Tíminn - 19.06.1990, Blaðsíða 5

Tíminn - 19.06.1990, Blaðsíða 5
Þriðjúdá'gur TÖ:júníi990 Tíminn 5 Trillukarlar á Þórshöfn deila um fiskverð við Hraðfrystistöð Þórshafnar: Slegist um fiskinn Við lá að til handalögmála kæmi milli trillukarla og starfs- manna Hraðfrystistöðvar Þórshafnar á laugardaginn vegna deilna um löndunarrétt og „nauðasamninga“ Hraðfrystistöðv- ar Þórshafnar. Mikið þref um fiskverð hefur verið í gangi und- anfarið. Hraðfrystistöðin hefur greitt lágmarks grundvallarverð sem er ríflega 40 krónur kílóið. Fiskmiðlun Dalvíkur hefur hins vegar sótt fisk til Þórshafnar og nágrannabyggða, og hafa sjó- menn fengið allt að 80 krónur fýrir kílóið þar. Þá hefur fisk- verkandi á Dalvík keypt fisk fyrir austan fyrir 60 krónur kílóið. Á fostudagskvöld náðist sam- komulag um fiskverðshækkun, og miðast það við 52 krónur fyrir tveggja kílóa físk, og fer síðan stig- hækkandi, eða lækkandi eftir þyngd og gæðum fisksins. Hins vegar gera forsvarsmenn Hraðfrystistöðvarinnar þá kröfu að trillukarlar skrifi undir Orðuveitingar forseta íslands á þjóðhátíðardaginn 17. júní: Ní tjái 1U irðu rid Idai rai rog ei nn v< irð sti órri lari Á þjóðhátíðardaginn 17. júní sl. sæmdi forseti íslands, að tillögu orðunefndar, eftirtalda íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu: Ásgrim Kristjánsson fv. yfirsíldar- matsmann í Reykjavík riddarakrossi fyrir störf að gæðamálum íslenskra sjávarafurða. Bjöm Hermannsson tollstjóra ridd- arakrossi fyrir störf í opinbera þágu. Bjöm Sigurbjömsson dr. phil. í Vín- arborg riddarakrossi fyrir vísinda- störf. Friðgeir Guðjónsson ráðsmann að Holti í Þistilfirði riddarakrossi fyrir störf í þágu landbúnaðar og fjallskila. Grétu Bachmann þroskaþjálfa í Reykjavík riddarakrossi fyrir störf að málefnum þroskaheftra. Gunnar Wendler Jóhannsson for- stöðumann í Frankfúrt í V - Þýska- landi riddarakrossi fyrir landkynn- ingarstörf. Hannes Pétursson skáld í Reykjavík riddarakrossi fyrir ritstörf. Helga Bergs fv. bankastjóra í Reykjavík stórriddarakrossi fyrir störf að bankamálum. Huldu Valtýsdóttur blaðamann í Reykjavík riddarakrossi fyrir störf að skógræktarmálum. Jón G. Tómasson borgarritara í Reykjavík riddarakrossi fyrir störf að sveitastjómarmálum. Danir fengu 44 milljónir Þau mistök urðu í laugardagsblaði Tímans að sagt var að Danir hefðu haft 70 milljónir úr býtum í sameig- inlegum HM getraunum Islendinga, Svía og Dana. Hið rétta er að þeir hlutu samtals 44 milljónir, og hver um sig 11 milljónir í sinn hlut. Biðst blaðið velvirðingar á þessum mistök- samning um að landa eingöngu hjá Hraðfrystistöðinni ffam til 1. desem- ber, annars verða þeir sviptir hækk- uninni. Þá fá aðrir en viðskiptaaðilar Hraðfrystistöðvarinnar ekki af- greiddan ís. Þess ber að geta að ekki er eingöngu um trillukarla á Þórshöfn að ræða því mikill fjöldi trillukarla víðs vegar að af Norðurlandi stundar veiðar kringum Langanes. Deilan á laugardag snerist um það að maður sem selt hafði fisk til Dal- víkur á föstudag, vildi leggja upp hjá Hraðfrystistöðinni á laugardag en var neitað. Eftir mikið málþóf var þó tek- ið við fiskinum. Vörubílstjórinn sem sótti fiskinn á föstudag lenti einnig í erfiðleikum, þar sem engin hafnar- vog er á Þórshöfn og