftur að fá mat. Mikil breyting Hefur kannski margur enn ekki áttað sig á afgerandi mun á þessu nýja og hinu eidra kerfi? — Þetta er það mikil breyting að það tek- - Allir segjast ætla að selja og kaupa. En reynslan undanfarna mánuði er sú að aðeins um 25% fara í raun í íbúðarkaup áður en 4 mánaða gildistími umsóknanna rennur út. Ástæðan? Margir sækja um í þessu kerfi á líkan hátt og í hinu, þ.e. til að komast í biðröðina. Þeir átta sig ekki á að biðröðin er ekki sú sama í þessu kerfi. ur nokkum tíma að fólk átti sig almennt á því hvemig húsbréfakerfið virkar. Eðlilega hringja því margir og spyija. Við emm að tala hér um verðbréfaviðskipti, sem margir em svolítið á varðbergi gagnvart. Og lán- veitingar, sem em kannski ekki beinar lán- veitingar. Það er i rauninni seljandinn sem er að lána en ekki stofnunin. Við erum bara að aðstoða fólk að koma þessum skulda- bréfum í peninga án þess að þurfa að selja þau með þeim affollum sem annars mundu gilda um almenn fasteignaverðbréf á verð- bréfamörkuðum. Margir ætla í 6 til 9 millj. íbúð Fólk sem á íbúð, allt frá 2ja herbergja og upp úr, og ætlar að stækka við sig segir Sig- urður fjölmennast í hópi húsbréfaumsækj- enda. Meðalverð ibúða sem það stefni á að kaupa liggi líklega á bilinu 6 og upp í 9 milljónir. Enda gefi húsbréfakerfið fólki færi á að komast í endanlegu íbúðina fyrr en ella, eða í færri skrefúm en áður. „Við skulum líka vona að fólk geri það af meira öryggi en áður,“ sagði Sigurður. Enginn þolir 25 ára þrældóm Margir þeirra sem nú sjá opnast leið í „draumahúsið“ eignuðust sjálfsagt nú- verandi íbúð með skorpuvinnu í nokkur ár og óverðtryggðum iánum í óðaverð- bólgu. Gera þeir sér grein fyrir hve stór munurinn er að búa í skuldlitlu/iausu húsnæði og hins vegar stöðugum afborg- unum í 25 ár? — Eflaust eru margir sem gera sér ekki fúlla grein fyrir því hvað það er að þurfa að borga stöðugt af milljónalánum i fjölda ára fram í tímann. En á móti kemur, að við stillum greiðslugetunni þannig upp, að greiðslur séu fremur hóflegar og fólk geti tekið hlutunum heldur rólega, fremur en að við séum að stilla upp 25 ára þrældómi fyr- ir fólk. Það hreinlega gengur ekki. Það hefúr sýnt sig að flestir geta lagt tölu- vert á sig í takmarkaðan tíma; Eitt ár, sum- ir tvö og kannski upp í 3 til 5 ár. En að þeim tíma liðnum er fólk búið að vera. Slíkt ger- ir enginn í 25 ár. Sumir óánægðir Teiur fólk sig ráða við meira en ykkar mat segir tii um? Eða kemur því kannski á óvart hvað mat ykkar er hátt? — Fólki virðist ekki koma á óvart hvað við teljum greiðslugetu þess mikla og margir vilja ekki taka svo stór lán. A hinn bóginn hringja menn öðru hveiju sem eru mjög óánægðir með mat sem þeir hafa fengið — telja sig ráða við talsvert meira. Sumir segjast t.d. vera að borga húsaleigu á 35-40 þúsund kr. — mun hærri en við met- um greiðslugetu þeirra. Við biðjum þá við- komandi að koma með kvittanir til okkar. I sumum tilfellum höfum við hækkað matið, en í öðrum tilfellum getur fólk ekki sýnt okkur fram á að það stæðist slíkar greiðslur til frambúðar. ■ ■■ vilja „gleyma“ lausa- skuldunum Það er líka mjög algengt að menn telji saman eignir sínar og dragi aðeins frá skuldir áhvílandi á fasteigninni. „Mismun- inn nota ég til að borga upp í aðra eign,“ segja þeir. Þeir líta