Tíminn - 03.08.1990, Blaðsíða 5

Tíminn - 03.08.1990, Blaðsíða 5
Föstudagur 3. ágúst 1990 Tíminn 5 Ríkisstjórnin gekk frá bráðabirgðalögum í gær sem verða gefin út í dag: LOG A STETTIR MEÐ BUNDNA SAMNINGA Ríkisstjómin gekk frá setningu bráðabirgðalaga í gærkvöld, sem verða gefin út fýrir hádegi í dag. Þau fela í sér frestun á 4,5% launahækkun BHMR þartil í september á næsta árí, þ.e. út gildistíma þjóðarsáttar. Lögin ná til allra samtaka launamanna, sem ekki eru með lausa samninga. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra sagði eftir ríkisstjómarfundinn, að ríkisstjómin værí sannfærð um að þessi lög myndu tryggja framkvæmd efna- hags- og launastefnu ríkisstjómarinnar. Þar með sé afstýrt hætt- unni á nýrrí verðbólguöldu sem allir eru sammála um að hefði orðið við allshetjar 4,5% launahækkun á vinnumarkaði. Ríkisstjómin sat á fundi frá miðjum degi og fram á kvöld í gær á meðan verið var að ganga endanlega frá innihaldi Iaganna. Lögin voru síðan kynnt fyrir aðilum vinnumarkaðar- ins, öðmm hagsmunaaðiljum og stjómarandstöðunni í gærkvöldi. I gær lá fyrir umboð frá þingflokkum Alþýðuflokks og Framsóknarflokks til sinna ráðherra um að ganga frá setningu bráðabirgðalaga sem ffest- uðu hækkun launa hjá háskólamönn- um í þjónustu ríkisins. Þingflokkur Alþýðubandalagsins fundaði síðan í gærmorgun, þar sem sex af átta þing- mönnum flokksins féllust á að hækk- unin yrði tekin til baka með lögum. Hjörleifur Guttormsson og Geir Gunnarsson, þingmenn Alþýðu- bandalagsins lýstu sig andvíga því að hækkunin yrði dregin til baka. Þing- flokkur Alþýðubandalagsins setti hins vegar fram þá kröfii að bráða- birgðalögin yrðu ekki sett á þá aðila sem eiga lausa samninga á árinu og að þeirri kröfu var gengið. - En em bráðabirgðalögin sem verða gefln út i dag skotheldir pappírar? Standast þau fyrir dómstólum ef á reynir? „Það fer eftir hvað menn nota stórar kúlur og mikið púður“, sagði Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra eftir ríkisstjómarfúndinn í gær. „En við teljum að þetta sé jafn ömggt og við frekast getum haft það“. Steingrímur sagði að athugasemdir hefðu komið frá aðiljum allra ríkis- stjómarflokkanna við þau drög að bráðabirgðalögum, sem lágu fyrir í Arekstrar í Kópavogi Nokkrir árekstrar vom í Kópavogi í gær. Einn þeirra var á Reykjanes- brautinni, við Nýbýlaveginn. Þar ók jeppi á fólksbíl með þeim afleiðingum að fólksbíllinn skemmdist. Engin meiðsl urðu hins vegar á fólki. Eins og við sjáum á myndinni, er fólksbíllinn töluvert skemmdur, en við áreksturinn fór hann út af vegin- um. gærmorgun. Breytingamar væm hins vegar ekki stórvægilegar. „Eg tel að við höfúm náð mjög ásættanlegri niðurstöðu“, sagði Steingrímur. „Eg er mjög ánægður með það að bráðabirgðalögin em í þeirri mynd, sem þingflokkur Alþýðubandalags- ins lagði áherslu á nú síðasta sólar- hringinn", sagði Ólafúr Ragnar Grímsson fjármálaráðherra í gær- kvöld. „Við vildum ekki takmarka rétt þeirra sem em með lausa samn- inga og það er ekki gert í þessum bráðabirgðalögum og almennur samningsréttur og lýðréttindi em ekki skert“. Samkvæmt þeim tillögum, sem lágu fyrir í gær, fyrir ríkisstjómarfúnd taka bráðabirgðalögin úr sambandi víxlverkunarákvæði, endurskoðunar- ákvæði og ,4,5% hækkun launa í samningi