Tíminn - 20.06.1990, Blaðsíða 7

Tíminn - 20.06.1990, Blaðsíða 7
Miðvikuclag'ur 2Ö.'juhí '1'ððÖ Tíminn 7 Jónas Jónsson: Umhverfismál og landbúnaður Ekki er allur landbúnaður í jafngóðri sátt við náttúruna Umhverfismál eru ofarlega á baugi í umræðum um landbúnað úti í hinum stóra heimi. Menn hafa áhyggjur af mörgu bæði í hinum ríku löndum og þeim fátækarí. Ríku löndin hafa einkum áhyggjur af mengun en mörg þau fátæku af jarðvegseyðingu og eyðingu skóga. Jarðvegseyðingin heijar reyndar í mörgum mestu komræktarlöndum heimsins. Hún birtist bæði sem uppblástur og sem vatnsrof þegar jarðvegurinn skolast burt. Hvort tveggja getur stafað af því að jarð- vegur er óvarinn af gróðurþekju ut- an vaxtartima komsins. Því meira samfelld og einhliða komrækt ár eftir ár því meiri verður hættan á jarðvegseyðingu, m.a. af því að líf- ræn efni verða smám saman minni í jarðveginum. Eyðing skóga í íjallahlíðum í bak- löndum komsvæðanna hefur víða leitt til meiri flóða á láglendinu sem skola burt gróðurmoldinni. Dæmi um þetta em í ýmsum suðlægum löndum, svo sem á Indlandsskaga. Lækkun á gmnnvamsstöðu sem ber á í stóram hluta komræktarsvæða í Bandaríkjunum gerir erfiðara um vökvun og það bíður fokhættunni heim. Þurrkar hafa upp á síðkastið verið tíðari og alvarlegri en áður var í ýmsum suðlægum löndum og eyði- merkur breiðast þar út. Menn óttast að þar sé farið að gæta veðurfars- breytinga sem kunna að stafa af margumræddum gróðurhúsaáhrif- um. Sagt er að jarðvegseyðingar gæti nú þegar á um það bil 1/3 af rækt- uðu landi jarðarinnar og að þessa hljóti að gæta í vaxandi mæli á næstu ámm í minnkandi ffam- leiðslugetu. Aætlað er að stórfljótið Gulá í Kína hafi borið 1,2 milljarða lesta afjarðvegi til hafs árið 1983. í Eþí- ópíu er talið að einn milljarður lesta af gróðurmold tapist á ári. í Banda- ríkjunum tapast 3 milljarðar lesta af jarðvegi á ári og í Indlandi 5 millj- arðar að talið er. Heildartap jarð- vegs af ræktunarlöndum heims er talið 24 milljarðar lesta á ári, sem svarar til alls jarðvegs á hveitiökr- um Astralíu. Mengun frá landbúnaði er annað stóra vandamálið Mengun frá landbúnaði er fyrst og ffemst vandamál í hinum riku, þétt- setnu og þaulræktuðu löndum. Annars vegar er um það að ræða að mikið er notað, eða hefur verið notað, af plágueyðandi efhum; skordýraeitri, sveppaeitri og ill- gresislyfjum. Ef þessi efni eyðast ekki í náttúmnni heldur safnast og stigmagnast í lífkeðjunni getur orð- ið af þeim langvarandi mengun. Þau berast í vötn og sjó, menga fiskinn og gera hann óneysluhæfan ef hann þá drepst ekki í hrönnum eins og dæmi em til. Hins vegar er það mikil notkun áburðarefna; tilbúins áburðar sem og búfjáráburðar, að viðbættum líf- rænum úrgangsefhum ffá búskap og mannabústöðum, sem ofauðgað vam af næringarefhum planma, þannig að gróður þess gerir fiskin- um ólífvænt fyrir súrefnisskorti. Þannig er víða komið um nær allt ferskt vatn í þéttbýlum landbúnað- arlöndum, eins og t.d. Danmörku og Hollandi. Fyrir þessar sakir er nú farið að takmarka áburðamotkun og reynd- ar einnig búið að setja strangar regl- ur um notkun plágueyða í mörgum