þá kannski alveg fram hjá lausaskuldum upp á hálfa til hálfa aðra milljón sem ekki hvíla á húsinu. „Eg ætla bara að færa það yfir á hina eignina og nota alla peningana,“ segja þeir. Við reiknum greiðslugetuna hins vegar út frá hreinni eign, þ.e. að frádregnum öllum skuldum. Persónunjósnir? Skýra menn þá frá öllum sínum skuld- um? — Við höfúm mjög gott tæki til að fylgj- ast með því: Skattskýrsluna. Þar reyna flestir að auka skuldir fremur en minnka, til að lækka eignaskattsstofninn. Er fólk orðið sátt við þetta nýja fyrir- komulag, þ.e. að þurfa að uppiýsa um aliar sínar tekjur og eignir og færa sönn- ur á að það geti í raun borgað lánin? Einhver hefur nefnt þetta persónunjósn- ir. — Þetta eru vissar persónunjósnir. Við fá- um eflaust ekki fúllar upplýsingar ffá fólki um alla hluti. Menn gefa jafnvel ekki upp allar tekjur sínar. Fólk sem fengið hefúr lágt mat kemur stundum eftir á með hina og þessa launaseðla. Hvað með „gráu tekjurnar“? Svo er alltaf spumingin hvað við eigum að gera við þessa með „gráu tekjumar“. Alltaf öðm hveiju koma menn sem segjast hafa miklu hærri tekjur — bara tekjur sem ekki eru gefnar upp til skatts. Við því höfum við eiginlega staðlað svar: Viðkomandi er spurður hvort hann ætlist til að þjóðfélagið fari að veita honum fyrirgreiðslu út á tekjur sem hann borgar ekki af til þjóðfélagsins. Það verður yfirleitt fátt um svör. En starf- andi hjá ríkisstofnun finnst manni það ansi hart að að fólk skuli ætlast til að þessi ríkis- stofnun fari að veita þeim fyrirgreiðslu út á tekjur sem það er að svindla undan annarri ríkisstofnun. Við heimtum staðfestingu á öllu slíku. Tekjur sem menn geta ekki staðfest, hafa þeir ekki í okkar augum. 70-80% viö samning... Hvað um þá sem bara ætla að selja? Hringja þeir í sama mæii? — Þeir hringja unnvörpum. Bæði ef þeir búast við slíku tilboði eða eftir að hafa fengið húsbréfatilboð í hendur. Þeir vilja vita hvemig þetta virkar og átta sig betur á hvað þeir fá endanlega út úr sölu með þess- um hætti. Að sögn Sigurðar getur kauptilboð gegn húsbréfum verið kannski 5-10% hærra í raun en hefðbundið tilboð upp á sama verð með útborgun dreift á heilt ár. Vegna þess að með húsbréfum fær seljandi jafnvel 70- 80% söluverðsins í hendur þegar við samn- ing. Framhjá grundvallarreglu? Nú mun rætt um að taka inn í húsbréfa- kerfið fólk á gamia biðlistanum, sem bú- ið er að kaupa íbúð fyrir 1,2,3 árum og þá án þeirrar grundvaliarreglu að fá mat á greiðslugetu? — Þetta mun eitthvað til skoðunar í fé- lagsmálaráðuneytinu, en meira veit ég ekki. Er ekki slæmt að fara fram hjá grund- vallarreglum í nýju kerfi? — Persónulega finnst mér það. Því greiðslumat fyrir íbúðarkaup er ein af grundvallarreglum húsbréfakerfisins. Auk þess sem þetta mundi verða mjög erfitt í vinnslu. Hvemig getum við t.d. vitað hveij- ar af núverandi skuldum manns með at- vinnurekstur eru vegna íbúðarkaupa fyrir einhverjum árum og hveijar vegna at- vinnurekstrarins? Þetta getur því orkað tví- mælis. Með vinnukerfi okkar reynum við að fylgjast með því að um raunveruleg fast- eignaviðskipti sé að ræða, en ekki „gervi- viðskipti" og höfum neitað um fyrir- greiðslu ef vart verður við að menn setja upp svona „gerviviðskipti". Heiður Heigadóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.