Tíminn - 09.10.1990, Page 4

Tíminn - 09.10.1990, Page 4
4 Tíminn 21. flokksþing ™ Framsóknarflokksins 21. flokksþing Framsóknarflokksins verður haldið á Hótel Sögu, Reykjavík dagana 16.-18. nóvember 1990. Um rétt til setu á flokksþingi segir í lögum flokksins eftirfarandi: 7. grein. Á flokksþingi framsóknarmanna eiga sæti kjörnir fulltrúar flokksfélaga. Hvert flokksþing hefur rétt til að senda einn fulltrúa á flokksþing fyrir hverja byrjaða þrjá tugi félagsmanna. Fulltrúar skulu þó aldrei vera færri en 1 fyrir hvert sveitarfélag á félagssvæðinu. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir. 8. grein. Á flokksþinginu eiga einnig sæti miðstjórn, framkvæmdastjórn, þingflokkur, formenn flokksfélaga og stjórnir LFK, SUF og kjördæmissambanda. Dagskrá þingsins verður auglýst síðar. Framsóknarflokkurinn. Skrifstofa Framsóknarflokksins hefur opnað aftur að Höfðabakka 9, 2. hæð (Jötunshúsinu) Sími91-674580. Opið virka daga kl. 9.00-17.00. Veriö velkomin. Framsóknarflokkurinn. Aðalfundur Framsóknarfélags V-Skaft. verður haldinn I Tunguseli fimmtudaginn 11. okt. kl. 21:00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing og flokksþing. 3. Onnur mál. Nýir félagar velkomnir. Stjómin. Siglfirðingar Almennur félagsfundur hjá framsóknarfélögunum á Siglufirði verður haldinn að Suðurgötu 4 miðvikudaginn 10. október 1990 kl. 20.30. Dagskrá: 1. Bæjarmál. 2. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing. 3. Önnur mál. Stjórnirnar. Frá SUF 2. fundur framkvæmdastjórnar SUF verður haldinn fimmtudaginn 11 október kl. 17.30 að Höfðabakka 9. Selfoss - Nágrenni Félagsvist verður spiluð að Eyrarvegi 15 kl. 20.30 2. október, 9. október og 16. október. Þriggjakvöldakeppni. Kvöldverðlaun. Heildar- verðlaun. Allir velkomnir. Stjórn Framsóknarfélags Selfoss. m REYKJAVÍK m Aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík verður haldinn á Hótel Sögu Átthagasal miðvikudaginn 17. októberoq hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Kl. 20:30 Setning Finnur Ingólfsson formaður. 2. Kl. 20:35 Kosning starfsmanna fundarins a) fundarstjóra, b) fundarritara. 3. Kl. 20:40 Skýrsla stjórnar a) formanns, b) gjaldkera, c) húsbyggingasjóðs. 4. Kl. 21:00 Umræður um skýrslu stjórnar 5. Kl. 21:20 Lagabreytingar 6. Kl. 21:30 Kosningar 7. Kl. 21:45 Tillaga um leið á vali frambjóðenda á lista framsókn- armanna fyrlr Alþingiskosningarnar 1991. 8. Kl. 23:00 önnur mál Stjórnin Þriðjudagur 9. október 1990 UTLOND Forsetakosningar í Póllandi: Baráttan harðnar í fréttum pólska sjónvarpsins á fimmtudag lýsti Tadeusz Mazo- wiecki forsætisráðherra því yfir að hann hefði ákveðið að bjóða sig fram til embættis forseta landsins, en forsetakosningar munu fara fram í Póllandi 25. nóvember nk. í ræðu sinni sagði hann m.a.: „Það verður að halda áfram og ekki snúa við á þeirri leið sem Pól- land hefur valið sér, leið sem miklu hefur verið fórnað fyrir síðast- liðið ár. Þeirri leið má ekki stofna í hættu. Það verður að halda áfram, betur, hraðar, öruggar, en eftir þessari leið og engri annarri. Það er nauðsynlegt fyrir Pólland, sem nú hefur mögu- leika á að gera sig gildandi í heimin- um og Evrópu, að halda núverandi stefnu. Stefna að viturri stjórn lands- ins, byggja á kristilegu verðmæta- mati, verða vingjarnleg og umburð- arlynd þjóð. Þjóð sem á gott samstarf við alla sína nágranna." Þessi yfirlýsing forsætisráðherrans hefur leitt það í Ijós að hann hyggst berjast gegn leiðtoga Samstöðu, Lech Walesa, sem þegar hefur hafið kosningabaráttu sína. Tálsmaður flokks lýðræðissinna kvað flokkinn fagna þessu framboði forsætisráðherrans. Hún sagði að fylgismenn framboðsins væru þegar byrjaðir að safna þeim 100 þúsund undirskriftum sem þarf til að fram- boðið öðlist gildi. Lech Walesa tilkynnti framboð sitt til forsetaembættisins þann 16. sept- ember, daginn áður en hann átti fund með erkibiskupi Póllands. Sam- stöðufélagar alls staðar í Póllandi af- hentu honum stuðningsyfirlýsingu Lech Walesa hefúr nú fengið keppinaut um embætti forseta Póllands. sína 3. október og hann hóf kosn- ingabaráttu sína á mánudag á fundi með kjósendum. í ræðu á aðalfundi Samstöðu sagði Walesa: „Það verður að skila þjóðinni því sem frá henni hefur verið tekið. Afhendum hverjum og einum 100 milljón zloty til að kaupa fyrir hús- næði eða atvinnutæki. Gefum Pól- verjum Pólland í stað þess að selja það Bandaríkjamönnum sem vilja loka 