löndum. A sama hátt hafa ýmis lönd sett reglur sem takmarka bú- fjárhald á einstökum jörðum þannig að tryggt sé að með góðu móti sé hægt að koma þeim búfjáráburði sem fellur til í akra eða á annað ræktað land. Þetta setur verk- smiðjubúum ákveðnar skorður, og kemur í veg fyrir að hægt sé að koma upp stómm svínakjötsverk- smiðjum eða alifuglabúum í þröng- býli. Utskolun næringarefna úr jarðvegi er mjög háð því hvaða ræktun er stunduð á landinu. Rannsóknir sýna að hún er sáralítil úr graslendi sem er „lokað“ allt árið og í reynd nær alveg bundin við garðrækt eða ak- urlendi sem liggur opið hluta úr ár- inu og plönturætur því ekki fyrir hendi til að taka efnin upp. Það er fyrst og fremst einhæfur stórrekstur sem er umhverfinu varahugaverður Af ffamansögðu er ljóst að það er fyrst og ffemst einhæfur stórbú- skapur, þar sem mest áhersla er lögð á þaulræktun sömu tegunda og að fá sem mestan affakstur af flatar- einingu sem og verksmiðjuffam- leiðsla í búfjárrækt, sem ekki er Landbúnaður í brennidepli 3. grein vinsamlegur umhverfmu. Hins veg- ar er það alhliða fjölskyldubúskap- ur þar sem fer saman akuryrkja og búfjárrækt með grasnytjum, sem er vinsamlegastur umhverfinu og i bestri sátt við náttúmna. Þetta þekkir umhverfisvemdarfólk í öðmm löndum og þetta þekkja neytendur þar sem þeir láta sig framleiðsluhætti í landbúnaði nokkm skipta. Þar fer andúð á ein- hæfum stórbúskap (verksmiðjubú- skap) vaxandi. Auk umhverfissjónarmiða kemur þar til mat neytenda á vömgæðum og hollustu varanna en einnig dýra- vemdunar- eða mannúðarsjónar- mið. Það má vera öllum ljóst að land- búnaður á íslandi stendur vel að vígi í þeim efnum sem að ffaman em rædd. Þó ber að hafa hér á landi sem annars staðar gát á öllum slík- um hlutum. Við megum hvorki sýna hirðu- né andvaraleysi í þess- um efnum. Engu að síður er hægt að fullyrða að íslenskar landbúnaðarvömr séu þegar á hcildina er litið heilnæmar og þola vel samanburð við þær bestu sem framleiddar em í öðmm löndum. Bændur álykta um GATT viðræður og umhverfismál I fyrri greinum var nokkuð rætt um þær mikilvægu milliríkjaviðræður sem nú fara ffam bæði á milli EFTA og EB og hins vegar GATT viðræð- umar um verslun með landbúnaðar- vömr og raunar hvaða landbúnað- arpólitík einstökum löndum skuli leyfast að hafa. Þar fara Bandaríkjamenn fremstir af þeim sem vilja helst affiema allar hindranir í verslun með landbúnað- arvörar svo og að löndin skuldbindi sig til að minnka mjög og nánast af- nema stuðning við landbúnað. Nýlega áttu fulltrúar frá bænda- samtökunum í Austurríki, Sviss, Vestur-Þýskalandi og öðmm EB löndum, Bandaríkjunum, Kanada, Svíþjóð og Noregi með sér fund í Sviss. I sameiginlegri yfirlýsingu þeirra kemur ffam afstaða bænda í þessum löndum til GATT viðræðn- anna. I ályktun fúndarins kemur m.a. ffam að það fijálsræði sem stefnt er að leiði til meiri verslunar með landbúnaðarvömr á milli landa. Hins vegar stefni það í hættu mat- vælaöryggi þjóðanna, vinni gegn umhverfisvemd og því að búseta haldist við á mikilvægum landbún- aðarsvæðum. Ennfremur segir að hvert land eigi að hafa rétt til að hafa vald