Tíminn - 20.06.1990, Blaðsíða 16

Tíminn - 20.06.1990, Blaðsíða 16
~W~\ RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hofnarhúsinu v/Tryggvogötu, S 28822 .Bim*l2b°mrfa9' VEBÐBRÉFflVmSKIPTI SAMVINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18, SÍMI: 688568 I.'IHIWI <1 ? Réttur bíll á réttum stað. MMgasonM SœvartTöföa 2 Slmi 91-€74000 LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM DALLAS ^ TOKYO Kringlunni 8-12 Sími 689888 Tímirm MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ1990 Konur fjölmenna á Austurvöll til að minnast merks áfanga í jafnréttisbaráttunni: Konur fagna 75 ára kosningaréttarafmæli Kvennadagurinn var haldinn hátíðlegur í gær, en þennan dag fyrir 75 árum fengu íslenskar konur kosningarétt Þús- undir kvenna á öllum aldri og úr öllum starfsstéttum söfnuð- ust saman í miðbæ Reykjavíkur og minntust tímamótanna í góðu veðri. Dagurinn byrjaði á því að konur söfnuðust saman kl. 16:30 í porti Miðbæjarskólans rétt eins og gert var fyrir 75 árum. Margar kvenn- anna mættu í einkennisbúningi sinn- ar stéttar eða í íslenska þjóðbún- ingnum. Þama mátti m.a. sjá lög- reglukonur, tollþjóna, flugfreyjur og afgreiðslustúlkur. í portinu voru sungin ættjarðar- og sumarlög við harmoníkuundirleik. Síðan var gengið um miðbæinn að Alþingishúsinu. Lúðrasveit undir stjóm Bjöms Guðjónssonar var í fararbroddi göngunnar ásamt fjall- konunni en í hennar gervi var Eygló Yngvadóttir. A Austurvelli var flutt- ur stuttur leikþáttur sem fjallaði um þann merka atburð árið 1915 þegar þau tíðindi bámst til landsins að Danakonungur hefði staðfest breyt- ingar á stjómarskrá Islendinga. Þar með fengu konur sem orðnar vora 40 ára og eldri kosningarétt og kjör- gengi til Alþingis. Við setningu Al- þingis 7. júlí 1915 var haldin mikil hátíð í Reykjavík til að fagna kosn- ingaréttinum. Eflir leikþáttinn, um kl. 18:00, var konum boðið að skoða Alþingishúsið undir leiðsögn Guð- rúnar Helgadóttur forseta Alþingis og annarra þingkvenna. Um kvöldið var hátíðarfundur i ís- lensku ópemnni (Gamla bíó) á veg- um KRFÍ (kvenréttindafélags Is- lands) og hófst hann kl. 20:30. Þar flutti Guðrún Amadóttir, formaður Kvenréttindafélagsins, stutt ávarp. Gestur kvenna á þessari hátíð var hin heimsþekkta kvenréttindakona Betty Friedan frá Bandaríkjunum. Hún flutti einnig stutt ávarp. Síðan var flutt samfelld dagskrá um sögu kvennabaráttunnar allt frá frönsku stjómarbyltingunni til okkar dags. Leikarar fluttu undir stjóm Guðrún- Talið er að allt að tíu þúsund konur hafi mætt niður í miðbæ í gær til að fagna unnum sigri í jafnréttis- baráttunni. Tímamynd Ámi Bjama ar Ásmundsdóttur og Sögu Jóns- dóttur. Höfúndar dagskrárinnar vom þær Björg Einarsdóttir rithöfundur og Guðrún Ásmundsdóttir leikkona. Aðgangur var ókeypis. -KMH Flóttamenn frá Víetnam til landsins: Allslaust fólk Hinn 28. júní koma hingað til lands 30 víetnamskir flóttamenn. Hér er um að ræða átta fjölskyldur og í þeim em Urgur er í flugumferðarstjórum vegna dóms Hæstaréttar yfir tveimur flugumferðarstjómm vegna atviks, sem átti sér stað árið 1986, en þá munaði litlu að tvær erlendar þotur rækjust saman. Flugumferðarstjór- amir tveir vom sakfelldir, en refsingu er fVestað í tvö ár og ef skilorðið er haldið þann tíma kemur ekki til refs- ingar. í gær hélt stjóm Félags flug- umferðarstjóra fúnd þar sem þessi 19 fullorðnir og 11 böm frá nýfæddu upp í 10 ára aldur. Flóttafólkið kem- ur á vegurn Rauða kross Islands og er dómur Hæstaréttar var ræddur. Ámi Þór Þorgrímsson formaður félagsins sagði í samtali við Tímann að vissu- lega litist flugumferðastjórum illa á þennan dóm. Hann sagði þennan dóm sýna það að flugumferðastjórar þurfi að vera þokkalega varir um sig. Hann vildi þó ekki ræða þetta frekar fyrr en stjóm félagsins hefúr rætt þessi mál við lögfræðinga. -hs. algjörlega allslaust. Að sögn Hólm- fríðar Gísladóttur í félagsmáladeild er nú leitað logandi ljósi að íbúðum fýr- ir fjórar fjölskyldnanna og einnig að sameiginlegu húsnæði fýrst um sinn. Ef fólk sér sér fært að láta af hendi búsáhöld, húsgögn, húsmuni, hlý fot eða leikföng handa flóttafólkinu er það vinsamlegast beðið að snúa sér til Rauða krossins á Suðurlandsbraut 32 (bakhúsi) frá kl. 17:00 til 20:00 alla daga fram á þriðjudag. Þegar flóttafólkið er komið til lands- ins mun það verða stutt fjárhagslega af Rauða krossinum fyrst um sinn en verður síðan útveguð atvinna í kring- um 1. ágúst. Þangað til mun það læra íslensku og verið er að útvega gæslu fyrir bömin meðan foreldramir stunda námið. Árið 1979 komu hingað til lands 34 flóttamenn frá Víetnam. Fjórtán af þeim em nú fluttir til Kanada en hinir eru íslenskir ríkisborgarar með at- vinnu hér á landi. Auk þess hafa margir ættingjar þeirra sest hér að, en þó ekki í gegnum Rauða krossinn. Að sögn Hólmfríðar hefur þetta fólk komið vel undir sig fótunum. „Þetta er ákaflega duglegt, nægjusamt og ið- ið fólk og má ekki vamm sitt vita í neinu“. GS. Tveir flugumferðastjórar sakfelldir í Hæstarétti: Urgur í flugum- ferðastjórum Kosið aftur í Grímsnesi Að sögn Böðvars Pálssonar, hreppstjóra í Grímsnesinu og efsta manns á í-lista óháðra í sveitarstjórnarkosningunum þar, var það saraeiginlegt mat hans og sýslumanns Árnessýslu, Andrésar Valdimarssonar, að ekki væri þörf á því að hann myndi víkja sem hreppstjóri meðan utankjörfundar atkvæða- greiðsla stæði yfir, en sérstök kjörnefnd hefur dæmt kosning- una ólögmæta á þeim forsend- um. Böðvar sagði að kærandinn, Helga Heigadóttir, sem var fyrsti maður á F-lista framfarasinna sem hlaut engan fulitrúa í sveit- arstjórn, hafi kært á þeim for- sendum að hann sem hreppstjóri hefði átt að víkja þegar hann væri einnig í framboði. Kjörnefnd fann einnig að því að ruglað var saman utankjörfund- aratkvæðum hvort sem kosið var utansveitar eða hjá hreppstjóra, en af 44 utankjörfundaratkvæð- um voru fimm sem kusu utan- sveitar. Einnig var tekið til að vottar hafi ekki verið lögmætir. „Ég vil taka það fram að ég held að það sé alls ekki verið með van- traust beinlinis á mig, þó svo að það sé sagt að óeðlilegt sé að að- standendur hreppstjóra votti“, sagöi Böðvar. „Þetta hefur veriö gert hér í sveit í þessum fimm kosningum sem ég hef verið hreppstjórí. En þetta er nú svo til sveita, að fólk kemur alveg grandalaust þegar það vill kjósa að það þurfa að vera tveir vottar við utankjör- fundarkosningu“. Böðvar sagði að mat hans og sýslumanns væri byggt á 12 gr. sveitarstjórnarlaganna, en skv. þeim mega frambjóðendur eiga sæti í kjörstjórn, ef það sætir ekki ágreiningi í sveitastjórn, fiar sem íbúar eru færri en 500. búar í Grimsuesinu eru 258. Ekki var um neinn ágreining að ræða fyrr en eftír kosningar, að sögn Böðvars. Hreppsnefndarfundur verður haldinn í Grímsnesi í dag þar sem rætt verður um hvort end- urtaka eigi kosningarnar frá því í vor. - só

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.