Tíminn - 02.06.1990, Blaðsíða 14

Tíminn - 02.06.1990, Blaðsíða 14
26 Tíminn Laugardagur 2. júní 1990 Grafíksýning í Ásmundarsal Þar sýna Dagrún Magnúsdóttir, Guðr. Nanna Guðmundsdóttir, íris ingvarsdóttir og Þórdís Elín Jóelsdóttir. Þær útskrifuð- ust úr grafikdeild M.H.Í. vorið 1988 og eru meðlimir myndlistarhópsins „Affam veginn". Sýningin stendur til 4. júní og er opin daglega kl. 14:00-18:00. Útivist um helgina Sunnudag, 3. júní. Kirkjuvogsbás- Blás- íðubás. Gengið mcðfram ströndinni frá Kirkjuvogsbás að Blásíðubás og síðan upp á Skálafcll. Brottför kl. 13:00 ffá Umferðarmiðstöð-bensínsölu. Mánudag, 4. júní. Bergtcgundarferð. Gengið ífá Mógilsá að Esjubcrgi. Hofsvík-Kjalamestangar. Gengin strand- lcngjan mcðfram Hofsvík og að Kjalamc- stöngum. Brottför í báðar ferðimar kl. 13:00 ffá Umfcrðarmiðstöð- bcnsinsölu. Stansað við Árbæjarsafn og við kaupfélagið í Mosfellsbæ. Félag eldri borgara Lokað vcrður í Goðhcimum, Sigtúni 3, á morgun, sunnudaginn 3. júní. Samtök um byggingu tónlistarhúss Samtök um byggingu tónlistarhúss munu standa fyrir 28 tónlcikum á næstu vikum. í dag vcrða tónlcikar með ungum tónlist- armönnum í íslensku ópemnni kl. 13.30 í tcngslum við Listahátíð í Garðabæ. Kl. 17. verða tónlcikar með Sinfóníuhljóm- sveit íslanda í Háskólabíói. Einl: Andrcj Gavrilov. Em þeir tónlcikar í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Konur í Austurstræti í dag, laugardaginn 2. júní, opnar Alda Stcinsdóttir sýningu í Gallerí 8 sem opin vcrður yfir hvítasunnuhelgina. Sýningin vcrður opin frá kl. 14-18 alla dagana. Gallerí 8 cr nýlcgt gallerí scm cr til húsa 1 Austurstræti 8-10. Alda hcfur á undanfömum árum haldið nokkrar einkasýningar hér hcima og er- lcndis og auk þess tekið þátt i nokkmm samsýningum. Meginviðfangscfni sýn- ingarinnar nú um hvítasunnuhclgina er konur. Myndimar, sem em stórar, em málaðar í vatns- og akrýllitum. Fermingarbörn í Hraungeröis- kirkju á hvítasunnudag kl. 13.30 Anna Þórðardóttir, Þorleifskoti Amar Sigmarsson, Langholti Brynjar Hauksson, Súluholti Ingvar Hjálmarsson, Langsstöðum Sigurður Guðjónsson Skyggnisholti Viðja Hrund Hreggviðsdóttir, Langholti Fermingarbörn í Villingaholts- kirkju annan hvítasunnudag kl. 14.00 Eiríkur Steinn Kristjánsson, Fcijunesi Hilda Ríkharðsdóttir, Brciðholti Ingi Öm Guðmundsson, Heiðarbæ Magnþóra Kristjánsdóttir, Forsæti Ragnar Ragnarsson, Vatnsholti Þómnn Elva Bjarkadóttir, Mjósyndi Dagsferðir Ferðafélagsins um hvítasunnu Sunnudag 3. júní, kl. 13.00: Sog — Hvcrinn eini — Oddafell. Létt gönguferð — mikil náttúmfegurð. Gönguleiðin ligg- ur um svæði vestan í Núpshlíðarhálsi í Reykjancsfólkvangi. Vcrð kr. 1.000. Mánudagur 4. júni kl. 13.00: Svínaskarð. Svínaskarð er gömul þjóðleið sem liggur milli Móskarðshnjúka og Skálafell yfir í Kjós. Verð kr. 1,000. Fyrsta gróðurferð vorsins vcrður farin í reit Ferðafélagsíns'f Hciðmörk miðviku- daginn 6. iúní kl. 20.00 ffá umfcrðarmið- stöðinni. Okeypts fetð. Laugardaginn 9, júni verður hin árlcga fcrð á Njáluslóðjr. Bjottför kl. 9.00 Helgarferðir til Þórsmcrkur cm famar um hvetja helgi og miðvikudagsferðir hefjast 13. júní. Notalcg gistiaðstaða í Skag- fjörðsskála — öll nauðsynleg þægindi — náttúmfegurð og kyrrð. Helgina 8.