Tíminn - 03.08.1990, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.08.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fcjstudaguf 3. ágúst 1990 Veðurfréttir í sjónvarpi: Eitt kort og lýs- ingar í lágmarki Veðurfréttir í sinni gömlu mynd birtast ekki á skjánum hjá ríkissjón- varpinu nú um ókomna tíð, eftir upp- sögn fjögurra af sjö veðurfræðingum í þjónustu þess, en brugðið verður upp einu Islandskorti með veðurhorf- um næsta dags og texti ffá Veðurstof- unni verður lesinn upp um leið af fféttaþuli, og sagði Markús Á. Ein- arsson, deildarstjóri á Veðurstofunni, þetta vera alveg í lágmarki. Einar sagði að Veðurspárdeild gæti ekki neitað Ríkisútvarpi-Sjónvarpi um upplýsingar, ffekar en öðrum fjölmiðlum. Hann sagði að ffétta- stjóri ríkissjónvarps hefði farið ffam á að sjónvarpið fái drög að ísland- skorti með veðurhorfum næsta dags, likt og Stöð 2 og Morgunblaðið fá, og þeir muni svo vinna úr því korti auk þess sem fréttaþulur mun lesa texta með því í stað þess að veðurffæðing- ur lýsi veðri og veðurhorfum eins og verið hefur. Einar sagði að kjaraviðræður veður- ffæðinga við Sjónvarpið hefðu siglt í strand, en Sjónvarpið greiðir þeim veðurffæðingum, sem birtast á skján- um, laun. Veðurffæðingar sinna þessu starfi í frítíma sínum, en þeir hafa aðstöðu til kortagerðar á Veður- stofunni. Að mati Einars er á þessari stundu ekki hægt að ræða um annað fyrirkomulag en sem nú hefur verið ákveðið. Annað hvort yrðu veður- ffæðingamir sjö, sem starfað hafa fyrir sjónvarp, að setjast niður með forráðamönnum þess og komast að niðurstöðu, eða að hinkra við og finna nýja lausn á deilunni. —só Undirbúa alheimsráö- stefnu umhverfismála Umhverfismálaráðherra ís- lands, Júlíus Sólnés, er um þess- ar mundir staddur i Nairobi í Ke- nýa. Ráðherrann situr fund á vegum umhverfísstofnunar Sam- einuðu Þjóðanna, UNEP, sem hefur aðsetur sitt í Nairobi. Meg- inmarkmið fundarins er undir- búningur að heimsráðstefnu um umhverfismál sem haldinn verð- ur í Brasilíu árið 1992. En hug- myndir munu vera uppi um gerð alþjóðlegs umhverfíssáttmála i sambandi við ósonlagið, mengun sjávar, eyðingu skóga og fleira. „Alheimsráðstefhan rekur upp- runa sinn til ráðstefnunnar sem haldin var í Stokkhólmi árið 1972 og Brundtlands-skýrslunn- ar um umhverfismál, sem var samin á árunum ‘83 til ‘87. Á undanfÖmum ámm hafa verið samdar mjög viðamiklar greinar- gerðir víða um heim, varðandi hvemig þeim tillögum, sem fram koma í skýrslunni, hefur verið ffamfylgt og á fundinum verður efni greinargerðanna tekin til umræðu,“ sagði Páll Líndal, ráðuneytisstjóri umhverfismála- ráðuneytisihs, í samtali við Tím- ann. jkb Álagningarskrá Norðurlands eystra lögð fram: Oddur Thorarensen og KEA á toppnum Álagningarskrá skatta á Norður- landi eystra hefur verið lögð fram. Heildarálagning gjalda er 4.316 milljónir króna, sem skiptist þann- ig að einstaklingar greiða 3.163 milljónir króna, böm 5.5 milljónir og félög 1.147 milljónir króna. Kaupfélag Eyfirðinga greiðir hæsta skatta á Norðurlandi eystra, tæplega 113 milljónir króna. Næst á eftir kemur Álafoss hf., sem greiðir um 80 milljónir króna. Oddur C. Thorarensen ber hæst gjöld einstaklinga, ríflega 5.3 milljónir króna. Næstur honum kemur Önundur Kristjánsson á Raufarhöfn, sem greiðir 4.3 millj- ónir króna. Skattskráin liggur frammi á skattstofunni á Akureyri til 14. ágúst, og er kærufrestur 30 dagar. Félög með hæstu samanlögð gjöld: 1. KE A Akureyri 112.901.314 2. Álafoss hf., Akureyri 79.364.738 3. Útgerðarfél. N.-Þingeyinga, Þórshöfn 68.490.819 4. Manville hf., Húsavík 37.834.569 5. Útgerðarfélag Akureyringa, Akureyri 36.554.040 6. Hreifi hf. Húsavík 26.662.807 7. Akureyrarkaupstaður 18.113.555 8. Slippstöðin hf., Akureyri 17.778.051 9. Samheiji hf., Akureyri 17.683.768 10. KÞHúsavík 16.272.119 Einstakl. með hæstu samanlögð gjöld: 1. Oddur Thorarensen, Akureyri 5.340.934 2. Önundur Kristjánsson, Raufarhöfn 4.368.655 3. Stefán Óskarsson, Öngulsstaðahreppi 4.089.657 4. Pétur Bjamason, Akureyri 3.700.770 5. Þorsteinn Thorlacius Akureyri 3.398.594 6. Magnús Stefánsson, Akureyri 3.310.089 7. Vigfus Guðmundsson, Húsavík 3.295.433. 