Tíminn - 03.10.1990, Side 13
Miðvikudagur 3. október 1990
Tíminn 13
Aðalfundur Launþegaráðs
á Vesturlandi
Aðalfundur Launþegaráðs framsóknarmanna á Vesturlandi verður
haldinn miðvikudaginn 10. október nk. kl. 20.30 í Félagsbæ,
Borgarnesi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
3. Er þjóðarsáttln í hættu?
Frummælendur verða:
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráðherra.
Jón Agnar Eggertsson, formaður Verkalýðsfélags Borgarness.
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar.
Stuðningsmenn Framsóknarflokksins velkomnir.
Launþegaráð Framsóknarflokksins á Vesturlandl
Hafnarfjörður
Fundur í Fulltrúaráði framsóknarfélaganna í Hafnarfirði fimmtudaginn
4. október kl. 20.30 að Hverfisgötu 25, Hafnarfirði. Boðaðir eru allir
fulltrúaráðsmenn, aðalmenn og varamenn, ennfremur þeir er listann
skipuðu í vor. Allir stuðningsmenn velkomnir.
Dagskrá:
1. Rætt um úrslit bæjarstjórnarkosninganna í vor og hvaða
lærdóma má af þeim draga.
2. Bæjarmálin. Skipað í nefndir um einstaka þætti bæjarmála.
3. Vetrarstarfið. Aðalfundir félaganna um miðjan október. Þar verða
m.a. kosnir fulltrúar á kjördæmisþing fyrirhugað 4. nóvember (að
líkindum verða þar valdir frambjóðendur á listann við alþingis-
kosningarnar í vor) og kosnir fulltrúar á flokksþing er haldið verður
dagana 16.-18. nóvember. Ráðning framkvæmdastjóra o.s.frv.
4. Álmálið. Baldur Óskarsson viðskiptafræðingur, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra bankamanna, sem er ásamt Guðmundi
G. Þórarinssyni og fleirum í „nefnd iðnaðarráðuneytisins um
álviðræður", mætir á fundinn í kaffihléinu milli hálftíu og tíu. Hann
flytur erindi og svarar fyrirspurnum um gang álviðræðna og
hvaðeina er þeim tengist.
Stjórnin.
Frá Kjördæmissambandi
framsóknarmanna á Vestfjörðum
Á þingi sambandsins 8.-9. september sl. var samþykkt að gang-
ast fyrir skoðanakönnun meðal félagsmanna vegna framboðs (
komandi alþingiskosningum. Hér með er auglýst eftir þátttöku
frambjóðenda í umrædda skoðanakönnun, sem fyrirhugað er að
halda í lok októbermánaðar, og nánar verður tilkynnt um síöar.
Þátttaka tilkynnist skriflega til Framboðsnefndar, Hafnarstræti 8,
400 (safirði, fyrir 15. október nk.
Nánari upplýsingar.veita:
Kristjana Sigurðardóttir, Isafirði, sími: 94-3794
Sigríður Káradóttir, Bolungarvík, sími: 94-7362
Magnús Björnsson, Bíldudal, sími: 94-2261
Einar Harðarson, Flateyri, sími: 94-7772
Guðbrandur Björnsson, Hólmavík, sími; 95-13331
Framboðsnefnd.
Dagskrá
framkvæmdastjómarfundar SUF
fimmtudaginn 4. okt. 1990 kl. 17.30
1. Ályktanir frá stjómarfundi SUF.
2. Útgáfa fréttabréfs/blaðs.
3. Jólaalmanak, fjáraflanir, staða.
4. Húsnæðismál flokksins.
5. Tengsl við framhaldsskólana, Stofnun FUF-félaga.
6. Undirbúningur fyrir flokksþing.
7. Félagsmálanámskeið v. kosninga í vor.
8. SUF-slða Tímans
9. Félagsstörf. Haustferð i „Flag (fóstur".
Framsóknarmenn í
Noröuriandskjördæmi eystra
35. kjördæmisþing K.F.N.E. verður haldið að Hótel Húsavík dag-
ana 10. og 11. nóvember nk.
Þann 11. nóvember verður einnig haldið auka kjördæmisþing.
Dagskrá verður nánar auglýst síðar.
Skrifstofa K.F.N.E. að Hafnarstræti 90, Akureyri er opin mánu-
daga til fimmtudaga kl. 17.00-19.00 og föstudaga kl. 15.00-
17.00.
Starfsmaður er Sigfríður Þorsteinsdóttir og mun hún veita allar
nánari upplýsingar í síma 21180.
Stjóm K.F.N.E.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
hefur opnað aftur að Höfðabakka 9, 2. hæð (Jötunshúsinu)
Sími 91-674580.
Ml
Opið virka daga kl. 8.00-16.00.
Verið velkomin.
Framsóknarflokkurinn.
Boxarinn Frank Bruno lét Matthew litla Hogan, sem þjáist af alvaríegri truflun á meltingar- og lungnastarf-
semi, slá sig niður í hringnum.
Rod Stewart hefur oftar en einu sinni lagt hönd á
plóginn og hér er hann ásamt Margaret Hayles.
Fótboltahetjan Gary Lineker stytti Oliver Brieriy
stundimar meðan hann var að jafna sig eftir mikla
hjartaaðgerð.
Óskir
Ensk kona, Margaret Hayles, hefur
sett á stofn mjög svo sérstakan
hjáiparsjóð. Hún safnar fé og fær
frægt fólk til að aðstoða sig við að
uppfylla óskir alvarlega sjúkra og
dauðvona bama.
Hvort sem óskin er að fá að koma
til Sviss, slá niður boxarann Frank
Bruno eða hitta einhverja stór-
stjömu á borð við Rod Stewart,
Dustin Hoffman eða Gary Lineker,
þá sér Margaret Hayles til þess að
hún fíist uppfyllt.
Bömin, sem þannig fá óskir sínar
uppfylltar, em oft það langt leidd að
ekkert er hægt fyrir þau að gera
annað en létta þeim síðustu stund-
imar og það tekst oftar en ekki.
Margaret Hayles fékk þessa hug-
mynd árið 1982 og hrinti henni
samstundis í framkvæmd. Hún rek-
ur sjóðinn heiman frá sér og eyðir
engu í rekstrarkostnað. Fyrsta árið
safnaði hún 100.000 pundum og
hefur glatt yfir 1000 dauðvona böm
frábyrjun. Húnsegiraðþærstjöm-
ur, á hvaða sviði sem er, sem leitað
hefur verið til hafi undantekningar-
laust brugðist vel við og gert sitt til
að uppfylla óskir bamanna. Aðspurð
hver væri heitasta ósk hennar sjálfr-
ar, sagðist hún helst vilja geta kom-
ið sér upp góðum búgarði þar sem
dauðsjúk böm gætu komið, hvílst
og losnað úr sjúkrahúsumhverfinu.
Miðað við árangur þessarar duglegu
konu til þessa má ætla að sú ósk
hennar rætist innan tíðar.
Ruth Breckwith fékk þá ósk sína
uppfýllta að hitta Cliff Richard.
Skömmu síðar dó hún af krabba-
meini.