-10. júní vcrður boðið upp á göngu yfir Eyjafjallajökul í hclgarferð ti! Þórsmerkur. Gengin verður Skcijaleiðin. Missið ekki af jökulgöngu mcð reyndum fararstjómm. Gist í Skagfjörðs- skála/Langadal báðar nætur. Lcitið upp- lýsinga um ferð” til Þórsmerkur á skrif- stofunni, Öldugi u 3. Guðsþjóm prófastsd Árbæjarkirl Hátíðarguðsþj. 11 árdegis. Orj juðmundur Þe ur í Reykjavíkur- ii á hvítasunnu 990 :ta hvítasunnudag kl. ikari Jón Mýrdal. Sr. nsson. Áskirkja Hátíðarguðsþjónusta hvítasunnudag kl. 14. Sr. Ámi Bcrgur Sigurbjömsson. Borgarspítalinn Hátíðarguðsþjónusta hvitasunnudag kl. 10. Sr. Sigfinnur Þorleifsson. Breiðhol tskirkj a Hátíðarguðsþjónusta hvítasunnudag kl. 11. Oranisti Daníel Jónasson. Sr. Gísli lónasson. Dómkirkjan Hvítasunnudag: Hátíðarmessa kl. 11. Altarisganga. Sr. Jakob Ágúst Hjálmars- son. Messa kl. 14. Sr. Hjalti Guðmunds- son. Annar dagur hvítasunnu kl. 11. Há- tíðarmcssa. Sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn syngur við allar mcssumar. Organisti Martcinn H. Friðriksson. Viðeyjarkirkja Hátíðarmessa annan dag hvítasunnu kl. 14. Sr. Þórir Stcphenscn. Sungnir vcrða hátíðarsöngvar sr. Bjama Þorsteinssonar. Landakotsspítali Helgistund á hvítasunnudag kl. 13. Svala Niclscn syngur. Organleikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Jakob Ágúst Hjálm- arsson. Hafnarbúðir Hclgistund á hvítasunnudag kl. 14. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Elliheimilið Grund Guðsþjónusta kl. 10 á hvítasunnudag. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Fella- og Hólakirkja Hvítasunnudag: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Org- anisti Guðný Margrét Magnúsdóttir. Fríkirkjan í Reykjavík Hvítasunnudag kl. 14 hátíðarguðsþjón- usta. Einsöngvarar Alda Ingibcrgsdóttir og Þuríður Sigurðardóttir. Orgcllcikari Pavel Smid. Miðvikudag 6. júní ld. 7:30 morgunandagt. Sr. Cecil Haraldsson. Grafarvogsprestakall Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 í Félagsmið- stöðinni Fjörgyn. Hátíðarsöngvar sr. Bjama Þorsteinssonar fluttir. Organisti Sigríður Jónsdóttir. Þriðjudaginn 5. júní: Ársafmæli safnaðarins. Stofnað vcrður safnaðarfélag. Fundarstaður: Félagsheim- ilið Fjörgyn kl. 20. Allir Grafarvogsbúar velkomnir. Kaffiveitingar. Sr. Vigfus Þór Ámason. Grensáskirkja Hátíðarmessa kl. 11 á hvítasunnudag. Organisti Ámi Arinbjamarson. Jóhann Möllcr syngur einsöng. Þriðjudag: Kirkjukaffi i Grensási. Biblíulestur kl. 14. Sr. Jónas Gíslason vígslubiskup flytur annan biblíulesturinn af fjórum sem fjalla um postulasöguna. Heitt á könnunni og heimabakað. Allir velkomnir. Miðviku- dag: Hádegisvcrðarfundur fýrir eldri borgara kl. 11. Fimmtudag: Almenn sam- koma kl. 20.30. UFMH. Laugardag kl. 10. Biblíulestur og bænastund. Prestamir. Hallgrimskirkja Hvítasunnudag: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lámsson. Mótcttu- kór Hallgrimskirkju syngur mótcttuna Lobct dcn Hcrren eftir J.S. Bach. Organ- isti Hörður Áskclsson. Messa kl. 14. Inga Bachmann syngur cinsöng. Sr. Karl Sig- urbjömsson. Annan hvítasunnudag: Messa kl. 11. Altarisganga. Sr. Karl Sig- urbjömsson. Þriðjudag: Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Landspítalinn Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjömsson. Háteigskirkja Hámcssa kl. 11 hvítasunnudag. Sr. Am- grímur Jónsson. Hámessa kl. 11 annan hvítasunnudag. Sr. Tómas Sveinsson. Kirkjuóperan Abraham og Isak eftir