BHMR. Öll þessi ákvæði em því út úr myndinni á tíma þjóðar- sáttarsamninganna. Þó má reikna með að á móti komi viljayfirlýsing frá ríkisstjóminni þess efhis að sam- anburður á kjömm háskólamanna hjá ríkinu og þeirra sem vinna hjá einka- aðilum liggi fyrir eftir að tuttugu mánaða tímabili þjóðarsáttar er lok- ið. - ÁG Engin viðbrögð frá BHMR ennþá Ríkisstjómin samþykkti setningu bráðabirgðalaga í gærkvöldi eftir fimm tíma fúndarsetu. Á meðan sátu aðiljar vinnumarkaðarins fúndi en urðu að halda að sér höndunum, þar til ríkisstjómin lyki sér af, þar sem nokkur óvissa var um endanlegan texta laganna, svo að allir stjómar- flokkamir gætu sæst á niðurstöðuna. Alþýðubandalagið kvaddi til þing- flokksfúndar í gærmorgun þar sem farið var rækilega í kjölinn á hugsan- legu innihaldi bráðabirgðalaga, og lauk fúndinum með því að formaður- inn Ólafúr Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra fékk umboð flokksins til setningu bráðabirgðalaga þar sem stéttarfélög með lausa samninga vom undanþegin lagasetningu þjóðarsátt- ar. Þingflokkar Framsóknarflokks og Alþýðuflokks fúnduðu einnig fyrir ríkisstjómarfúndinn sem hófst kl. 15, en þegar var Ijóst í fyrradag að ráð- herrar beggja flokka hefðu fúllt um- boð síns iolks til setningar bráða- birgðalaga. Til stóð að þessir flokkar héldu þingflokksfúndi að ríkisstjóm- arfúndi loknum, en þar sem textagerð laganna dróst á langinn var hætt við þá fundi. BHMR boðaði til almenns félags- fúndar í Templarahöllinni kl. 14. Páll Halldórsson formaður BHMR ávarp- aði fúndinn og rakti feril samninga- viðræðnanna við ríkisstjómina, frá því að þeim var gert lokatilboð um úrlausn deilunnar sl. fostudag, þar til slitnaði upp úr viðræðum á mánudag- inn var. Páll sagði að með tilboði rík- isstjómarinnar hefði þeim í raun að- eins verið gefinn sá kostur að gefa út bráðabirgðalögin sjálfir. Þeim hefði alltaf verið sagt, að það sem þeir hefðu möguleika til að semja um væri í þessum bráðabirgðalögum, og þeir hefðu að sjálfsögðu ekki getið fallist á það. Páll neitaði alfarið að ræða hugsanleg viðbrögð samtakanna við bráðabirgðalögunum, og kvaðst bíða með yfirlýsingar þar til hann hefði texta þeirra undir höndum. Alþýðusamband Islands, Vinnuveit- endasambandið og Vinnunmálasam- bandið hófú samningafúnd kl. 17 í gær, en þar sem fúndur ríkisstjómar- innar dróst til kl. 19:30 gátu þessi samtök ekki gefið út neina ályktun af fúndi sínum í gærkvöldi. Ásmundur Stefánsson formaður ASI sagði í samtali við Tímann í gær, að þar sem þeir hefðu ekki fengið löggjöfma í hendur og vissu ekki í hveiju hún fæ- list, gæfu þeir ekki út neinar yfirlýs- ingar að svo stöddu. —só Rútuferðir um verslunarmannahelgina Það verður án alls efa mikil stemmning sem skapast í þeim flölda langferðabifreiða sem geysast um allt land núna um helgina. Rútu- bflsstjórar koma til með að bera hita og þunga af fólksflutningum milli landshluta, eins og svo oft áður, og í Umferðamiðstöðinni við Vatnsmýrarveg slær hjarta þessarar miklu ferðahelgi. Fyrirhugaðar era margar fcrðir þaðan á allar útihátíðar sem verða um helg- ina. í dag verða famar tvær ferðir til Þorlákshafnar, kl. 07:30 og 15:30. Á laugardag er farin ein ferð, kl. 12:30 og ein ferð á sunnudag, kl. 16:30. Rúta fer siðan frá Þorlákshöfn kl. 