Tíminn - 19.07.1990, Blaðsíða 17

Tíminn - 19.07.1990, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 19. júií 1990 Tíminn 17 Vorhappdrætti Framsóknarflokksins 1990 Dregiö var í vorhappdrætti Framsóknarflokksins 15. júní. Vinnings- númer eru sem hér segir: 1. vinningur nr. 29352 2. vinningurnr. 14359 3. vinningur nr. 38822 4. vinningur nr. 8039 5. vinningur nr. 13391 6. vinningur nr. 33369 7. vinningur nr. 14360 8. vinningur nr. 14874 9. vinningur nr. 127 10. vinningur nr. 33064 11. vinningur nr. 2606 12. vinningur nr. 6749 13. vinningur nr. 17642 14. vinningur nr. 29032 15. vinningur nr. 13417 Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá úrdrætti. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-21379. Framsóknarflokkurinn Lokað vegna sumarleyfa Skrifstofur Framsóknarflokksins að Nóatúni 21 verða lokaðar frá og rmeð 2. júní 1990, vegna sumarleyfis starfsfólks. Framsóknarflokkurinn. Þing Sambands ungra framsóknarmanna verður haldið að Núpi í Dýrafirði dagana 31. ágúst og 1. september. Flannes Karlsson hefur verið ráðinn starfsmaður SUF vegna þingsins og er hægt að ná í hann hér á Tímanum í síma 686300 frá kl. 9.00-13.00. Slys gera ekki boð á undan sér! yUMFERÐAR RÁÐ Ert þú að hugsa um að byggja t.d. iðnaðarhúsnæði, verkstæði, áhaldahús, gripahús, bílskúr eða eitthvað annað? Þá eigum við efnið fyrir þig. Uppistöður, þakbitar og lang- bönd eru valsaðir stálbitar og allt boltað saman á byggingar- stað. Engin suðuvinna, ekkert timbur. Allt efni i málmgrind galvaniserað. Upplýsingai gefa: MALMIÐJAN HF. SALAN HF. Sími 91-680640 V JEPPA- HJÓLBARÐAR Hágæða hjólbarðar HANKOOK frá KÓREU 235/75 R15 kr. 6.650. 30/9,5 R15 kr.6.950. 31/10,5 R15 kr. 7.550. 33/12,5 R15 kr. 9.450. Örugg og hröð þjónusta. BARÐINN hf. Skútuvogl 2, Reykjavík Símar: 91-30501 og 84844. t Móðir okkar Andrea Pálína Jónsdóttir Leirhöfn, Norður-Þingeyjarsýslu andaðist 18. þ.m. Jarðarförin auglýst síðar. Jóhann Helgason, Jón Helgason, Hildur Helgadóttir, Helga Helgadóttir, Bima Helgadóttir, Anna Helgadóttir. Simpson flölskyldan samankomin. Eins og sjá má er þetta hiö furðu- Eiríka Alexander leikur nýju per- legasta fólk. sónuna, Pam. Cosbyþættimir hafa nú fengið keppinaut Hér sjáum við eina fígúru úr Simpson flölskyldunni. Fyrirmyndarfaðir eignast keppinaut Bill Cosby hefur þénað vel á þátt- unum sínum The Cosby Show („Fyrirmyndarfaðir"). Hafa þeir gert hann einn af auðugustu mönn- um í skemmtigeiranum. Þættimir hafa verið efstir á vinsældalista sjónvarpsins í sex ár í Bandaríkjun- um. En nú stafar nokkur hætta af öðra dagskrárefni, The Simpsons (Simp- sonsíjölskyldunni), sem er teikni- myndaþættir um fimm manna stór- skrítna fjölskyldu. Þeir þættir stefna hratt upp vinsældalistann. Þetta er mjög vinsælt í Bandaríkjunum og hafa alls kyns vörur verið fram- leiddar með myndum af Simpson- fjölskyldunni á. Framleiðendur þáttanna ætla nefnilega að breyta sýningartímanum og hafa hann á nákvæmlega sama tíma og „Fyrir- myndarfaðir“. Nú bíður fólk spennt eftir þvi að sjá hvor stöðin verður vinsælli. Cosby hefúr því gert ýms- ar ráðstafanir til að halda vinsæld- um sínum. Hann segist ætla að láta nýju þættina sína höfða meira til kvenþjóðarinnar. Þrír karlkynsrithöfúndar þáttanna hafa verið reknir og fjórir kvenkyns ráðnir í staðinn. „Með þessu móti fæ ég að vita hvað og hvemig kon- ur hugsa en ekki hvemig karlmenn halda að þær hugsi,“ segir Cosby. „Við munum einblína á vandamál kvenna og sýna heiminn með þeirra augum.“ I þessum nýju þáttaröðum mun Rudy, yngsta dóttirin, fá sínar fyrstu blæðingar. Sýnt verður hversu viðkvæmt tímabil þetta er hjá stúlkum og hvemig Rudy sjálf tekur því. Einnig verður þáttur um ófrískar konur sem em eiturlyfja- neytendur. Nýju þáttaröðinni fylgir ný persóna en það á að vcra frænka Claire sem heitir Pam. Fjallað verð- ur um fyrstu kynlífsreynslu hennar cn hún á að vera 16 ára gömul. Með þessu móti vill Cosby leggja áherslu á hversu mikilvægt er fyrir ungt fólk að nota getnaðarvamir. Liza Bonet, sem leikur Denise í þáttunum, fær að koma með hug- myndir í þættina. „Liza hefúr þroskast mikið á síðustu ámm sem leikkona og persóna og því getur hún fært þáttunum þann næmleika sem til þarf,“ segir Cosby. Það er vonandi að við hér uppi á ísiandi fáum að sjá hvemig þessir nýju þættir koma út.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.