eina löggilta vogin er í Hraðfrystistöðinni. Sam- kvæmt lögum mátti hann ekki fiytja fiskinn óvigtaðan af staðnum, og var neitað um að vigta hjá Hraðfrysti- stöðinni. Eftir mikið stapp fékkst leyfi hjá Sjávarútvegsráðuneytinu til að flytja fiskinn til Raufarhafnar og vigta hann þar. Jóhann Jónsson ffamkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvarinnar neitaði því al- farið að ekki hefði fengist leyfi til að vigta fiskinn, og sagði að engin beiðni hefði borist þar um. „Hins vegar höfúm við byggt hér upp að- stöðu og erum sjálfum okkur nógir, og teljum okkur hafa fúllt vald yfir þessum hlutum hvort sem það er ís- sala eða annað. Við erum ekkert upp á það komnir að selja mönnum sem ekki eru í viðskiptum við okkur ís, eða veita þeim aðra fyrirgreiðslu. Þessi deila snýst ekki um sanngimi eða fiskverð, hún snýst um nýtingu á valdi sem lagt er í hendur missann- gjamra trillukarla með kvótaúthlut- un, og þeir ættu ekki að taka sér neitt alræðisvald í þeim efnum. Það verð sem greitt er á þessum fiskmarkaði á Dalvík er langt umfram allt sanngim- isverð og það stendur engin vinnsla undir því. Við greiðum hærra verð en staðimir í kringum okkur og verðum hér til staðar áfram. Það verður svo bara að koma í ljós hvort þessir trillu- karlar ætla að vera í viðskiptum við okkur eða leita annað. Fiskverðs- hækkanir hafa mikil áhrif á vinnsluna í landi, og svo má spyrja hvort það sé einhver sanngimi að trillukarlamir skilji verkafólkið eftir verkefnalaust með því að selja fiskinn í burtu“, sagði Jóhann að lokum. hiá-akureyri. Ferðamálaráð vill loft- ferðasamning við Sov- étmenn og brýnir utan- ríkisráðherra: Hafðu hraðar hendur, Jón Ferðamálaráð samþykkti á fundi sínum nýlega að skora á ut- anrfldsráðherra að beita sér nú þegar fyrir því að gerður verði loftferðasamningur við Sovétrik- in. Allfkst vestræn ríki hafi nú þegar gert slíkan samning og skemmst sé að minnast loftferðasamnings Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. í samþykkt ráðsins segir að veru- legu máli skipti íslenska ferða- þjónustu að umsvif millflanda- flugs aukist hér á landl Aukin umsvif feli í sér aukna þjónustu á miflilandaflugyelli eða - á flugvöfl- um íslendinga. Jafnframt gætu þau þýtt aukinn straum ferða- manna hingað til lands, bæði frá N-Ameríku, A-Evrópu og Asíu enda sé ísiand vel í sveit sett raeð tilliti tfl Ðugsamgangna milli aust- urhluta N-Ameríku og A-Evrópu. Þá mæli einnig aukinn útflutn- ingur á ferskum sjávarafurðum frá íslandi til Austur-Asíu með loftferðasamningi við Sovétmenn. Utanríkisráðhcrra er hvattur tU að láta ekki sitt eftir liggja í þessu máll —sá Sr. Jónas Gíslason vígslubiskup í Reykjavík riddarakrossi fyrir störf að kirkjumálum. Ólaf E. Ólafsson fv. kaupfélags- stjóra riddarakrossi fyrir störf að mannúðar- og félagsmálum. Rut Ingólfsdóttur fiðluleikara í Reykjavík riddarakrossi fyrir störf að tónlistarmálum. Sigríði Haraldsdóttur hússtjómar- kennara í Reykjavík riddarakrossi fyrir fræðslustörf. Sigurð Pétur Bjömsson fv. banka- útibússtjóra á Húsavík riddarakrossi fyrir störf að félags- og bankamálum. Sigurð Helgason forstjóra í Reykja- vík riddarakrossi fyrir störf að flug- málum. Tómas Áma Jónasson lækni í Reykjavík riddarakrossi