17:30 á sunnudag og á mánudag eru famar þijár ferðir frá Þorlákshöfn, kl. 08:30, 17:30 og klukkan 01:30 aðfaranótt þriðjudagsms 7. ágúst. I Húnaver verða famar fimm ferðir í dag, kl. 08:00, 13:00, 16:00, 17:00 og 19:00. Á laugardag eru ferðir klukkan 08:00 og 13:00 og á sunnudag kl. 08:00 og 17:00. A sunnudag verða famar þijár ferðir frá Húnaveri, kl. 11:30, 15:30 og 19:00. Á mánudag er búið að fastsetja tvær ferðir frá Húna- veri, kl. 11:30 og 19:00 en aukaferðir verða famar eftir þörfúm. Famar verða þijár ferðir í Galtalæk í dag, kl. 08:30, 17:00 og 21:00. Á laug- ardag fara rútumar frá Umferðamið- stöðinni kl. 08:30 og 13:30 og á sunnu- dag kl. 08:30. Frá Galtalæk er farið kl. 16:00 alla dagana en á mánudag er einnig ferð kl. 13:00. Á bama- og fjölskylduhátíðina í Húsafelli verður farið kl. 18:30 í dag og kl. 13:00 á morgun. Frá Húsafelli verður farið kl. 15:15 basði sunnudag og mánudag. Fjölskylduhátið er í Vík í Mýrdal og fara rútur þangað kl. 08:30 og 17:00 í dag. Á morgun fer rúta kl. 08:30 og á sunnudag kl. 08:30 og 20:30. Frá Vík fara rútur kl. 15:15 bæði sunnudag og mánudag og að auki kl. 07:30 á mánu- dag. í Þórsmörk fara rútur kl. 08:30, 13:00 og 20:00 í dag. Á moigun og á sunnu- dag fara rútur kl. 08:30. Frá Þórsmörk fararúturkl. 13:00 til 15:30, sunnudag og mánudag og miðast brottfarir þaðan við flutningaþörf. Valaskjálfti verður á Egilsstöðum og era ferðir þangað fyrirhugaðar kl. 08:00 og 19:30 frá Neskaupsstað. Frá Akureyri er farið daglega til Egilsstaða kl. 08:15. Frá Höfn í Homafirði er far- ið daglega kl. 09:00. Frá Reykjavík Að sögn Óla Bjöms Kárasonar ffamkvæmdastjóra Almenna bókafé- lagsins á félagið við mikla erfíðleika að stríða, og verður auka aðalfúndur fyrirtækisins haldinn hinn 9.ágúst. Óli Bjöm sagðist ekki geta greint frá stöðu AB þar sem hluthafar ættu heimtingu á því að fá að vita hver tekur ferðin tvo daga þar sem skipta þarf um rútu á Akureyri eða Höfh. Fyrir þá sem vilja losna við skarkala útihátíðanna stendur margt til boða. Farið er í Skaftafell og að Skógum, ferðir era á Þingvelli, að Bifröst, á Snæfellsnes, ferðir era í Flókalund í Vatnsfirði og á marga fleiri áhuga- verða staði. Þess ber að geta að ný og endurbætt leiðabók er komin út hjá Fé- lagi sérleyfishafa. Bókin hefúr að geyma upplýsingar um áætlanir allra raunveraleg staða fyrirtækisins væri áður en þeir læsu um það í dagblöð- um. Hann sagði að fyrirtækið ætti við mikla erfiðleika að stríða, og það hefði lengi verið vitað, þar sem árs- reikningur AB hefði verið birtur op- inberlega í apríl eftir aðalfúnd félags- sérleyfishafa á íslandi ásamt sérferð- um um byggðir og óbyggðir landsins. Ferðamenn geta fengið leiðabókina ókeypis í Umferðamiðstöðinni við Vatnsmýrarveg. BSI býður upp á alls kyns ferða- möguleika um verslunarmannahelgina sem og aðrar helgar og ef að líkum læt- ur hljóma rútusöngvar um þjóðvegi landsins um alla helgina, flestum til óblandinnar ánægju. —SE ins. AB væri eina útgáfúfyrirtæki landsins sem birti opinberlega tölur úr sínum ársreikningi. Auka aðalfundur fyrirtækisins heíúr verið boðaður 9. ágúst, og þá verður hluthöfúm gert grein fyrir því hver staða fyrirtækisins er nú. —só Auka aðalfundur AB í ágúst

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.