Tíminn - 23.06.1990, Blaðsíða 20
680001 —686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
^nrúie^m,a9’
S
IIEBÐBBÉBMflBSKIPn
SAMWNNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18, SlMI: 688568
NISSAIM
Réttur bíll á
réttum stað.
HelgasoaM
Saevartröföa 2
sími 91-674000
LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM
Kringlunni 8-12 Sími 689888
Tíminn
LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ1990
Hrista hurðaskellir
timburhús í sundur?
Spurning hvort ný timburhús eru nægilega traustbyggð:
Eigendur nýrra timburhúsa hérlendis þurfa greini-
lega að temja sér mun hljóðlátari umgengnisvenjur
en íbúar steinhúsa, því samkvæmt Rb- fréttum,
fréttabréfi Rannsóknarstofnun byggingaiðnaðar-
ins, geta minnstu hurðaskellir komið titringi á hús-
grind timburhúsanna, svo að þau leika öli á reiði-
skjálfi.
I nýjasta tölublaði Rb-frétta seg-
ir að skoðun á nokkrum nýjum og
nýlegum timburhúsum hafi leitt í
ljós að styrkleiki húsanna er iðu-
lega ónógur, og að stífleiki gagn-
vart láréttu álagi oft lítill. Þessi
skortur á stifleika kemur m.a. fram
í því „að hurðaskellir koma titringi
á grindina og verður þeirra jafnvel
vart enda á milli í húsum,“ eins og
segir orðrétt í fréttbréfinu.
Ekki virðist heldur ráðlegt að
stilla græjumar í botn og hreyfa sig
í takt við tónlist, því stífleiki timb-
urgólfa húsanna er oftast það áfátt
að „sveiflur á gólfi undan hreyfan-
legu álagi verða of miklar." Hljóð-
deyfing á gólfunum er svo einnig
lítil vegna sömu ástæðna.
I fréttabréfmu kemur einnig fram
að stoðir svigna oft mikið ef vindur
stendur þvert á vegg, og einnig að
op veikja veggina oft óeðlilega
mikið. Og sé vitnað enn frekar
beint í fréttabréfið þá gerir lítill
skerstyrkur veggja og þakstífinga
það að verkum „að hús vagga und-
an vindálagi og áhrifa frá veðri
gætir óeðlilega mikið.“
Ennfremur segir í grein Rb-frétta
að „þegar umrædd hús voru skoðuð
virtist sem uppbygging þeirra hefði
fremur mótast af hefð, t.d. við val
grindarstoða og gólfbita, heldur en
af raunverulegri hönnun."
Því virðist sem timburhúsaeigend-
ur verði öðmm fremur að treysta
því að veðurguðimir verði blíðir í
framtíðinni svo að hús þeirra vaggi
ekki í sundur, og vona að Hurða-
skellir venji ekki komur sína til
þeirra, ef þeir ætla að halda í bú-
staði sína.
—só
Nýleg timburhús hafa verið skoðuð af starfsmönnum Rannsóknastofnunar byggingaiðnaðarins. Niður-
staða skoðunarmanna er sú að fjöldi nýlegra timburhúsa séu hvergi nærri nægjanlega sterkbyggð og
leiki jafnvel á reiðiskjálfi þegar vindar blása og gengið er um dyr. Tímamynd: Ámi Bjama.
Samtök um nýjan vettvang lögð niður, en hvað verður um skuldirnar?
Borgarmálaráð Nýs
vettvangs borgar
Stjórn Samtaka um nýjan vett-
vang telur að hlutverki samtak-
anna sé lokið og hefur því lagt til að
samtökin verði lögð niður. Gangi
þetta eftir vaknar óhjákvæmilega
sú spurning hvað verður um þær
skuldir sem Nýr vettvangur stofn-
aði til í kosningabaráttunni, en i
fjölmiðlum hefur komið fram að
skuldirnar séu miklar. Reynír Ingi-
bjartsson, sem hefur haft með fjár-
mál Nýs vcttvangs að gera, sagði að
borgarmálaráð Nýs vettvangs
myndi taka á skuldapakkanum.
„Við ætium að taka sameiginlega á
þessum pakka,“ sagði Reynir.
Ámundi Ámundason, sem starfar
hjá Alþýðuflokknum og tók virkan
þátt í kosningabaráttu Nýs vett-
vangs, var spurður hvort fjárhags-
staða Nýs vettvangs væri slæm.
„Maður hefur séð það svartara.
Nýr vettvangur skuldar í dag rum-
ar J.900.000 króna. Ég held að
flestir getí verið sammála um að sú
upphæð sé ekkl há,“ sagði Ámundi.
