Tíminn - 11.08.1990, Qupperneq 16
AUGLYSINGASfMAR: 680001 —
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnorhusinu v/Tryggvagötu,
S 28822
SAMVINNUBANKINN 1
j BYGGDUM LANDSINS |
AKTU EKKI ÚT
í ÓVISSUNA.
AKTUÁ
SUBARU
Ingvar
Helgason hf.
Sævartiöföa 2
Síml 91-674000
HOGG-
DEYFAR
Verslió hiá faemönnum
varahluti
Hamarsböfða 1 - s. 67-67-44
686300 j
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST1990
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sat neyðarfund Nato í gær. Fundarefnið var Irak:
Vonar að viðskiptabannið
komi vitinu fyrir Hussein
Neyðarfundi utanríkisráðherra Nato lauk í Brussel í gær, en þar var
rætt um viðbrögð bandalagsins við innrás fraks inn í Kúvæt Jón Bald-
vin Hannibalsson sat fundinn. Hann sagði í samtali við Tímann að Nato-
ríkin væru sammála um að fýlgja fast eftir viðskiptabanni á írak. Ráð-
herrafundurínn varaði fraka við að ráðast inn í Tyrkland og minnti á að
litið yrði á árás á Tyrkland sem árás á önnur aðildarríki Nato. Ekki var
rætt um beinar hemaðaraðgerðir gegn frak á fundinum.
, J»að má draga niðurstöðumar saman
í sjö meginatriði," sagði Jón Baldvin.
„í fyrsta lagi lýsti fundurinn yfír full-
um og skilyrðislausum stuðningi við
fordæmingu Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna á hemaðarárás Iraks á sjálf-
stætt og ffiðsamlegt grannriki, Kúvaet.
í öðra lagi var sett íram krafa um að ír-
akir dragi heri sína þegar í stað til baka
og að sjálfstæði og fiillvalda Kúvæt
verði endurreist að alþjóðalögum. í
þriðja lagi er lýst skuldbindingu allra
aðildarríkja Nato til þess að fylgja eftir
viðskiptabanninu, þar með talið ftyst-
ingar á inneignum Kúvæta í viðskipta-
kerfí heimsins, en það er mál upp á
ísland hefur aldrei átt í stríði við annað ríki.
Ráðist írakar á Tyrki verður blað brotið í þessu efni:
Styrjöld á milli
íslands og íraks
Menn óttast nú mjög að írak ráðist
inn í Tyrkland en síðustu daga hafa
átt sér stað miklir liðsflutningar í írak
að landamærum Tyrklands. Ef írak
ræðst inn í landið mun ísland lenda i
þeirri einkennilegu aðstöðu að vera
orðið þátttakandi í stríði.
ísland og Tyrkland em aðilar að
Nato. Ein af grundvallarreglum þess
er að aðildarriki þess skuldbinda sig
til að veijast sameiginlega árás á eitt
Nato-ríki. Árás á eitt Nato- ríki væri
árás á þau öll. Ólíklegt er talið að
Nato gerist beinn aðili að hugsanlegri
innrás inn í Kúvæt en ekki er þó hægt
að útiloka það.
Frá þvi að Nato var stofnað 1949
hefur bandalagið ekki þurft að heyja
strið. Island hefur því ekki þurft að
gerast þátttakandi í hemaðarátökum
þó að á ýmsu hafi gengið í heiminum
síðustu áratugina. Ef horft er lengra
aftur í tímann verður ekki séð að Is-
land hafi nokkum tímann lýst yfir
striði við aðra þjóð. ísland neitaði að
lýsa yfír stríði við Öxulveldin í síðari
heimsstyijöldinni. Þrýst var á ísland
að gera það 1945 svo að það gæti
gerst stofnaðili að Sameinuðu þjóð-
unum. Island kaus að gera það ekki
og gerðist því ekki aðili að Samein-
uðu þjóðunum íyrr en 1946. -EÓ
100 milljarða dollara. Það er lögð
megináhersla á að tryggja fram-
kvæmdina bæði varðandi inn- og út-
flutning vegna þess að það benda allar
líkur til þess að þetta viðskiptabann
geti skilað góðum árangri á nokkrum
vikum. Bannið gegnir þvi lykilhlut-
verki í því að kenna Hussein að glaspir
borga sig ekki.