John Speight sýnd á annan hvítasunnudag kl. 21 og þriðjudag 5. júní kl. 21. Kvöldbæn- ir og fýrirbænir cm i kirkjunni á miðviku- dögum kl. 18. Hjallaprestakall í Kópavogi Hátiðarguðsþjónusta í Digrancsskóla hvítasunnudag kl. 11. Sr. Ólafur Jóhanns- son. Sr. Kristján Einar Þorvarðarson verð- ur í sumarleyfi á næstunni og þjónar sr. Ólafur Jóhannsson í hans stað. Sóknar- nefndin. Kópavogskirkja Hátíðarguðsþjónusta á hvítasunnudag kl. 14. Guðsþjónusta kl. 11 annan hvíta- sunnudag. Sr. Þorbcrgur Kristjánsson. Langholtskirkja Kirkja Guðbrands biskups. Hátíðarguðs- þjónusta. Sr. Þórhallur Heimisson. Laugarnesprestakall Hátíðarmessa kl. 11. Altarisganga. Sig- ríður Gröndal syngur ásamt kirkjukór Laugamcskirkju. Kyrrðarstund í hádcg- inu á fimmtudögum, orgclleikur, fýrir- bænir, altarisganga. Léttur hádegisvcrður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Sókn- arprcstur. Neskirkja Guðsþjónusta kl. 11 á hvítasunnudag. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Guðsþjón- usta kl. 11 á annan hvítasunnudag. Sr. Frank M. Halldórsson. Organisti Rcynir Jónasson. Miðvikudag: Fyrirbænamcssa kl. 18.20. Sr. FrankM. Halldórsson. Seljakirkja Guðsþjónusta í Seljahlið hvítasunnudag kl. 11 árdegis. Organisti Kjartan Sigur- jónsson. Prestur Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Sóknarprcstur. Seltjarnarneskirkja Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 á hvítasunnu- dag. Elísabet F. Friðriksdóttir syngur cin- söng. Organisti Gyða Halldórsdóttir. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Opið hús fýrir foreldra ungra bama fimmtudag kl. 15. Takið bömin með. Kirkja óháða safnaðarins Hátíðarguðsþjónusta hvítasunnudag kl. 11. Organisti Jónas Þórir. Sr. Þórstcinn Ragnarsson. Fríkirkjan í Hafnarfírði Hátíðarguðsþjónusta hvítasunnudag kl. 11. Sr. Þórhildur Ólafsdóttir mcssar. Org- anisti og kórstjóri Kristjana Þ. Ásgcirs- dóttir. Safhaðarstjóm. Gaulverjabæjarkirkja Messa hvítasunnudag kl. 14. Fcrming. Sóknarprcstur. Stokkseyri Messa annan hvítasunnudag kl. 14. Sóknarprestur. Úrval - 5. hefti 49. árg., maí '90 Maíhefti Úrvals er nýkomið út. Það eru um 100 bls. af fjölbreyttu efni. Á forsíðu er mynd sem kölluð er: Rigningar- dagur við Arnarstapa á Snæfellsnesi. Af efni má nefna m.a. Umhverfisvemd af lífi og sál, þar sem fjallað er um regnskóga og þá góðu tískubylgju frá Hollywood að vinna að vernd þeirra. Næst kemur þýdd hundasaga: Tíkin BLANDA og afstaða föður míns. Grein er um leikarann Jack Nicholson, sem kallaður er „geðþekkur skrattakollur". Vísindi fyrir almenning: lþróttamenn upp á líf og dauða. Sú grein fjallar um íþróttir til foma og í nútíðinni og verðmæt verðlaun sigurvegara. Lengsta grein í þessu hefti er um hina svonefndu „tölvusnápa" (Hacker Spy), en svo er nefnd sú persóna sem með leynd kemst með tölvu sinni í fjarsamband við aðrar tölvur eða tölvukerfi. „Hackcr" hefur einnig verið nefndur „tölvurefur" á íslensku. Margar aðrar greinar og sögur eru í heftinu, skop, krosstölugátao.fl. Ritstjóri er Sigurður Hreiðar. Tímaritið GEÐVERND l.tbl. 21.árg. Tímaritið „Geðvernd" er nýkomið út. Dr. Eiríkur Örn Arnarson sálfræðingur er ritstjóri þess, en aðalefni blaðsins að þessu sinni fjallar um þunglyndi, orsakir þess og afleiðingar, ásamt meðferð við því. Þessi útgáfa er liður í átaki Geðvernd- arfélagsins gegn þunglyndi, og birtast þar margar fróðlegar og athyglisverðar grein- ar. Útsölustaðir blaðsins eru hjá Bóka- verslun Sigfúsar Eymundssonar og Bók- sölu Stúdenta. Samviskufangar Mannréttindasamtökin Amnesty Int- ernational vilja vekja athygli almennings á máli þessara samviskufanga. Amnesty vonar að fólk sjái sér fært að skrifa bréf til hjálpar þessum mönnum og skipi sér á bekk með þeim, sem berjast gegn mann- réttindabrotum á borð við þau, sem hér eru virt að vettugi. Islandsdeild Amnesty gefur einnig út póstkort til stuðnings föngum mánaðar- ins. Hægt er að gerast áskrifandi að þessum kortum með því að hringja til skrifstofunnar, Hafnarstræti 15, virka daga frá kl. 15-18 í síma 16940. Malawi Thoza Khonje, 42 ára svæðisstjóri malaw- íska sykurfyrirtækisins. Honum er haldið án dóms og laga í Mikuyu fangelsinu í Zomba. Thoza Khonje er frá norðurhluta Mal- awi, en starfar í suðurhluta landsins. Hann var handtekinn, ásamt tveimur vinum sínum, 28. febrúar 1989 í Nehalo verslunarmiðstöðinni. Talið er að ríkis- stjórn lýðveldisins hafi fjölda uppljóstrara á sínum snærum og virðist einn þeirra hafa heyrt ummæli Khonje um nýlega fyrirskipun lífstíðarforsetans Kamuzu Banda, um að senda kennara frá norður- hluta landsins til síns heima. Khonje sagði að slíkt myndi leiða til hruns menntakerfisins, því meirihluti kennara er frá norðurhluta Malawi. Þessi ummæli voru túlkuð sem gagnrýni á lífstíðarfor- setann og urðu til þess að Khonje var handtekinn ásamt félögum sínum. Hand- takan var á sama tíma og Banda forseti kom af stað nýjustu herferð sinni gegn íbúum frá Norður-Malawi. Þeir hafa verið sakaðir um að hafa í hyggju að ganga úr ríkjasambandi við Malawi og fyrir tilraun til að þróa eigin efnahagskerfi og skaða þar með aðra hluta landsins. Gefið var í skyn að kennarar frá Norður- Malawi, sem ynnu í mið- og suðurhluta landsins, slægju slöku við kennsluna. Fyrirskipun Banda forseta um að flytja kennara til norðurhlutans kom ekki til framkvæmda, að því er virðist vegna sömu ástæðna og Khonje hélt fram. Amnesty er kunnugt um 13 aðra Mal- awibúa frá norðurhluta landsins sem handteknir voru í ársbyrjun 1989 við svipaðar kringumstæður. Þeir eru allir samviskufangar. Á meðal þeirra eru opin- berir starfsmenn, kennarar, námsmenn og einn læknir. Þeir virðast vera í haldi samkvæmt öryggisreglugerð landsins frá 1965. Fyrirskipanir um varðhald á að endurskoða á 6 mánaða fresti, en þetta er sjaldan gert og fólk er haft í haldi í ótakmarkaðan tíma án dóms og laga. Vinsamlegast skrifið kurteisleg bréf og farið fram á að Thoza Khonje verði tafarlaust látinn laus. Skrifið til: His Excellency the Life President Ngwazi Dr. H. Kamuzu Banda Office of the President and the Cabinet Private Bag 388 Liliongwe 3 Malawi Sovétríkin Pavel Solovyov, 38 ára gamall meðlimur í Hvítasunnusöfnuði. Hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að halda trúarsamkomu undir beru lofti. Pavel Solovyov var handtekinn í febrú- ar 1989 eftir að hafa leitt unglinga syngj- andi sálma um einn af almenningsgörðum Slavyansk í Úkraínu. 3. mars 1989 sakaði dómstóll í Donetsk hann um „meinfýsin spellvirki" skv. 206. grein úkraínsku hegningarlaganna. 18. grein alþjóðlega sáttmálans um borgaralegan og stjóm- málalegan rétt tiyggir rétt einstaklingsins til að stunda trú sína opinberlega eða í kyrrþey, einn eða í hópi annarra. Frá því 1988 hafa sovésk yfirvöld haldið því fram að fólk sé ekki handtekið fyrir trúariðkun sína. Með því að saka einstakling um „meinfýsin spellvirki“ er viðkomandi refsað fyrir að „raska ró almennings vísvitandi og sýna þjóðfélagslegt virðing- arleysi". Þetta hafa sovésk yfirvöld oft notað til að refsa fyrir friðsamlegar að- gerðir sem þau sætta sig ekki við. Amnes- ty telur að fangelsun Pavel Solovyov brjóti í bága við rétt hans til trúfrelsis og lítur því á hann sem samviskufanga. Hvítasunnusöfnuðurinn er kristilegur trúflokkur bókstafstrúarmanna sem festi rætur sínar í Rússlandi í byrjun þessarar aldar. í trú safnaðarins eru mörg atriði sem stangast á við þær ströngu reglur sem sovésk yfirvöld hafa sett um trúariðkun. Á síðastliðnum 20 árum hafa tugir Hvíta- sunnusafnaðarmanna lent í fangelsi fyrir að boða trú sína eða fyrir að neita að gegna herþjónustu. Vinsamlegast skrifið kurteisleg bréf og farið fram á að hann verði tafarlaust látinn laus. Skrifið til: Yu Reshetov Head of the Human Rights Section USSR Ministry of Intemational AfTairs pr. Kalinina 9 Moscow USSR/Sovétríkin Myanmar Nay Min, 42 ára gamall lögfræðingur, var handtekinn 21. október 1988 í Yangon (áður Rangoon) stuttu eftir að herinn framkvæmdi valdarán og kom á herlögum í landinu. Fregnir herma að hann hafi verið dæmdur í 14 ára fangelsi vegna fréttaskýringa sem hann sendi BBC og fyrir að „hafa undir höndum rit sem lýstu andstöðu við ríkisstjórnina“. Eftir valdaránið lagði ríkisstjómin bann við opinberri gagnrýni á stjómina og við fjöldasamkomum, þ.e.a.s. þar sem fimm eða fleiri koma saman. Opinberir fjölmiðlar sögðu að Nay Min væri í haldi fyrir að senda „upplognar fréttir og rógburð" til BBC í ágúst og september 1988. Opinberir fjölmiðlar segja að Nay Min „hafi orðið óánægður með ríkis- stjórnina eftir að hafa heyrt sögusagnir í tengslum við óeirðimar í mars og apríl 1988“. Hér er skírskotun til staðhæfmga um að öryggissveitir hafi myrt friðsama mótmælendur á þessu tímabili. Óopin- berar fregnir herma að Nay Min hafi verið í nánum tengslum við leiðtoga lýðræðissinna er þeir stóðu fyrir mótmæl- um 1988. Fregnir herma að Nay Min hafi verið leiddur fyrir rétt 7. og 21. nóvember. í síðara skiptið kvartaði hann yfir slæmri meðferð og bað um að verða lagður inn á sjúkrahús, en beiðni hans var neitað. Um síðir var hann leiddur fyrir herrétt, en herdómstólum var komið á fót samkvæmt herlögum í júlí 1989. Málsmeðferð fyrir slíkum dómstólum er einfölduð; réttur einstaklingsins til vamar er mjög tak- markaður og ekki er hægt að áfrýja til hærri dómstóls. Allt þetta er brot á alþjóðareglum um sanngjörn réttarhöld. í október 1989 bárust fregnir um að Nay Min hefði verið dæmdur í 14 ára erfið- isvinnu samkvæmt lögum um neyðarráð- stafanir frá 1950. Hann var fundinn sekur um að hafa „sent upplognar fréttir og rógburð til BBC“ og fyrir að „hafa undir höndum rit sem lýstu andstöðu við ríkis- stjórnina". Vinsamlegast skrifið kurteisleg bréf og farið fram á að Nay Min verði tafarlaust látimvlaus og án skilyrða. Skrifið til: Gen. Saw Maung Prime Minister and Minister of Defence and of Foreign Affairs Ministers’ Ofiice Yangon Union of Myanmar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.