Nýr Vettvangur skuldaði Alþýðu-
blaöinu og Pressunni háar fjárhæö-
ir og sagði Ámundi að ákveðið hefði
verið að fella þær niður. Hann sagöi
aö á næstu vikum yrði gengið í að
greiða aðrar skuldir. Notaðar yrðu
hefðbundnar fjáröflunarleiðir sem
felast m.a. í sölu á happadrættis-
miðum.
Ámundi sagðist ekki skílja af
hverju fjölmiðlar hefðu svona mik-
inn áhuga á kostnaði við kosninga-
haráttu Nýs vettvangs. Nýr vett-
vangur hefði ekki eytt meiri fjár-
munum í kosningabaráttu sína en
aðrir framboöslistar og skuldir
hans væru síst meiri en annarra
lista.
Ragnheiður Davíðsdóttir, formað-
ur fráfarandi stjórnar Samtaka um
nýjan vettvang, sagði að það hiut-
verk, sera samtökunum var ætlað í
upphafl, að efna til opins prófkjörs
um framboðslista og samelna fé-
lagshyggjufólk I borginni um einn
öflugan iista, hafi tekist.
Borgarmálaráð Nýs vettvangs
mun hins vegar starfa óháð og
sjálfstætt, og sagði Ragnheiður að
engin stjórnmálasamtök ættu að
hafa ítök í því ráði. Hún sagði
flokkssamþykktir bjóða upp á það
að ganga að þessu eina einstaka
verkefni, og að nú væri því lokið, og
framtíðin væri borgarmálaráðs.
Ragnheiður sagði fjóra aðila hafa
staðið að baki fjármögnun Nýs
vettvangs, Samtök um nýjan vett-
vang, Alþýðuflokkurinn, Æsku-
lýðsfylking Alþýðubandalagsins og
Reykjavíkurfélagið - samtök um
betri borg, og að því væru skuldirn-
ar borgarmálaráðsins, sem er sam-
heiti yfir þetta framboð.
„Samtök um nýjan vettvang taka
auðvitað sína ábyrgð á þessu rétt
eins og hinir þrir aðilarnir sem
unnu saman að þessu fram-
boði,“sagði Ragnheiöur. Hún sagði
þá ekki vera að skorast undan
neinni ábyrgð þó að samtökin yrðu
lögðniður. —só/eó
OVIST MEÐ
HREFNUVEIÐI
Vísindanefnd Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins lýkur störfúm í kvöld, en nefndin
kom saman í síðustu viku í Hollandi.
Á fúndi nefiidarinnar hafa verið lögð
fram gögn um ástand hrefhustofhsins í
Norður-Atlantshafi og Suður-íshafi,
en búist er við því að á ársfundi Al-
þjóða hvalveiðiráðsins verði lögð
fram tillaga um að hrefnuveiðar verði
heimilaðar á ný. Ársfundur Alþjóða
hvalveiðiráðsins hefst 2. júlí.
Tíminn náði tali af Jóhanni Sigur-
jónssyni sjávarlíffræðingi, en hann sit-
ur í Vísindanefhdinni. Jóhann sagði að
búið væri að leggja fram mikið af
gögnum í nefhdinni og fundir hefðu
verið langir og strangir. Hann sagðist
hins vegar ekkert geta sagt um niður-
stöður nefhdarinnar á þessu stigi.
Vísindanefridin kemur til með að
leggja fram álit um ástand hrefnu-
stofnsins. Það er aftur á móti ekki i
valdi nefndarinnar að leggja til að
veiðar verði leyfðar á ný. Ársfúndur
Alþjóða hvalveiðiráðs kemur að öll-
um líkindum til með að fjalla um slíka
tillögu.
Um hundrað manns frá flestum-aðild-
arríkjum Alþjóða hvalveiðiráðsins
sitja í vísindanefndinni og auk þess
sitja fúndinn fulltrúar alþjóðlegra op-
inberra stofnana, sem sérstaklega var
boðin þátttaka. Islendingar eiga fimm
fúlltrúa í vísindanefndinni. - hs/eó
Ný flugvél:
Dornier til
Arnarflugs
í nótt kom til landsins ný flugvél í
flugflota Amarflugs innanlands hf.
Véíin verður skráð i dag og fær ein-
kennisstafina TF-VLI og fer strax í
áætlunarflug.
Vélin er af gerðinni Domier 228 og
er fengin á kaupleigu hjá Domier
flugvélaverksmiðjunum í V- Þýska-
landi. Vélar af þessari gerð em mjög
heppilegar við erfiðar aðstæður og
þar sem flugbrautir era stuttar. Jafn-
ffarnt eru þær hraðfleygar, spameytn-
ar og þægilegar fyrir þá 19 farþega
sem þær taka.
--sá