Tíminn - 09.10.1990, Blaðsíða 1

Tíminn - 09.10.1990, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990 - 194. TBL. 74. ÁRG.-VERÐ í LAUSASÖLU KR. 90,- Hagfræðingarnir, sem segja álver þjóðhagslega óhagkvæmt, enn í felum: Vei rður „Gli lOSl lUSl tei rs“ bei Mg legr lál sl kýi sl u? „Eins og að glíma við drauga“ , segir forstjóri Þjóðhagsstofnunar Skýrsla eftir ókunna hagfræðinga, unnin af ókunnum ástæðum, hefur orðið eitt helsta umræðuefni áhuga- manna um álmálið eftir að fréttastofa sjónvarps greindi frá efnisinnihaldi hennar á sunnudagskvöld. í skýrsl- unni er þjóðhagsleg hagkvæmni byggingar álvers með tilheyrandi virkjunarframkvæmdum stórlega dregin í efa og Þjóðhagsstofnun m.a. harðlega gagnrýnd fyrir mat sitt á áhrifum álvers á íslenskt efnahagslíf. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, segir erfitt að bregð- ast við þessari gagnrýni án aðgangs að greinargerð skýrlunnar eða höf- undum hennar. Þetta sé í raun líkara glímu við drauga, en rökræðu um áþreifanlega hluti. Tímanum er kunn- ugt um að á Þjóðhagsstofnun, í ráðu- neytum og raunar miklu víðar hafa menn verið að leita að huldumönnum þeim, sem skýrsluna gerðu, til að geta kveðið niður „draugaganginn“ og hafið rökræður um málið. í gærkvöldi hafði það ekki tekist, en aðspurður kvaðst forstjóri Þjóðhagsstofnunar ekki vita um hvort þörf væri á sér- stakri sveit draugabana (ghostbust- ers) í málið, þó vissulega væri það óvenjulegt. ______________• Blaðsíða 5 Farpresturinn á Seltjamarnesi segir Lions keppinaut Þjóðkirkjunnar: Biskupinn er í Lions • Opnan Landsbergis á Islandi Vytautas Landsbergis, forseti Æðsta ráðs Lithaugalands, kom í gær til íslands í boði Steingríms Her- mannssonar forsætisráðherra. Hann mun eiga viðræður við Steingrím Hermannsson og Jón Baldvin Hannibalsson um stuðning (slendinga við sjálfstæðisbaráttu Lithauga. Landsbergis sagði við komuna í gær að pól- itískur stuðningur íslendinga hafi verið og væri mjög þýðingarmikill og viðræður hans við íslensku ráðherrana myndu snúast um útfærslu á þessum Stuðningi. Tlmamynd: Pjetur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.