fyrir störf að heilbrigðismálum. Valtý Hákonarson fv. skrifstofú- stjóra í Reykjavík riddarakrossi fyrir störf að siglingamálum. Val Valsson bankastjóra í Reykjavík riddarakrossi fyrir störf að bankamál- um. Þór Guðjónsson fv. veiðimálastjóra í Reykjavík riddaraakrossi fyrir störf að lax- og silungsveiðimálum. —sá Margrét Bjömsdóttir, Sigríður Fríðjónsdóttir og Herdís Sæmundsdóttir em hluti af stofnendum kvennasmiðj- unnar á Sauðárkróki. Timamynd hs. 75 ár síðan konur fengu kosningarétt 75 ár em liðin siðan konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþing- is. Af því tilefhi hittast konur víða um land og minnast þessa tímamóta. Konur á höfuðborgarsvæðinu ætla að safnast saman við gamla Miðbæj- arskólann rétt eins og gert var árið 1915. Þaðan verður gengið um mið- bæinn að Alþingishúsinu, en þar verður stutt samkoma og síðan er konum boðið að skoða Alþingishús- ið. I kvöld verður hátíðarsamkoma í Islensku Ópemnni og hefst hún klukkan 20.30. Þar verða flutt ávörp. Betfy Friedan, sem er hér í boði ís- lenskra kvenna, ávarpar fúndinn og síðan verður flutt samfelld dagskrá um sögu kvennabaráttunnar allt frá frönsku stjómarbyltingunni til okkar daga. Að þessari hátíð standa konur úr kvenfélögum, stjómmálasamtök- um og stéttarfélögum. Á Sauðárkróki er þessa aftnælis einnig minnst og þar verður í dag stofhað félag um kvennasmiðju í Skagafirði. Meiningin er að slík smiðja þjóni sem menningar- og fræðslumiðstöð kvenna á öllum aldri f Skagafirði. Fram hafa komið ýmsar hugmyndir hvemig starfseminni verður háttað og má þar nefha möguleika fyrir konur til að kynna og selja framleiðslu sína, bókakaffi, leshringir, skiptimarkaður og nám- skeið. Að sögn Herdísar Sæmunds- dóttur á Sauðárkróki hefur hópur kvenna úr Skagafirði unnið að undir- búningi að stoftiun kvennasmiðjunn- ar. Stofhfundurinn hefst klukkan 21. Þegar em starfandi 3 slíkar kvenna- smiðjur á landinu og mun fulltrúi ffá Húsfrú Lám á Seyðisfirði vera við- stödd stofhun Skagfirsku kvenna- smiðjunnar. -hs. Samkomulag minnihlutaflokkanna um hlutkesti gegn Sjálfstæðisflokki í nefndir og ráð borgarinnar: Forsjonin eða tilviljunm? Nýlega befiir tekist samkomulag mflli fulltrúa minnihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavfloir um fram- boð tfl hlutkestis í nefndir og ráð borgarlnnar. Samkvæmt samkomulaginu fær Framsóknarflokkur að bjóða fram fulltrúa tO hlutkestis gegn Sjálfstæð- isflokknum í skipulagsnefnd, um- hverfismálaráði, hafnarstjórn, mennlngarmálanefnd og Innkaupa- stofnun Reykjavíkur. Kvennalistinn býður fram fulltrúa í félagsmálaráð, trygginganefnd aldr- aðra, fræðslu- og skólamálaráð, heil- brígðisnefnd og atvinnumálanefnd. Alþýöubandalagiö býður fram í b.vgginganefnd, íþrótta- og tóm- stundaráð, umferðarnefhd, SPRON ogSVR, Nýr vettvangur býður fram í dag- vist barna, stjórn veítustofnana, svæðisstjórn fatlaðra, ferðamálaráð, Sorpu, almannavarnanefnd, stjórn Lífeyrissjóðs borgarstarfsmanna og framtalsnefnd. Fyrsti fundur í nýrrí borgarstjórn verður haldínn nk, fimmtudags- kvöld. Þá fæst úr þvi skoríð hvemig forsjónin, eða tilviljunin, vill að skip- ist í nefndir og ráð borgarinnar næsta kjörtímabiL —sá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.