8. Gissur Jónasson, Akureyri 2.937.634 9. Valmundur Einarsson, Akureyri 2.819.594 10. Þorsteinn Vilhelmsson, Akureyri 2.757.740. hiá-akureyri. Hugleiðsla: Jóganámskeið í Árnagarði í sumar hafa verið í gangi helg- arnámskeið í jóga í Árnagaröi. Eymundur Matthíasson, leið- beinandi á námskeiðunum, sagði að m.a. hafi verið kenndar Landsbankinn á Akureyri: Hagdeild opnaði í gær í gær tók formlega til starfa Hagdeild við útibú Lands- banka íslands á Akureyri. Til að byrja með verður einn starfsmaður við deildina, og er það Jakob Bjarnason sem undanfarið hefur starfað hjá Hagdeild Landsbankans í Reykjavík. Jakob sagði í samtali við Tímann, að starfssvið sitt yrði mestmegnis vinna fyrir bankastjóm, svo sem ráðgjöf varðandi útlán til fýrir- tækja. „Eg verð tengiliður milli bankastjómar og fyrirtækja, og mun hafa yfimmsjón með viðskipt- um sem að fyrirtækjum lýtur.“ Jakob sagði að þetta væri hugsað sem tilraun til að efla þjónustu og færa hana nær viðskiptavinunum. Sömu starfsaðferðum verður beitt og hjá Hagdeild Landsbankans í Reykjavík, en þangað hafa for- svarsmenn fýrirtækja þurft að leita með faglega ráðgjöf og ýmsa þjón- ustu. Einnig ef fýrirgreiðslur hafa verið það stórar að þær hafa þurft að fá umfjöllun hjá bankastjóm. Þetta eykur hagræðingu, og einnig verður nánara samband við við- skiptavini. Þjónustusvæðið hefur ekki verið skilgreint endanlega, en búast má við að það nái frá Vopna- firði til Skagastrandar. Á þessu svæði hefur Landsbankinn 5 útibú: á Vopnafirði, Raufarhöfn, Húsavík, Akureyri, og Skagaströnd. Jakob sagði, að auk starfa sinna við Hag- deildina væri hugsanlegt að hann sinnti samhliða öðmm verkefnum fýrir bankann, en það skýrðist nán- ar á næstu dögum. Þess má geta að Landsbankinn hefur í bígerð ýmsar aðrar nýjungar og breytingar í þá átt að stuðla að aukinni þjónustu við landsbyggð- ina, og munu þær koma til fram- kvæmda innan tíðar. hiá-akureyri. aðferðir til slökunar og einnig bent á leiöir til að skynja betur hvemig maður upplifir hluti í kringum sig og einnig hvemig maður upplifir sjálfan sig. Þá er veitt innsýn í jóga-heimspeki og kenndar æfingar til slökunar og farið í hugleiðslu. Umsjónarmenn námsskeiðanna em allir lærisveinar Sri Chinmoy en hann er m.a. upphafsmaður Frið- arhlaupsins. Hann hefur gefið út íjölda bóka um jóga-hugleiðslu og er mjög virkur í allri friðarbaráttu. Þessir íslensku lærisveinar Sri Chinmoy hafa bæði farið út til New York, þar sem hann býr, til að nema af honum og hann hefur komið hingað til lands. Engin formleg samtök em starfrækt hér á landi en nemendur Sri koma reglulega sam- an til hugleiðslu. Eymundur sagði að jóga-hug- leiðsla væri gott ráð við amstri hversdagsins, ef að maður næði góðum tökum á henni. Næsta nám- skeið er fyrirhugað í september og þess ber að geta að þessi námskeið em ókeypis og opin öllum og ættu það að vera góðar fréttir fýrir streituhrjáða íslendinga. —SE Mauno Koivisto, forseti Finnlands: landið Mauno Koivisto, forsetí Finn- lands, Teliervo, kona hans og Assi Komulainen, dóttir heirra, koma i heimsókn tíl lslands dagana 25.-28. ágúst n.k. Þau munu i beimsókn sinni, sem verður óopinber, hitta forseta fslands og forsætisráðherra, fara til Þingvalta og Vestmanna- eyja og e.t.v. einnig tíi Austur- Skaftafellssýslu. GS. Austur-Þýska- lendingum Með erindaskiptum á milli Jóns Baldvins Hannibalssonar utan- ríkisráðherra og Markusar Mec- kels, utanríkisráðherra Þýska al- þýðulýðveldisins, hefur verið gengið frá samkomulagi milli Þýska alþýðulýöveldisins og ís- iands um gagnkvæmt afnám vegabréfsáritana, miðað við þríggja mánaða dvöl, og tók samkomuiagið gildi i gær. íslend- ingum er þvi frjálst að ferðast um Álþýðulýðveldið og þurfa tæpast að óttast tímafreka vega- bréfaskoðun, eins og áður gat komið fyrir. Sama máli gegnir um borgara A-Þýskalands sem hingað koma. —-SE UPPGJÖR FLUGMIÐA Valur Valsson, formaður banka- stjómar Islandsbanka, og Gaby Back, framkvæmdastjóri hjá BSP (Bank Settlement Plan) undirrituðu þann 31. júlí samning um greiðslu- miðlun vegna uppgjörs á flugfar- miðum milli ferðaskrifstofa og flug- félaga. Samningurinn tekur gildi þann 1. október n.k. og er gerður í umboði IATA (Alþjóðasamtaka flugfélaga). Samningurinn felur í sér að ferðaskrifstofur skila andvirði seldra flugfarseðla til Islandsbanka sem síðan sér um að koma þeim til flugfélaganna. Á myndinni eru Val- ur Valsson og Gaby Back ásamt fulltrúum Islandsbanka, ferðaskrif- stofa og flugfélaga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.