Tíminn - 09.10.1990, Qupperneq 8
Stólræður séra Guðmundar Arnar Ragnarssonar á Seltjarnarnesi vekja athygli. Menn eru ekki á eitt sáttir um innihald þeirra:
Nálastungulækningar og félög
utan kirkjunnar
hinu
„Ég sagði nú við einn mann, sem sagði að
presturinn væri búinn að dæma alla Lions-
menn út í ystu myrkur að hann yrði þá að byrja
biskupnum sínum, ég er nefnilega Lionsmað-
ur“, sagði Ólafur Skúlason biskup í gær. Ástæð-
an fyrir þessum ummælum biskups er sú að
séra Guðmundur Örn Ragnarsson farprestur,
sem þjónar á Seltjamamesi meðan að sóknar-
presturinn, séra Sólveig Lára Guðmundsdóttir,
er í bamsburðarleyfi, hefur í stólræðum sínum
sagt eitt og annað sem sóknarbömunum hefúr
ekki líkað alls kostar við.
Guðmundur hefur í ræðum sínum sagt öllu
kvakli stríð á hendur og hefur m.a. beint spjót-
um sínum að nálastungulækningum. Þá hefur
hann sagt að félagsstarfssemi sem ekki væri á
vegum kirkjunnar væri óæskileg og af hinu illa.
Einmitt þau ummæli hans hafa orðið til þess að
formaður Öryrkjabandalagsins hefur ritað
Biskupi íslands bréf þar sem m.a. er spurt hvort
túlka megi þessi ummæli prestsins sem skoðun
þjóðkirkjunnar.
Það stendur sem sagt stormur um prestinn á
Seltjamarnesi og í gær hélt biskupinn yfir ís-
landi fund á skrifstofu sinni með sóknamefnd-
inni á Seltjamamesi og prestinum, sr. Guð-
mundi. Hvort tekist hafi að ná sáttum eða að
hemja yfirlýsingagleði prests vitum við ekki,
þar sem fundarmenn vom allir þöglir sem gröf-
in um það sem fram fór á fundinum. Þá aftók sr.
Guðmundur með öllu að ræða við blaðamann
Tímans um málið.
Eftir umræddan fund í gær var rætt við biskup
íslands, hr. Ólaf Skúlason um þetta mál. Hann
sagði að sér virtist fólk taka það úr samhengi
sem séra Guðmundur Öm væri að segja og þess
vegna væri um þennan misskilning að ræða. í
sambandi við félagsstarfsemina hefði Guð-
mundur einfaldlega sagt að kirkjan ætti að vera
okkur nægjanleg bæði sem félagslegur vett-
vangur og trúarlegur og þá þyrftum við ekki á
öðm að halda, eins og t.d. þessum sérhópum,
svo sem Lionsklúbbum. Þetta hafi hann sagt og
þetta stæði hann við.
Biskupinn, hr. Ólafur Skúlason, sagðist sjálfur
vinna að kirkjulegum málefhum nótt sem nýt-
an dag. Engu að síður hefði hann mjög gaman
af því að hitta félaga sína í Lions aðra hverja
viku - „og ég tel mig jafn góðan kristinn mann
og áður“. Hann sagði að sr. Guðmundur hefði
að vísu sagt eitthvað í þessa vem, en átt við það
að fólk noti oft þessa klúbba og félög sér til af-
sökunar fyrir því að hafa ekki tíma fyrir kirkju
sína.
Fundur með sóknamefnd
Seltjamamess, prestinum og
biskupi í gær
Skoðanir Guðmundar hafa vakið mikla at-
hygli á Seltjamarnesi og í gær var haldinn áð-
umefndur fundur með sóknamefndinni, prest-
inum og biskupi fslands þar sem ræddar vom
skoðanir prestsins, ýmis ummæli hans í stól-
ræðum ásamt ýmsum breytingum sem gerðar
hafa verið á kirkjulegri þjónustu í sókninni.
Formaður sóknarnefridarinnar sagði eftir
fundinn að nefndarfólkið sækti reglulega styrk
til biskups og leiðbeiningar og þessi fundur
hefði verið haldinn í þeim tilgangi. Þau fari út af
þessum fundi með hans leiðbeiningar að vegar-
nesti og ætli að reyna að starfa áfram í kirkjunni
eins og þau hafi áður gert - fyrst og fremst
vegna trúar þeirra á Jesú Krist. Aðspurður um
það hvort skoðanir prestsins samrýmdust skoð-
unum sóknarnefndarinnar sagði einn nefndar-
manna að presturinn gæti ekki predikað svo
öllum líki.
Biskup íslands, séra Ólafur Skúlason, sagði eft-
ir fundinn að engin formleg kvörtun hefði bor-
ist út af ummælum prestsins eða embættis-
færslu. Því væri þó ekki að neita að það hefðu
rætt við hann menn sem bent hefðu á ýmislegt
sem þeim hefði fundist miður fara. „Ég hef rætt
við prestinn oftsinnis og við erum ágætis vinir
en erum ekki á sömu boðunarlínu á öllum svið-
um. Hann skilur mína afstöðu og tekur tillit til
hennar. Auðvitað hefúr prestur visst svigrúm í
sambandi við boðun og áhersluatriði en hann á
að fara eftir því sem boðað er í evangelísku-lút-
hersku kirkjunni sem er þjóðkirkja á íslandi og
93% íslendinga tilheyra," sagði biskup. Að-
spurður hvort það sem sr. Guðmundur prediki
samrýmist ekki lútherskum sið sagði Ólafur að
Eftir
Stefán
Eiríksson
viss áhersluatriði væru önnur hjá sr. Guð-
mundi, en ekkert hefði komið fram í samtölum
þeirra sem benti til þess að hann væri ekki ev-
angelísk- lúterskur og predikaði sem slíkur. Ól-
afur sagði að sóknamefndin stæði einhuga með
prestinum, þau hefðu sagt eins og hann að það
væru viss áhersluatriði sem þau hefðu gjaman
viljað að væru öðruvísi en þau meti hans boðun
og hans starf mikils.
Biskup sagði að ýmislegt væri að athuga við
þennan nýaldar-óhemjugang sem nú fengi að
vaða uppi. Svo væri komið að varla væri hægt
lengur að opna útvarp eða sjónvarp eða fletta
blöðum án þess að nýaldarmenn væm ekki all-
staðar að þenja sig. Ástandið væri orðið þess
eðlis, að hans áliti, að kirkjan yrði að vara fólk
við. Margtafþví, sem nýaldarmenn kenna, sam-
rýmist alls ekki því sem kirkjan sé að boða.
Biskup sagði að það væri býsna athugavert að
bera t.d á borð fyrir almenning indverska heim-
speki þar sem hverjum og einum er kennt að
hugsa um sjálfan sig framar öllu öðm, og betl-
arinn fyrir utan gluggann skipti engu máli.
Slíkum kenningum ætti íslensk þjóð alls ekki
að sinna, hvað þá heldur að gleypa við.
Nomaveiðar á
tuttugustu öld
Eins og áður sagði hefur Guðmundur beint
spjótum sínum gegn hug- og kvakllækningum
ýmis konar og hefur það mátt skiljast á honum
að Hallgrímur Magnússon, sem er læknir og
beitir nálastunguaðferðum við lækningar, sé
útsendari djöfulsins. Hallgrímur sagði í samtali
við Tímann að Guðmundur væri með ýmsar
kenningar um það að hann og kollegar hans
væri af hinu illa vegna þess m.a. að þeir stundi
ekki kirkju og fari ekki eftir útlistingum Guð-
mundar á biblíunni og þama væri því nánast
um nornaveiðar á tuttugustu öld að ræða. Hall-
grímur sagði að Guðmundur tilheyrði einhverj-
um sértrúarsöfnuði og að hann túlki í ræðum
sínum það, sem standi í biblíunni, langt um-
fram það sem þjóðkirkjan geri og sýni ekki eins
mikið umburðarlyndi og þjóðkirkjan, sem hún,
sem kristin kirkja, eigi að gera.
Hallgrímur sagði að þeir hefðu rætt um þess-
ar nálastungulækningar og Guðmundur héldi
því stíft og stöðugt fram að þær væru af hinu
illa. Hann hafi þau rök að þetta sé ekkert annað
en kínversk trúarbragðafræði sem liggi á bak
við nálastungumar og kínversk heimspeki sam-
ræmist ekki boðskap biblíunnar og þ.a.l. sé
þetta verk djöfúlsins því annað hvort ertu af
hinu góða eða hinu illa, „og þess vegna er ég út-
sendari djöfulsins", sagði Hallgrímur. „Það er
nú málfrelsi hér í landinu og því er manninum
heimilt að segja svona en þar sem hann er þjón-
andi prestur þá er þetta óneitanlega óviðkunn-
anlegt.“
Kirkjan hefur brugðist
að mörgu leyti
Hallgrímur sagði að Guðmundur teldi nýald-
arhreyfinguna einnig vera af hinu illa. Nýaldar-
hreyfingin hefði hins vegar komið fram fyrst og
fremst vegna þess að kirkjan hefði brugðist
hlutverki sínu. Margir hefðu ekki fundið sér
stað í kirkjunni vegna þess að kirkjan hafi ekki
getað tekið á móti því fólki. „Kirkjan vill ekki
sveigja sig eða breyta sér til þess að geta tekið á
móti þessu fólki og hún er ekki hinn andlegi
leiðari sem hún á að vera.“ Hallgrímur sagði að
ef maður túlkaði biblíuna með opnu hjarta að
þá væri þar að finna mikið til það sama sem ný-
aldarhreyfingin væri að boða, m.a. að kærleik-
urinn eigi að yfirvinna jörðina og kærleikurinn
sé mestur af öllu og þetta væri það nákvæmlega
það sama og stæði í biblíunni.
Fólkið í nýaldarhreyfingunni vill kannski ekki
ganga eins stíft ffam með það að þessi eini guð
sé sá rétti. Það vill meina að guð sé skapari alls
og það sé í rauninni sami guðinn þó svo hann sé
kallaður Guð faðir hér á landi en Allah í löndum
Múhameðstrúarmanna og í rauninni sé það að-
eins einn skapari sem sé á bak við alla jörðina.
Hins vegar sé indverska heimspekin mesta dell-
an í nýaldarhreyfingunni. „Kristin trúarsetning
er komin svo miklu lengra með því að mynda
kærleikann og gefa kærleikann til annarra, til
meðbræðra sinna, og með því að elska fólkið í
kringum þig að þá geturðu fyrst virkilega farið
að ná þér í meiri þroska. í indversku heimspek-
inni ertu alltaf að spekúlera í þér sjálfum og
engum öðrum. Indverjamir segja að þú sért
fæddur svona og þess vegna sértu fátækur eða
það sem þú ert og verðir þannig alltaf. Þetta er
þitt karma og út úr því getirðu ekki losnað“,
sagði Hallgrímur. —SE
, r,.|jp g| ý 1 |p|| '
I
IBHHBHflílilBflBHBBHBfiSflH
8 Tíminn
Þriðjudagur 9. október 1990
Þriðjudagur 9. október 1990
vTíminn 9