Tíminn - 20.06.1990, Qupperneq 5

Tíminn - 20.06.1990, Qupperneq 5
ivnoviKúaagijr au. }úní i*yau Tíminn 5 Ógnvekjandi eiginfjárstaða Stöðvar 2. Neikvæð um 614 milljónir um sl. áramót. Rekstrartap fyrstu fjóra mánuði ársins 20 milljónir. Sýnarmönnum líst ekki á blikuna: FER SAMEININGIN SENN í VASKINN? Heildarskuldir Stöðvar 2 hinn 31. des. sl. voru 1.494 milljónir króna. Þetta kemurfram í reikningum fýrirtækisins sem ekki hafa verið gerðir opinberir. Þar af eru skammtímaskuldir rúmar 50 milljónir króna. Gögn um þetta munu hafa komið fram á stjómar- fundi Stöðvar 2 og hluthafafundi sem haldinn var strax að lokn- um stjómarfundinum. Fyrmefnda fundinn sátu auk stjómar- manna, framkvæmdastjórí og deildarstjórar Stöðvar 2. Á móti þessum miklu skuldum eru eignir metnar á um 880 milljónir króna. Hluti þeirra mun að nokkru vera efhi af ýmsu tagi sem ekki hefur verið sent út ennþá - sumt af því í annað sinn. Rekstrarafkoman hefúr ekki batnað það sem af er þessu ári því að í stað 40 milljóna rekstrar- hagnaðar, sem gert var ráð fyrir fyrstu fjóra mánuðina, hefúr tapið verið um 20 milljónir. Þess má geta að fyrstu fjóra mánuði síðasta árs varð rekstrar- hagnaður einmitt um 40 milljónir. Áður en núverandi meirihluti í Stöð 2 og Þorvarður Elíasson firam- kvæmdastjóri tóku við rekstrinum var búið að segja upp starfsfólki. Með því átti að sparast kostnaður við laun og launatengd gjöld upp á um tíu millj- ónir á mánuði þegar uppsagnimar áttu að taka gildi 1. mars sl. Uppsagn- imar vom hins vegar ekki látnar taka gildi. I fféttum Ríkisútvarpsins í gær kom fram að viðræður Sýnar og Stöðvar 2 héngju á bláþræði og að allt benti til þess að ekki yrði af sameiningu fyrir- tækjanna. -En er það svo? Jóhann J. Olafsson stjómarformaður Islenska sjónvarpsfélagsins - Stöðvar 2 sagði í gær að viðræður um samein- ingu Sýnar og Stöðvar 2 stæðu enn yfír. Þeim hefði ekki verið slitið og engar yfirlýsingar hefðu verið gefnar út um væntanleg viðræðuslit svo hann vissi til. Þorgeir Baldursson einn stjómar- manna Sýnar var spurður um hvort sameining Sýnar og Stöðvar 2 væri úr sögunni af hálfú Sýnar. Hann kvaðst ekki vilja svara spumingum um þessi mál að svo stöddu^þar sem sameing- ingarviðræður væm þessa stundina á mjög viðkvæmu stigi. Hann neitaði þó ekki að fregnir af fjárhagsstöðu Stöðvar 2 hefðu komið mönnum nokkuð á óvart þar sem hún væri verri en reiknað hafði verið með. Hún, ásamt fleiri atriðum, hlyti að hafa áhrif á viðræðumar og niðurstöðu þeirra. Yrðu fyrirtækin sameinuð hlytu að verða breytingar á yfirstjóm þeirra enda slíkt mjög eðlilegt. Hve- nær niðurstöðu væri að vænta vildi Þorgeir ekki tjá sig um. En þótt ekki gengi að fá talsmenn viðræðuaðila til að segja af eða á um viðræðuslit, þá töldu ýmsir sem rætt var við í gær, að af þeim verði um lok þessarar viku. Ástæðan væri ofan- nefhd bág fjárhagsstaða Stövar 2 og ágreiningur um stjómun hins nýja fyrirtækis og yfírmenn. Forsvarsmenn Stöðvar 2 munu hafa sótt fast að núverandi yfirstjóm Stöðvarinnar stjómaði hinu nýja fyr- irtæki eftir sameininguna. Því munu Sýnarmenn að sögn taka fjarri og benda á sem dæmi um stjómunarmis- tök þegar tekið var til við að ragla alla útsendingu Stöðvar 2 og því haldið til streitu þrátt fyrir að stefndi í samein- ingu fyrirtækjanna. Strax eftir að „alraglun" hjá Stöð 2 hófst bættust um eitt þúsund nýir áskrifendur við. Engir nýir hafa hins vegar bæst við síðan. Þá koma engir nýir áskrifendur inn í stað þeirra sem falla út, enda engin óragluð dagskrá til að egna fyrir nýja áskrifendur. Þá hafði lokunin það í för með sér að auglýsingar drógust veralega saman þannig að jafhvel má tala um hran að ýmissa áliti. Á stjómarfúndinum í gær mun hafa verið ákveðið að hætta „alragluninni" en ragla aftur dag- skrána í svipuðum mæli og áður var gert. -sá Lrtlar líkur eru á því að Neskaupstaðarkrókódíllinn verði nokkru sinni jafn stórvaxinn og þessir tveir. Þótt sum- arveður séu góð á Austurlandi eru þau og Norðfjarðará það köld að líkast til er kvikindið löngu dautt Úr plasti í fyrradag, en uppstoppaður og þurrkaður í gær: Krókódflamaðurinn klórar í bakkann Krókódílamaðurínn á Neskaup- stað, Ágúst Kárason, heldur því enn til streitu við Tímann að ekki hafi veríð um lifandi krókódíl að ræða, heldur hafi kvikindið veríð þurrkað og uppstoppað og notað til að plata menn og Ijölmiðla, þráttfyrir að játning hans liggi fýr- ir hjá lögreglunni á Neskaupstað, og blaðið hafi rætt við nágranna Ágústar sem kvaðst hafa séð krókódílinn sprelllrfandi áður en hann strauk úr vistinni frá eiganda sínum. „Þetta er allt þáttur í stóra gabbi, og þetta er komið allt of langt“, sagði Ágúst við blaðamann í gær. „Fjölmiðlamir mega velta sér upp úr þessu eins og þeir vilja. Ég myndi segja að þetta væri að draga þá á asnaeyranum", hélt Ágúst áfram. Aðspurður hvort hann segði Tíman- um einum blaða sannleikann benti Ágúst blaðamanni á að hlusta á aðra fjölmiðla á morgun, og þá myndi hann frétta þetta. „Ég segi þér þetta núna“, sagði Ág- úst. „Þið verðið sem sagt fyrstir með fréttimar“. Ágúst sagði að þeir væra fjórir fé- lagamir í þessum leik, en nú teldu þeir að nóg væri komið, og kominn tími til að snúa þessu upp í grín. Hann kvaðst hinsvegar ekki vera klár á hvar hægt væri að ná í hina í síma. Finnbogi Birgisson lögregluþjónn á Neskaupstað sagði Ágúst hinsvegar hafa viðurkennt tilvist krókódílsins, og sagst ekki hafa ætlað með málið í fjölmiðla, og því neitað eignarhald- inu á krókódílnum í samtali við Tím- ann í fyrradag. „Málið er frá okkar hálfu frágengið, það á bara eftir að fara til fógeta", sagði Finnbogi. Brynjólfur Sandholt yfirdýralæknir sagði að með innflutningi krókódíls væri verið að brjóta lög um innflutn- ing dýra, og við þeim væra að sjálf- sögðu refsiákvæði væra þau brotin. Einnig sagði Brynjólfur að óskað yrði eftir lögreglurannsókn í málinu, og í framhaldi að því yrðu ákvarðan- ir teknar um hvemig ætti að með- höndla það og hvort frekari ráðstaf- anir yrðu gerðar. -SÓ Svelta hrossastóðið: Ekkert uppboð Hætt var við uppboð á sveltu hross- unum, sem átti að fara fram í gær. Samkvæmt upplýsingum ffá bæjar- fógetaembættinu í Hafnarfirði verða hrossin ekki sett á uppboð. Uppboðið átti að fara ffam í síðustu viku en var frestað, þar sem umboðs- maður nýrra eigenda, Guðmundur Sigurðsson, mætti með afsöl sem gáfu til kynna að Sigríður Stefáns- dóttir hefði selt hrossin í mars s.l. Að ósk bæjarfógeta verður Guðmundi Sigurðssyni afhent hrossin til vörslu, með þeim skilyrðum að þau séu heil- brigð og standist flutninga að mati dýralæknis. Þau verða því í haga yfir sumarið og samkvæmt heimildum Tímans er líklegt að þau verði seld í haust. Hrossin eru nú öll að braggast og ekki er lengur inni í myndinni að lóga þeim. Að sögn Sigríðar Ásgeirsdóttur, lög- ffæðings Dýravemdunarsambands- ins, verður það Sigríður Stefánsdóttir sem verður sótt til saka, þrátt fyrir nýjar upplýsingar um eigendur. „Málið var sent til saksóknara og þaðan hefur málið verið sent til Reykjavíkurlögreglunnar til þess að afla frekari gagna. Því er nú að verða Iokið og þá fer málið aftur til sak- sóknara og þá verður hún væntanlega svipt heimild til þess að halda dýr“, segir Sigríður. GS. Barnabókaverðlaun Verðlaunasjóður íslenskra bama- bóka efnir nú í sjötta sinn til sam- keppni um handrit að bókum fyrir böm og unglinga. Islensku bama- bókaverðlaunin nema 200 þúsund krónum, en auk þess fær sigurvegar- inn greidd höfúndarlaun fyrir verkið. Frestur til að skila handritum er til 30. nóvember 1990, en verðlaunabókin mun koma út vorið 1991 á vegum Vöku-Helgafells í tengslum við af- hendingu verðlaunanna. Væntanlegum þátttakendum í sam- keppninni um Islensku bamabóka- verðlaunin 1991 er bent á að ekki era sett nein takmörk varðandi lengd sagnanna og einungis er við það mið- að að efnið hæfi bömum og ungling- um. Sögumar skulu merktar dulneffii en rétt nafh höfúndar skal fylgja í lok- uðu umslagi. Oskað er eftir að hand- ritin séu send i ábyrgðarpósti og utan- áskriftin er: Verðlaunasjóður is- lenskra bamabóka, Vaka- Helgafell, Verðlaunabækur síðan 1986, er verðlaunin voru fýrst veitt. Bæk- umar eiga það allar sameiginlegt að vera fyrstu ritverk höfundanna. Síðumúla 6, 108 Reykjavík. Með rétt höfúndamöfn innsendra handrita verður farið með sem trúnaðarmál. (Fréttatilkynning)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.