75% vinnustaða og reka fólkið." Aðalfundurinn sendi frá sér ályktun þar sem segir að kosningasigur Wa- lesa yrði hápunktur tíu ára baráttu fyrir frelsi og sjálfstæði, lýðræði og markaðshagkerfi í Póllandi. „Lech Walesa tryggir kröftugri og skilvirk- ari starfsemi ríkisins og á þessum erfiðu tímum þarfnast þjóðin hug- rekkis hans, framsýni og dugnaðar," segir í ályktuninni. Skömmu eftir að Mazowiecki til- kynnti framboð sitt átti hann fund með þremur fréttamönnum í sjón- varpssal. Hann sagði þar að ekki væri enn búið að ákveða valdsvið forseta því umræður um nýja stjórnarskrá færu ekki fram fyrr en að kosningun- um loknum og þá fyrst yrði tekin ákvörðun um hvernig embættinu yrði hagað. Kosningabarátta Lech Walesa bygg- ist á því að forsetaembættið verði valdamikið, sterkur forseti sem geti haft áhrif á gang mála meðal þjóðar- innar og leyst úr vandamálum henn- ar. Fylgismenn Mazowieckis líta aft- ur á móti á forsetann sem samein- ingartákn en ekki sem pólitískt virkt embætti. Mazowiecki hefur enn ekki lýst yfir afstöðu sinni til þessa. Sovétríkin: Sjóherinn fer um borö í skip grænfriðunga Sovéski sjóherinn réðst til upp- göngu í skip grænfriðunga sem voru að mótmæla því að fyrirhugað er að taka upp aftur tilraunir með kjarnorkuvopn á eynni Novaya Zemlya, að sögn baráttuhópsins. „Fimmtán vopnaðir menn af skipi, sem stjórnað er af KGB, hafa farið um borð í skip grænfriöunga á Bar- entshafi," sagði í tilkynningu frá grænfriðungum, og þeir bættu því við að þeir hefðu misst talstöðvar- samband við ms Greenpeace. „Þeir brutust inn í læstan fjar- skiptaklefa," sagði Lena Ag á skrif- stofu grænfriðunga í Stokkhólmi. Grænfriðungar í Moskvu munu vera að reyna að ná sambandi við yfirvöld þar vegna þessa atviks. Grænfrið- ungar eru reiðir og hneykslaðir vegna uppgöngunnar. Engar kjarnorkutilraunir hafa ver- ið framkvæmdar á Novaya Zemlya í að minnsta kosti ár en sovésk yfir- völd eru að velta fyrir sér að flytja tilraunir sínar þangað frá Kazakhst- an í Mið-Asíu, en þar hafa verið gíf- urleg mótmæli að undanförnu. í síðasta mánuði fór sovéski sjóher- inn um borð í skip norskra um- hverfissinna, sem nefna sig Bellona, þegar þeir voru að mótmæla við strendur Novaya Zemlya. Skipið var flutt til hafnar í Murmansk og þar var áhöfnin yfirheyrð áður en skip- inu var gefið fararleyfi. Sex af þrjátíu og átta manna áhöfn ms Greenpeace eru Sovétmenn. Tveir bandarískir læknar, Joseph E. Murray og E. Donnall Thomas, fengu í gær Nóbelsverðlaunin í Iæknisfræði fyrir þróun aðferða til líffæraflutninga. Karolinska stofnunin í Stokkhólmi tilkynnti að þeir myndu skipta á Skipið hefur verið í mótmælaleið- angri við Sovétríkin undanfarnar tvær vikur vegna fyrirhugaðra kjarnorkutilrauna á Novaya Zemlya. Ríkisstjórnir á Norðurlöndum hafa látið í ljós áhyggjur sínar vegna þessa og ótta við að geislavirk efni komist til landa þeirra. Novaya Zemlya er um 600 km norðaustur af Noregi. milli sín verðlaununum, sem nema fjórum milljónum sænskra króna, fyrir uppgötvanir sínar varðandi flutning á líffærum og vefum í bar- áttunni við sjúkdóma sem herja á mannkynið. Bandarískir læknar fá Nóbelsverðlaun fyrir líffæraflutninga w Persaflói: írakar loka flugvellinum í Kúvæt fyrir almennri umferð írakar hafa lokað fiugvellinum í Kúvæt fyrir almennri fiugumferð, að sögn yfirmanns hjá íraska flugfélaginu í gær. Hann sagði flugvellinum hafa verið lokað af tæknilegum ástæðum, en gat ekki sagt um hvenær almenn flugumferð var stöðvuð eða hvenær hún yrði tekin upp að nýju. Bandaríkjastjórn hefur leigt flugvél til að flytja konur og börn frá Kúvæt á morgun. Bandarískur sendifulltrúi sagði að sendiráði BNA í Bagdad hefði verið tilkynnt að þessi fyrirhugaða flug- ferð yrði að vera frá borginni Basra í suðurhluta írak en þar er alþjóðleg- ur flugvöllur. Hann bætti því við að ekki væri vitað hvort lokunin væri af öryggisástæðum eða í mótmæla- skyni. Fulltrúi íraska flugfélagsins sagði að félagið hefði flogið fimm til sex sinnum á dag til Kúvæt þar til vell- inum var lokað. Önnur flugfélög hafa ekki flogið til Kúvæt frá því innrásin var gerð þann 2. ágúst. Bandaríkjamenn hafa leigt flugvél hjá íraska flugfélaginu fyrir fólks- flutningana á morgun. Það verður fyrsta flug Bandaríkjamanna frá írak síðan 21. september. Fyrri fólks- flutningar Bandaríkjamanna hafa allir farið fram frá Kúvæt.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.