á land- búnaðarsteffiu sinni til að tryggja öryggi þegna sinna og treysta heilsu þeirra. Skýrt er tekið fram að mikilvægt sé að allir framleiðslumöguleikar hvers og eins landsvæðis verði not- aðir í baráttunni gegn yfirvofandi matarskorti í heiminum. I ályktuninni er lögð áhersla á að fjölskyldubúskapur tryggi betur en annað rekstrarfyrirkomulag félags- legan og pólitískan stöðugleika, hagkvæmni og eðlilegt ffjálsræði innan hvers landbúnaðarsvæðis og þar með velferð viðkomandi þjóðar. Því er slegið föstu að ekkert annað rekstrarfyrirkomulag við búskap geti með farsælum hætti leyst fjöl- skyldubúskapinn af hólmi. Fjölskyldubúskapnum er einnig best treystandi til að vemda um- hverfið og þá ásýnd sveitanna sem menn helst vilja hafa. Sjálfseignar- bændunum er best treystandi til að varðveita náttúmlegar auðlindir og skila þeim í fúllu gildi til komandi kynslóða. Það var fúll samstaða um þessa ályktun fúndarins og fúlltrúi banda- rískra bænda lýsti því m.a. yfir að meirihluti bandariskra bænda væri andvígur þeirri stefhu sem stjóm landsins fylgdi í GATT viðræðun- um. UR VIÐSKIPTALIFINU Fjárfesting Japana í Suð- austur-Asíu Japan hóf að nýju fjárfestingu í Suðaustur-Asíu um 1960 til að tryggja sér aðflutning hráefna, einkum frá Indónesíu. A áttunda áratugnum og framan af hinum ní- unda festi Japan einkum fé í nýju iðnaðarlöndunum svonefndu, Tai- wan, Hong Kong, Suður-Kóreu og Singapore. Frá 1985 hafa laun í löndum þessum, sem og gengi gjaldmiðla þeirra, farið hækkandi. Japanar hafa því fremur beint Qár- festingu sinni til Thailands, Malas- íu og aftur til Indónesíu. A síðari hluta níunda áratugarins fór fjár- festing Japans í heimshluta þessum fram úr fjárfestingu Bandaríkjanna. A fjárhagsári, sem lauk í mars 1989, festi Japan 5,6 milljarða $ í Asíu, en á almanaksárinu 1988 festu Bandaríkin þar 2,3 milljarða $. Sakir hækkunar gengis japansks gjaldmiðils, jens, hefur launakostn- aður í Japan hækkað ört hlutfalls- lega. Samkvæmt Mitsui- hagrann- sóknarstofnuninni vom laun fag- lærðra verkamanna 1989 í Singa- pore um 20% af launum stallbræðra þeirra í Japan, í Thailandi um 10% og í Indónesíu um 4%. Japan er nú stærsti markaður landa í Bandalagi þjóða Suður-Asíu (Assan) og tekur nú við 25% af útflutningi þeirra. Aftur á móti era Bandaríkin enn stærsti markaður nýju asísku iðnað- arlandanna og tóku við um 31% af útflutningi þeirra 1988, en innflutn- ingur Japans frá þeim vex þó ört. Óx hann um fimmtung 1988 og varð 88 milljarðar $. Heimild: Financial Times, 30. janúar 1990. Fáfnir Samanburður fjárfestingar Bandaríkjanna og Japans í Suðaustur- Asíu 1985 og 1988-89 í milljónum dollara JÁPAN 1985 88/89 Japan $100m $296m US $172m $99m 1985 88/89 Japan $134m $483m US $37m $171m 1985 . 88/89 Japan $114m $372m US $1m $230m 1985 88/89 Japan $131m $1,662m US $44m $729m 1985 88/89 Japan $61m $134m US (-$244m) $77m 1985 88/89 Japan $48m $859m US ( $43m) (-$154m) 1985 88/89 Japan $339m $747m US (-$45m) $629m 1985 88/89 Japan $79m $387m US $42m $316m 1885 88/89 Japan $408m $586m US. $176m $61m

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.