Fjórða meginatriðið er árétting á órofa
samstöðu með Tyiklandi og viðvörun
til Iraks að falla ekki í þá fteistingu að
hefja hemaðaraðgerðir gegn Tyrkjum.
Þeir em minnti á grundvallarreglu
Nato- ríkjanna. Eitt fyrir alla, allir fyrir
einn. Arás á Týridand er árás á banda-
lagsríkin öll. í fimmta lagi er sett fram
krafan um að erlendir ríkisboigarar fái
að fara fijálsir ferða sinna í samræmi
við alþjóðalög og samninga. í sjötta
lagi er beint sérstakri orðsendingu til
leiðtogaríkja Arabaríkja í Kaíró þar
sem áhersla er lögð á að viðbrögð Vest-
urlanda við hemaðaraðgerðum Iraks er
ekki stefnt gegn Arabalöndunum eða
hagsmunum þeirra, heldur þvert á
móti. í sjöunda lagi er lögð á það meg-
ináhersla að Atlantshafsbandalagið
muni gegna lykilhlutverki hér eftir sem
hingað til sem samráðs og samræming-
araðili varðandi aðgerðir ríkjanna allra
fram í tímann að sjá.“
Jón Baldvin sagði að alger eining hefði
verið um þessa niðurstöðu.
Ráðherra sagði að ekki hefði verið rætt
um neinar hemaðaraðgerðir af hálfu
Nato-rikja á hendur Irak á fimdinum.
,JJér er um vamaraðgerðir að ræða til
að koma í veg fyrir frekari hemaðar-
árásir Iraka. Það hefur ekki verið lýst
yfir styijöld. Menn em ákveðnir i að
íylgja viðskiptabanninu fast eftir. Á
fiindinum vom lögð fiam ítarleg gögn
um það og af þeim má ráða að við-
skiptabann muni skila árangri. Það
bendir allt til þess að því verði íýlgt nasr
undanbragðalaust eflir.“
Utanríkisráðherrafundurinn ákvað að
koma upplýsingum um niðurstöðu
fundarins og annað efhi um stöðu mála
á framfæri við aðildarríki Varsjár-
bandalagsins. Jón Baldvin sagði að að-
ildarríki þessara tveggja hemaðar-
bandalaga væm mjög samstiga í að
fordæma yfirgang Iraka.
Sovétrikin era mesta olíufiamleiðslu-
ríki í heimi og koma því til með að
hagnast á olíuverðshækkun þegar til
skamms tima er litíð. Jón Baldvin benti
hins vegar á að olíuverðshækkun kæmi
til með að hafa mjög slæm áhrif á eína-
hag A-Evrópuríkja og t.d. torvelda
sameiningu þýsku ríkjanna. -EÓ
talska herskipið San Giorgio hélt af landi brott í gærmorgun íslenskum stúlkum til mikillar sorgar. Hér
sést ein stúlkan njóta síðasta kvöldsins með rtalska „draumaprínsinum" niðrí á höfri. Lögreglan fylgist
með en ef vel er að gáð má sjá að hún er ekki vakandi á verðinum. GS.
KJÖRBÓK IANDSBANKANS HENTAR JAFNT
EINSTAKLINGUM SEM FYRIRTÆKJUM
Kostir Kjörbókar sem ávöxtunarleiðar nýtast jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum. Kjörbók er
óbundin, með háa grunnvexti sem eru lagðir eru við höfuðstól tvisvar á ári. Kjörbók nýtur einnig
verðtryggingar á þann hluta innstæðu er stendur óhreyfður yfir sex mánaða verðtryggingartímabil,
sem eru tvö á ári; frá 1. janúar til 30. júní og frá 1. júlí-31. desember. Og þeir sem láta fé sitt standa
lengur á Kjörbók uppskera ríkulega: Afturvirk vaxtahækkun
| reiknast eftir 16 mánuði og síðan aftur eftir 24 mánuði.
/ Þannig njóta stórar jafnt sem smáar fjárhæðir, um lengri
i eða skemmri tíma, alltaf fyrsta flokks kjara á Kjörbók.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna